Morgunblaðið - 21.07.1987, Síða 10

Morgunblaðið - 21.07.1987, Síða 10
10 B jn»retroÞIaÍ>«& /ÍÞRÓTTIR ÞRHXJUDAGUR 21. JÚLÍ1987 HANDKNATTLEIKUR Menn gefa sig ekki í þetta í framtíðinni nema fyrir háar tekjur - segir Þorgils Ótíar Mathiesen, landsliðstyrirliði, um hið mikla álag sem fylgir því að vera í liðinu „ÍSLENSKA landsliðið er á mjög viðkvæmum punkti í dag. Það besta hefur náðst út úr lið- inu, að mfnu mati; við spilum varla betur en eins og þegar okkur tekst best upp nú — spurningin er að ná aftur toppi í Seoul eins og í Sviss.“ Þetta sagði fyrirliði landsliðsins í handknattleik, Þorgils Óttar Mathiesen, Ifnumaðurinn snjalli úr Hafnarfirði, er undir- rrtaður ræddi við hann um stöðu liðsins f dag. Það eru sex ár síðan Þorgils Óttar kom fyrst inn í landslið- ið; hann er 25 ára að aldri og þegar orðinn fyrirliði. Tók reyndar við þeirri stöðu eftir HM Skapti í Sviss í fyrra. Skyldi Hallgrímsson það hafa komið hon- skrífar um ^ óvart að vera boðin fyrirliðastað- an svona ungur? „Nei, í sjálfu sér ekki. Bogdan hafði orðað þetta við mig áður, hvort ég hefði áhuga. Ég hafði verið fyrirliði unglingalandsliðsins og FH og ein- hver verður að verafyrirliði! Eg tók þetta þvf að mér. Ég víssi nokkuð að hveiju ég gekk. Ifyrirliðinn er ætfð í hagsmunanefnd ásamt fleiri ieikmönnum og ég hafði verið í henni með Tobba Jens.“ Breytti það einhverju fyrir þig að verða fyririiði? Nei, ég get varla sagt það. Og þó, ég þarf að vera milligöngumaður milli leikmanna og þjálfara, líka. milli leikmanna og stjómar HSÍ. Þessu fylgja sem sagt verk utan vallar sem innan. En það setur ekki pressu á mig að vera fyrirliði eldri leikmanna. Það getur verið erfitt, en hópurinn er svo samstilltur að þetta er ekkert mál.“ Vlljum halda okkur f þessumhópl Það hefiir mikið verið rætt um möguleika íslands á ólympiuleik- unum næsta ár. Hveija telur þú möguleika ykkar? „Markmið okkar strákanna í liðinu er að halda 6. sæti. Það getur auð- vitað allt gerst, við getum dottið niður í 10. sæti og farið upp í 3.-4. sæti. Það spilar svo margt þar inn í. En við viljum vera ein af 6-8 bestu þjóðum heims. Sjötta sæti á ólympíuleikunum í Los Angeles og á HM í Sviss var stórkostlegur árangur. En, eins og ég segi, það getur allt gerst og litlu munað — 1-2 mörk geta skipt máli um 1-2 sæti í keppni. Við viljum halda okk- ur í þeim hópi sem við erum, viljum sýna góða leiki hér heima og taka þátt f sterkum mótum erlendis. Hvatning skiptir því öllu máli — bæði fjárhagsleg og eins að fínna hve miklu máli það skiptir fólk að eiga sterkt landslið. Það er mjög ánægjulegt og við finnum hve fólk ' er ánægt.“ Hvað með framtíðina — eigum við efnivið til þess að verða áfram með jafii gott lið? „Ég held að efniviðurinn sé til stað- ar, já. Spumingin er um áfram- haldandi starf hjá félögunum og í stjóm HSÍ. Að horft sé fram á veg- M v WBm* ym 1 í Landslíðið Morgunblaöið/Júlíus Sigurjónsson íslenska landsliðið náði glæsilegum árangri á Jugóslavíumótinu á dögunum; lenti þar í þriðja sæti og sigraði bæði heims- meistara Júgóslava og Austur-Þjóðveija. Myndin er tekin eftir sigurleikinn gegn Austur-Þjóðvetjum í Bitola. Fyrirliðinn Þorgils Óttar Mathiesen er fæddur 17. maí 1962. Hann hefur leikið með yngri fiokkana með FH, nú með