Morgunblaðið - 07.04.1987, Side 11

Morgunblaðið - 07.04.1987, Side 11
/IÞROTTIR ÞRÆUUDAGUR 7. APRÍL 1987 B 11 SUNDAFREK Sundfólkið á uppleið íslandsmet falla á hverju sundmóti Eðvarð Þór og Ragnheiður í fremstu röð ikill uppgangur hefur verið í sundíþróttinni hér á landi á síðustu árum eftir að sundið hafði verið í öldudal um nokkra ára skeið. Nú eru ekki haldin mót öðruvísi en að fjöldi íslandsmeta eru sett. Áhuginn er mikill víða um land og þá sérstaklega á Suðumesjum og á Vestfjörðum og er gífurlega öflugt starf unnið á þess- um stöðum. Sund- sambandið er einnig stórhuga samfara þessum góða ár- angri og reynir að skapa sundfólkinu verðug verkefni á erlendum vettvangi. Eðvarð Þór Eð- varðsson, íþrótta- maður ársins 1986, er gott dæmi um framúrskarandi af- reksmann. Hann er Þar hefur verið unnið ótrúlegt starf hjá foreldrum krakkanna og stjórnum sunddeildanna, þótt aðstaðan _ sé ekki sú besta í heimi. Á Ísafírði er aðeins tæp- lega 17 metra löng laug og Slgri fagnaö Að bakt góðum afrekum í sundfþróttirmi liggja þrot- lausar æfingar. Það tekur tíma að ná langt en þá þarf að hafa biðlund. iðinn við æfingar og sýnir þeim stendur það ekki sundliðinu fyr- yngri gott fordæmi með reglu- semi og einstaklega góðri framkomu og er verðugur full- trúi sundfólksins. Hann ofmetn- ast ekki af afrekum sínum og heldur ótrauður áfram og stefnir hátt. Hann er nú einn af tíu bestu sundmönnum heims í að- algrein sinni, baksundi, og ef svo heldur áfram sem horfir nær hann enn lengra. ir þrifum. Sundfólkið þarf að skipuleggja tíma sinn vel til að geta stundað þessar miklu æfíngar jafnframt því að vera í skóla. Afreksfólkið hefur sannað það að sundæf- ingarnar koma ekki niður á náminu. Þau verða einfaldlega að skipuleggja tíma sinn betur til að samræma þetta tvennt svo vel sé. Ragnheiður Runólfsdóttir hefur sýnt það og sannað að hún er að komast í fremstu röð í bringusundinu. Hún hefur sett yfir 100 íslandsmet á ferlinum þó hún sé aðeins 20 ára gömul. „Það er hægt að setja íslands- met svo framalega sem maður hefur trú á því að maður geti það,“ sagði hún í samtali við Morgunblaðið eftir íslandsmótið í sundi um helgina. Þessi orð segja margt um þrautsegju þessa íþróttafólks og hvert það stefnir. Sundsystkinin úr Þorlákshöfn, böm Hrafnhildar Guðmunds- dóttur sem var ein besta sundkona íslands hér á ámm áður og Ólafs, hafa látið mikið að sér kveða. Systumar, Bryndís og Hugrún, keppast við að bæta met hvorrar annarrar. Bróðir þeirra, Magnús Már, hefur verið einn besti sundmaður okkar og eru þau öll í framför. Vestfírðingar hafa lagt mikla rækt við sundið og þá sérstak- lega ( Bolungarvík og á Ísafírði. Það er meira sem liggur að baki en ástundun keppnisfólksins eingöngu. Bakhjarlinn verður að vera góður. Þjálfarar og stjómir viðkomandi deilda verða að styðja vel við bakið á afreks- fólkinu. Foreldrar taka virkan þátt í þessu og hvetja sund- fólkið til dáða. Uppbyggingin er unnin út í félögunum og síðan kemur sundsambandið inní og skipuleggur æfíngar og keppnis- ferðir fyrir landsliðið. Sundaðstaðan er ekki upp á það besta á mörgum stöðum en þetta unga afreksfólk hefur sannað að hægt er að ná langt