Morgunblaðið - 02.04.1987, Page 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ, VIDSKIPn/AlVINNULÍF FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987
Innflutningur
Breytingar á tollafgreiðslu
Tollstjórinn í Reykjavík leitar eftir tillögum og ábendingum viðskiptavina
Tollstjórinn í Reykjavík gengst
fyrir könnun meðal viðskipta-
vina embættisins, um þjónustu
þess. Þá er einnig leitað eftir tii-
lögum og ábendingum vegna
endurskipulagningar.
Framundan eru ýmsar breyting-
ar er varða tollafgreiðslu. Þær
munu á ýmsan hátt snerta við-
skiptamenn tollembætta eftir því
sem þær komast í framkvæmd. í
frétt frá fjármálaráðuneytinu segir
að ástæður þessara breytinga séu:
a) Ný tollalög.
b) Ný tollanafnaskrá (Harm-
onized System).
c) Niðurfelling áritunar banka
vegna tollafgreiðslu.
d) Tölvuvæðing tollafgreiðslu í
Reykjavík.
e) Ný aðflutningsskýrsla.
f) Tilfærsla á verkefnum frá
ríkisendurskoðun til tollstjór-
ans í Reykjavík.
g) Skipulagsbreytingar hjá toll-
stjóranum í Reykjavík.
Vegna ofangreindra breytinga
svo og hinna nýju verkefna sem
tollstjóranum í Reykjavík eru falin,
hefur verið ákveðið að enduskipu-
leggja starfshætti og skipulag.
Fjárlaga- og hagsýslustofnun ríkis-
ins hefur verið falið að veita aðstoð
við þessar breytingar.
Hver þáttur þessara breytinga
verður kynntur sérstaklega eftir því
sem þurfa þykir, svo sem með bækl-
ingum, námskeiðum, og kynningar-
og fræðslufundum í samráði við
hagsmunaaðila.
Einn liður í undirbúningi breyt-
inganna er könnun meðal viðskipta-
manna tollstjóraembættisins í
Reykjavík á þjónustu, auk þess sem
leitað er eftir ábendingum eða til-
lögum sem að gagni gætu komið
við endurskipulagninguna. Af þess-
um sökum liggur nú frammi á
afgreiðslustöðum embættisins í
Reykjavík sérstakt spurningablað,
þar sem viðskiptamönnum gefst
tækifæri á að koma á framfæri
ábendingum.
ÞJONUSTA —Tollskrifstofan hyggst endurbæta þjónustuna
og leitar eftir ráðum hjá viðskliptamönnunum.
Verslun
Gráfeldur fluttur
símakerfio
komið
ihnúP
Lausnin er auðveldarí en þig grunar
Nú býður Póstur og sími takmarkaðan fjölda af hinum viður-
kenndu Fox 16 símakerfum, sem eru sérhönnuð fyrir lítil og
meðalstór fyrírtæki.
Þú færð í einum pakka: Símakerfi
með 6 bæjarlínum, 16 innanhúss-
númerum og 12 skjátækjum á ótrú-
lega lágu verði: Aðeins 230.000. *
* Með söluskatti, takmarkað magn.
POSTUROG SIMI
Söludeild Rvk, sími 26000
og póst- og símstöðvar um land allt.
GRÁFELDUR hf. flutti nýlega í
nýtt og rúmbetra húsnæði að
Borgartúni 28 i Reykjavík.
í nýju versluninni verður sem
fýrr á boðstólum Lundia hillukerfið
ásamt öðrum einföldum og ódýrum
húsgöngum. Auk þess verður nú
lögð áhersla á Lundia-stálhillur og
hillur á hreifanlegum vögnum sem
njóta sívanxandi vinsælda í birgða-
og skjalageymslur, að því er segir
í frétt frá fyrirtækinu. Einnig mun
fyrirtækið verða með vörubretta-
hillur og nýja línu af finnskum
skrifstofuhúsgögnum.
Þá mun Gráfeldur nú selja hús-
gögn og gjafavörur í heildsölu til
verslana um allt land.
vókarínn
forrit
Fjárhagsbókhald
Viðskiptamenn — skuldunautar
Viðskiptamenn — lánadrottnar
Birgðabókhald
09
þ«9
»09*
Söluaðilar
EinarJ. Skúlason hf„ Grensásvegi 10, Reykjavík, s.: 686933
Rafreiknir hf„ Ármúla 40, Reykjavík, s.: 681011
Skrifstofuvélar hf„ Hverfisgötu 33, Reykjavík, s.: 20560
Atlantis, Skúlagötu 51, Reykjavík, s.: 621163
Heildi - Níels Karlsson, Steinbergi, Akureyri, s:. 96-25527
Rúnir
Skólavörðustíg 42,
101 Reykjavík, símar 91-22243 og 26282.