Morgunblaðið - 10.06.1987, Side 7
/ÍÞRÓTTIR MWVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987
C 7
Skagamenn
sterkari á Húsavík
Skagamenn voru mun sterkari
til að byija með. Það var því
þvert á gang leiksins að Völsungar
komust yfir á 20. mínútu. Hinn
■■■ marksækni fram-
Reynir herji Völsungs,
Eiríksson Hörður Benónýsson,
fékk knöttinn rétt
fyrir utan vítateig
og skoraði með glæsilegu skoti efst
í markhomið §ær.
Akumesingar héldu uppteknum
hætti það sem eftir var hálfeiksins
og sóttu, en þrátt fyrir mörg góð
marktækifæri tókst þeim ekki að
skora. Staðan í hálfleik 1:0 fyrir
skrífarfrá
Húsavik
heimamenn.
Seinni hálfleikur byrjaði_ eins og sá
fyrri endaði, með sókn ÍA sem bar
árangur á 52. mínútu. Valgeir
Barðason fékk boltann innan víta-
teigs og snéri baki í markið, snéri
sér við og setti knöttinn snyrtilega
í netið framhjá Þorfinni, mark-
verði, sem kom engum vömum við.
Eftir þetta komust Völsungar meira
inn í leikinn og áttu nokkrar hættu-
legar skyndisóknir og marktæki-
færi sem þeim tókst ekki að nýta.
Skagamenn gerðu síðan út um leik-
inn á 77. mínútu. Sveinbjöm fékk
boltann utan utan vítateigs og skor-
aði með þrumuskoti af 20 metra
færi efst í bláhomið fjær. Glæsilegt
mark.
Það sem eftir lifði leiks sóttu liðin
á víxl án þess að skapa sér vem-
lega hættuleg færi.
Völsungur - ÍA
1 : 2
Húsavíkurvöllur, 1. deild, 6. júní 1987.
Mark Völsungs: Hörður Benónýsson
(20.)
Mörk ÍA: Valgeir Barðason (52.) og
Sveinbjöm Hákonarson (77.)
Gul spjöld: Sigurður B. Jónsson og
Aðalsteinn Júlíusson, ÍA og Birgir
Skúlason, Völsungi.
Rauð spjöld: Enginn
Áhorfendur: 550.
Dómari: Sveinn Sveinsson 8.
Lið Völsungs: Þorfínnur Hjaltason 2,
Birgir Skúlason 2, ómar Rafnsson 1,
Sveinn Freysson 1, Helgi Helgason 3,
Bjöm Olgeirsson 2, Sævar Hreinsson
2, Eiríkur Björgvinsson 1, (Skarhéðinn
ívarsson vm. 45. mín., 1), Hörður Ben-
ónýsson 3, Jónas Hallgrímsson 3,
Kristján Olgeirsson 2, (Sigurgeir Stef-
ánsson vm. 65. mín., 1).
Samtals:22.
Lið ÍA: Birkir Kristinsson 3, Heimir
Guðmundsson 2, Jón Áskelsson 3, Sig-
urður B. Jónsson 2, Sigurður Lárusson
2, Sveinbjöm Hákonareon 4, ólafur
Þórðareon 2, Aðalsteinn Víglundsson
3, Valgeir Barðason 3, Haraldur Ingólfs-
son 3, Guðbjöm Tryggvason 2.
Samtals:27.
Fram — KR
1 : 1
Laugardalsvöllur, 1. deild, 8. júní
1987.
Mark Fram: Pétur Ormslev (44.)
Mark KR: Bjöm Rafnsson (87.)
Gult spjald: Þorsteinn Halldórsson,
KR
Rauð spjöld: Enginn
Áhorfendur: 1887
Dómari: Þóroddur Hjaltalín 3
Lið Fram: Friðrik Friðriksson 3,
Þorsteinn Þorsteinsson 2, Jón
Sveinsson 1, Pétur Ormslev 4, Viðar
Þorkelsson 3, Kristinn Jónsson 2,
Amljótur Davíðsson 1, Pétur Am-
þórsson 2, Kristján Jónsson 2, Janus
Guðlaugsson 2, Ormarr Örlygsson 3.
Samtals:25.
Lið KR: Páll Ólafsson 2, Jósteinn
Einarsson 2, Ágúst Már Jónsson 3,
Þorsteinn Guðjónsson 3, Þorsteinn
Halldórsson 3, Guðmundur Magnús-
son 2, (Sæbjöm Guðmundsson vm.
77., 2), Gunnar Skúlason 2, Willum
Þór Þórsson 2, Andri Marteinsson
3, (Júlíus Þorfinnsson vm. 77., 1),
Pétur Pétursson 4, Bjöm Rafnsson 3.
