Morgunblaðið - 12.04.1987, Síða 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987
PASKA MALTIÐ
„Þegar hann var 12 ára gamall, fóru þau upp til Jerúsalem á páska-
hátíðinni, en sveinninn varð eftir er þau sneru heim á leið og vissu
foreldrar hans það eigi, því að þau ætluðu að hann væri með sam-
ferðafólkinu. Þau leituðu hans en fundu ekki og sneru þá aftur til
Jerúsalem.
Og það var ekki fyrr en eftir þrjá daga, að þau fundu hann í helgi-
dóminum, þar sem hann sat mitt á meðal lærimeistaranna og gerði
hvort tveggja að hlýða á þá og spyrja þá. En alla sem heyrðu til hans,
furðaði á skilningi hans og andsvörum."
Af sveininum unga, sem hér er sagt frá, eru svo engar sagnir
næstu 15 árin. Hvort hann hefur farið um lönd og álfur og aflað sér
dýpstu sanninda í musterum þeirra, eða unnið hljóður og íhugull við
hefilbekkinn hjá föður sínum í Nasaret, má liggja milli hluta. Hvort
heldur sem var, olli þáttaskilum í mannheimum. Jóhannes skírari hafði
boðað komu hans með þeim orðum. „Ég skíri yður að vísu með vatni,
en sá kemur, sem mér er máttkari, og er ég ekki verður að leysa
skóþveng hans; hann mun skíra yður með heilögum anda og eldi.“
Allt gekk það eftir, sem Jóhannes sagði. Orð Jesú í samkomuhúsinu
í Nasaret gengu líka eftir. „Sannlega segi ég yður, enginn spámaður
er velmetinn í landi sínu.“ — En sambandið sem Jesús hafði komið
á, rofnaði ekki, heldur styrktist og varð sýnilegt með orðum hans á
krossinum. „Faðir, fyrirgef þeim, því að þeir vita ekki hvað þeir gjöra."
Eins og forðum daga er sveinninn ungi fór með foreldrum sínum
upp til Jerúsalem á páskahátíðinni fara foreldrar um þessar mundir
með börnum sínum til kirkjunnar í sinni heimabyggð til þess að vera
viðstödd er þau fermast, staðfesta skímarheit sitt.
Það var fýrir fimmtíu ámm, að drengur úr afdal var fermdur fyrir
vestan. Efni vom rýr á heimili hans, en móðirin náði þó að sauma ný
föt á hann. Um langan veg var að fara til kirkju, og var farið gang-
andi. Á heimleiðinni að fermingu lokinni var þeim boðin hressing á
bæ, sem þau áttu leið fram hjá. Gömul kona gekk með þeim til dyra og
er þau kvöddust lagði hún 5 krónur í lófa drengs. Fyrir utan fötin
var þetta eina fermingargjöfín, sem hann fékk, því vænna þótti honum
um þessa gjöf gömlu konunnar, eftir því sem árin liðu. Það er vandi
að gefa. Þá sem nú var boðið til veislu, væri þess kostur, en þær
veislur sem við höldum í dag í tilefni fermingar em með allt öðm móti
og þær gjafir sem bömum em gefnar, hafa líka breyst, enda hafa
kjör manna batnað mikið. Margt hefur verið rætt um þetta tilstand
og sýnist sitt hveijum. Aðalatriðið er sá hugur sem fylgir gjöfinni og
það að gleðjast með fermingarbaminu og fjölskyldu þess.
Ýmist em haldnar kökuveislur eða matarveislur í tilefni fermingar.
í tveimur síðustu þáttum hafa birst uppskriftir af tertum og smárétt-
um sem henta á fermingarborðið, en nú líður að páskum, og því birtist
hér fjórréttuð páskamáltíð. Að sjálfsögðu má nota þessa rétti í ferming-
arveisluna.
Gleðilega páska!
258 Konungur lífsins kemur hér bil sala,
kveður til fylgdar börnin jaríardala,
undan þeim fer hann, friSarmerkið ber hann;
frelsari er hann.
^ rr.fr.
Bakað eggjahlaup
með grænmeti
(Forréttur handa 8.)
6 stór egg,
2 tsk. turmerik (gurkemeje),
1 lítil ferna kaffirjómi (1 peli),
'/8 tsk. ljós pipar,
'/8 tsk. múskat,
1 tsk. salt,
500 g soðið grænmeti, t.d. blóm-
kál, gulrætur, sprotakál (brokk-
oli),
blaðlaukur og snittubaunir,
20 grænar ólífur,
nokkur salatblöð,
6—8 tómatar,
væn grein steinselja.
1. Þeytið eggin vel, setjið kaffi-
ijóma, turmerik, pipar, salt og
múskat út í.
2. Sjóðið grænmetið, skerið í
frekar litla bita, hellið á sigti og
látið renna vel af grænmetinu.
3. Setjið grænmeti út í eggja-
hræruna.
4. Skerið ólífumar í sneiðar og
setjið út í eggjahræruna.
5. Smyijið aflangt álmót, klæð-
ið það síðan að innan með
bökunarpappír. Þrýstið honum vel
ofan í feitina sem þið smurðuð
mótið með.
6. Hellið eggjahrærunni í mótið.
7. Hitið ofninn í 160°C. Setjið
álmótið ofan í skál með heitu vatni
og bakið í ofninum í U/2 klst.
Setjið lok eða álpappír yfir mótið
meðan það er að bakast. Gott
getur verið að baka þetta í steik-
ingarpotti. Gætið þess að vatnið
fljóti ekki yfír álmótið. Það má
ekki ná lengra upp en rúmlega
að miðju.
