Morgunblaðið - 31.07.1987, Page 5

Morgunblaðið - 31.07.1987, Page 5
B 5 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1987 Líklega hafa menn ætíð gert sér hús- gögn bæði til nytja og prýði og jafnvel munu sum þeirra oft á tíðum hafa verið til vitnis um veg og virðing eigenda. Enginn veit hvert upp- hafið var í búnaði, en trúlega hefur trjábolur snemma verið höggvinn og steinn klappaður til lögulegs forms og þæginda. Heimildir geta þess að kistur hafi snemma komið til sögunnar og fyrsti skápurinn reyndar gerð- ur úr tveimur kistum, þar sem ein var lögð ofan á aðra. Fornþjóðir gerðu sér hús- búnað af ýmsum toga, en það er þó tæpast fyrr en kemur fram á 15. öld, sem fram komu hug- myndir í húsgagnagerð varðandi not og gildi, er svipa til þess sem við í nútímanum þekkjum. Þegar rætt er um forna og veglega húsmuni, þá kemur líklega flestum í hug það sem prýddi sali í Frakklandi og víðar á tímum konunganna Lúðvíks 14., 15. og 16., enda eru Frakkar orðnir leiðandi í húsgagnagerð á 18. öld. Margar breytingar og tísku- sveiflur hafa oröið á þessu sviði sem öðrum en þó sú bylting mest að fjöldaframleiðslan hefur tekið völdin. Áður var allt í hönd- um gert og hver gripur bar meistarans handbragði vitni, natni hans, vöndun og listfengi. Slíkt er nú talið til safngripa og sumt ígildi gimsteina eða góð- verka gömlu málaranna. 700.000 króna skápur í kjallaranum í dimmri þröngri geymslu und- ir stiga á ensku sveitasetri er húsgagnasérfræðingur frá upp- boðshaldara að líta í kringum sig í síðasta sinn. Undir kössum og allskyns rusli rekur hann augun í rykugan skáp og spyr húsráð- anda hvort hann megi taka skápinn og skoða hann úti í dagsbirtu. „Gjörðu svo vel, þessi skápur hefur staðið hér á sama stað í marga áratugi." Það kem- ur á daginn að um er að ræða kínverskan skáp frá 18. öld sem er innlagður gulli og handmálað- ur blómum og ávöxtum. Skápur- inn var settur á uppboð og fór fyrir næstum 700.000 krónur. Eigandi skápsins varð að von- um glaður með þennan óvænta feng sinn en lét hafa eftir sér að þetta hefði komið sér mjög á óvart því hann hefði verið að íhuga að farga gripnum eða láta búa til teborð úr bakplötu skáps- ins. í nokkuð langan tíma hafa gömul húsgögn ekki átt miklu fylgi að fagna hér heima meðal almennings og sérstaklega ungs fólks sem er að hefja búskap. Þessi saga sem sögð er hér að ofan er að öllum líkindum einstök og kannski ekki margir íslending- ar sem eiga eftir að fá svona óvæntan glaðning. En á heildina litið vitum við flest afskaplega lítið um þá gömlu gripi sem til eru á heimilum fólks. Það var algengt sérstaklega á svokölluðu tekktímabili að fólk henti um- vörpum á haugana gömlum ættargripum eða reyndi að fá fyrir þá eitthvað smálegt. Fólk kynnti sér ekki til hvaða brúks hlutirnir voru, hvenær þeir voru búnir til og svo framvegis. Oft eru fyrstu gömlu hlutirnir sem fólk eignast eitthvað sem það hefur fengið í arf eða að gjöf og hefur þá oftast tilfinn- ingalegt gildi. En sumum, sér- staklega ungu fólki finnast munirnir ekki hæfa með nýtísku- legum Ikea og Casa húsgögnum, það vill eitthvað stílhreint, ekki gamalt, illa farið og oft of íburð- armikið. Það er að sögn sér- hæfðra manna mikill misskiln- ingur sem segja að hægt sé blanda saman með góðum ár- angri nýju og gömlu. Viðmælandi blaðsins brydd- aði upp á því hve leiðinlegt það væri þegar fólk tæki upp á því að breyta gömlum munum. Þessi sami viðmælandi sagði sögu af gömlum grammofón- skápi