Morgunblaðið - 02.04.1987, Síða 13

Morgunblaðið - 02.04.1987, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, VTDSKDPTI/AIVINNULír FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987 B 13 Flug Harðnandi samkeppni FARGJALDASTRÍÐ flugfé- laga á N-Atlantshafsflugleið- inni á sýnilega enn eftir að harðna í sumar. Nú síðast hafa British Airways og British Caledonian tilkynnt að þau muni bjóða í sumar verulegan afslátt af svokölluðum „stand- by“-fargjöldum á flugleiðum þessara félaga milli Bretlands og Bandaríkjanna. London-New York fargjaldið mun lækka niður í 179 sterlings- pund eða í liðlega 11 þúsund krónur og er það tæplega 5.600 krónum lægra heldur en lægsta almenna fargjaldið á þessari leið. Þessi fargjöld eiga enn eftir að hljóta samþykki bandarískra loft- ferðayfirvalda og eru fyrst og fremst ætluð þeim farþegum sem koma á síðustu stundu, vilja ekki vera bundir af ákveðnum sérstök- um dagsetningum um heimferð og geta þar af leiðandi nýtt sér sæti sem ella væru auð. Samkeppni — Bresku flugfélögin ætla nú að hella sér út í fargjaldastríðið á Norður-Atlantshafsflugleiðinni. Murdoch kaupir Harper andRow FJÖLMIÐLAKÓNGURINN Ru- pert Murdoch skýrði frá því sl. mánudag að hann hefði sam- þykkt að kaupa bandaríska útgáfufyrirtækið Harper and Row Publishers Inc. og yfirbauð þar með tvö fyrri tilboð í hluta- bréf fyrirtækisins. Murdoch bauð 65 dollara á einingu eða 300 milljónir dollara samtals. Forráðamenn Harper and Row, sem er eitt elsta og virtasta bóka- forlag Bandaríkjanna með 170 ár að baki, hafa lýst yfir ánægju sinni með samkomulagið og munu mæla með því við hluthafa að ganga að þessu tilboði. Murdoch hefur af sinni hálfu kallað Harper and Row „ eitt hinum miklu útgáfufyrirtækj- um veraldarinnar". Fyrirtæki Linotype seltheima- mönnum LINOTYPE, v-þýska prenttækni- fyrirtækið, sem margir innan prentiðnaðarins hér á landi þekkja til, mun von bráðar skipta um eigendur. Það er Commerz- bank í V-Þýskalandi sem kaupir fyrirtækið af bandaríska fyrir- tækinu Allied Signal en bankinn mun síðar hafa í hyggju að bjóða út hlutabréf í fyrirtækinu á lilutabréfamarkaði heima fyrir. Engar upplýsingar um kaupverð eða skilmála hafa verið birtar enn sem komið er. Lynotype er annar stærsti framleiðandi mjög tækni- lega fullkominna setningartækja og skylds búnaðar fyrir prentiðnaðinn. Fyrirtækið er með alls um 2.100 starfsmenn innan sinna vébanda. Það jók veltu sína um 15% á síðasta ári í alls um 274 milljónir dollara. Þrátt fyrir nafnið er Linotype v-þýskt fyriirtæki og á rætur sínar að rekja til uppfinningar fyrstu Li- notype-vélarinnar fyrir 101 ári síðan. Um 23% af veltu fyrirtækis- ins eru upprunnin í V-Þýskalandi en fyrirtækið á einnig dótturfyrir- tæki í Bretlandi, Bandaríkjunum og Kanada. Forráðamenn Commerzbank segja að orðstír Linotype sem há- tæknifyrirtækis og jafn og stöðugur vöxtur þess yfír langt tímabil geri það að mjög álitlegum kosti fyrir þá sem stunda hlutabréfakaup. VANTAR ÞIG FJARMAGN IIL FJÁRFESFINGAR í ATVINNITIÆKJUM? Sé svo, bendum við á góða leið til lausnar - > fj ármögnunarleigu (leasing). Meðal kosta fjármögnunarleigu Glitnls M. eru: • 100% fjármögnun til nokkurra ára. • Viðstaðgreiðumseljandatækiðogkemur staðgreiðsluafsláttur þér til góða í lægri leigu. • Engin útborgun við afhendingu tækis. • Þægilegar mánaðarlegar leigugreiðslur. , • Óskertir lánamöguleikar hj á þínum viðskiptabanka. • Eitt símtal til okkar og á 48 klukkustundum getur þú leyst fjármögnunarvanda þinn. Glitnir M. Nýtt og öflugt fyrirtæki á íslenskum fj ármagnsmarkaði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.