Morgunblaðið - 02.04.1987, Page 16
16 B
MORGUNBLAÐH), VIÐSKHTI/XIVINNULÍF FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987
Fjármál heimilisins
Sparað skipulega
til eftirlaunaáranna
Ný þjónusta Verðbréfamarkaðar
Iðnaðarbankans hf.
m m Morgunblaðið/Júlíus
LIFEYRISBREF Kaupþing hf. bryddar upp á nýjung á íslenska fjármagnsmarkaðnum, í
samvinnu við Almennar Tryggingar hf. og Almennar Líftryggingar, svokölluð Lífeyrisbréf. Það er
Hávöxtunarfélagið sem gefur Lífeyrisbréfín úr. Myndin er tekin frá blaðamannafundi, sem haldinn var
þegar bréfín voru kynnt: (T.v.) Pétur H. Blöndal, framkvæmdastjóri Kaupþings hf., Ólafur Jón Ingólfs-
son, Almennum Tryggingum hf., Ari Amalds, formaður stjómar Hávöxtunarfélagsins hf., Magnús
Magnússon og Eggert Hauksson, stjómarmenn f Hávöxtunarfélaginu hf., Sigurður Þ. Guðmundsson,
Almennum Líftryggingum hf. og Davíð Bjömsson, forstöðumaður verðbréfaviðskipta Kaupþings hf.
Verðbréfamarkaður Iðnaðar-
bankans hf. tók upp f febrúar
síðastliðnum, nýja þjónustu við
þá sem vilja ávaxta fjármuni í
verðbréfum. í framhaldi af þessu
var fyrr í þessum mánuði byijað
■ að bjóða upp á umsjón með svo-
kölluðum, eftirlaunasjóði einka-
aðila.
Verðbréfamarkaður Iðnaðar-
bankans, kaupir og selur skuldabréf
og hlutabréf samkvæmt óskum eig-
enda verðbréfareiknings. Verð-
bréfaeignin er skráð á reikningin.
Starfsmenn Verðbréfamarkaðarins
sjá um að innheimta afborganir,
vexti og verðbætur af skuldabréfum
og fylgjast með arðgreiðslum af
hlutabréfum og útgáfu jöfnunar-
hlutabréfa. Þá er einnig séð um að
ráðstafa greiðslum af verðbréfum
eftir óskum reikningshafa þannig
að jafnan sé til reiðu fé á fyrirfram
ákveðnum tíma.
Verðbréfamarkaður Iðnaðar-
bankans, sendir eigendum verð-
bréfareikninga reglulega yfírlit, þar
sem koma fram hreyfingar frá
síðasta yfírliti og uppfærð verð-
bréfaeign. Þá er einnig sent sérs-
takt yfírlit út í lok ársins til að
auðvelda framtal til skatts.
Sérstakur bankareikningur í Iðn-
aðarbanka íslands á nafni reikn-
ingshafa er stofnaður og allar
peningagreiðslur vegna verðbréfa-
viðskipta renna um þennan reikn-
ing.
Eftirlaunasjóður
einkaaðila
Umsjón með eftirlaunasjóðum
einkaaðila, er aðstoð við fólk sem
vill leggja fyrir með skipulegum
hætti til eftirlaunaáranna og bæta
þannig við greiðslur úr opinbera
lífeyriskerfínu. Verðbréfamarkað-
urinn sér um að senda reglulega
giróseðla eða tilkynningar um
greiðslur eftir óskum hvers og eins.
Greiðslumar eru ávaxtaðar í verð-
bréfum og um leið er stofnaður
sérstakur verðbréfareikningur á
nafni eigandans. Þannig er mynd-
aður sérstakur verðbréfasjóður.
Eigandi eftirlaunasjóðsins er
líftryggður, ef hann óskar þess,
þannig að við fráfall hans, ábyrgist
eftirlaunasjóðurinn auk tryggingar-
innar erfingjum tiltekna fjárhæð.
í meðfylgjandi tölfu er sýnd upp-
söfnun mánaðarlegs spamaðar í 15
ár. Miðað er við að lagt sé til hliðar
5 þúsund krónur á mánuði. í öðrum
dálki er ekki reiknað með vöxtum,
en í síðasta dálki er sýnt hver upp-
hæðin verður miðað við gefnar
forsendur um vexti umfram verð-
bólgu. Eins og sést á þessu skiptir
miklu hver ávöxtunin er, en nú er
hún um 9%. Á meðfylgjandi súlu-
riti er sýnt hvemig höfuðstóll
hækkar miðað við 9% vexti auk
• '••ðtryggingar.
1',
Búist við lækkun
ávöxtunará verð-
tryggðum bréfum
KAUPENDUR og seljendur
verðbréfa virðast almennt búast
við því að ávöxtun verðtryggðra
skuldabréfa fari lækkandi.
Vegna þessa er ávöxtun slíkra
bréfa lægri en ávöxtun skulda-
bréfa til skemmri tíma.
Á meðfylgjandi línuriti, sem birt-
ist í tímaritinu Vísbendingu, sem
Kaupþing hf. gefur út, má glökkt
sjá þessa þróun. Halli vaxtalínu
verðtryggðra bréfa er neikvæður,
öfugt við línu óverðtryggðra verð-
bréfa. í fréttabréfí Kaupþings í
þessum mánuði er bent á að ástæða
þessa sé ótvírætt verðbólguáhætta,
sem fylgir óverðtryggðum eignum
en ekki verðtryggðum.
Ávöxtun á verðbréfamarkaði hef-
ur farið lækkandi á undanfömum
mánuðum. Auk fyrrgreindrar
ástæðu, er skýringa að leita í au-
kinni eftirspum eftir verðbréfum,
og ákvörðun um að hafa 6,5% vexti
af spariskírteinum ríkissjóðs hefur
einnig haft áhrif til lækkunar ávöxt-
unar.
Meísölublaó á hverjum degi!