Morgunblaðið - 10.06.1987, Síða 4
4 C
PMgnnMaM* /ÍÞRÓTTIR MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987
KNATTSPYRNA / 1. DEILD KVENNA
Morgunblaöiö/Einar Falur
Sara Haraldsdóttir reynir hér að bijótast í gegnum vöm Þórs og til vamar em Friðrika Illugadóttir og Jórunn
Jóhannesdóttir.
.
Tvö töp hjá Þór
UM helgina léku Þórsstúlkur
tvo leiki og töpuðu báðum.
Fyrst gegn UBK 4:1 og síðan
4:0 gegn Val.
Blikar byrjuðu leikinn af miklum
krafti og þrátt fyrir góð mark-
tækifæri voru það Þórsarar sem
gerðu fyrsta markið. Skyndisókn
þeirra endaði með
Ema föstu skoti frá Sig-
Lúðvíksdóttir urlaugu Jónsdóttur
skrifar f þverslá UBK
marksins. Inga Huld
Pálsdóttir fylgdi vel á eftir og
renndi boltanum í netið. Skömmu
síðar jafnaði Asta M. Reynsidóttir
fyrir Blika úr vftaspymu sem dæmd
var er Sigríður Sigurðardóttir var
feild. Sigríður skoraði síðan sjálf
næsta mark.
Þórsarar gerðu harða hríð að marki
UBK í upphafi síðari hálfleiks en
án árangurs. Þegar um tíu mínútur
voru til leiksloka skoruðu Blikar
sitt þriðja mark og var Ásta M. þar
á ferðinni með hörkuskot úr auka-
spymu.
Fjórða og síðasta mark UBK kom
svo þegar um fímm mínútur vour
T-KORT
HSfRMmm
Iðnaðarbankinn
-Mima Mo
til leiksloka. Sara Haraldsdóttir
stakk þá vöm Þórs af og skoraði
örugglega.
AnnaAtap Þórs
Ekki gekk Þór betur gegn íslands-
meisturum Vals á mánudaginn.
Strax á annari mínútu leiksins fékk
Ingibjörg Jónsdóttir góða sendingu
inn fyrir vöm Þórs og skoraði hún
með þrumuskoti í bláhomið. Glæsi-
legt mark!
I byijun seinni hálfleiks fengu Þórs-
stúlkumar aukaspymu rétt utan
vítateigs Vals. Inga Huld Pálsdóttir
skaut góðu skoti fram hjá vamar-
vegg Vals en Ema markvörður
náði að veija í hom.
Þegar hér var komið náðu Valsst-
úrlkumar smám saman yfirhönd-
inni og gerðu oft harða hríð að
marki Þórsara og uppskáru þær
sitt annað mark á tíundu mínútr
síðari hálfleiks. Ragnhildur Skúla-
dóttir átti þá góða sendingu fyrir
mark Þórs. Þar stóð Ragnhildur
Sigurðardóttir ein og óvölduð og
skallaði hún boltann örugglega í
netið. Afram hélt sókn Vals og
skömmu síðar skoraði Guðrún Sæ-
mundsdóttir enn eitt glæsimarkið
beint úr aukaspymu en við það
hefur hún verið iðin það sem af er
sumri.
Valur hafði ekki sagt sitt síðasta
orð í þessum leik því Ingibjörg Jóns-
dóttir skoraði sitt annað mark eftir
fyrirgjöf frá Ameyju Magnúsdóttur
Þórsstúlkumar voru ekki alveg
búnar að segja sitt síðast orð og
voru mjög nálægt því að skora
mark. Inga Huld tók þá aukaspymu
rétt utan vítateigs Vals. Boltinn
lenti í vamarvegg Valsliðsins og
barst aftur til hennar. Hún náði
föstu skoti en nú hafnaði boltinn í
þverslá marksins og yfír.
Valsstúlkumar voru betri í þessum
leik og var sigurinn sanngjam.
Þórsarar eiga þó hrós skilið því þær
gáfust aldrei upp og reyndu alltaf
að spila boltanum og byggja upp
sóknir.
HEIMAVELLIR
Ástand Laugardalsvallar er óviðunandi með öllu
Best væri að heflast strax handa við endurbætur
Völlurinn á eingöngu að vera fyrir stórieiki í knattspymu
Asigkomulag Laugardals-
vallar hefur lengi verið
þymir í augum knattspymu-
manna, sem þar leika og
„borgaryfirvöldum er ljós sú
staðreynd að ástand Laugar-
dalsvallar er þannig
að ekki verður við
það unað lengur,"
segir m. a. í bréfí
ómars Einarssonar,
framkvæmdastjóra
íþrótta- og tóm-
stundaráðs
Reykjavíkurborgar,
er birtist í Morgun-
blaðinu á laugar-
daginn. „Tillögur til
úrbóta liggja nú fyr-
ir, en ljóst er að í
endurbætur verður
ekki farið fyrr en í
fyrsta lagi I lok
þessa keppnistíma-
bils,“ heldur Ómar
áfram.
