Morgunblaðið - 10.06.1987, Side 5
/ÍÞRÓTTIR MmvnaJDAGUR 10. JÚNÍ1987
C 5
TENNIS / FRAKKLAND
Sigri ákaft
fagnað
Sigurvegarar á opna franska meist-
aramótinu í tennis fagna hér ákaft
eftir að sigur þeirra var í höfn.
Steffi Graf vann þarna sinn fyrsta
sigur á stórmóti enda ekki nema 17
ára gömul. Hún vann sjálfa tennis-
drottninguna Navratilovu í úrslita-
leik. Ivan Lendl fagnar einnig ákaft
þó svo hann sé ekki óvanur því að
vinna á stórmótum. Hann vann
Mats Wilander frá Svíþjóð í úrlsita-
leik.
Símamyndir/Reuter
Steffi Graf vann
Navratilovu
Lendl vann Wilander í jöfnum leik
*
HIN SAUTJÁN ára vestur-
þýska tennisstjarna, Steffi
Graf, gerði sór lítið fyrir og
vann hina svo til ósigrandi
tennisdrottningu Martinu
Navratilovu í úrslitaleiknum í
einliðaleik kvenna á opna
franska meistaramótinu sem
staðið hefur yfir í tvœr vikur
en lauk á sunnudaginn. í karla-
flokki léku Svfinn Mats Wiland-
er og Tékkinn Ivan Lendl til
úrslita og hafði Lendl betur í
leik sem stóð í fjórar klukku-
stundirog 17 mínútur.
Auðvitað er ég í sjöunda himni
með sigurinn, en það er þó
algjör óþarfí að gera eitthvað mál
úr þessu. Afrek Becker þegar hann
vann Wimbledon er miklu' meira en
þetta því þá spáði enginn honum
sigri en ég var talinn meðal þeirra
sem áttu möguleika á sigri hér,“
sagði Steffi Graf hin hlédrægasta
eftir að hún hafði unnið Navratilovu
í úrslitaleiknum.
Mikið var samt um dýrðir þegar
hún kom til síns heima. Borgarstjór-
inn bauð til veislu og hvað eina.
Graf fékk margar gjafir og þar á
meðal stóran tennisspaða úr stein-
steypu. Um leið og hún tók utan
af honum sagði hún: „Ég fer strax
á morgun til Englands til að æfa
fyrir Wimbledonkeppnina, en ég er
viss um að ég á ekki möguleika þar
ef ég á að nota þennan spaða."
Graf vann Navratilovu í hörku-
spennandi leik sem endaði 6/4, 4/6
og 7/5. Þetta er fyrsti sigur Graf
á stórmóti en hún hefur ekki tapað
leik frá því í nóvember í fyrra.
Áttust við f267 mín.
Viðureign Ivan Lendl og Mats Wi-
lander verður lengi í minnum höfð.
Leikurinn stóð í fjórar klukkustund-
ir og 17 mínútum betur en til
viðbótar þurfti að gera rúmlega
hálfrar klukkustundar hlé á honum
vegna mikillar rigningar. Leikurinn
hófst í sólskini en endaði í rennandi
rigningu. Það þarf greinilega að
vera í mikilli þjálfun til að vinna
mót sem þetta.
Ivan Lendl heldur sæti sínu sem
besti tennisleikari heimsins og Mats
Wilander er nú í fjórða sæti. Wi-
lander var að vonum dálítið vonsvik-
inn eftir tapið enda kom hann fullur
sjálfstraust til Parísar, hafði unnið
á tveimur mótum skömmu áður.
Báðir höfðu þeir unnið þetta mót
tvívegis og nú hafði Lendl betur,
vann 7/5, 6/2, 3/6 og 7/6, og hef-
ur því unnið þrívegis.
Lendl og Wilander eru taldir tveir
bestu tennisspilarar heims á leir-
velli. „Það þarf mikla hörku til að
vinna Lendl og í dag lék ég ekki
af þeirri grimmd sem ég ætlaði mér
í sókninni. Hversvegna veit ég ekki,
þetta æxlaðist bara örðuvísi en ég
hafði ætlað," sagði Wilander og
bætti því síðan við að nú væri ekk-
ert annað að gera en safna kröftum
og kjarki fyrir Wimbledonmótið sem
hefst síðar í þessum mánuði.
„Þetta var erfiðasta mót sem ég
hef tekið þátt í,“ sagði Ivan Lendl
eftir leikinn og héldu þó flestir að
sigur hans á John McEnroe árið
1984 þegar Lendl vann í fimm hrin-
um í úrlsitaleiknum í París hefði
verið erfiðari.
Þess má geta að 329,527 áhorfend-
ur komu til að fylgjast með mótinu
sem stóð í tvær vikur og er þetta
nýtt aðsóknarmet. Hið eldra var
314,368.
Mm
FÓLK
■ TAHAMATA, sem leikið hefur
með Feyenoord í Hollandi er á leið
til íslands. Hann kemur til landsins
20. júní og mun kenna á sérstökum
knattspymuskóla hjá KR ásamt
fleiri frægum knattspymumönnum.
Má þar nefna Arnór Guðjohnsen,
Sigurð Jónsson og Pétur Péturs-
son en Tahamata lék einmitt með
Pétri hjá Feyenoord fyrir nokkrum
árum.
