Morgunblaðið - 07.04.1987, Síða 8
8 B
ÞRIÐJUDAGUR 7. APRIL 1987
UNGLINGAMEISTARAMOTIÐ A SKIÐUM
Ásta. Sara
og Amar sneru
heim gulli hlaðin
ÁSTA Halldórsdóttir, Sara
Halldórsdóttir og Arnar Braga-
son voru öll sigursæl á Ungl-
ingameistaramótinu á skíðum
í Hlíðarfjalli við Akureyri um
helgina. Stúlkurnar eru báðar
frá Isafirði, Ásta keppir í 15-16
ára flokki og Sara í 13-14 ára
flokki, en Arnar er frá Húsavík
og eríflokki 13-14 ára.
Þær Ásta og Sara gerðu sér lítið
fyrir og nældu í öll verðlaun
sem þeim stóðu til boða. Arnar
vann allt nema flokkasvigið — en
■■■■■§ segja má að hann
Skapti hafi bætt það upp
HaHgrímsson með því að taka við
skrifar. sigurlaunumí bikar-
keppni SKÍ, sem
afhent var í lokahófi mótsins í
gær, er Akureyrarbær bauð kepp-
endum og starfsmönnum í kaffi-
samsæti. Þess ber þó að geta að
þær stöllur Ásta og Sara unnu einn-
ig bikarkeppni SKÍ og fengu
viðurkenningar fyrir það afhentar
í gær einnig.
Veður var með ólíkindum gott
keppnisdagana, en reyndar varð að
fresta allri keppninni um heilan
sólarhring vegna veðurofsa fyrir
helgi. Á meðan keppnin stóð höfðu
menn svo á orði að fjallið væri al-
gjör Paradís.
Mótið fór í alla staði sérstaklega
vel fram. Aðstæður voru hinar
ákjósanlegustu eins og áður segir
og mótshald allt var Skíðaráði Ak-
ureyrar til mikils sóma. Keppendur
voru alls um 160 talsins og er
Unglingameistaramótið næst fjöl-
mennasta skíðamót sem haldið er
hér á landi. Hið fjölmennasta er
ekki langt undan og verður einnig
haldið á Akureyri — auðvitað Andr-
ésar-andar leikarnir.
í lokahófinu í gær afhenti fulltrúi
Skíðasambandsins sigurlaun í bik-
arkeppni SKÍ í vetur sem fyrr
greinir. Ásta og Sara frá Isafirði
unnu í bikarkeppninni í stúlkna-
flokkunum, sem fyrr greinir, Arnar
Bragason í flokki 13-14 ára pilta
og Olafur Sigurðsson varð bikar:
meistari í 15-16 ára flokki. í
norrænu greinunum varð Esther
Ingólfsdóttir, Siglufirði, bikarmeist-
ari í 13-15 ára flokki, Guðmundur
Óskarsson, Ólafsfirði, í flokki 13-14
ára pilta og Sölvi Sölvason í flokki
15-16 ára pilta.
Þá afhenti fulltrúi Skíðasambands-
ins, Jón Ásgeir Jónsson, Þresti
Guðjónssyni, formanni Skíðaráðs
Akureyrar, stóran skjöld sem þakk-
lætisvott fvrir glæsilegt mótshald.
ff
Búið að vera æðislegt'
„Þetta er búið að vera æðis-
legt. Ég er búin að vinna allt í
vetur í mínum flokki og átti al-
veg eins von á að vinna hér.
Ég hef yfirleitt verið mínútu eða
meira á undan næstu stelpum
í mark þannig að það kemur
mér ekkert á óvart að hafa
unnið hér,“ sagði Esther Ing-
ólfsdóttir frá Siglufirði, örugg-
ur sigurvegari í göngu íflokki
13—15 ára.
— Hvernig voru brautirnar á
mótinu núna?
„Þær voru mjög góðar. Með þeim
bestu sem ég hef komið í í vetur,
og færið var líka mjög gott.“ Esth-
er sagði einnig að mjög góð stjórn
hefði verið á mótinu að hennar
mati og allt hefði gengið mjög vel.
— Hvað æfirðu mikið?