Ánægjulegt er til þess að vita
að aðalleikvangur landsins á
ekki að líkjast kálgarði öllu leng-
ur, en hvers vegna að bíða með
framkvæmdimar? Betra tæki-
færi gefst varla síðar.
Til að forðast allan misskilning
tel ég að Laugardalsvöllur eigi
fyrst og síðast að vera knatt-
spymuvöllur fyrir landsleiki,
bikarúrslitaleiki og aðra stór-
leiki, en ekki fyrir deildarleiki
nema nauðsyn beri til.
Reykjavíkurborg hefur stutt vel
við bakið á íþróttafélögum borg-
arinnar varðandi uppbyggingu
félagssvæðanna og tvö af þrem-
ur 1. deildarliðum karla, KR og
Valur, hafa komið sér upp mjög
Heimavöllurinn er aðalsmerki
hvers bæjarfélags, sem ber hag
knattspymunnar fyrir bijósti.
Kópavogsvöllur hefur lengi verið
til fyrirmyndar, Garðbæingar
eru að vinna stórvirki sem og
Eyjamenn, Akureyrarliðin og
félögin í Hafnarfirði eiga sína
heimavelli, Víðir og Völsungur
hafa komið upp völlum og ekki
fer á milli mála hvar heimavellir
Keflvikinga og Skagamanna em
svo dæmi séu tekin. Á sumum
þessara staða er úrbóta þörf,
en yfírleitt er markvisst unnið
að bættri aðstöðu, jafnt utan
sem innan vallar.
Gott og mikið starf hefur verið
unnið í Laugardalnum, en hálfn-
að verk þá hafið er. Laugardals-
völlurinn á eingöngu að vera
knattspymuvöllur fyrir stórleiki
og nú er kjörið tækifæri til að
hefjast handa. Bikarúrslitaleik-
urinn verður 30. ágúst og næsti
A-landsleikur fer fram 2. sept-
Helmavöllur
Mörg félög hafa komið sér upp mjög góðum heima-
völlum og er það af hinu góða. öll félög eiga að
stefna að því að leika heimaleiki heima, en til þess
að svo geti orðið, verður aðstaðan að vera fyrir hendi,
jafnt fyrir leikmenn sem áhorfendur.
Flag
Laugardalsvöllurinn er lfkaatur flagi rétt enn einu sinni, en tillögur til úr-
bóta liggja fyrir. Best væri að heflast þegar handa, en hafa ber I huga að
leikvangurinn á aðeins að vera fyrir stórleiki í knattspymu.
góðri aðstöðu og leika sfna
heimaleiki heima, sem kunnugt
er. Fram leikur heimaleikina í
Laugardalnum og kann sjálf-
sagt ágætlega við það, en
auðvitað á félagið að leggja
metnað sinn í að koma upp við-
unandi aðstöðu við Safamýrina
og vinna að því hörðum höndum
að heimaleikir félagsins fari
fram heima.
Þijú Reykjavíkurfélög leika í 2.
deild að þessu sinni, Víkingur,
Þróttur og ÍR. Keppnin er jöfn
í 2. deild og þess vegna geta tvö
fyrmefndra liða unnið sér rétt
til að leika í 1. deild næsta ár.
Miklar vallarframkvæmdir eru í
gangi hjá Víkingi og ÍR, en
Knattspymufélagið Þróttur er
illa í sveit sett og verður ekki
séð að viðunandi aðstöðu verði
komið upp við Holtaveg.
ember. Rúmar 11 vikur era til
stefnu, bestu „veðurvikur" árs-
ins og ég trúi ekki öðra, en
hægt sé að betrumbæta völlinn
á þessum tíma. Það kostar pen-
inga, en ekki verður það ódýrara
síðar og víst er að fjármununum
verður vel varið.
En ekki er nóg að bæta sjálfan
leikvöllinn eins og hann er núna.
Nota ber tækifærið til að losa
okkur við hlaupabrautina, sand-
kassann og kasthringina, fylla
upp í gryfjumar og stækka völl-
inn. Fijálsíþróttafólk er mér
örugglega ekki sammála, en
knattspyma og fijálsar íþróttir
geta og eiga ekki að fara fram
á sama velli. „Ástand Laugar-
dalsvallar er þannig að ekki
verður við það unað öllu lengur."
Steinþór
Guðbjartsson
■ Staðan/B11