Morgunblaðið - 21.07.1987, Page 13

Morgunblaðið - 21.07.1987, Page 13
2*Ur0twMaftib /ÍÞRÓTTIR ÞRWJUDAGUR 21. JÚLÍ 1987 B 13 Þetta er Porsche 995, sem mun leysa af hólmi 924/944 og á aó rjúfa þann verðmúr, sem fallandi gengi dollarans hefur hlaðið upp gagnvart þýskum bílum. Hann er grelnllega Kkur fyrirrennurum sínum, þó ólíkt mlkilúðlegri og rennilegri að sjó. „Odýr“ Porsche? Stór hluti af markaði fyrir sportbfla og aðra dýra bfla er sá bandaríski. Þar er jafnvel eftirsóknarvert að vera á dýrum bfl, fyrir það eitt, að hann kostar mikið. Sú var a.m.k. raunin með Cadillac Allanté, hann rennur út á uppsprengdu verði. Að sjálfsögðu er þessi regla engan veginn algild, en í Bandaríkjunum er snobbmarkaðurinn hlutfallslega stœrri en víðast hvar annars staðar og því sœkjast bflaframleiðendur um allan heiminn mjög eftir að kom- ast með dýru gerðirnar sínar á þann markað. En jafnvel f því rfka landi fyllist mælirinn um síðir og það hafa evrópskir bflaframleiðendur fengið að reyna illilega nú sfðustu mánuði fallandi dollara. Einkum á það við um þýska bfla, markið hefur hækkað um heil ósköp og spáð er allt að þrjátfu prósenta verðhækkun þýskra bfla f Bandaríkjunum á þessu ári. Það er m.a. af þessum sökum sem Porsche hraðar nú und- irbúningi næsta tromps, sem á að vera ódýrari en fyrri gerðir og því betur búinn til samkeppni í Ameríku. 995 Asíðasta ári voru 924/944-gerðimar fyrirferðarmestar hjá Porsche, u.þ. b. 60% af framleiðslunni og vom um leið þær ódýmstu, a.m.k. 924. Þetta er, og þurfi sinn hagnað af smíðinni. Eins og við er Jósepsson að búast vilJa Porsche- skrifar menn helst smíða sína vagna sjálfír og nú eygja j>eir tækifærið með þessum nýja, sem heitir Porsche 995. Hann er byggður á 944-undirvagni, hefur vélina að framan og verður fáanlegur með afturdrifí eða fjórhjóladrifí. Margar vélagerðir hafa verið reyndar í honum, þ.á m. 135 hest- afla tveggja lítra boxari, fjögurra strokka (911-vélin mínus tveir strokk- ar), og 2,2 lítra V-4, 160 hestafla 16 ventla vél, sem er helmingurinn af V-8- vélinni í 928. Hver sem vélin verður að lokum á hún að geta skilað bflnum fram, svo viðunandi sé miðað við útlit, sem vissulega er ósvikið Porsche og vængur- inn aftan á undirstrikar áhersluna á hraðaksturshæfni. 995 hefur þegar kostað sem samsvar- ar 15 milljörðum króna í hönnun og undirbúningi. Ef Porsche smíðar hann í eigin verksmiðju, mun stækkun hennar og aðrar breytingar kosta annað eins. Þrátt fyrir það þá mun þessi rennilegi vagn verða sá ódýrasti af Porsche, teg- und, hann verður ekta Porsche hvað aksturseiginleika og snerpu varðar og hann sýnir ótvírætt af hvaða ætt hann er. Þess vegna ætti að vera óhætt, að spá honum velgengni strax, ekki síst á hinum eftirsótta Bandaríkjamarkaði. Honda 4x4! Hlaut ekki að koma að þessu? Honda framleiddi hjól og síðan komu bílar. Svo komu fjórhjólin svonefndu. Er þá nokk- uð eðlilegra en að setja þau í stækkar- ann og gera úr þeim jeppa? Það er nú reyndar á mörkunum