Morgunblaðið - 12.04.1987, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 12.04.1987, Qupperneq 24
24 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987 félk í fréttum Hópurinn sem hélt norður, að Kristbjörgu Hjaltadóttur frátaldri, en hún tók myndina (fremsta röð fr. h.): Guðrún, Gunnilla, Elísa- bet, Þórunn og Hildur; (miðröð) Auður, Guðrún, Hanna, Bryndís, Auðbjörg og Konný; (aftast) Lára, Jóna, Valdís og Ósk. eyrar. Þetta hefði verið gert fyrir skömmu og heppnast svo vel að ákveðið hefði verið að Akureyrin- gamir kæmu suður í keppnisferð áður en langt um liði. í Akureyrar- ferðinni hefði ýmislegt verið sér til gamans gert, þær hefðu borðað saman fyrsta kvöldið á veitinga- staðnum „Fiðlaranum" og séð svo sýningu Leikfélags Akureyrar á „Kabarett“ sem hefði verið mjög góð. A öðrum degi, sem var laugar- dagur, hefði verið farið á skíði í Hlíðarfy'alli í yndislegu veðri og síðari hluta dags síðan keppt við heimakonur. Akeureyringar hefðu sigrað í A-riðli, en Reykvíkingar í B- og C-riðli. Um kvöldið hefði ve- rið farið í „Sjallann“. Á sunnudags- morgninum var skíðasvæðið í Hlíðarfjalli lokað vegna veðurs, svo konumar fengu sér góðan göngutúr um bæinn og eftir hádegi hefðu svo nokkrar þeirra komist á skíði þar sem veðrið skánaði. Um kvöldið héldu þreyttar en ánægðar konur heim á leið, ákveðnar í að taka vel á móti norðankonunum þegar þær héldu suður yfir heiðar. son því hlutverki í vetur. Margar þeirra létu sér þetta ekki nægja og væru þar að auki í aukatímum. í gegn um árin hefði þessi hópur brallað ýmislegt. Árshátíðir hefðu verið haldnar, þar sem boðið hefði verið upp á heimatilbúin skemmtiat- riði og efnt til happadrættis með góðum vinningum til að afla fjár til að standa undir ýmsum kostn- aði. Á einni slíkri árshátíð hefðu konumar skorað á eiginmennina að keppa við þær í badminton og hefði sú keppni farið fram skömmu síðar og tekist mjög vel. Reyndar orðið til þess að nokkrir karlanna, er ekki höfðu spilað badminton, áður fengu bakteríuna, leigðu sér sal, fengu sér kennara og hefðu spilað síðan. í janúar sl. hefði farið fram hjónakeppni sem 15 pör tóku þátt í, veitt hefðu verið verðlaun og ágætar veitingar eins og tíðkað- ist hjá hópnum þegar keppt væri. Konurnar hefðu tekið þátt í firmakeppni á vegum TBR og í einni slíkri hefðu þær hitt konur frá Akureyri og þá hefði sú hugmynd fæðst að fara í keppnisferð til Akur- Á skíðum í Hlíð- arfjalli. Sigurvegaramir: (fremri röð, frá hægri) Guðrún og Jakobína, Akur- eyri; (aftari röð fr. h.) Guðrún, Konný, Hanna og Þórunn, Rvk. Hluti kvenna- hóps- ins er mætti í „Sjallan- um“. Eldhressar badmíntonkonur S.O.S. - Spaði og spyma, er hópur 28 eldhressra kvenna sem í 5 ár hefur æft saman badmin- ton og fór nú fyrir skömmu í ferðalag tii Akureyrar þar sem þær kepptu m.a. við heimakonur. Elísa- bet Guðmundsdóttir, ein þessara kvenna sagði blaðamanni Morgun- blaðsins að Garðar Alfonsson, er verið hefði kennari hjá Tennis- og Badmintonfélagi Reykjavíkur (TBR), hefði hvatt konurnar til að halda hópinn og hefði hann staðið fyrir sérstakri kvennakeppni innan TBR til að stappa í þær stálinu. Þær leigðu nú salinn í TBR-húsinu allan ársins hring, einu sinni í viku, 2 tíma í einu og spiluðu á öllum völlunum fimm. Bráðnauðsynlegt væri að góður þjálfari stjómaði leik hópsins og gegndi Jóhann Kjartans- Myndarlegir feðgar Bandaríski kvikmyndaleikarinn Kirk Douglas hlaut á mánudag sérstök heiðursverðlaun frá bandarísku leiklistarakademíunni (The American Academy of Dramatic Arts) fyrir framlag sitt til leiklistar. Við það tækifæri var þessi mynd af honum og fjórum sonum hans tekin, frá hægri: Eric, Michael, Kirk, Joel og Peter Douglas. Reuter

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.