Morgunblaðið - 30.08.1987, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 1987
Norræna húsið:
Síðari tónleikar
ungra einleikara
SÍÐARI tónleikar í annarri
umferð í keppni ungra einleik-
ara á Norðurlöndum verða
halrinir í Norrœna húsinu
þriðjudaginn 1. september kl.
20.30. Þessi umferð fer fram
sem tónleikar og er öllum
heimill aðgangur.
Tveir einleikarar koma fram á
Nöfn víxluðust
í töflu um fiskverð á upp-
boðsmörkuðum i blaðinu í gær
vixluðust nöfnin. Efri taflan
var um verðið í Reykjavík en
sú neðri frá markaðnum í
Hafnarfirði.
þessum tónleikum, þau Pétur
Jónasson gítarleikari og Auður
Hafsteinsdóttir fíðluleikari.
Guðríður S. Sigurðardóttir leikur
undir á píanó.
Pétur Jónasson leikur verk eft-
ir Manuel Maria Ponce, Kjartan
Ólafsson og Heitor Villa-Lobos.
Auður Hafsteinsdóttir leikur verk
eftir Brahms, Karólínu Eiríks-
dóttur og H. Wieniawski.
Þetta er íslenski hluti keppn-
innar og að henni lokinni mun
einn eða fleiri íslenskir einleikar-
ar verða valdir til að koma fram
á samnorrænu hátíðinni, sem
haldin er annað hvert ár. Næsta
hátíð verður haldin í Reykjavík
haustið 1988.
Frá opnun nýja Epal-hússins við Faxafen Morgunblaðið/BAR
Epal hf. flutt í nýtt húsnæði
Lýst eftir vitnum
EKIÐ var á bifreið af gerðinni
Opel Corsa er stóð á bílastæði
Leiðrétting
MISSKILNINGS gættí í frett um
kaupmáttaraukningu í Morgun-
blaðinu I gær.
Þar sagði að aukning kaup-
máttar milli 4. ársfj'órðungs 1986
og 1. ársQórðungs 1987 hefði ver-
ið 10% og 14% milli 3. og 4.
ársfjórðings 1986. Þessar tölur
eiga við hækkun á launatöxtum
en kaupmáttaraukningin mældist
6% og 10%. Þá var kaupmáttar-
aukningin milli 1. ársfjórðungs
1986 og 1. ársfjórðungs 1987
meiri en sagði í fréttinni eða 25%
í stað 20%. Þessar tölur breyta
ekki því að þama er um mestu
kaupmáttaraukningu að ræða í
yfír 20 ár.
á Vitatorgi á föstudag á milli
9.00 og 16.00. Bifreiðin er rauð
að lit með skrásetningarnúm-
erið R-18337.
Aftur- og framhurðir farþega-
megin eru báðar skemmdar og
leikur grunur á að skemmdimar
séu eftir ljósan Ford-bfll. Hafí
einhver orðið vitni að atburði
þessum, er sá hinn sami vinsam-
legast beðinn að snúa sér til
lögreglunnar í Reykjavík.
1NNLEN-T
EPAL hf. er flutt í nýtt húsnæði
við Faxafen 7 f Reykjavík. Húsið
er 1240 fermetrar að stærð,
teiknað af Manfreð Vilhjálms-
syni arkitekt. Verslunin sjálf er
f 800 fm. húsnæði og hefur
danski arkitektínn Erik Ole Jörg-
ensen skipulagt allt innandyra.
Við opnun Epal-hússins var
kjmntur nýr sófi sem danski hönn-
uðurinn Ole Kortzau teiknaði fyrir
Epal. Sófínn er framleiddur á ís-
landi en verður seldur bæði hér á
landi og erlendis. Hann hefur verið
kynntur í húsbúnaðarversluninni
Illum Bolighus í Danmórku og í
tímaritinu Design of Scandinavia.
í fréttatilkynningu frá Epal segir
að fyrirtækið hafí í seinni tíð reynt
eftir föngum að fá íslenska hönnuði
til starfa og á verður lögð aukin
áhersla á það í framtíðinni.
Reyðarfjörður:
Mínkur í sjóferð
DotrAnrfípðí
Reyðarfirði.
ÞEGAR togarinn Snæbjörn var
á veiðum sfðastliðið sunnudags-
kvöld varð Ásmundur Ásmunds-
son skipstjóri var við að minkur
var um borð.
Minkurinn var í trollinu á dekki
og brugðu menn við hið snarasta
til að ná minknum en það tókst
ekki fyrr en milli kl. 4 og 5 að-
faranótt þriðjudagsins. Ásmundur
sagði minkinn hafa komið um borð
hér við bryggju og var þetta yrðl-
ingur frá í vor. Sjómenn á Snæfugli
hafa áður fengið óboðinn gest um
borð. Fyrir þremur til ijórum árum
var togarinn staddur í slipp í Þýska-
landi. Þegar hann var kominn
langleiðina heim kom í ljós að kött-
ur hafði komið um borð í Bremer-
haven og var kötturinn aflífaður
af dýralækni við heimkomuna.
