Morgunblaðið - 12.04.1987, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 12.04.1987, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987 B 35 Umsjón: Árni Matthíasson PEOPU Of THt WMIO Af reggae Fyrir nokkrum árum var sem regaetónlist, sem fyrst og fremst er trúartónlist rastaf- aritrúarmanna frá Jamaica, væri búin að festa sig í sessi í Bretlandi og æ fleiri spiluðu hana. Hér á Islandi voru það Utangarðsmenn sem einna helst fiktuðu við reggae en einnig heyrðust reggaelög frá mörgum öðrum. Fremstur allra reggaehljóm- listarmanna var Bob Marley, en hann fléttaði saman pólitíska og trúarlega texta og var frábær lagasmiður. Marley lést úr krabba 1981 stuttu eftir að hafa gefíð út sína bestu plötu, Upris- ing. Eftir það var eins og vindurinn færi úr reggaetónlist- inni a.m.k. hvað varðaði markað- inn í Bretlandi og Bandaríkjun- um. Annað sem hjálpaði til við að draga úr vinsældum reggae- tónlistar var sú árátta tónlistar- mannanna að reykja stöðugt hass, sem er reyndar hluti af trúarhefð rastafarimanna. Þessi stöðuga hassneysla gerir síðan tónlistarmennina smám saman steingelda tónlistarlega og reggaetónlistin verður að innan- tómum takti með óskiljanlegum textum. Bob Marley komst hjá þessu og annar sem það gerir er Winston Rodney, sem er allt í öllu í hljómsveitinni Buming Spear. Bumig Spear, sem nefnd er eftir viðurnefni Jomo Kenyatta, leiðtoga Kenya, gaf út fyrstu plötu sína 1975, plötuna Marcus Garvey, sem er ein af bestu reggaeplötum allra tíma. 1977 var Winston Rodney orðinn einn eftir í hljómsveitinni og segja má því að allar plötur undir nafni sveitarinnar upp frá því séu sóló- plötur og svo er einnig með pj^una People of The World, sem kom út síðla árs 1985, tíu árum á eftir Marcus Garvey. Tónlistin hefur breyst, eins og búast mátti við, hún er orðin fyllri og þéttari og hljóðgerflar heyrast af og til. Ein mesta breytingin er þó í textunum. A Marcus Garvey bar eðlilega mik- ið á trúarlegum textum, með dáleiðslukenndum takti á bak við. Einna best small allt saman í lögum eins og Marcus Garvey, Old Marcus Garvey, Slavery Days og Resting Place. I stað trúarlegu textanna um Haile Selassie og Marcus Garvey, er farið að bera á textum um nauð- syn samstöðu kynþátta heimsins og baráttu gegn kúgun og að- skilnaðarstefnu. Best tekst það í lögunum People of the World, We Are Going og Built this City. Greinilegt er að hassið er ekki búið að kæfa allt vit í Winston Rodney eins og í svo mörgum öðrum reggaetónlistarmönnum. BORNfNG SP£AR ari, Kamla Sabir. Hápunktur kvöldsins var enda dúett hans og Leo. Wes Brown er rúmlega fyrsta flokks bassaleikari og Þorsteinn Magnússon sýndi ótrúlega takta. Ekki ætla ég að fjölyrða um trompetleik Leo, enda óþarfi, en gaman var að heyra hann syngja, eða réttara sagt kyrja, trúarljóð. Vonandi sjá fleiri sér fært að láta reyna aðeins á hugsunina næst þegar Leo kemur til landsins. Á Bretlandi biðu menn þessarar skífu með nokkurri eftirvæntingu, því að á tónleikum þótti téður Julian lofa góðu. Réði framkoma hans e.t.v. nokkru um, en Julian hefur gaman af því að syngja lög sín standandi uppi á þartilgerðri stöng, sem hann klifrar upp eftir. Tónlist Julians Cope er fyrst og fremst venjulegt og klárt rokk og meira að segja fjári gott. Öll lögin, án undantekninga, eru prýðilega samin og þar sameinast fallegar melódíur og góð rokkriff. Hljóðfæraleikur er allur hreinn og beinn og verið í því að koma til dyranna eins og menn eru klædd- ir. Ekki verður við heilagan Júlíus skilið án þess að nefna hina ágætu texta hans, en margir þeirra eru til hreinnar fyrirmynd- ar þó svo að ekki séu allir sammála höfundi. A.M. Rétti hluturinn! ★ ★ ★ ★ Já, þeir félagar í Simply Red hafa ætíð verið svolítið sérstak- ir í sínum lagaflutningi. Nýj- asta plata þeirra „Men and woman" tilheyrir þeirra hefð- bundna stíl vel. Hún á í senn Morgunblaðið/Ámi Sæberg Stjörnu- gjöf ★ ★★★★: Fyrsta fiokks, keyptu hana. ★ ★ ★ ★: Ekki gallalaus, hugsaðu málið. ★ ★ ★: Fáðu hana lánaða. ★ ★: Nærri vonlaus. ★ : Gleymdu henni. ★ : Rusl. skemmtileg, kraftmikil og ein- stök lög sem og hundleiðinleg og illa leikin. Verð ég þó að segja að meirihluti laganna falli undir jákvæða þáttinn. Platan stendur undir heiti því svo sannarlega fjalla textarnir um ýmis samskipti milli karls og konu. Eldheitar rísandi nætur í laginu „The right thing“ og ein- manalegar stunur skilnaðar í ' laginu „Maybe someday. . . “ Það er hinn bráðhuggulegi rauð- haus Mick Hucknall sem leiðir lögin með sinni skarpri rödd. Aðr- ir í Simply Red eru Chris Joyce, Tony Bowers, Tim Kellett, Fritz Mcintyre og lestina rekur Sylvan. BRY N’Da. F.v.: Þor- steinn Magn- ússon, Leo Smith, Kamal rr Sabir á bak við tromm- urnar og Wes Brown. Á ba- kvið sveitina má sjá fánaliti rasta- manna °g c Eþíópíu reynd- ar líka, rauðan, gulan græn- an. Leo þakk- ar Haile Enn er Leo Smith búinn að koma til íslands og halda tón- leika, vart er hægt að kalla hann annað en íslandsvin, enda langar hann að koma hingað í leyfi, án þess að fá borgað fyr- ir. Leo Smith leikur ekki tónlist sem nýtur almennra vinsælda, a.m.k. ekki á íslandi. Það mátti sjá á aðsókninni, en ekki mættu nema rúmlega hundrað manns til að sjá tónleikana. Erfitt á ég þó með að trúa því að ekki séu á íslandi nema hundrað manns sem reiðubúinn er að hlýða á tónlist sem þarf hugsunar við. Á bak við sviðið hékk fáni rastamanna, líkt og á tónleikum hjá Bob Marley, rauður, gulur og grænn. Hljómsveitin N’Da var afbragðsgóð, enda engir aukvisar, en einna mesta hrifningu vakti ungur trommu- og slagverksleik- Plötudómar Excelsior ★ ★ ★ ★ ★ The Godfathers er ein þess- ara nýju bresku hljóinsveita sem ætla að leggja undir sig heiminn. Ólíkt mörgum öðrum á The Godfathers einmitt góða möguleik á því. í nóvember kom út platan Hit By Hit, sem verið hefur á listum sjáfstæðu útgeíandanna upp frá því. Ekki skyldi mann furða. Tón- listin er grípandi mátulega hrátt framsækið rokk. Á plötunni eru perlur eins og This Damn Nation og I Want Everything. The God- fathers er ein efnilegats hljóm- sveit breta í langan tíma og bítlahljómurinn á einmitt vel við raunsæa textana. Ekki skemmir síðan góð útgáfa á lagi Johns Lennon, Cold Turkey. Nýjasta afurð The Godfathers er tólftomman Love is Dead; enn eitt skrefið í því að gera þá að bestu starfaridi rokkhljómsveit Breta í dag. Heilag’ur Júlíus ★ ★ ★ ★ Julian Cope er skrýtinn fugl, sem greinilega hefur sjálfsálit- ið í lagi því að hann nefnir þessa plötu sina „Saint Julian”, eða Heilagur Júlíus, eins og tit- illinn útleggst á þvi ástkæra og ylhýra. RASTAMENN Á BORGINNI rokksíðan

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.