að hægt sé að kalla þetta fyrirbæri jeppa, en torfæru- tæki er það og með sæti fyrir fjóra fullorðna. Vélin er 2,2 lítra og staðsett á milli öxlanna, fjórhjóladrifið er sítengt og reikna má með þessum grip á mark- að innan þriggja ára. Þessar upplýsing- ar láku út eftir ráðstefnu um markaðsmál, sem ónefndur framleið- andi hélt, en ráðið var í tegundina af óvenju háu hlutfalli Honda-bfla á bfla- stæðunum utan við húsið, sem þingið var í! Verði þessi gripur settur á mark- að, í líkingu við þann sem myndin sýnir, verður að taka ofan fyrir Honda. Þá hefur enn sannast, að þar fer fram- sækið fólk, sem vill uppfylla þarfír markaðarins, og er óhrætt við að fara ótroðnar slóðir í þeim efnum! Ameríski bfllinn víkur fyrir alþjóðlegum bfl Fyrir skömmu voru hór á ferð fulltrúar frá General Motors og könnuðu markaðsaðstæð- urá íslandi. Þarfóru Ronald Royer frá dreifingardeild á erlendum mörkuðum, Vic Lemmens, svæðisstjóri fyrir Evrópu og Torgeir Rindal, sem hefur umsjón með sölu GM í Noregi, Danmörku og á íslandi. Þeir héldu blaða- mannafund, ásamt forsvars- mönnum Bflvangs, umboðsfyrirtækis GM, þeim Gylfa Sigurjónssyni fram- kvæmdastjóra og Bjarna Ólafssyni sölustjóra. Alþjóðlegir bflar Margt athyglisvert kom fram í máli þeirra félaga, fleira en rúm er til að gera skil í dag og því verður aðeins tiplað á helstu atriðum. Síðar verður hér á síðunni skoðað betur hvaða þróun íósepsson á sér stað nú á skrifar tímum í amerískri bflaframleiðslu, ekkí síst hjá GM, þar sem nánast má tala um byltingu í þeim efnum. Það athyglisverðasta, sem fram kom hjá Ronald Royer, er um al- menna þróun í smíði ameríska bflsins. Hin einstöku amerísku séreinkenni eru smám saman að víkja og við tekur bfll, sem í út- liti og hæfni gæti allt eins verið BÍLAR evrópskur eða japanskur. Segja má, að hönnun miðist núorðið fremur við alþjóðlegan markað en einstök svæði. Það er einkum áberandi hjá stóru framleiðendun- um, sem smíða bfla sína í mörgum heimshomum og flytja þannig fremur út hönnun og tækni en bfla sjálfa. Nýjasta dæmið um þessa þróun er Cadillac Allanté, sem er teiknaður af ítalanum Pin- infarina og smíðaður bæði í Bandaríkjunum og á Ítalíu. Sá bfll hefurengin dæmigerð amerísk útlitseinkenni, en þrátt fyrir það hefur hann hitt Ameríkana beint í hjartastað og er eftirspum meiri en GM getur annað. Mörg Ijón f veginum Þótt þessi hneigð sé að verða æ sterkari, að miða fremur við al- þjóðlegan markað en svæðis- bundinn, eru engu að síður enn mörg ljón í veginum, sem sigrast þarf á, áður en hægt verður að tala um einn alþjóðamarkað. Þar ber hæst mismunandi staðla um gerð og búnað bfla. Amerískur bfll gengur ekki á Evrópumarkaði nema gerðar séu á honum breyt- ingar og þær em ekki hagkvæmar nema markaðurinn sé stór. Þó er unnið gegn þessu með ýmsum ráðum og þau helstu em áð auka sveigjanleika í framleiðslunni. Sem dæmi þar um má nefna fjöðr- un bflanna. Ameríska fjöðmnin er önnur en sú evrópska, mýkri og slaglengri. Hún dugir ekki vel