Morgunblaðið - 12.06.1987, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐH), FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987
nýjan leik? Guðlaugur Gauti
Jónsson arkitekt er einn þeirra
sem fengist hefur við spá-
mennsku í byggingarmálum og
við sóttum hann heim til að fá
svör hans við spurningum um
hvernig tölvuvæðingin kæmi til
með að hafa áhrif á íbúðar-
húsnæði og skipulag hverfa.
„Ýmsir spá því, eða benda
að minnsta kosti á þann mögu-
leika, að í upplýsingaþjóðfélag-
inu muni vinnustaðurinn
breytast og bæði skóla og vinnu,
ásamt fjölmörgu öðru megi fólk
að mestu stunda úr stofunni
heima hjá sér. Ef svo verður,
mun þetta valda byltingu í þjóð-
félaginu. Hinn hefðbundni
vinnustaður, skóli, skrifstofa
eða verslun mun hverfa. Eftir
munu standa tölvumiðstöðvar
og vörugeymslur, sem þjónað
verður af tölvuvæddum vél-
mennum.
í stað þess að meginhluti
þjóðfélagsins fer af stað til vinnu
eða í skóla á morgnana og
stormar í verslanir á heimleið
þegar kvöldar, sitja menn nú
heima og stunda iðju sína það-
an. Þeir sinna vinnu og skóla
heima og kaupa sömuleiðis inn,
stunda bankaviðskipti og skipu-
leggja frítíma þaðan. Ef þetta
er framtíðin mun þetta óhjá-
kvæmilega hafa áhrif á það
húsnæði sem við búum í. En ég
sé ekki fyrir mér að allir fjöl-
skyldumeðlimir sitji og stundi
vinnu sína í því húsnæði,
óbreyttu, sem við búum í í dag.
Fleira þarf að koma til og skapa
öðruvísi vistarverur.
En er þetta framtíðin? Eða
munu þarfir fólks ekki breytast
jafn hratt og tæknin. Ef litið er
á þá þjóðfélagsskipan sem við
búum við í dag þá á óg erfitt
með að ímynda mér að þetta
gangi up. Ég er til dæmis sann-
færður um að straumur kvenna
á vinnumarkaðinn er ekki síst til
kominn vegna þarfar fyrir félags-
legt samneyti. Það fæst að vísu
á heimilinu líka, en ekki síst á
vinnustað. Og ef fólk skoðar
kunningja- og vinahóp sinn kem-
ur það örugglega á daginn að
verulegur hluti eru annaðhvort
vinnufélagar eða skólafélagar.
Þessvegna finnst mór ótrúlegt
að nýi vinnustaðurinn verði
heimilið. Það kann að verða svo
um tíma, en ekki til frambúðar
því heimilið er ekki lengur sú
félagslega eining sem fólk lifir
og hrærist í.
í Svíþjóð þykir sjálfsagt að um
leið og byggt er nýtt hverfi eða
húsasamstæða, þá sé byggt
húsnæði fyrir dagvistun barna-
og félagslega starfsemi íbú-
anna. Þeir hafa reynslu af því
að hin fullkomna blokkaríbúð
með geymslu og þvottahúsi
veldur einangrun íbúanna. Upp
hafa komið hugmyndir um að
þvottahús verði ekki aðeins
sameiginleg fyrir stigahús, held-
ur fyrir heilu húsasamstæðurn-
ar. A þann hátt myndi umgangur
og samskipti aukast meðal íbú-
anna.
Kannski mun þessi hugmynd
einnig henta þeirri tæknivæð-
ingu sem nú knýr dyra hjá okkur.
í hverju hverfi myndi þá verða
byggt vinnuhús um leið og
hverfið væri byggt. í eldri hverf-
um yrðu hús tekin undir slíka
starfsemi. í þessum vinnuhús-
um myndi fólk stunda störf sín
og nám og í stað þess að þeysa
langar leiðir milli staða, myndi
fólk ganga nokkur hundruð
metra til vinnu. Þar væru þau
tæki sem vinnan krefðist og þar
fengi fólkið félagslega útrás.