meistaraflokki og hefur verið fyrirliði liðsins síðast- liðin þijú keppnistímabil. Hann á að baki 146 lands- leiki og hefur verið fyrirliði liðsins síðan eftir heims- meistarakeppnina í Sviss á síðastliðnu ári. inn og tekist á við stórverkefni eins og gert hefur verið. Það verður að sjá til þess að þjóðaríþróttin verði áfram handbolti." Áttu von á þvf að margir úr landsliðshópnum í dag hætti strax eftir ólympíuleikana í Seo- ul? „Það hætta aldrei allir eftir ólympíuleikana, þama eru margir á besta aldri og eiga örugglega nokk- ur ár eftir. En það verður erfiðara að halda mönnum ef ekki kemur eitthvað meira hvetjandi." Menngefasig ekklútf þetta nema fyrlr hó laun fframtfölnnl Eitthvað meira hvetjandi, seg- irðu. Þið fáið greitt vinnutap vegna æfinga og leikja og auka- greiðslur fyrir góðan árangur. Ertu að segja að það verði að fara borga meira fyrir þetta? „Já, að menn verði hreinlega settir á launaskrá. Ég held að það sem koma skal sé að fyrirtæki taki að sér ákveðna leikmenn; greiði þeirra laun gegn auglýsingasamningi. Og ég held að ef áhugi verði á að halda sterkasta hópnum saman eftir ólympíuleikana, hvort sem við kom- umst beint í heimsmeistarakeppn- ina í Tékkóslóvakíu eða þurfum að fara í B-keppnina; þá verður að gera eitthvað nýtt. Síðasta veturinn fyrir mót yrðu menn að vera á góðum launum; og f fullri vinnu og f fullri vinnu við að æfa 5-6 mánuði fyrir keppni. Menn æfa tvi- svar á dag og verða því að fá góð laun. í framtíðinni gefa menn sig ekki út í þetta nema þeir verði há- tekjumenn á því. Leikmenn leggja líka gífurlega mikið á sig, liðið er samsafn af stjömum og enginn sættir sig því við að sitja á bekkn- um. En þrátt fyrir samkeppnina bitnar þetta ekki á hópnum, það er til dæmis ekki óalgengt að þeir sem berjast um sömu stöðu haldi sig mest saman — bakki hvor ann- an upp. Hópurinn verið nánast óbreyttur síðan ég kom inn í hann fyrir sex árum og þekkjast því allir út og inn. Menn þekkja hrotumar hveijir í öðrum; og það er oft rætt í æfingaferðum hvemig.menn haga sér í svefni! Bogdan notaröll tlltœkráðtll aö ná árangri Gagnrýnisraddir heyrðust lengi vel á störf Bogdans, en það fer ekki á milli mála að hann býr yfir miklum hæfíleikum. Hvað segir þú um störf hans hér á landi? Hann gjörbreytti öllu í íslenskum handbolta. Menn æfa til dæmis mikið meira nú en áður en hann kom. Nú finnst öllum í landsliðinu sjálfsagt að æfa í hádeginu þegar við erum á keppnisferðum, jafnvel þó leikur sé um kvöldið. Menn vilja það! Og hjá Bogdan geta menn gengið að því vísu þegar þeir mæta til æfíngatímabils að þeir verða á toppnum á réttum tíma — þegar í keppni kemur, og það hefur mjög mikið að segja varðandi sjálf- straustið. Við höfum heyrt um harðstjóra í fyrirtækjum, hvað ýms- ir athafnamenn séu harðir og nískir en nái árangri því þeir láti menn vinna. Það er sama sagan með landsliðið. Árangur næst af því að menn eru látnir vinna. Til þess eru notuð öll tiltæk ráð, skammir og Morgunblaöiö/JúKus Kristalnum hampað Þorgils Óttar hampar kristalsvasa, sem íslenska liðið fékk fyrir þriðja sætið f Júgóslavíumótinu. læti. Bogdan svifst einskis þegar handbolti er annars vegar, til að ná árangri. Það væri hægt að skrifa heila bók um rifrildi hans og leik- manna, í leikjum, á