Morgunblaðið - 21.07.1987, Qupperneq 16
KNATTSPYRNA
Stór-
sigur
Vals í
1. deild
kvenna
TVEIR leikir fóru fram í 1.
deild kvenna fknattspyrnu
á sunnudaginn. Þór fókk sín
fyrstu stig, vann UBK 3:0,
og Valur burstaði Stjörnuna
5:0.
Sigur Vals var í minna lagi
miðað við gang leiksins, en
engu að síður fékk Stjaman góð
marktækifæri og einkum skap-
gmH aði Erla Rafns-
Ema dóttir miklz
Lúðvfksdóttir hættu. Ingibjörg
skrifar Jónsdóttir skor-
aði þijú mörk
fyrir Val og Margrét Óskars-
dóttir og Amey Magnúsdóttir
sitt hvort markið. Staðan í hálf-
leik var 2:0.
Þóra Úlfarsdóttir, Guðrún Sæ-
mundsdóttir og Cora Barker
voru bestar hjá Val, en Guðný
Guðnadóttir, Erla Rafnsdóttir
og Magnea Magnúsdóttir hjá
Stjömunni.
Fyrstu stlg Þórs
Þór fékk sín fyrstu stig í deild-
inni með 3:0 sigri gegn UBK.
Ingigerður Júlíusdóttir skoraði
tvívegis og Aðalheiður Reynis-
dóttir einu sinni og voru öll
mörkin skomð í fyrri hálfleik.
Þórsarar komu ákveðnir til leiks
og ætluðu sér greinilega öll stig-
in. Akureyringamir sóttu stíft
að marki UBK og uppskáru
strax tvö mörk. Eftir það komst
UBK meira inn í leikinn, en
sóknir Þórs voru sem fyrr
hættulegar.
Leikurinn snerist við í seinni
hálfleik og þá sóttu Blikar mun
meira, sköpuðu sér mörg góð
marktækifæri, en tókst ekki að
skora. Þór átti líka sinar skyndi-
sóknir, en mörkin urðu ekki
fleiri og fögnuður Þórs mikill
er sigurinn og fyrstu stigin voru
í höfn.
Ingigerður Júlíusdóttir var best
hjá Þór, en Ásta M. Reynis-
dóttir hjá UBK.
■ Úrsllt/Bl4
■ 8taöan/B14
FRJALSAR
Vástainn Hafstalnsson
Risakast
Vésteins
sjöundi
bezti
árangur
í heimi
áárinu
VÉSTEINN Hafsteinsson
HSK er í sjöunda sœti á
skrá yfir beztu kringlukast-
ara heims eftir risakastið í
Svíþjóð sl. föstudag, sem
við sögðum frá í laugar-
dagsblaðinu, samkvœmt
upplýsingum Morgunblaðs-
ins.
Efstur á skránni er austur-
þýzki heimsmethafinn
Jiirgen Schult með 69,52 metra.
Svíin Stefan Femholm kastaði
68,30 metra í síðustu viku og er
í öðru sæti. Síðan koma fimm
menn á sama metranum. Þriðji
er Kúbumaðurinn Luis Delis,
sem er svertingi, með 67,92.
Hann varð þriðji á ólympíuleik-
unum í Moskvu 1980 og annar
á heimsmeistaramótinu í Hels-
inki 1983.
Norðmaðurinn Svein Inge Val-
vik er fjórði með 67,70 metra,
sem hann náði í byijun síðustu
viku í Finnlandi. Fimmti er síðan
ólympíumeistarinn frá í Los
Angeles, Vestur-Þjóðveijinn
Rolf Danneberg, með 67,60.
Sjötti og aðeins tveimur senti-
metrum á undan Vésteini er
síðan einn mesti afreksmaður í
kringlukasti undanfarin ár,
Tékkinn Imrich Bugar. Það er
ekki amalegt að vera við hlið
afreksmanns af því tagi sem
Bugar er. Hann vann silfur í
kringlukasti á ólympíuleikjunum
í Moskvu, varð Evrópumeistari
1982 og síðan heimsmeistari í
Helsinki 1983.