■ NÚ HEFUR verið ákveðið að
eftir næsta keppnistímabil í þýsku
knattspyrnunni verði heimilt að
nota þtjá erlenda leikmenn í hveiju
Iiði. Akvörðun þessi er pólitísk og
hefur Evrópuráðið ákveðið að í
síðasta lagi árið 1992 verði engar
hömlur á hve margir erlendir leik-
menn megi leika í liðum í Evrópu,
svo fremi það séu Evrópubúar.
■ CORPUS skóburstari knatt-
spymuliðsins Mannheim er í verk-
falli. Ástæðan er sú að Fritz
Walter, aðal markaskorari liðsins,
hefur ákveðið að fara til Stuttgart
næsta vetur og því vill Corpus
mótmæla. Walter segir þetta vera
hinn mesta bamaskap hjá skóburst-
aranum, en síðan Corpus fór í
verkfall hefur hann ekki skorað.
■ ENSKIR hafa nú ákveðið að
heimila liðum að skipta tveimur
leikmönnum inná í hveijum deildar-
leik eins og hefur tíðkast í bikar-
keppninni hjá þeim. Eins og
kunnugt er hefur aðeins einn vara-
maður setið á varamannabekknum
en nú fjölga þeir þeim um 100%.
■ BIRNA Einarsdóttir fra-
kvæmdastjóri íslenskra getrauna
um nokkurt skeið er nú á föram
frá fyrirtækinu. Bima hefur unnið
mikið og gott starf hjá Getraunum
og á meðan hún var við stjómvölin
jókst áhugi almennings á getraun-
um mikið. Hvað hún ætlar að taka
sér fyrir hendur vitum við ekki.
KNATTSPYRNA
Titill
íhöfn
BAYERN Miinchen krœkti
sór í eitt stig er liöiA lék
gegn Uerdingen um helgina.
Stigið dugði þeim til að
tryggja sór sinn tíunda
meistaratitilinn í knatt-
spyrnu en fögnuðurinn var
samt f lágmarki og höfðu
leikmenn á orði að þeir
hefðu frekar viljað vinna
Evrópukeppnina en þartöp-
uðu þeir fyrir Porto eins og
kunnugt er.
Atli Eðvaldsson lék vel með
Uerdingen og skoraði ann-
að mark liðsins. Það var
Mattháus sem skoraði fyrsta
mark leiksins úr
FráJóhann Ingi víti sem dæmt
Gunnarssoní var er honum var
Þýskalandi bragðið innan
vítateigs. Klin
ger jafnaði fyrir gestina og Atli
kom þeim síðan yfir með góðum
skalla af tíu metra færi. Það var
síðan Höness „gamli“ sem skor-
aði jöfnunarmarkið.
Þar með náðu leikmenn Uerd-
ingen sér í fyrsta stig sitt í
Miinchen í sjö ár. Leikurinn var
í meðallagi góður og vora leik-
menn Uerdingen síst lakari.
Greinilegt að úrlsitaleikurinn í
Evrópukeppninni sat enn í leik-
mönnum Bayem. Udo Lattek,
þjálfari Bayem, hefur sjö sinn-
um áður tekið við skyldinum
sem fylgir titlinum og 17. júní
hampar hann honum í áttunda
sinn.
Bayem hefiir haft nokkra yfír-
burði í vetur og má sem dæmi
nefna að þeir hafa ekki tapað
leik á útivelli.
Gamlinginn fór á kostum
Hinn 37 ára sóknarmaður Werd-
er Bremen, Manfred Burgsmull-
er, fór svo sannarlega á kostum
er lið hans tók Dortmund, en
með þeim lék Burgsmiiller einu
sinni, í kennslustund í knatt-
spymu. Bremen vann 5:0 og auk
þess að skora tvö mörk sjálfur
lagði hann upp tvö önnur og
fékk einn í einkun hjá þýskum
blöðum. Hann hefur viljað sanna
sig því í vetur hefu hann lítið
fengið að leika með.
Rudi Völler var í leikbanni og
virtist það bara efla liðið. Völler
leikur eins og kunnugt er með
Roma á Ítalíu á næsta keppnis-
tímabili og ef marka má þennan
leik þá er bjart framundan þó
svo hann fari.
Gladbach vann sannfærandi sig-
ur á Dusseldorf og var þetta
áttundi sigur þeirra í röð en
þeir byijuðu frekar illa í haust
eins og menn muna. Gladbach
er nú í þriðja sæti og virðist
fátt geta komið í veg fyrir að
þeir komist í UEFA-keppnina á
næsta ári.
Kaiserslautern á mikla mögu-
leika á UEFA-sæti eins og
Gladbach. Liðið vann Köln stórt
um helgina og eins og venjulega
var fjölmenni á áhorfendapöll
unum og það verður ábyggielga
gaman fyrir Láras Guðmunds-
son að leika með liðinu næsta
vetur. Kölnarar komust í 1:0 en
síðan ekki söguna meir. Fimm
sinnum skoraðu heimamenn og
fögnuðu góðum sigri í leikslok
Numburg og HSV gerðu 3:3
jafntefli og var greinilegt að
leikmenn HSV voru með hugan
við bikarúrslitaleikinn gegn
Kickers Offenbach.
Bochum og Schalke skildu einn-
ig jöfn, Hvora liði tókst að koma
boltanum einu sinni í netið.