Morgunblaðið - 07.04.1987, Síða 16
3W®rjpmWsiS>í§>
SUND / ISLANDSMOTIÐ INNANHUSS
Fimmtán íslandsmet
IKu dagsins Ijós
ALLS voru 15 íslandsmet sett á
íslandsmótinu innanhúss í sundi
sem fram fór í Sundhöll Reykjavíkur
um helgina. Ragnheiður Runólfs-
dóttir, IA og Eðvarð Þór Eðvarðs-
son, UMFN, unnu bestu afrek
mótsins. Ragnheiður sett fimm ís-
landsmet, Eðvarð Þór Eðvarðsson
og Hugrún Ólafsdóttir, HSK, settu
þrjú met og Bryndís Ólafsdóttir,
HSK, tvö. Kvennasveit Vestra setti
íslandsmet í 4 X100 metra fjór-
sundi og kvennasveit HSK setti
íslandsmet í 4 X100 m skriðsundi.
Alls tóku 120 keppendur þátt í
mótinu frá 14 félögum.
Ragnheiður var í sérflokki í þeim
greinum sem hún tók þátt og sama
er hægt að segja um Eðvarð Þór. Ragn-
heiður setti fyrst íslandsmet í 200 m
bringusundi í undanrás-
um, synti á 2.36,03 mín.
og bætti eldra metið sem
hún átti sjálf um eina
sekúndu og bætti svo um
betur í úrsltunum er hún bætti það um
1,5 sekúndur. Hún bætti síðan metið í
100 m baksundi um 0,16 sekúndur í
undanrásum og enn í úrslitum um 0,24
sekúndur. Loks bætti hún íslandsmetið
í 100 m bringusundi kvenna um 1,21
sekúndu.
Eðvarð Þór lagði aðaláhersluna á
bringusundið á þessu móti og setti þar
þrjú íslandsmet. í 100 m bringusundi
synti hann á 1.04,60 mín. í undanrásum
og bætti fyrra metið um hálfa sekúndu.
Í úrslitum gerði hann enn betur og synti
á 1.04,40 mínútum. í úrslitum í 200 m
bringusundi synti hann á 2.18,55 og
bætti eldra metið um 2,38 sekúndur.
Hugrún Ólafsdóttir, HSK, setti þijú
íslandsmet. Hún setti fyrst glæsilegt
íslandsmet í 800 m skriðsundi er hún
synti á 9.09,61 mínútum og bætti eldra
metið, sem hún átti sjálf, um tæpar 10
sekúndur. Hún setti síðan stúlknamet í
200 m flugsundi, synti á 2.24,09 mínút-
um og bætti eigið met um 0,16 sekúndur.
Loks setti hún Islandsmet í 400 m skrið-
sundi er hún synti á 4.23,00 og bætti
eldra met systur sinnar, Bryndísar, um
0,31 sekúndu. Bryndís synti einnig und-
ir íslandsmetinu í þessu sundi, 4,23,02
mín.
Bryndís Ólafsdóttir, HSK, setti tvö
íslandsmet. Fyrst í 100 m flugsundi
kvenna er hún synti á 1.04,79 mínútum
og bætti eldra metið sem systir hennar,
Hugrún , átti um 0,70 sekúndur. Bryndís
setti síðan íslandsmet í 100 m skrið-
sundi er hún synti á 57,20 sekúndum í
boðsundinu fyrir HSK.
Eðvarð Þór Eðvarðsson:
Samkvæmt
áætlun
„ÞETTA var samkvæmt áætlun
hjá mér. Ég lagði aðaláhersl-
una á bringusundið sem er
aukagrein hjá mór og það skil-
aði sér,“ sagði Eðvarð Þór
Eðvarðsson um árangur sinn á
mótinu.
Eðvarð setti þijú íslandsmet í
bringusundinu og náði einnig
góðum árangri í baksundinu sem
er hans aðalgrein. Hann varð fjór-
faldur Islandsmeistari í baksundi
og bringusundi.
„Það kom mér á óvart hvað tíminn
í 100 metra baksundinu var góður.
Um næstu helgi keppi ég í Skot-
landi en stærsta mótið á árinu er
Evrópumeistaramótið sem fram fer
í Frakklandi í ágúst.“
Landsliðið í sundi Mor9unblaM/RAx
íslenska landsliðið i sundi sem tekur þátt í móti í Skotlandi um næstu helgi var valið eftir mótið á sunnudaginn. Lands-
liðið stilltí sér upp fyrir myndartöku. Þau eru: Magnús Már Ólafsson, HSK, Birgir Öm Birgisson, Vestra, Kristinn
Magnússon, SH, Amþór Ragnarsson, SH, Ingólfur Amarson, Vestra, Hannes Már Sigurðsson, UMFB, Ragnar Guð-
mundsson, Ægi, Helga Sigurðardóttir, Vestra, Bryndýs Ólafsdóttir, HSK, Ragnheiður Runólfsdóttir, ÍA, Ingibjörg
Amardóttir, Ægi, Þuríður Pétursdóttir, Vestra, Pállna Bjömsdóttir, Vestra, Hugrún Ólafsdóttir, HSK, Þórunn Guðmund-
sóttir, Ægi og Martha Jörundsdóttir, Vestra. A mynni myndinni eru þau Ijögur sem settu 15 íslandsmet á mótinu.
Frá vinstri: Biyndís og Hugrún Ólafsdætur, Ragnheiður Runólfsdóttir og Eðvarð Þór Eðvarðsson.
Ragnheiður Runólfsdóttir:
Setti f imm
íslandsmet
„ÉG átti alvegeins von á að
setja þessi íslandsmet. Þó kom
það mér á hvað ég bætti mig
mikið í baksundinu," sagði
Ragnheiður Runólfsdóttir, ÍA,
aðspurð um hvort hún hafi átt
von á svo mörgum íslandsmet-
um á mótinu.
Ragnheiður setti alls 5 íslands-
met og var óheppin að setja
ekki það sjötta þar sem hún var
10 sekúndum undir gildandi ís-
landsmeti í undanrásum í 400 m
íjórsundj, en gerði ógilt. Hún kom
of seint úr kafi í startinu, en það
má aðeins taka eitt sundtak í kafi.
„Ég hef æft mjög vel fyrir þetta
mót. Æfi alla daga vikunnar nema
sunnudaga og lyfti alla daga. Ég
æfi með Njarðvíkingum þar sem
aðstaðan er mjög góð en keppi fyr-
ir Akranes," sagði Ragnheiður sem
er 20 ára og segist eiga mörg ár
eftir í sundinu og vafalaust á hún
eftir að setja enn fleiri íslandsmet,
en hvað hefur hún sett mörg met
á ferlinum?
„Ætli þau séu ekki farin að nálgast
100. Það er hægt að bæta íslands-
metin svo lengi sem maður hefur
trú á því að það sé hægt.“
Ragnheiður segist stefná á að kom-
ast á næstu Olympíuleika og ætti
það ekki að vera fjarlægur draumur
ef svo heldur áfram sem horfir.
GETRAUNIR
1 X 1
2X1
X 2 1
1 2 X
LOTTO
4 11 23 27 32