með þrotlausum æfingum og upp- skera eftir þvf. Sviti og tár falla oft en þegar takmarkinu er náð hverfur það í skuggann fyrir árangrinum sem stefnt hefur verið að iengi. Það er svo sannarlega bjart framundan hjá sundfólkinu okk- ar. Styðjum við bakið á þeim. Valur B. Jónatansson KÖRFUBOLTI / NBA Chicago Bulls og LA Lakers LEIKUR kvöldsins er viðureign efsta liðs deildarinnar, Lakers, gegn Chicago með hinn óvið- jafnanlega Michael Jordan innanborðs. Það eru margir búnir að bíða eftir að sjá Jordan í leik, og víst er að fáir verða fyrir vonhrigðum. Þessi stiga- hæsti maður deildarinnar, sem jafnframt er „troðkóngur11 árs- ins, er næstum því óstöðvandi í sóknarleik sínum og skorar á mjög fjölbreytilegan hátt. Vandamálið er, að hann fær ekki næga hjálp frá meðspilur- um sínum og hættir því oft til þess að reyna of mikið. Aðrir bakverðir liðsins eru þeir John Paxson og Sedale Thre- att, sem nýbúið er að kaupa frá Philadelfíu. Þá ber að nefna Steve Colter, sem gæti hjálpað þeim sem leikstjómandi. Mið- heijar era þeir Dave Corzine og þykja þeir ekki líklegir til stórafreka. Chicago seldi sinn besta framhetja, Orlando Woolridge, til New Jersey og kom það mjög á óvart, en Charles Oak- ley er leikmaður, sem vert er að fylgjast vel með. Mikill frákastari og á eflaust eftir að sýna miklar framfarir. Þá keyptu þeir efnilegan nýliða, Brad Sellers frá Ohio State- háskólanum. Þjálfari þeirra er enginn annar en Doug Collins, sem gerði garðinn frægan með Philad- elphia fyrir nokkram áram, lék þar m.a. með Dr. J. Lið Los Angeles Lakers þarf vart að kynna, svo mikið hefur verið rætt og ritað um þá á undanförnum áram. Þar ber auðvitað hæst Ervin Magic Johnson, bakvörðinn snjalla, og konung miðherjanna, Kareem Abdul — Jabbar, sem nú leikur sitt síðasta tímabil. Aðrir leikmenn era ekki af verri endanum, James Worthy, geysifljótur framheiji, sem skorar mikið í hveijum leik, vinnu- hesturinn Kirk Rambis og nýja stjaman þeirra, A.C. Green, sem er að verða aðal frákastari liðsins. Þá era ónefndir þeir Byron Scott og Michael Cooper bakverðir, sem skora mikið á hinn fjölbreytilegasta hátt og auk þess er Cooper álitinn einn besti vamarleikmaður deildar- innar. Þjálfari þeirra er Pat Riley og það era ekki margir, sem geta státað sig af þeim árangri, sem hann hef- ur náð á undanförnum áram. Lakers stefna ákveðnir á meistara- titilinn í ár og undirritaður á mjög erfitt með að koma auga á það lið, sem getur stöðvað þá. Wes Unseld einn leikmanna Chicago Bulls á fullri ferð. Karffa Einar Bollason skrifar H V E R Adögunum sáum við hveijir vora nr. 11-15 í vali tímarits í Bandaríkjunum um bestu körfu- knattleiksmenn frá upphafi. Nú litum við á þá sem urðu í sætum 6-10 en á næstunni sjáum við svo hveijir voru valdir sem 5 bestu leik- menn allra tíma. 10: Dr. J. Julius Winfield Erv- ing II, eins og hann heitir fullu nafni, nær aðeins 10. sæti í þessu vali og kemur það ýmsum á óvart. Þessi litríki leikmaður, sem gerði „troðið“ að listgrein, hyggst nú leggja skóna á hilluna eftir þetta tímabil. Hann hefur helst verið gagnrýndur fyrir of fá fráköst og ekki nógu góðar sendingar. En hann þarf þó svo sem ekki að kvarta mikið — einn af 10 bestu körfuknattleiksmönnum allra tíma er ekki svo léleg einkunn. 