Samtals: 29.
„Gátum þakkað
fyrir annað stigið
sagði Ásgeir Elíasson þjálfari Fram
„VIÐ gáfum okkur ekki tíma til
að spila boltanum. Þetta var
lélegt og við gátum þakkað fyr-
ir annað stigið, en vorum við
klaufar að vinna ekki úr því sem
komið var,“ sagði Ásgeir Elías-
son, þjálfari Fram eftir jafntefli,
1:1, gegn KR á Laugardalsvelli
á mánudagskvöld.
KR-ingar jöfnuðu þegar aðeins
þijár mínútur voru til leiksloka
eftir að Framarár höfðu náð forystu
á síðustu mínútu fyrri hálfleiks.
KR-ingar sóttu lát-
laust allan seinni
hálfleik og sköpuðu
sér mörg marktæki-
færi, áttu skot í
stöng, slá og svo var bjargað á línu.
Það má því segja að þeir hafí jafn-
að á elleftu stundu og nælt í annað
stigið úr þessum þýðinga mikla leik.
„Fýrri hálfleikur var jafn en við
áttum seinni hálfleik eins og hann
lagði sig. En það var eins og við
gætum ekki skorað. Ef lið skorar
ekki nema eitt mark úr 8 til 10
dauðafærum er ekki von á góðum
úrslitum. Það hefði verið mikil von-
brigði að tapa þessum leik,“ sagði
Gordon Lee, þjáflari KR-inga eftir
leikinn.
Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn,
bæði liðin sýndu mikla baráttu og
fengu færi sem ekki nýttust fyrr
en Pétur Ormslev skoraði fyrir
Fram á 44. mínútu. Amljótur var
með knöttinn við vítateig KR-inga
hægra megin og gaf hælspymu inn
í teiginn og þar kom Pétur á fullri
ferð og renndi boltanum í gegnum
klofíð á Páli, markverði.
Síðari hálfleikur fór að mestu fram
á vallarhelmingi Framara. KR sótti
án afláts, en Framarar reyndu að
veijast. Það tókst þeim þar til þijár
mínútur vom til leiksloka. Bjöm
Rafnsson fékk þá góða sendingu
inní vítateig Fram frá Willum lagði
hann fyrir sig og þmmaði uppundir
þaknetið, óveijandi fyrir Friðrik.
Áður hafði Guðmundur Magnússon
átt hörkuskalla að marki Fram sem
Pétur Amþórsson bjargaði á
marklínu og lúmskt skot breint úr
aukaspymu af 35 metra færi sem
fór í stöngina. Guðmundur var síðan
borinn af leikvelli viðbeinsbrotinn
eftir samstuð. Óheppinn þar.
Framarar léku ágætlega i fyrri
hálfleik en síðan drógu þeir sig aft-
ar og létu KR-inga ráða ferðinni.
Pétur Ormslev var yfírburðamaður
hjá þeim. Friðrik, markvörður og
Viðar stóðu einnig vel fyrir sínu.
Jón Sveinsson var mjög óömggur
sem aftasti maður vamarinnar og
gerði oft mistkök sem gátu reynst
dýrkeypt.
KR-ingar áttu seinni hálfleikinn
algjörlega. Léku þá oft skemmti-
lega upp að vítateig Fram, en þar
var eins og þeim yrði fótaskortur.
Pétur Pétursson var þeirra besti
maður, lagði hvað eftir annað upp
marktækifæri fyrir félaga sína.
Bjöm Rafnsson skapaði hættu með
hraða sínum og fékk mörg mark-
tækifæri, en nýtti þau ekki vel.
Ágúst Már var einnig traustur í
vöminni og ungu strákamir, Þon*
steinn Halldórsson og Þorsteinn
Guðjónsson, stóðu vel fyrir sínu.
Þóroddur Hjaltalín dæmdi þennan
leik illa, lét leikmenn komast upp
með of mikla hörku og stöðvaði
leikinn alltof oft þannig að leikmenn
högnuðust á brotum sínum.
Vaiur
Jónatansson
skrífar
Morgunblaðiö/Júlíus Sigurjónsson
Gegnum klofið
Á stærri myndinni skorar Pétur Ormslev mark Fram
með því að renna boltanum í gegnum klof Páls Ólafs-
sonar, markvarðar KR. Willum Þór Þórsson fylgir á
eftir, en kemur engum vömum við. Á minni myndinni
reynir Pétur Ormslev að leika á Jóstein Einarsson sem
býður honum að fara sömu leið og gegn Páli á stærri
myndinni. Pétur skoraði á 44. mínútu fyrir Fram, en
Bjöm Rafnsson jafnaði fyrir KR þegar þijár mínútur
voru eftir af leiknum.