Morgunblaðið - 21.07.1987, Síða 7
fllgrgttnftlaftifr /IÞROTTIR ÞRWJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987
B 7
KNATTSPYRNA / FRAKKLAND
Bretamir lífga
upp á deildina
FRANSKA1. deildar knatt-
spyrnan hófst að nýju á laugar-
daginn var eftir um fjögurra
vikna sumarfrí. Talsvert hefur
verið um félagaskipti á þessu
tímabili og ber þar líklegast
hœst koma Bretanna Hoddle
og Hateley til Mónakó annars
vegar og Ray Wilkins til París
SG hins vegar. Leik Mónakó
og Marseille var því beðið með
mikilli eftirvœntingu jafnt af
enskum og ítölskum frétta-
mönnum sem og þeim frönsku.
Ög leikurinn olli ekki vonbrigð-
um, í það minnsta ekki í
Mónakó. Leikur liðsins var hraður
og kom það vöm Marseille hvað
eftir annað í ófærur.
Fyrsta markið kom
á 33. mínútu eftir
að Hateley hafði
skotið lúmsku skoti
sem Bell, markvörður Marseille,
hélt ekki. Þar var Mege fyrstur að
Frá
Bemharði
Valssyni
ÍFrakklandi
boltanum og skoraði með föstu
skoti. í seinni hálfleik bættu þeir
Fofana og Hateley sitthvoru mark-
inu við fyrir Mónakó, en Papin
minnkaði muninn fyrir Marseille úr
vítaspymu. Af frammistöðu Món-
akó í þessum leik virðist liðið vera
sterkara en undanfarin ár og nokk-
uð vfst að það mun blanda sér í
toppbaráttuna. Erfíðara er að segja
til um styrkleika Marseille. í liðinu
hafa orðið miklar mannabreytingar
og því ekki óeðlilegt að nú í upp-
hafí móts nái menn ekki vel saman.
En með Hidalgo, fyrrum landsiiðs-
þjálfara Frakka, sem tækniráðgjafa
mun liðið ömgglega ná sér á strik
og fylgja eftir góðri frammistöðu
frá því á síðastliðnu keppnistímabili.
Bordeaux, sem hefur bæði bikar
og deild að veija, vann Metz 3:2 á
heimavelli. Það voru þó gestimir
sem náðu forystunnni tvívegis, en
það nægði ekki til að bijóta Borde-
aux á bak aftur. Jose Toure, besti
maður vallarins, skoraði tvívegis
fyrir Bordeaux, en Júgóslavinn
Vujovic skoraði sigurmarkið.
Ray Wilkins kemur líklegast til með
að gegna stóru hlutverki á miðjunni
hjá Paris SG á þessu keppnistíma-
bili. Liðið vann Le Havre 2:0 í París
í heldur átakalausum leik, en sigur-
inn er leikmönnum PSG mjög
mikilvægúr þar sem gengi liðsins
þótti afleitt á síðasta keppnistíma-
bili. Það voru Bocande og Marquet,
sem skomðu mörk Parísarliðsins.
Nýliðamir í deildinni, Cannes, sem
Teitur Þórðarson lék með á sínum
tíma, og Niort, sem lék í 4. deild
fyrir §ómm ámm, gerðu báðir jafn-
tefli, Cannes 0:0 gegn Auxerre en
Niort 1:1 gegn Lens. Montpellier
tapaði aftur á móti 3:1 gegn feyki-
sterku liði Toulouse og er óhætt
að gera ráð fyrir Toulouse í baráttu
efstu liða á keppnistímabilinu.
■ Úrsllt/B14
■ Staðan/B14
HANDBOLTI
Héðinn Gilsson
æfir með Essen
HÉÐINN Gilsson, handknatt-
leiksmaður úr FH, hefur
ákveðið að þiggja boð vestur-
þýzku meistarannaTusem
Essen um að œfa með liðinu í
10 daga í ágústmánuði.
Markmið Héðins með þessari
æfíngadvöl er að læra meira
fyrir sér í handknattleik en það er
ekki rétt, sem fram hefur komið í
einum íslenzku fjöl-
Frá miðlanna, að Essen
Jóhannilnga sé að reyna að fá
Gunnarssynií hann tn gín_
Þýs aan i Forráðamenn Essen
em hins vegar það ánægðir með
reynslu sína af íslenzkum leikmönn-
um, að þeir hafa ákveðið að leita
að íslendingi sem arftaka Alfreðs
Gíslasonar þegar hann hættir hjá
félaginu.
Héðlnn Gllsson stórskytta úr FH.
Tekur hann við hlutverki Alfreðs hjá
Tusem Essen?
Þeir óskuðu eftir áliti Jóhanns Inga
Gunnarssonar, þjálfara félagsins,
og Alfreðs. Báðir bentu þeir á Héð-
inn Gilsson og f framhaldi af því
ákváðu stjómendur félagsins að
bjóða honum í æfíngabúðir með
félaginu í næsta mánuði.