Morgunblaöið/Sverrir FulHrúar GM sem heimsóttu fslands nýlega ásamt forsvarsmönnum Bflvangs. FVá vinstri: Vic Lemmens, Torgeir Rindal, Ronald Royer, Gylfí Siguijónsson og Bjami Ólafsson. á hraðbrautum og nú býður GM yfírleitt val um stinna evrópska eða mjúka ameríska fjöðrun í þeim bflum sem fluttir em út til Evrópu. ítalska línan veröur rikjandl Aðspurður svaraði Royer því til um útlitshönnun, að haldið yrði áfram með vel heppnaða ítalska línu. Þau áhrif hafa gefíð góða raun á Camaro/Firebird, Cor- vette, Fiero og nú síðast Allanté og því má búast við að GM halli sér í ríkari mæli í þá áttina í framtíðinni. Nýjungar Af mörgu er að taka þegar rætt er um nýjungar og framtíðar- hugleiðingar hjá General Motors. Hér skuium við renna yfír þær helstu sem ræddar vom á fundin- um með Royer og félögum. 4x4-merkið verður komið á fyrsta fólksbflinn innan fárra vikna, það verður Pontiac 6000 STE og drif- búnaðurinn verður ekta GM, þ.e. ekki fenginn að láni annars stað- ar. Amerískur smábfll frá GM er ekki á næsta leiti, en þó unnið stöðugt að þróun hans. Nú smíðar GM smábfl í Kóreu og flytur til Banda- ríkjanna, hann er byggður á Opel-hönnun (Kadett). PlaSt í stað stáls er í áætlun, bæði fyrir boddíbyrði og burðar- grindur. Pontiac Fiem er að miklu leyti úr plasti og hefur gengið vel, þó hefur verið frestað um sinn að stíga skrefíð til fulls og smíða burðargrind hans úr plasti, en rannsóknir halda áfram og stefn- an er að plastefni muni verða notuð í stað stáls þar sem við verður komið. Nýjar vélar era á næsta leiti og verður þá aftur tekið til við tvö- földu gerðimar eins og á ámnum í kringum 1970. Þá vora margir GM-bflar til sem venjulegir ódýrir fjölskyldubflar og um leið var boð- ið upp á sportlegri útgáfu með fíma öflugum vélum. Þegar er einn slíkur kominn á markað, en hann heitir þó tveimur nöfnum, þ.e. fjölskyldubfllinn Chevrolet Corsica og tryllitækið Chevrolet Beretta. Skyldi það vera tilviljun, að nöfnin em ítölsk? Framdrifíð sækir á, æ fleiri GM- bflar em framdrifnir, og nú er einungis áætlað að fullvöxnu bflamir (Ch. Caprice, Cadillac Brougham og slíkir) ásamt skmggukermnum Camaro/Fire- bird, Fiero og Corvette verði með afturdrifí. Ekki er útilokað að aft- urdrifíð víki að fullu í framtfðinni í þeim bflum, sem hafa vélina að framan. ísland Ekki hefur enn komið í ljós hvort heimsókn þessara fulltrúa GM hefur afgerandi áhrif á verð GM- bíla hér á landi, en þeir hafa varla verið samkeppnisfærir um langt skeið að því leyti, einkum þeir amerísku (að undanskildum Monza, sem framleiddur er í Bras- ílfu). Þó mun ljóst vera, hvað amerísku bflana snertir, að aðalá- hersla verður lögð á meðalstóra bfla eins og Monza annars vegar og hins vegar á fíórhjóladrifna bfla, einkum ef tekst að fínna leið til að fá hingað Blazer á skikkan- legu verði. Sú leið gæti fundist í gegn um Mexíkó, en þar em smíðaðir Blazer-jeppar sem em ódýrari en í Bandaríkjunum. 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.