Umferð minnkar
En hvort sem vinnan flyst aft-
ur heim eða byggðar verða
sérstakar hverfavinnustofur
koma þessar breytingar til með
að hafa umtalsverð áhrif á um-
ferðarmenninguna. í skýrslu
starfshóps um tölvu og upplýs-
ingartækni á vegum Rannsókn-
arráðs er þeirri hlið mála velt
upp og orðrétt stendur:„Ef við
sjáum fyrir okkur heimili, sem
jafnframt er vinnustaður, þá eru
þeir heimilismenn, sem ella
væru útivinnandi, búnir að spara
sér allt frá hálftíma og upp í einn
klukkutíma eða meira á venju-
legum vinnudegi við það eitt að
losna við tímann, sem það tekur
að koma sér í og úr vinnunni. Á
einu ári geta þannig unnist 100
klukkustundir eða vel það. Þar
við bætist vinnutímastytting
þannig að sá viðbótartími, sem
fjölskyldan fengi til eigin ráðstöf-
unar, gæti orðið mjög umtals-
verður. Við stæðum fyrr en varir
frammi fyrir þjóðfélagi iðjuleysis,
eða ef við kjósum þá nafngift
frekar, tómstundaþjóðfélaginu.
Þessar stundir má vissulega
fylla af skapandi athöfnum. Upp-
eldismál verða miklu tímafrekari
þar sem naumast verður talin
ástæða til að senda ungbörn á
dagvistir þegar hinir fullorðnu
eru hvort eð er heima.“
„Þessi tækniþróun á eftir að
hafa gífurleg áhrif á störf arki-
tekta sem annárra starfstétta"
sagði Gauti, „líklegt er að arki-
tektinn geti t.d. sent teikningar
til viðskiptavinarins í gegnum
tölvuna í aðra tölvu sem stað-
sett er í hverfisstöðinni og
myndað þannig beint tölvusam-
band við viðskiptavininn.
Húsbyggingar færast í ríkara
mæli til verksmiðjanna, verða
meir og meir fullunnin þar og
flutt á byggingarstað."
Guðlaugur Gauti benti á að
nú þegar væri talið að um þriðj-
ungur allrar smásölu í Banda-
ríkjunum færi fram í gegnum
síma, tölvur, og bæklinga, þ.e.
menn færu ekki og keyptu inn í
stórmörkuðum. „Það leggst þó
aldrei alveg af að menn kaupi
sjálfir inn, til þess er félagslegi
þátturinn of sterkur, menn hafa
I gaman af að fara og hitta annað
fólk, sjá og skoða vöruna áður
en hún er keypt."
Börn hætta að „fara“
i skólann
Hvaða áhrif hefur þessi
tækniþróuh á skólagöngu barn-
anna? Sérfræðingar Rannsókn-
arráðs hafa þetta að segja:
„Eldri börn hætta að „fara" í
skólann í venjulegum skilningi;
þau munu í staðinn njóta tölvu-
væddrar fjarkennslu, sem getur
að sumra áliti tekið langt fram
hefðbundinni skólakennslu, en
jafnframt því munu börnin halda
sterku persónulegu sambandi
við kennara sína. Valdboðshlut-
verk kennara mun breytast í
ráðgjafahlutverk. Þetta gæti
leitt til stóraukinnar foreldra-
ábyrgðar á námi barnanna og
miklu nánari tengsla milli heimila
og skóla, þótt ekki sé það sjálf-
gefin afleiðing. Hinsvegar er
Ijóst að möguleikar kennaranna
til náins eftirlits með vinnu nem-
endanna munu verða miklu
meiri en aður. Kennsluforritum
af innlendum og erlendum upp-
runa verður beitt í ríkum mæli í
kennslunni og verða nemendur
tiltölulega sjálfbjarga við þau,
jafnframt því að bæði námið og
kennslan sveigist meir að þörf-
um hvers einstaklings. Opinn
háskóli í einhverri mynd er einn-
ig nærtæk hugmynd."