æfíngum og á fundum! En þegar karlinn ýtir handboltanum til hliðar — sem hann reynir stundum og getur — talar hann um heima og geyma. Þó hann hafi húðskammað mig á æfingu getur hann til dæmis talað við mig eins og góðan vin strax á eftir. Hann leggur rosalega mikla vinnu á sig sjálfur og krefst þess sama af okkur. Hann liggur kannski alla nóttina eftir leik og skoðar mynd- bönd — sefur ekkert, kemur svo á fund með okkur og segir hvað fór úrskeiðis." Álagið er oft gífurlegt á æfíngum hjá Bogdan, enda sagði Þorgils: „við erum allir „létt-klikkaðir" sem endumst í þessu hjá karlinum! Við förum langt á skapinu; „íslending- urinn" kemur upp í okkur. Og ef þessi mannskapur væri gjam á að gefast upp væri meiri hlutinn hætt- ur, þetta er svo erfitt. Bogdan þarf að byggja upp lið með mönnum sem eru sterkir þegar út í keppni kem- ur, menn hans mega því ekki vera einhveijir sem gefast upp.“ Sttur yflr myndbandi f marga klukkutfma sólarhringum saman fmargarvikur... Þið leikið mjög kerfisbundið. Hvemig er undirbúningi ykkar háttað fyrir leiki — skoðið þið andstæðingana vel og vandlega og miðið leik ykkar út frá þeim? „Bogdan situr stundum yfir mynd- böndum í marga klukkutíma á sólarhring í margar vikur að skoða sama liðið. Síðan eru haldnir fundir — þar skoðum við aðallega sóknar- leik væntanlegra andstæðinga, hvaða kerfí þeir nota og hvemig við eigum bregðast við. Lið eru allt- af með mörg leikkerfi en hafa tilhneygingu að leika eitt meira en annað. Það em til margar útgáfur af hveiju kerfi, þannig að maður veit aldrei alveg hvað lið kemur til að að gera. Hvað okkur varðar þá emm við með margar útgáfur af kerfum og leikum mjög kerfis- bundið." Hvað er það sem skiptir mestu máli í nútima handbolta? „Það er vamarleikur maður-gegn- manni, þar sem skiptir öllu hvor einstaklingurinn er sterkari, og það að hafa góðan markmann. Lið sem ætiar að vera á toppnum verður að hafa toppmarkmann." Hvemig stöndum við á þessum sviðiun finnst þér? Við emm með góða markmenn en vamarleikinn má bæta. Maður- gegn-manni vöm er ekki okkar sterkasta hlið.“ Þorgils segir tækni skorta hjá íslenskum leikmönnum miðað við marga aðra, en þeir vinni það upp með kerfisbundnum leik — og með því „að nota hausinn mikið." Kerfin sem íslenska liðið spilar segir hann að miklu leyti sovésk. Hann segir Bogdan leggja mjög mikið upp úr því að leikmenn hugsi um andstæð- inga sína, bæði í sókn og eins um markmennina sem við leikum gegn; hvar hans veikleikar séu. Hann hefur komið því inn smám saman að menn hugsa svona fyrir leiki ósajálfrátt. Hefur kennt mönnum að einbeita sér. Við erum líka fam- ir að horfa öðruvísi á leiki annarra Iiða en áður. Veltum fyrir okkur hvaða kerfi þau spila, hvemig ein- staklingamir spila, hvemig þeir „fínta" sig í gegn og svo fram- vegis. Og það má segja að jafnframt því sem hann þjálfar leikmenn byggi hann upp þjálfara í leiðinni; og vill að menn séu alltaf að læra.“ Þú hefur leikið gegn öllum bestu þjóðum heims. Hverjir eru með skemmtilegustu liðin? „Mér hafa alltaf fundist Rúmenar og Júgóslavar með skemmtilegustu liðin. Svo em Sovétmenn að koma með mikinn ferskleika á ný.“ Hvaða lið heldurðu að verði best á ólympfuleikunum næsta ár?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.