Morgunblaðið - 10.06.1987, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 10.06.1987, Qupperneq 6
6 C ftt*t$tttsf»Ii»feft /ÍÞRÓTTIR MÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ1987 KNATTSPYRNA / 1.DEILD Heppnissigur Valsmanna - á KA-mönnum á Akureyri VALSMENN unnu hálfgerðan heppnissigur á KA-mönnum á Akureyri á laugardaginn. Magni Blöndal Pótursson skor- aöi eina mark leiksins af nokkuö löngu fœri snemma í fyrri hálfleik. Heimamenn fengu nokkur góö marktœki- fœri og voru klaufar að ná ekki aö minnsta kosti einu stigi úr þessum leik. Valsmenn léku undan norðan- strekkingi í fyrri hálfleik og sóttu þeir mun meira framan af leiknum. KA sótti þó í sig veðrið er l'ða tók á. Mesta FráStefáni furða hve jafn leik- Amaldssyni urinn var þrátt fyrir áAkureyri vindinn. Báðum lið- um gekk þokkalega að leika gegn honum. „Ég er óánægður með að ná ekki í það minnsta jöfnu hér,“ sagði Hörður Helgason þjálfari KA eftir leikinn. „Færin komu en því miðui tókst okkur ekki að nýta þau. Strák- amir gerðu það sem fyrir þá var lagt og börðust vel. Valsmenn eru alltaf erfiðir við að eiga og þeir verða örugglega í toppbaráttunni í ár. Það er langur vegur framundan og það er langt þar til mótinu lýkur þannig að það þýðir ekki að súta þetta tap,“ bætti hann við. Magni Blöndal Pétursson skoraði sigurmarkið með skoti af 25 metra færi. Magni hitti boltann vel og skotið var gott, rétt strauk grasrót- ina og var nokkuð fast. Haukur Bragason markvörður KA var á leið í homið en þá lenti boltinn í Steingrími Birgissyni og breytti um stefnu þannig að Haukur átti ekki möguleika á að veija. Ingvar Guðmundsson fékk tvö gull- in færi í fyrri hálfleik en skot hans voru ekki nákvæm og fóru þar góð færi forgörð’um. Tryggvi Gunnars- son átti tvívegis góð marktækifæri í fyrri hálfleiknum sem fóru for- görðum. Hinrik Þórhallsson var óheppinn að skora ekki í upphafi síðari hálfleiks þegar hann fékk tvö góð færi. Tryggvi komst tvívegis í gott færi eftir homspymu frá Gauta, en það var alltaf hætta á ferðum þegar Gauti tók homspymu. Tryggvi mis- notaði bæði færin. Valur Valsson bjargaði einu sinni af marklínu sinni og Jón Sveinsson komst inn í sendingu frá Þorgrími, sem ætluð var Guðmundi mark- verði, en skot Jóns fór framhjá. Sama gerðist hinum megin þegar Ámundi komst inn í sendingu. Eins og áður segir voru heimamenn óheppnir að skora ekki í leiknum og jafntefli hefði verið sanngjart. Heppnisstimpill var á marki Magna þó svo skotið væri gott og Vals- menn mega þakka fyrir stigin þijú að þessu sinni. Sigur ÍBK í minna lagi EFTIR jafnan fyrri hálfleik var aldrei spurning í síöari hálfleik hvort liöið sigraði. Eftir tap beggja liða f síöustu umferð var greinilegt aö hvorugt þeirra hœtti á neitt f byrjun. Fyrri hálf- leikur einkenndist af gffurlegri baráttu um miðju vallaríns, þar sem ekkert var gefið eftir; jafn- rœði var með liðunum, en Iftið var um tækifæri upp við mörk- in. að var ijóst að liðið sem næði að skora á undan stæði með páimann í höndunum í þessari við- ureign. Þórsarar fengu fyrsta ■mi dauðafærið í seinni Skapti hálfleik en eftir að Hallgrímsson Óli Þór Magnússon sknfar braut ísinn buldu sóknir Keflvíkinga á Þórsvöminni. Heimamenn fengu nokkur mjög góð færi.