Morgunblaðið - 12.04.1987, Qupperneq 14
14 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987
Slökkviliðsmenn
í Reykjavík:
Vilja fella
nýgerðan
kjarasamning
STARFSMENN slökkviliðsstöðv-
arinnar í Reykjavík hafa skorað
á aðra starfshópa í Starfsmanna-
félagi Reykjavíkur að fella
nýgerða kjarasamninga félags-
ins við borgina, en atkvæða-
greiðsla um samningana fer
fram næstkomandi mánudag og
þriðjudag. Segjast þeir áskilja
sér allan rétt til að gera þær
ráðstafanir sem þurfa þykir til
að ná fram sjálfsögðum og eðli-
legum kröfum um leiðréttingar,
að því er fram kemur í ályktun
fundar starfsmanna, sem haldinn
var nú í vikunni. A slökkviliðs-
stöðinni starfa tæp 80 manns, en
félagar í Starfsmannafélagi
Reykjavíkur eru hálft þriðja þús-
und.
í ályktuninni, sem samþykkt var
samhljóða, segir ennfremur: „Þrátt
fyrir þó nokkra lagfæringu á launa-
stiga samningsins og öðrum
minniháttar atriðum sjáum við okk-
ur ekki annað fært en greiða
atkvæði á móti þessum samningi.
Astæður þessarar ákvörðunar eru
fyrst og fremst þær að samkvæmt
nýjum samningsréttarlögum sem
tóku gildi í desember s.l. er gert
ráð fyrir að um einn kjarasamning
sé að ræða þar sem kröfur ein-
stakra starfshópa um leiðréttingar
séu teknar til afgreiðslu. Það er
hins vegar skoðun okkar að þessi
samningur sé eingöngu miðaður við
vanda borgaryfirvalda við að halda
opnum sjúkrastofnunum, en sinni á
engan hátt vandamálum annarra
borgarstofnanna og starfsmanna
þeirra. Þar sem ekkert tillit er tek-
ið til sjálfsagðra og eðlilegra krafna
einstakra starfshópa varðandi leið-
réttingu um röðun í launaflokka
þrátt fyrir að auðvelt sé að finna
samanburð bæði á hinum almenna
vinnumarkaði, hjá ríkinu og hinum
ýmsu sveitarfélögum. Og að hann
innsigli ennfrekar en verið hefur
það sjónarmið að Starfsmannafé-
lagi Reykjavíkur beri áfram titilinn:
„Lægst launaða félag opinberra
starfsmanna í landinu“.“
FIMM GÖMSÆTIR
SJAVARRÉTTIR!
Nú getur
þú vafið
f mm
gomsæt
s avar-
rétti
MARSKA
SKELJAGRATIN
RÆKJUBÖKUR
RÆKJURÚLLUR
SJAVARRÉTTUR
MORNAY
OG HIN
SfGILDA
SJAVARRÉTTABAKA
Tónleikar á ísafirði
í vor, en hún hefur kennt við Tón-
listarskóla Mosfellssveitar síðastlið-
in fjögur ár. Á efnisskránni voru
fimm verk. Fimm prelúdíur eftir
ísfirska tónskáldið Hjálmar Helga
Ragnarsson var fyrst á dag-
skránni. Björk lék þessi fimm
gjörólíku verk af tækni og áræðni
og sýndi að hún býr yfir ögun og
vilja til að takast á við áhugaverð
verkefni. A-moll sónata Carls Ph.
E. Bach hljómaði undurfagurt úr
flautu Kristrúnar Helgu og var
gaman að fylgjast með hvemig
Sörensen lifði sig inn í flutninginn.
En auðvitað var gamli kennarinn
hennar mættur á hljómleikana til
að fylgjast með hvemig nemandan-
um hafði fleygt fram. Eftir hlé lék
Björk sálmaforleikinn Slá þú hjart-
ans hörpustrengi úr kantötu nr. 147
eftir Johann S. Bach af tilfinningu
og innlifun. Á sama veg fór með
Veiðiferðina eftir Paganini í píanó-
útsetningu Liszts.
Að lokum léku þær saman Rim-
embranze Napoletane eftir Gio-
vanni Paggj. Náðu þær góðum
samleik og mátti finna birtu vorsins
í Fantasíunni og í seinni kaflanum
þema og tilbrigði hljómuðu kveðjur
til heimafólksins sem í tónleikalok
fögnuðu þessum ungu listamönnum
ákaft. Léku þær aukalög áður en
þær vom bókstaflega kaffærðar í
blómum og fagnaðarlátum áheyr-
enda.
Úlfar
Björk Sigurðardóttir og Kristrún Helga Bjömsdóttir héldu tónleika
á ísafirði en það var liður í undirbúningi lokaprófs þeirra sem tón-
listarkennarar.
ísafirði.
ÞAÐ var einhver Iifandi eftir-
vænting og tilhiökkun sem lá í
loftinu í samkomusal Gmnnskóla
ísafjarðar fimmtudaginn 26.
mars sl. Líkt og vorið væri kom-
ið og söngur fyrstu farfuglanna
fyllti loftið. Þær vom komnar
heim til æskustöðvanna stöllum-
ar Björk Sigurðardóttir og
Kristrún Helga Bjömsdóttir til
tónleikahalds, eftir skólavist í
Reykjavík. Þær era nú að und-
irbúa lokapróf sitt sem tónlistar-
kennarar og em tónleikarnir
liður í þeim undirbúningi.
Björk hefur stundað nám í píanó-
leik frá 6 ára aldri. Hún lauk námi
frá Tónlistarskóla Ísaíjarðar 1982
og hafði þá verið síðustu 7 árin
undir handleiðslu Ragnars H. Ragn-
ar. Síðan stundaði hún píanó-
kennslu við TÍ einn vetur, en hélt
þá til Reykjavíkur þar sem hún
hefur numið við Tónlistarskólann í
Reykjavík og hefur aðalkennari
hennar verið Halldór Haraldsson.
Kristrún flutti til ísafjarðar 12
ára gömul og hafði hún þá numið
hjá Jóni Sigurbjömssyni hjá Bama-
lúðrasveit Reykjavíkur. Hún lærði
á flautu hjá Erling Sörensen þau
fjögur ár sem hún dvaldi hér. Eftir
stúdentspróf í Reykjavík hóf hún
aftur nám í flautuleik og var aðal-
kennari hennar Bemharður Wilkin-
son. Hún lýkur blásarakennaraprófi