Þegar haft var samband við
Alþjóðaftjálsíþróttasambandið í
Lundúnum í gær var þvi haldið
fram að Vésteinn væri nú fimmti
í heiminum. Hafði sambandinu
ekki borizt upplýsingar um
Femholm og Valvik. Skráin lítur
annars út sem hér segir:
69,52....Jiirgen Schult, A-Þýzkalandi
68,80......Stefan Fcmholm, Svlþjóð
67,92.............Luis Delia, Kúbu
67,70......Svein Inge Valvik, Noregi
67,70...Rolf Danneberg, V-Þýzkal.
67,22.Imrich Bugar, Tékkóslóvakíu
67,20.........Vésteinn Hafsteinsson
66,90.....Art Bums, Bandarikjunum
66,80......Vaclavas Kidikas, Sovétr.
66,60.........Juan Martinez, Kúbu
66,24..Mike Buncic, Bandarikjunum
Morgunblaðið/Kristján G. Arngrímsson
Pátur Pétursson ásamt krökkunum sem hann afhenti viðurkenningar sínar um helgina. Frá vinstri: Haukur Harðar-
son úr Biskupstungum, og systkinin úr Reykjavík, Jóhann Helgi Sigurðarson og Lilja María Sigurðardóttir.
IÞROTTAGETRAUN MORGUNBLAÐSINS
Verðlaun afhent
fyrir annan hluta
VERÐLAUN fyrir annan hluta
íþróttagetraunar Morgun-
blaðsins voru afhent um helg-
ina.
Það er Haukur Harðarson, 12
ára úr Biskupstungum, sem
hlýtur annan farseðilinn af þremur
til Lundúna i næsta mánuði, en
einnit voru mætt í verðlaunahófíð
systkinin Lilja María Sigurðardóttir
og Jóhann Helgi Sigurðarson, sem
gerðu getraunina saman, en hún
var merkt Lilju. Sverrir Þór Viðars-
GOLF
son úr Reykjavík, einn þeirra sem
hlaut viðurkenningu í þessum hluta
getraunarinnar, var fjarverandi, en
tekur við viðurkenningu sinni þegar
við heiðrum þá krakka sem dregin
verða í þriðja hlutanum.
Það var Pétur Pétursson, landsliðs-
maðurinn snjalli í knattspymu, sem
afhenti krökkunum verðlaunin fyrir
okkur. Að vanda fengu allir fallegan
íþróttagalla frá Henson, svo og
íþróttatösku, Morgunblaðsbol og
Morgunblaðsklukku.
Nú er ljóst að ísfirðingurinn Sigurð-
ur Samúelsson og Haukur Harðar-
son úr Biskupstungum, fara á
Wembley-leikvanginum á vegum
Morgunblaðsins í næsta mánuði, en
fljótlega ræðst hver verður þriðji
krakkinn sem fer. Við höfum nú
þegar birt alla þijá hluta júlíget-
raunarinnar og því eru allir krakkar
hvattir til að senda svarseðlana
þijá inn hið allra fyrsta. Seðlamir
verða að hafa borist okkur fyrir kl.
18.00 næstkomandi fímmtudag, 23.
júlí.
Úlfar Jónsson
setti nýtt vallarmet
ÚLFAR JÓNSSON setti um
helgina glæsilegt vallarmet á
golfvellinum f Grafarholti. Úlfar
lók fjóra hringi, eða 72 holur á
292 höggum sem er jafnt SSS
vallarins og jafnframt vallar-
met.
Það þarf vart að taka fram að
Úlfar vann mótið um helgina
enda standast honum fáir snúning
þegar hann leikur eins vel og hann
getur. Úlfar lék þriðja hringinn í
mótinu mjög vel og jafnaði þá vall-
armet Sigurðar Péturssonar, lék
átján holumar á 69 höggum en SSS
vallarins er 73.
Já, Úlfar virðist vera í miklu stuði
þessa dagana enda styttist nú óðum
í landsmót kylfinga en það hefst í
næstu viku og verður að þessu sinni
haldið á Akureyri.
Ulfar bestur/B7
Úrsllt/B15
LOTTO: 13 14 22 27 32