Morgunblaðið - 12.04.1987, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 12.04.1987, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987 B r 15 Páskakaka og súkkulaðitíglar Bergljót Ingólfsdóttir Súkkulaðikökur á páskum í hugum margra eru páskar og súkkulaði nátengd enda hafa súkkulaðipáskaegg lengi verið búin til hérlendis. En þeir sem ekki gæða sér á páskaeggi gætu ef til vill þegið að fá súkkulaði- köku í staðinn. Hér koma nokkrar uppskriftir af slíku bakkelsi. Páskakaka 4 egg 270 gr sykur 200 gr bráðið smjörlíki 240 gr hveiti 4 tsk. lyftiduft 2 dl sýrður tjómi eða súrmjólk rifinn börkur af 2 sítrónum 3 msk. sítrónusafi 100 gr suðusúkkulaði Egg og sykur þeytt vel saman, kældu smjörlíkinu bætt saman við. Hveiti með lyftidufti því næst sett út í og settur sýrður tjómi (eða súrmjólk), sem aðeins er hrærður áður og síðast sítrónu- börkur, sítrónusafi og gróft rifið súkkulaðið. Kakan bökuð í ca. 45 mín. í einu formi (skemur ef sett er í tvö) við 170°C. Súkkulaðikrem 50 gr smjörlíki (eða smjör) 300 gr flórsykur 3 msk. kakó 2 tsk. vanillusykur 5 msk. sterkt, kalt kaffi Venjulegt hrært krem. Kremið sett á milli og yfir líka skreytt með mandarínubátum. Súkkulaðitíglar 3 egg 375 gr púðursykur 250 gr hveiti V2 tsk. salt 2 tsk. lyftiduft 300 gr smjörlíki 100 gr suðusúkkulaði 2 dl brytjaðar hnetur (má sleppa) Egg og sykur hrært vel saman, þurrefnunum bætt út í. Súkkulaði og smjörlíki brætt og sett saman við ásamt brytjuðum hnetum. Deigið sett í ofnskúffu eða í form, 30x35, og bakað neðst í ofni í u.þ.b. 30 mín. við 170 °C. Kakan skorin í stykki þegar hún er orðin köld. Súkkulaðikaka 100 gr smjörlíki 170 gr sykur 170 gr hveiti 3 egg 1 dl mjólk 4 tsk. kakó 2 tsk. vanillusykur 2 tsk. lyftiduft Smjörlíki og sykur þeytt sam- an, örlítið af hveiti sett út í, síðan eggin. Þurrefnin og mjólkin sett saman við til skiptis. Deigið sett í eitt eða tvö form, bakað í ca. 45 mín. (eitt form) við 150°C. Krem 50 gr smjörlíki eða smjör 150 gr flórsykur 1 lítið egg 2 msk. kakó 2 tsk. vanillusykur Smjörlíkið brætt og hinu hrært saman við. Kremið sett á milli laganna og einnig yfir. Metsölublað á hverjum degi! Bío-vítamín Bío-vftamfnin eru byggð á vísindaleg- um rannsóknum. enda orðin mest seldu vítamínin á Norðurlöndum og viðar ( Evrópu. • Bio-Selen + Zink hefur hjálpað gigt- veikum, styrkir hjarta og blóðrásarkerf- ið, mjög gagnlegt fullorðnu fólkl. Verð 30 daga skammtur kr. 460, 90 daga skammtur kr. 995. • Bio-Chrom hefir reynst sykursjúkum vel og þeim er hafa of litinn sykur í blóð- inu, kemur jafnvægi á sykurinnihald blóðsins. Eina lífræna Chrom-vítaminið á markaðnum, verð 60 daga skammtur kl. 1.275. • Bío-Glandin-25, sterkasta gamma- línolíusýran á markaðnum, hjálpar gigtveikum og styrkir ónæmiskerfið, verð 60 daga skammtur kl. 1.285. • Sölustaðir: Árbmjarapótek, Holts- apótek, Kornvörumarkaðurinn, Mosfellsapótek, Garðabæjarapótek, Apótek Seltjarnarnes, Ingólfsapótek. • Bfo-Selen umboðið. Sendum í póstkröfu út á land. P.O.Box - 10154, 110 Reykjavfk, Sfmi 91-76610. Ég kýs Sjálfstæðisflokkinn vegna þess að forystumenn hans taka af áræði og skyn- semi á málefnum Islendinga. Gunnar Hauksson, verslunarmaður Á RÉTTRI LEIÐ ... X-D 1. Hemlar, mikilvœgt öryggistœki Vissir þúað hemiar eru mikilvægasta öryggistæki bíisins?Það erþví hreinasta tillitsleysi gagnvart öðru fólki í umferðinni efekki erhugsað um að hemlabúnaðurinn sé ávalltí fullkomnu lagi. 2.Léleg hemlun stóraukin slysahœtta Börn að leik, ungir og aldnir vegfarendur eða fjölskyldan á ferða-lagi í bílnum. Allt hugs- anleg fórnarlömb umferðar- slysa. Auðvitað vill enginn verða valduraðslysi. Ábyrgðinerþín. Velyfirfarið hemlakerfi ásamt árverkni bílstjórans erein besta tryg- gingin gegn óhöppum í um- ferðinni. A H‘X 3.Hemlakerfi eru mismunandi og hemlavarahlutir eru misgóðir Diskahemlar, skálahemlar eða aflhemlar, það ermis- munandi hvað hentarhverri bílategund, og þeireru mis- góðir varahlutirnirsem bíl- eigendum bjóðast. Verðið segir ekki allt um gæðin. Við hjá Stillingu ábyrgjumstað hverbíltegundfáiþá varahluti sem henta best. Við seljum original hemlahluti sem bifreiða- framleiðendurmæla með. 4.Áralöng reynsla kemur til góða Með aukinni tækni hefur hemlabúnaðurbifreiða og annarra ökutækja orðið flókn- ari enjafnframt öruggari. En það kemur ekki í veg fyrir reglulegteftirlit. ViðhjáStillinguerumsér- fræðingar íöllum gerðum hemlabúnaðarog eigum hemlavarahluti í allargerðir bifreiða. Við aðstoðum bíl- eigendur við kaup og eftirlit með hemlakerfi bílsins eins og við höfum gert síðastliðin 25 ár. Þúgeturtreystá reynslu okkar. 5. Merkið tryggir gœðin Þú færð hemlavarahluti i versluninni eða á verkstæð- inu hjá okkurí Skeifunni 11, en einnig á yfir300stöðum um allt land sem versla með varahluti eða veita verkstæð- isþjónustu fyrir bifreiðar. Það segir nokkuð um gæði þeirra hemlavarahluta sem viðhjá Stillingu bjóðum þér. Við merkjum varahluti okkarsér- staklega, tilaðtryggjaþér ákveðin vörugæði. Vertu viss um að varahluturinn sem þú biður um sé með gæðastimpli Stillingar, þá ertu með góðan hlutíhöndunum. Sérverslun með hemlahluti OlStilling Skeifunni 11 Símar 31340 og 82740 wm

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.