Héðinn hefur ákveðið að þekkjast
boðið en það fer síðan eftir því
hvort hann fær samþykki þjálfara
síns, Viggós Sigurðssonar, hvort
hann getur tekið boðinu. Telja má
víst að hann fái leyfíð því reynsla
sú sem Héðinn fær í æfingabúðun-
um ætti að nýtast félagi hans og
koma því og landsliðinu í góðar
þarfír.
Lítist forráðamönnum Essen vel á
Héðin kynni svo að fara að þeir
myndu leita til hans eftir 2-3 ár,
eð aþegar að því kemur að Alfreð
dregur sig í hlé.
KNATTSPYRNA / NOREGUR
Gunnar og félagar í
Moss enn á sigurbraut
MOSS, lið Gunnars Gfslasonar,
heldur áfram sigurgöngu sinni
í 1. deildinni norsku. í síðustu
viku lagði liðið gamla stórveld-
ið Lillestrem að velli, 2:1, á
heimavell Lillestrem.
Leikurinn var ákaflega fjörugur
og skemmtilegur á að horfa.
Gunnar lék vel bæði í vöm og sókn
og virðist hafa ótakmarkað úthald.
Hann var einn af
Frá bestu mönnum vall-
JóniÓttarí arins, hreyfanlegur
Karíssyni 0„ útsjónarsamur í
lNorea' leik sínum.
Brann frá Bergen, lið Bjama Sig-
urðsson, siglir í mótbyr þessa
stundina þrátt fyrir að vera það
sterkasta í 1. deildinni í Noregi —
alla vega á pappírunum. Liðið fjár-
festi í nýjum leikmönnum fyrir
meira en milljón norskar krónur
fyrir leiktímabilið og ætlaði sér
stóra hluti, en betur má ef duga
skal. Brann tapaði fyrir Kongsvin-
ger á útivelli 2:0. Bjami var besti
maður Brann og reyndar sá eini sem
ekki lét bugast þrátt fyrir mótgang-
inn. Bjami lætur ekki lélegt gengi
annarra leikmanna hafa áhrif á leik
sinn, hann heldur sínu og er stöðug-
leikinn sjálfur.
Nú taka norskir knattspymumenn
sér tveggja vikna sumarleyfí og
safna nýjum kröftum fyrir ný átök
á hausttímabilinu. Önnur úrslit urðu
annars þau að Bryne vann Ham-
Kam 4:2, Tromso tapaði 1:0 fyrir
Váleringen, Mjöndalen tapaði 3:1
fyrir Rosenborg og Start tapaði
einnig heima, 2:0 fyrir Molde. Að
12 umferðum loknum er Moss í
efsta sæti með 26 stig, Bryne er
með 25 stig, Rosenborg og Molde
með 21, Mjondalen, Brann og
Tromso með 18 stig, Váleringen
16, Kongsvinger 15, Lillestrem 14,
Ham-Kam 13 og Start 11 stig.
Frábært hjá Úlfari
Úlfar Jónsson lék mjög vel um helgina og setti nýtt glæsilegt met á Grafar-
holtsvellinum.
GOLF / STIGAMÓT
Úlfar bestur
ÍSLANDSMEISTARINN ígolfi,
Úlfar Jónsson úr Keili, vann
nokkuð öruggan sigur í Niss-
an-stigamótinu sem fram fór
hjá GR um helgina. Úlfar lók á
292 höggum en Sigurður Pét-
ursson úr GR varð annar á 303
höggum. í kvennaflokki vann
Jóhanna Ingólfsdóttir úr GR á
333 höggum.
m
Ulfar lék einstaklega vel og setti
vallarmet með því að nota
aðeins 292 högg á 72 holum. Fyrsta
hringinn lék Ulfar á 75 höggum
og þann næsta á 73. Fyrri hringinn
á sunnudaginn lék hann síðan á 69
höggum sem er vallarmet á 18
holum og deilir hann því nú með
Sigurði Péturssyni sem lék á 69
höggum fyrir nokkrum árum.
Síðasta hringinn lék Úlfar sfðan á
75 höggum eins og þann fyrsta.
Sigurður Pétursson úr GR varð
annar í mótinu og lék hann á 303
höggum, 75-77-77-74. Jafnir í
þriðja til fjórða urðu þeir Hannes
Eyvindsson úr GR og Sigurður Sig-
urðsson úr GS en báðir léku þeir á
307 höggum. Hannes vann Sigurð
á fyrstu braut í bráðabana. „Þetta
var ágætt," sagði Sigurður eftir
bráðabanann, „ég er að fara út að
borða og má ekki vera að þessu,"
bætti hann við.
í kvennaflokki varð Jóhanna
Ingólfsdóttir úr GR hlutskörpust,
lék á 333 höggum. Þórdís Geirs-
dóttur úr Keili varð önnur á 338
höggum og Ragnhildur Sigurðar-
dóttir úr GR þriðja á 340 höggum.
■ Úrsllt/B15
Opna Húsavíkurmófið
Opna Húsavflcurmótiö ígolfi
veröur haldiö 25. og 26. júlí.
Keppt verður í karla-, kvenna-
og ungiingaflokki með og án
forgjafar. Skráningar þurfa aö
berast fyrir kl. 22.00 á föstu-
dagskvöld.