-en náðu þó aðeins að bæta einu marki við. Fyrra markið gerði Óli Þór eftir KA - Valur 0 : 1 Akureyrarvöllur 1. deild, laugardag- inn 6. júnl 1987. Hark Vala: Magni B. Pétursson (11.) Gult spjald: Enginn Áhorfendur: 800 Dómari: Baldur Scheving 7 Lið KA: Haukur Bragason 2, Frið- finnur Hermannsson 2, Gauti Laxdal 3, Amar Freyr Jönsson 2, Erlingur Kristjánsson 3, Þorvaldur örlygsson 3, Bjami Jónsson 1, (Stefán ólafsson vm. á 63. mfn. 1), Hinrik Þórhallsson 2, (Amar Bjamason vm. á 76. mín. lék of stutt), Tryggvi Gunnarsson 2, Steingrfmur Birgisson 2, Jón Sveins- son 1. Samtals:23 Lið Vals: Guðmundur Hreiðarsson 2, Þorgrfmur Þráinsson 2, Sigmjón Kristjánsson 2, Magni Blöndal Péturs- son 3, (Njáll Eiðsson vm. á 79. mín. lék of stutt), Jón Grétar Jónsson 3, (Antony Karl Gregory vm. á 79. mfn. lék of stutt), Sævar Jónsson 1, Guðni Berrgsson 3, Hilmar Sighvatsson 2, Valur Valsson 2, Ingvar Guðmundsson 2, Ámundi Sigmundsson 2. Samtals: 24 Worgunblaðið/Einar Falur Óli Þór Magnússon kom Keflvík- ingum á bragðið gegn Þór. Hann skoraði annað mark sitt í deildinni, en hann gerði sem kunnugt er fyrsta mark deildarkeppninnar og hlaut markabikar Morgunblaðsins 1987. sendingu Ingvars frá hægri; Óli smeygði sér á milli vamarmanna ÍBK - Þór 2 : 0 Keflavíkurvöllur 1. deild, laugardag- inn 6. iúní 1987. Mörk IBK: Óli Þór Magnússon (71.) og Ingvar Guðmundsson (77.) Gul spjöld: Gunnar Oddsson, ÍBK (55.), Sigurbjöm Viðarsson, Þór (75.), Einar Arason, Þór (87.) Ahorfendur: 417 Dómari: Magnús Theódórsson 7. Lið ÍBK: Þorsteinn Bjamason 3, Jóhann Júlíusson 2, Rúnar Georgs- son 2, Sigurður Björgvinsson 2, Gunnar Oddsson 3, Peter Farrell 2, Ingvar Guðmundsson 3, Óli Þór Magnússon 3, Siguijón Sveinsson 2, (Jóhann Magnússon vm. á 35. mfn. 3), Freyr Sverrisson 3, Sigurð- ur Guðnason 2 Samtals: 28. Lið Þórs: Baldvin Guðmundsson 3, Jónas Róbertsson 1, Sigurbjöm Við- arsson 2, (Guðmundur Valur Sig- urðsson vm. á 78. mín. lék of stutt), Einar Arason 2, Nói Bjömsson 1, Júlíus Tryggvason 2, Ámi Stefáns- son 2, Siguróli Kristjánsson 2, Kristján Kristjánsson 1, Halldór Áskelsson 2, Hlynur Birgisson 1. Samtals: 19. og skoraði af stuttu færi. Rang- stöðutaktík Þórsara brást algjör- lega í síðara markinu. Eftir sendingu Sigurðar Björgvinssonar komust tveir Keflvíkingar á auðan sjó, Ingvar Guðmundsson náði bolt- anum og skoraði af öryggi utan úr teig. Mörk IBK hefðu getað orðið enn fleiri, Gunnar Odds þrumaði í þverslá og Ingvar fékk mjög gott færi. Eftir að Keflvíkingar skoruðu lék liðið mjög vel en Þórsarar voru gjörsamleg;a heillum horfnir. Peter Keeling, þjálfari ÍBK, var að vonum ánægður á eftir. „Strákam- ir sýndu mikinn „karakter" að vinna þennan sigur og fá ekki á sig mark eftir 7:0-tapið gegn Val. Þeir börð- ust vel, og sýndu eftir að þeir náðu að skora að þeir geta geta leikið góða knattspymu," sagði hann. ■ Staðan/B11 FH - Víðir 0 : 0 Kaplakrikavöllur, 1. deild, laugardaginn 6. júnf 1987. Gul