„Ég æfi sex daga í viku og þá rúm-
an klukkutíma í senn. Á Siglufirði
er mjög góð aðstaða til æfinga og
góð þjálfun. Snjór hefur bara verið
of lítill í vetur nema nú undanfarið.
Það er það eina sem hefur verið
að.“ Esther sagðist ekki viss um
það hvort hún myndi keppa á
Landsmótinu á Siglufirði. Um fram-
haldið sagði hún: „Ég hleyp eitthvað
í sumar ef ég nenni til að vera í
góðri æfingu í haust.“ Hún sagðist
hafa æft sund auk skíðagöngunnar
en hefði hætt því í fyrra. Þó sagð-
ist hún reikna með að byija í
sundinu á nýjan leik nú í vetur.
Guðmundur einnig sigursæli
„Ég átti ekkert frekar von á að
vinna, við erum 3-4 sem erum jafn-
ir, en ég hef þó oftast borið sigur
úr býtum. Hef reyndar unnið öll
mótin í vetur,“ sagði Guðmundur
Óskarsson frá Ólafsfirði. Hann er
14 ára og gerði sér reyndar lítið
fyrir í gær og sigraði í 15-16 ára
flokki með hefðbundinni aðferð.
Fékk undanþágu til að keppa flokk
upp fyrir sig og vann. „Mér datt
ekki í hug að ég myndi vinna Sölva
Sölvason frá Siglufirði," sagði
hann. Guðmundur sagðist ánægður
með mótið að öllu leyti, allt hefði
farið vel fram, en brautirnar hefðu
verið erfíðar að hans mati.
Ólafur Sigurðsson:
Stefni á verðlauna-
sæti á Landsmótinu
Ólafur Sigurðsson frá ísafirði er hér í svigkeppninni
„ÉG stefndi að því að vinna
tvöfalt en það gekk ekki upp.
Ég veit ekki hvað klikkaði, Vil-
helm var bara betri en ég í
stórsviginu," sagði Ólafur Sig-
urðsson, sem sigraði í svigi
15-16 ára drengja.
Olafur sagði alla keppendur
hafa æft frekar lítið að und-
anfömu þar sem veður hefði verið
slæmt. „Eg held ég hafí því einfald-
lega ekki haft þrek til að vinna
almennilega upp úr beygjunum -
gat ekki tekið nógu mÞessum knáa
Isfirðingi hefur gengið vel í vetur.
„ Við ísfirðingar misstum af punkta-
mótinu hér á Akureyri um daginn
vegna veðurs en á öðrum mótum í
vetur hef ég alltaf sigrað utan einu
sinni. Þá varð ég númer tvö - og
reyndar datt ég einu sinni!“ sagði
hann.
Ólafur sagði um svigkeppnina:
„Brautimar voru nokkuð erfiðar og
krefjandi. Ég átti eina sekúndu á
næsta mann eftir fyrri ferðina en
seinni brautin var mjög hröð og ég
mátti því ekkert gefa eftir. Hefði
ég farið að hægja eitthvað á mér
til að keyra af meira öryggi hefðu
þeir átt góða möguleika á að ná
mér. Ég varð því að keyra vel.“
Ólafur sagðist keppa næst í
Reykjavík um næstu helgi, í karla-
flokki, og síðan fer hann á Lands-
mótið - keppir í fullorðinsflokki. „Ég
var líka á Landsmótinú í fyrra og
stóð mig best allra úr unglinga-
flokkunum held ég, lenti í níunda
sæti í stórsviginu.“
- Gerirðu þér vonir um góðan
árangur á Landsmótinu?
„Já, að minnsta í stórsvigi. Ég er
með lélegt startnúmer í sviginu
þannig að ég starta seint og á því
minni möguleika þar. En ég starta
örugglega snemma í stórsviginu og
þar stefni ég á verðlaunasæti!"
sagði Ólafur.
’
1j*
A fullri ferð
Ásta Halldórsdóttir frá ísafirði vann tvöfall
helgina. Á stærri myndinni er hún í stórsvigi
er ungur keppandi með nýjasta höfuðfat skíð
á höndum og fótum.