Skólabyggingar verða því að
mestu úr sögunni eða breytast
mikið frá því sem nú þekkist.
Starfshópur Rannsóknarráðs
spáir því að framtíðarfjölskyldan
verði líkari fjölskyldu fyrri tíma,
viðfangsefni heimilanna aukist,
svo sem matargerð, fatagerð,
ræktun nytjajurta og fleira þess-
háttar í kjölfar aukins frítíma
fólks. Þá spá þeir því að heimil-
in komi sér upp þekkingarkerf-
um fyrir heimilistölvur til að efla
’ starfsemi innan heimilanna,
þannig muni t.d. heilbrigðis-
þekkingarkerfi gera fjölskyld-
_____________________B 7
unni kleift að sinna heilsugæslu
fjölskyldumeðlimanna í ríkara
mæli og leiða til þess að störf
heimilislækna og starfsemi heil-
sugæslustöðva verði léttari og
árangursríkari en áður. Sumir
sjá fram á aukna dreifingu
byggðar, tæknin gerir mönnum
kleift að vera í sambandi hver
við annan þó þeir búi víða um
land.
Hjónaband sjónvarps-
ins og tölvunnar
Sérfræðingarnir spá ekki
hvað minnstum breytingum á
sviði fjölmiðlunar. Þeir segja: „í
stað þess að lesa sama dag-
blaðið og þúsundir eða milljónir
annarra landa sinna, hlusta á
sömu útvarpsfréttirnar og horfa
á sömu fréttaþættina í sjón-
varpinu, þá munu menn í náinni
framtíð vera farnir að velja eigið
fréttaefni, sem þeir safna saman
úr ýmsum heimshornum og
hanna að vild eftir smekk sínum
eða sérvisku. Svo sem sjá má
er hætt við að hér verði mörkin
óglögg á milli fréttaöflunar og
tölvuvædds heimanáms. Sama
segja menn raunar að muni
gegna um afþreyingarefni, þótt
breytingin á því sviði verði ekki
eins afdrifarík, enda stökkið
minna miðað við núverandi
ástand. Fljótt á litið virðist hér
vera um að ræða stórt skref í
átt til frelsis og sjálfstæðis not-
endanna þar sem yrðu komin á
gagnvirk og sívirk samskipti milli
miðla og notenda....í upplýs-
ingaþjóðfélaginu mun hver
einstaklingur getað leitað uppi
nákvæmlega þann fróðleik, sem
honum finnst skipta máli, í þeirri
heimild sem hann treystir best.
Þetta getur leitt til þeirrar þver-
sagnarkenndu niðurstöðu að í
upplýsingaþjóðfélaginu verði all-
ir betur að sér en áður, en hinn
sameiginlegi þekkingarforði
minnki eigi að síður."
vj
VERIÐ VELKLiCTDI^^
Verzlunin er opin daglega firá 9-6.
Laugardaga frá 10-12 (líka í sumar).
Kreditkortaþjón usta.
Sumarpeysumar okk-
areruframleiddarúr
ítölsku bómullargami.
í verzlun okkar er mik-
ið úrval af sumarpeys-
um á dömur, herra og
böm.
Einnig er selt í verzlun
okkar:
Dömubuxurfrá
GARDEUR í V-Þýskal.
Dömublússurfrá
OSCARofSwedenog
Kellermann i Svíþjóð.
. i. PRJÓNASTOFAN
UÖuntv
Skeijabraut lt (v/Nesveg)
Seltjaraarnesi.
.y
W IA\ASTi:\(ilK
fánastengur eru framleiddar úr áli,
hvítlakkaðar og endast vel. Uppsetning er
sérstaklega auðveld.
fánastengur bjóðum við i eftirfarandi
lengdum: 6 — 8 — 10 — 12 — 14 — 16 metra.
SCANDINAVIA
Sudurlandsbraut 6.
sími: 83499-30900