spjöld: Sævar Leifsson Vfði (47.), Ian Flemming FH (70.), Björgvin Björg- vinsson Vfði (83.). Áhorfendur:285. Dómari: Gfsli Guðmundsson 7. Lið FH: Halldór Halldórsson 3, Guð- mundur Hilmarsson 2, Ian Flemming 3, Þórður Sveinsson 1, Magnús Pálsson 2 Kristján Glslason 1, Guðjón Guðmunds- son 1, (Henning Henningsson vm. á 76. mfn., lék of stutt), Ólafur Danivalsson 2, Höröur Magnússon 1, Kristján Hilmars- son 1, (Viðar Halldórsson vm. é. 61. mín., 1), Ólafur Kristjánsson 2. Samtals: 19. Uð Vfðis: Gfsli Heiðarsson 2, Bjöm Vilhelmsson 2, Danfel Einarsson 3, Vil- hjálmur Einarsson 3, Sævar Leifsson 2 Vilberg Þorvaldsson 2, Gfsli Eyjólfeson 1, Guðjón Guðmundsson 3, Svanur Þor- steinsson 1, (Halldór Einarsson vm. á 85. mín., lék of stutt), Hlfðar Sæmunds- son 1, (Björgvin Björgvinsson vm. á 70. mfn., 1), Grétar Einarsson 1. Samtals:21. Valsmenn á toppinn wo^nb™ Valsmenn sigruðu KA á Akureyri með einu marki gegn engu og eru nú í efsta sæti 1. deildar eftir þijár umferðir. Á stærri myndinni á Valur Valsson í höggi við leik- mann KA og virðist hafa betur og ef vel er að gáð má sjá hönd hans fyrir ofan höfuð KA-leikmannsins. Á minni myndinni styður Erlingur Kristjánsson sig við öxl Hilmars Sighvatssonar um leið og hann reynir að ná til knattarins Dauft í Firðinum „VIÐ fengum góð marktækifæri í fyrri hálfleik og áttum þá að gera út um leikinn, en það er svona að nýta ekki færin. í seinni hálfleik misstum við undirtökin, einkum á miðjunni, og meðan við skorum ekki, sigrum við ekki," sagði Haukur Hafsteins- son, þjálfari Víðis, níðurlútur eftir markalaust jafntefli gegn FH íKaplakrika á laugardaginn. Víðismenn voru mun ákveðnari í fyrri hálfleik, oft brá fyrir skemmtilegu spili hjá þeim, en ýmist brást bogalistin upp við mark FH eða Halldór markvörður Steinþór greip vel inn í. Bestu Guðbjartsson færin komu síðustu skrífar mínútur hálfleiksins. Þrisvar komust gest- imir laglega í gegn, fyrirgjöf frá hægri í öll skiptin, menn fyrir opnu marki, en þeir áttuðu sig ekki og FH-ingar náðu að bjarga á síðustu stundu. Heimamenn voru mjög daufir, lítið sem ekkert spil, og í raun mjög heppnir að vera ekki undir í hálfleik. Eftir hlé komu FH-ingar mun frískari til leiks og fengu sitt eina færi um miðja hálfleikinn. Viðar Halldórsson, sem var nýkominn inn á sem vara- maður, átti gott skot eftir nákvæma sendingu frá Ólafi Kristjánssyni, Gísli varði í slá, boltinn út, en Vilhjálmi tókst að bjarga í hom. Skömmu síðar sáust álíka tilþrif hjá Halldóri í hinu markinu, þegar hann varði glæsilega frá Grétari eftir óbeina aukaspymu innan teigs. FH-ingar hafa ekki skorað mark í þremur fyrstu leikjunum og em ekki líklegir til afreka með sama áfram- haldi. Halldór og Ian Flemming halda liðinu á floti, en það gengur ekki til lengdar. Víðismenn geta leikið ágætlega, leik- menn þekkja hvem annan vel, alla- vega bræðumir fjórir, baráttan er fyrir hendi, vömin sterk, en þeirra höfuðverkur er að skora mörk. Gísli Guðmundsson dæmdi ágætlega, en var stundum of fljótur á sér. ■ Staöan/B11

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.