sem hann hafði rekist á á dögunum og gerður hafði verið úr barskápur. Það ætti heist að leyfa hlutunum að þjóna sínu upphaflega markmiði eins vel og hægt er og reyoa að breyta þeim ekki í eitthvað annað. Við glugguðum í erlenda ráð- leggingabók fyrir fólk sem ætlar að láta gera við gömul húsgögn. Þar segir að nauðsynlegt sé að afla sér upplýsinga um bæði smíðaaðferð, frágang og aferð- ina á hlutnum áður en farið er að lagfæra gripinn. Um sófa, stóla og þannig hluti gildir það Norskur útskorínn barrokkstóll úr eik. Hann er frá átjándu öld. sama um bólstrun og álklæða- val, aö það þarf að kynna sér hvernig húsgagnið var bólstrað og hverskonar áklæði hæfir stíl þess. Margir góðir bólstrarar eru starfandi hérlendis og að sögn eru þeir ekki dýrir miðað við það sem gerist erlendis. Ef maður aflar sér ekki fullnægjandi upp- lýsinga um húsgagnið eins og það leit upprunalega út geta endurbætur á því leitt til þess að það verði ekki nema svipur hjá sjón eftir að maður í hugsun-" arleysi vildi bæta útlitið. Sér- fræðingar þeir sem tjá sig um málið í bók þessari telja að var- ast beri að endurvinna gamla húsmuni með nýtískulegum vél- um eða nota nútíma lökk og málningu. Slíkt geti leitt til þess að húsgagnið verði eins og góð eftirlíking en tapi uppruna sínum. Þá verður að gæta þess að henda aldrei hluta af gömlum grip sama hversu lítill hann er. Það útilokar þá sem vilja kannski koma viðkomandi húsgagni í sitt eðlilega horf síðar. Ef einhverjir eignast gamla hluti ættu þeir ekki að hafa áhyggjur þó húsgögnin beri þess merki að þau hafi verið notuð um langan aldur. Aldur og slit er nefnilega hluti af sérkenni húsmunarins og hans töfrum. Gamla muni ætti í raun að umgangast með virðingu og líta á sem menningarverðmæti þannig að þeir komist sem minnst skemmdir til þeirra sem við af okkur taka. Nokkuð hefur verið um að húsgögn séu gerð gömul með brellum og jafnvel heilu bækurn- ar komið út um það hvernig skuli standa að verkinu. Það ætti ekki að þurfa að hafa mörg orð um það hve óheiðarlegur þessháttar verknaður er. Hræringar í stefnum og straumum atvinnulífs, stjórn- mála og lista endurspeglast í húsgögnum jafnvel betur en í olíumálverkum og arkitektúr. Ef saga húsgagnanna er skoðuð þá má sjá breytingar á lagi og litum sem gefa okkur þannig inn- sýn i sögu og menningu okkar. GRG Renesanskista sem var smíðuð í byrjun sautjándu aldar. Kistan er úr eik og er í Frederiksborghöllinni f Hillerod ^ Morgunblaðið/BAR Vllborg Karlsdóttlr og Slgríður Ágústsdóttlr á saumastofunnl. JENNÝ SF. Gunnar Karlsson og Vilborg Karlsdóttir reka fatageröina Jenný, Skólavörðustíg 28. Þar er saumastofa og verslun. Allur fatnaður nema nærfatnaður er saumaður á staðnum og áhersla er lögð á yfirstærðirfrá 46-56. Einnig er saumað eftir pöntunum. PÉTUR TRYGGVI Pétur T ryggvi er með gullsmíðaverkstæði og verslun á Skólavörðustíg 6. Hann handsmíðarog hannar, aðallega skartgripi úr silfri, gulli, titaníum, ibenholti og kopar. Pótur Tryggvl, gullsmlður. Morgunbiaðia/BAR Morgunblaðið/BAR Elísabot Þorstolnsdóttlr á Verkstæðlnu V. VERKSTÆÐIÐ V Fimm konur reka Verkstæðið V í Þingholtsstræti 28 og eru þar með vinnustofu og gallerí. Þæreru: Herdís Tómasdóttir, Jóna Sigríður Jónsdóttir, Guðrún J. Kolbeins, Þuríður Dan Jónsdóttir og Elísabet Þorsteinsdóttir. Þær vinna sjálfstætt að handverki og hönnun meðal annars vefnaði og þrykki. Hægt er að panta verk hjá þeim.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.