9. Þrýstið örlítið ofan á miðju
álmótsins og athugið, hvort eggja-
massinn er ekki alveg stífur. Ef
svo er ekki, þarf að baka þetta
lengur.
10. Hvolfið úr mótinu, takið
bökunarpappírinn af, látið kólna
á kökugrind.
11. Raðið salatblöðum á fat,
skerið eggjahlaupið í þykkar
sneiðar og raðið ofan á salat-
blöðin.
12. Skerið tómatana í báta og
leggið meðfram eggjahláupinu.
13. Leggið steinseljugreinar
ofan á hlaupið.
Milliréttur.
(Milli forréttar og aðalréttar.)
Þessi réttur er úr nýútkominni bók
minni „220 gómsætir ávaxta- og
berjaréttir".
Appelsínukrap
(Sorbet)
(Handa 8)
3 dl flórsykur (150 g),
3 dl vatn,
4 appelsínur + börkur af einni,
safi úr 1 sítrónu + börkur af ann-
arri,
3 pelar freyðivín,
2 eggjahvítur,
4 msk. Grand Marnier-líkjör.
1. Sjóðið saman sykur og vatn,
þar til það þykknar.
2. Rífið sítrónu- og appelsínu-
börkinn og setjið út í.
3. Skerið hveija appelsínu í
tvennt þversum. Takið kjötið úr
þeim, en gætið þess að skelin
haldist heil.
4. Metjið allan safa úr app-
elsínukjötinu. Setjið hann út í
sykurlöginn. Kælið.
5. Hellið freyðivíninu út í. Setj-
ið í frysti. Hrærið öðru hveiju í
þessu meðan það er að ftjósa.
Þetta á ekki að harðfijósa.
6. Þeytið eggjahvíturnar og
hrærið varlega saman við ísinn.
7. Setjið krapið í appelsínuskelj-
amar.
8. Hellið Grand Marnier-Iíkjöri
yfir með skeið.
9. Berið strax á borð.
Aðalréttur.
Þessi uppskrift er úr bók
minni „220 ljúffengir lamba-
kjötsréttir".
Lambshryggrir með
negul, beikoni, eplum
ogtómötum
(Handa 4—5)
1 hryggur, u.þ.b. 2 kg með bein-
um,
1 tsk. salt,
‘A tsk. nýmalaður pipar,
>/2 tsk. negull ofan á kjötið,
2 tsk. sinnep,
5 beikonsneiðar,
6 meðalstórir tómatar,
3 epli, helst súr,
'/t tsk. negull til að strá yfir eplin,
100 g ijómaostur án bragðefna,
1 tsk. soðteningsduft eða 1 súput-
eningur.
1. Nuddið salti, pipar og negul
inn í hrygginn, smyijið hann síðan
með sinnepi.
2. Hitið ofninn í 160°C. Setjið
hrygginn í steikingarpottinn eða
skúffuna úr ofninum og steiking-
arpappír yfir. Steikið kjötið í 80
mínútur. Ausið soðinu, sem mynd-
ast, öðru hveiju yfir.
3. Skerið eplin í tvennt, takið
kjarnann úr þeim. Stráið negul
yfir skurðflötinn á eplunum. Setj-
ið síðan eplin og tómatana
meðfram kjötinu 0g steikið áfram
í 30 mínútur.
4. Harðsteikið beikonið á
pönnu, myljið það síðan milli fíng-_
urgómanna.
5. Takið hrygginn úr steiking-
arpottinum, setjið á grind.
Hitið glóðarristina eða setjið
ofninn á 220 °C. Látið kjötið
brúnast í 10 mínútur, slökkvið á
ofninum, setjið kjötið á eldfast
fat, eplin og tómatana meðfram.
Stráið beikoninu yfir hrygginn.
Setjið kjötið í ofninn. Hafíð hurð-
ina opna. Látið standa þannig í
10 mínútur.
6. Hellið soðinu í pott, fleytið
ofan af því fítuna. Setjið soðten-
ingsduft saman við. Hrærið
ijómaost út í.
Meðlæti: Soðnar kartöflur,
gulrætur og grænar baunir. Gott
er að bera soðið rósakál með
þessu.
Eftirréttur.
Þessi réttur er líka úr bók minni
„220 gómsætir ávaxta- og beija-
réttir".
Rúsínur og epli í
súkkulaðiskeljum
(Handa 10)
10 stórar eða 20 litlar súkkulaði-
skeljar, (fást tilbúnar),
3 dl rúsínur,
1 dl romm,
2 epli,
V2 pk. makrónukökur (100 g),
1 peli ijómi.
2. Setjið rúsínurnar í krukku
ásamt romminu, hristið krukkuna
öðru hveiju. Þetta þarf að gerast
nokkrum klukkutímum fyrir notk-
un.
2. Takið frá makrónukökur jafn
margar og súkkulaðiskeljarnar.
Myljið hinar örlítið með hnefanum
og skiptið jafnt í skeljarnar.
3. Afhýðið eplin, stingið úrþeim
kjamann, rífið síðan gróft á rif-
jámi, setjið eplin ofan á makrónu-
kökumar. Skiptið síðan rúsínun-
um í kmkkunni jafnt yfír. Hellið
romminu líka saman við ef eitt-
hvað er eftir. Látið standa í 1—2
klst.
4. Þeytið ijómann og sprautið
yfír, stingið einni makrónuköku í
hveija skel.
Umsjón; KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞOKKELSSON