Morgunblaðið - 10.06.1987, Qupperneq 2
2 C
PgrjgwtMiiMfo /ÍÞRÓTTIR MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987
Símamynd/Reuter
Ragnhelður Ólafsdóttlr setti nýtt íslandsmet í 3000 metra hlaupi á móti
í Bandaríkjunum um helgina. Hún er hér í hlaupinu lengst til vinstri (nr. 1007)
en fremst er sigurvegarinn, Vicki Huber.
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR
Ragnheiður setti
Islandsmet
RAGNHEIÐUR Ólafsdóttir úr
FH bœtti ísladsmet sitt í 300
metra hlaupi á bandarísku há-
skólamóti í Louisiana um
helgina. Hún hljóp á 8.58,00
mínútum og bœtti eldra metið
um 12 sekúndur.
Ragnheiður _er í góðri æfingu
og á nú öll íslandsmetin í lang-
hlaupum kvenna. Ragnheiður varð
í öðru sæti á eftir Vicki Huber.
KNATTSPYRNA
Árangur hennar er undir þeim lág-
mörkum sem krafíst er fyrir
heimsmeistaramótið í Róm og á
Ólympíuleikana í Seoul á næsta ári.
Eggert Bogason og Sigurður Matt-
híasson tóku einnig þátt í mótinu,
en þau stunda öll nám í Alabama.
Eggert kastaði kringlu 59,28 m og
varð sjötti. Sigurvegarinn kastaði
rétt yfír 61 metra. Sigurður náði
sínum besta árangri í spjótkasti,
kastaði 73,70 metra.
Vercauteren til Nantes
Frankie Verkauteren, belgíski
landsliðsmaðurinn og fyrirliði
Anderlecht, hefur verið seldur til
Nantes í Frakklandi. Verkauteren,
sem hefur leikið á miðjunni með
Arnóri Guðjohnsen, gerði hann
þriggja ára samning við Frakkana.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Bames til Uverpool
JOHN Barnes, hinn sókndjarfi
miðherji Watford undanfarin
sex ár, hef ur verið seldur til
Liverpool fyrir um 900 þúsund
pund. Samkomulag náðist um
þetta í apríl, en í gœr var end-
anlega gengið frá málinu.
Bames, sem fæddist á Jamaica
fyrir 24 árum, hefur verið einn
besti sóknarleikmaður í Englandi
undanfarin ár, en hann byijaði að
leika með Watford
Frá Bob 1981 og hefur leikið
Hennessy um 30 landsleiki.
' Englandi Dalglish, fr am-
kvæmdastjóri Li-
verpool, hefur lengi haft augastað
á Bames, og svo fór, sem ffam-
kvæmdastjórinn vildi. En þetta er
aðeins byijunin hjá Dalglish og má
fastlega gera ráð fyrir að fleiri leik-
menn verði keyptir til Liverpool á
næstunni.
HANDBOLTI
ísland
úr leik
ÍSLENSKA piltalandsliðið í
handknattleik beið lœgri
hlut í seinni viðureign sinni
við Norðmenn í Frederiks-
stad um helgina. Þeir
töpuðu með 8 marka mun,
26:34, eftir að hafa unnið
fyrri leikinn með tveggja
marka mun. Það verða því
Norðmenn sem komast
áfram í úrslitakeppni heims-
meistaramótsins.
Fyrri hálfleikur var nokkuð
jafn, en Norðmenn þó alltaf
með frumkvæðið. Fimm mörk
skildu liðin framan af seinni
hálfleik, en íslendingar náðu að
minnka munninn I 2 mörk en
Norðmenn voru sterkari á enda-
sprettinum og stóðu uppi sem
sigurvegarar. Markvarsla þeirra
var mjög góð og skipti það sköp-
um.
Gunnar Beinsteinsson var
markahæstur íslensku piltana
með 6 mörk. Héðinn Gilsson
kom næstur með fímm.
John Barnes.
TRAUSTI Ómarsson var hetja
Víkinga er liðið vann Þrótt 3:1
í Mjólkurbikarkeppninni á
Gervigrasvellinum í Laugardal
í gærkvöldi. Vestmanneyingar
unnu Fylki í Eyjum með tveimur
mörkum gegn einu.
Víkingar voru betri framan af
og Trausti skoraði eitt mark í
fyrri hálfleik. Atli Helgason jafnaði
fljótlega í síðari hálfleik eftir að
Þróttur hafði verið sterkari aðilinn
nokkuð lengi og voru þeir klaufar
að komast ekki nokkur mörk yfir.
Jón Otti Jónsson markvörður sá við
þeim nokkrum sinnum og kom í veg
STEINAR Birgisson hefur
ákveðið að ieika með HK í 2.
deildinni á næsta ári en eins
og kunnugt er lék Steinar í
Noregi á síðasta keppnistima-
bili með góðum árangri.
Steinar lék með Víkingum áður
en hann hélt til Noregs og
höfðu margir trú á að hann snéri
aftur til þeirra þegar hann kæmi
Sheffield Wed. f vandræðum
Sheffield Wednesday gekk ekki sem
best í 1. deild á síðasta keppnis-
tímabili og nú hafa fímm leikmenn
neitað að endumýja samninga sína
við félagið. Þeir eru Gary Megson,
Nigel Worthington, Chris Morris,
Lawrie Madden og Mark Smith.
Því er ekki bjart framundan hjá
Howard Wilkinson, framkvæmda-
stjóra, en hann hefur þegar rætt
við David Armstrong um að koma
til Sheffield. Armstrong er 33 ára
og hefur leikið undanfarin sex ár
með Southampton, en getur nú far-
ið frá félaginu og fengið kaupverðið
í eigin vasa.
fyrir það.
Eftir markið virtust Þróttarar búnir
og Trausti bætti tveimur mörkum
við, því síðara úr vítaspymu.
í Eyjum kom Baldur Bjamason
Fylki yfír snemma í leiknum en
Elías Friðriksson jafnaði úr víti rétt
fyrir leikhlé. Bergur Ágústsson kom
inná sem varamaður í síðari hálf-
leik og skoraði sigurmarið á 80.
mínútu.
Dómari leiksins var heimadómari í
orðsins fyllstu merkingu. Er frá
Eyjum o g sleppti þremur vítaspyrn-
um sem Fyikir átti greinilega að fá.
KS vann UMFS auðveldlega 7:0 í
ójöfnum leik.
heim. Ekki varð það svo því um
helgina gekk hann frá félagaskipt-
um yfír í HK og ætlar að leika með
þeim næsta vetur.
Þjálfari HK næsta vetur verður
Páll Björgvinsson félagi Steinars í
mörg ár hjá Víkingum og er ekki
að efa að þeir félagar ásamt miklum
efniviði sem verið hefur hjá félaginu
undanfarin ár ætla sér stóra hluti
á komandi keppnistímabili.
MJÓLKURBIKARKEPPNIN
Trausti með þijú
mörk fyrir Víking
Eyjamenn heppnir gegn Fylki
HANDBOLTI
Steinar til HK
SPURT ER / Hvernig fara leikirnir í 1. deild í kvöld?
Valur - Þór kl. 20. KA - FH kl. 20,
Ásgeir
Elíasson
„Þórsarar verða grimmir,
en Valur vinnur 1:0. Það
er alltaf erfitt að spila fyr-
ir norðan og og ég tippa á
að KA vinni FH 2:1.
Keflvíkingum hefur gengið
vel á Skaganum ogþar
spái ég 1:1 jafntefli."
- ÍBK kl. 19.
Gordon
Lee
„Þór hefur aldrei fengið
stiggegn Val á útivelli og
á því verður ekki breyting.
KÁ og FH gera markalaust
jafntefli. Það hafa skipst á
skin og skúrir hjá ÍA og
ÍBK, en jafntefli er líkleg-
ast.“
Haukur
Hafsteinss.
„ Valsmenn eru sterkir og
vinna Þór örugglega 2:0.
FH-ingar skora sitt fyrsta
mark og gera 1:1 jafntefli
gegn KA fyrir norðan.
Mest verður skorað á Akra-
nesi og ég spái 2:2 í
fjörugum leik."
Guðmundur
Ólafsson
„Ég vona að þeir fari vel,
bæði fyrir okkur og eins
viðkomandi lið. Annars tek
ég ekki þátt í svona spá-
dómum, enda eru þeir
alveg út í hött; hafa ber í
huga að fæst orð hafa
minnstu ábyrgð."
Eyjólfur
Bergþórss.
„Valsmenn eru betri og
vinna Þór 2:0. FH hlýtur
að fara að skora og ég
spái 1:1 gegn KA. Undan-
farin þijú ár hefur ÍBK
unnið á Skaganum og í A
unnið í Keflavík, en í kvöld
fer 1:1.“
Gísli
Eyjólfsson
„ Valsmenn eru á góðri sigl-
ingu, en Þórsarar í lægð.
2:0 heimasigur. FH skorar
ekki, vöm KA er sterk og
liðið vinnur FH 1:0, en
Keflavík sigrar fjórða árið
í röð á Akranesi, að þessu
sinni 2:1.“