9: Elgin Baylor sem lék með L.A. Lakers 1959—1973 hefur haft meiri áhrif á nútíma körfuknattleik en margir gera sér grein fyrir. Hann var fyrsti framheijinn, sem E R B E ekki aðeins réð yfir góðu stökk- skoti, heldur líka braust í gegn, tróð, gabbaði varnarmenn upp úr skónum og drottnaði yfír fráköst- um. Já, það era margir framheij- arnir í dag, sem eiga sér aðeins eitt átrúnaðargoð: Elgin Baylor. 9: Kareem Abdul — Jabbar, miðheiji L.A. Lakers, leikur nú sitt síðasta tímabil og munu margir sakna hans, en engir þó eins og Lakers. Hann hefur skorað ca. 38.000 stig á ferlinum, unnið NBA bæði með Milwaukee og L.A. La- kers og sveifluskotið hans fræga er viðurkennt óstöðvandi. Einna helst hefur hann verið fyrir slaka hirðingu frákasta. 7: Jerry West bakvörður L.A. Lakers á áranum 1960-1974 er nú framkvæmdastjóri liðsins og á ör- ugglega sinn stóra þátt í velgengni þess. Hann er af mörgum talinn hinn fullkomni bakvörður og víst er að margir myndu hafa hann í efsta sæti í þessu vali. Þrátt fyrir góðar sendingar og vamarleik er S T U R ? hann þó frægastur fyrir skoranar- hæfíleika. Mörg árin var hann með yfír 30 stig að meðaltali í leik og þegar hann hætti 35 ára var hann með 20 stig í leik. Hann gekk und- ir gælunafninu „Mr. Clutch" vegna þess hve oft hann skoraði úrslitak- örfur á lokasekúndum leiksins. Frægust allra er þó karfan hans frá miðju, sem tryggði Lakers aukaleik um meistaratitilinn gegn Boston, sem Celtics þó unnu. Jerry West er goðsögn í Los Angeles og fyrir- mynd manna eins og Magic, Álvin Robertsson o.fl. 6: Magic Johnson er enn einn leikmaðurinn frá Lakers á listanum okkar í dag og þarf víst ekki að kynna hann fyrir aðdáendum körfu- boltans. Töframaður með boltann, harður frákastari, leikstjómandi og skorari og á eflaust enn eftir að sýna okkur ýmislegt. Það er erfítt að fínna einhvetjar veikar hliðar á Magic og víst er að margir urðu bálreiðir yfír því að hann varð ekki ofar. FRJALSAR IÞROTTIR Góður árangur Sigurðar ÞRÍR íslendingar kepptu á frjálsíþróttamótinu Texas Relayes í Austin um helgina með misjöfnum árangri. Sig- urður Matthíasson, UMSE varð í þriðja sæti, kastaði spjóti 73,76 metra, sem er persónu- legt met hans og þriðji besti árangur íslendings í greininni frá upphafi. Sigurður kastaði spjóti 71,10 metra á móti um síðustu helgi og var því ánægð- ur með árangurinn nú. Hann keppti fyrir Alabamaháskóla. á kastaði Unnar Garðarsson, HSK spjótinu 66,30 metra, en hann kastaði 68,34 m í Laugardaln- um fyrir skömmu. Unnar dvelur nú í æfingabúðum Frá Vésteini ásamt Einari Vil- Hafsteinssyni hjálmssyni, en þeir lAlabama Einar og Sigurður Einarsson tóku ekki þátt í mótinu. Eggert Bogason, FH keppti í kringlukasti, en tókst ekki vel upp. Hann kastaði kringlunni 54,42 metra og lenti í Qórða sæti, en það er talsvert frá hans besta árangri 62,42 metram, sem hann kastaði í fyrra. Þá var sett Norðurlandamet á mót- inu, þegar Svíinn Dag Wennlund kastaði nýja spjótinu 82,64 metra og setti þar með sænskt met og Norðurlandamet.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.