Fiskverkunarstöðin GSR og
Skipaklettur buðu öllu starfsfólki
sínu með mökum til kvöldverðar á
Hallormsstað laugardagskvöldið
22. ágúst. Fyrirtækin tóku rútu á
leigu og létu flytja allt starfsfólkið
60 manns í Hallormsstað og heim
að lokinni veislu.
Hallgrímur Jónasson forstjóri
fyrirtækjanna var á Hallormsstað
og tók á móti gestum þegar þeir
komu og var þetta mjög ánægjuleg
stund. Þetta er í annað skipti sem
fískverkunarstöðin og útgerðin
bjóða starfsfólki sfnu til veislu á
Hallormsstað.
Gréta
Fjölbrautaskóli Suðumesja:
Um 1000 nemendur
í námi á haustönn
Keflavík.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
verður settur á mánudaginn og
hefst kennsla samkvæmt
stundaskrá daginn eftir. Nem-
endur á haustönn verðr. um
1000 og eru það fleiri en
nokkru sinni fyrr. Kennsla f
flugliðanámi, sem er ein braut
við skólann, fer fram f
Reykjavík, en önnur bókleg
kennsla fer nú fram f eigin
húsnæði f fyrsta sinn.
Byggt var við skólann í sumar
og eru 7 nýjar kennslustofur í
viðbyggingunni. Hjálmar Ámason
skólameistari sagði að þetta væru
tímamót hjá skólanum. „Á síðasta
skólaári varð að vera með bóklega
kennslu á 8 stöðum í Keflavík og
dugði ekki til, það er því mikill
léttir að vera kominn í eigin hús-
næði.“
Hjálmar sagði að þeir aðilar
sem séð hefðu um byggingafram-
kvæmdir ættu miklar þakkir
skildar. Byijað hefði verið á hús-
inu í maí og það yrði tilbúið til
kennslu eftir helgi. „Þessir aðilar
hafa lagt hart að sér og tóku sér
ekki einu sinni frí á 17. júní,“
sagði Hjálmar.
Ekki verða miklar breytingar á
kennaraliði skólans, það verður
það sama og á síðasta ári að und-
anskildum nýjum enskukennara.
Nýjar námsbrautir hafa staðið
til boða í Fjölbrautaskóla Suður-
nesja og má þar nefna flugliða-,
skipstjóra- og sjúkraliðabraut auk
brautar fyrir endurmenntun vél-
stjóra. Fiskeldi er námsbraut sem
Hjálmar vonast til að kennd verði
við skólann áður en langt um
líður. Á Suðumesjum væru marg-
ir aðilar í fískirækt sem kallaði á
fólk með þekkingu á því sviði.
„Við höfum nú glímt við stirt
embættismannakerfí f rúmlega
eitt ár án teljandi árangurs. Fisk-
eldi heyrir undir tvö ráðuneyti,
mennta- og landbúnaðarráðu-
neytið og það er ekki af hinu
góða. Það virðist vera landbúnað-
armafíusjónarmið að nemendur f
þesari grein skuli annað hvort til
Hóla í Hjaltadal eða Kirkjubæjar-
klausturs. En við höfum samt
góðar vonir um að lausn megi
fínna og fískeldi verði ein af náms-
brautum skólans áður en langt
um líður."
Hjálmar sagði að hann hefði
áhyggjur af dræmri aðsókn í
tæknimenntun og fólk einblfndi á
stúdentspróf sem eina allsherjar
lausn. „Stúdentspróf í dag er ekki
það sama og fyrir 10 árum. Þá
voru línur mun einfaldari. f dag
er hægt að ljúka stúdentsprófí
með tæknisvið sem valgrein og
þann kost tel ég að fleiri ættu að
taka.“
Kennsla í flugliðanámi verður
í flugskýli við Reykjavíkurflugvöll
í samvinnu við flugmálastjón.
Tæplega 100 nemendur sóttu um
en 35 voru teknir inn. Er þetta
síðasta kennsluárið sem flugliða-
braut verður við skólann, því
næsta vetur fer kennsla í þessari
grein fram í Háskólanum.
Meðal nýjunga í námi sem Fjöl-
brautaskólinn hyggst bjóða
almenningi f vetur er nám í tölvu-
fræði. Sagði Hjálmar að þetta
yrði gert f samvinnu við aðila úr
atvinnulffínu sem hefðu tekið vel
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Hjálmar Árnason skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, skól-
inn er í baksýn.
í þessa hugmynd. Skólinn væri
vel birgur af tækjabúnaði og út-
reikningur sýndi að hægt væri að
bjóða fólki upp á nám í tölvu-
fræði á mun hagstæðara verði en
hjá þeim einkaskólum í Reykjavík
sem byðu þessa þjónustu.
Nemendur í dagkennslu verða
um 600 í vetur og sagði Hjálmar
að í vöxt færi að nemendur ynnu
með náminu. „Þessi þróun veldur
mér verulegum áhyggjum. Námið
gerir miklar kröfur og þeir sem
ekki einbeita sér að því missa nið-
ur undirstöðuna. Þessir nemendur
geta lokið námi með lágmark-
seinkunnir, en fyrr eða sfðar
brestur námsundirstaða þeirra."
Hjálmar sagði ennfremur að
hann teldi vinnu nemenda með
náminu óþarfa. Þeir notuðu pen-
ingana aðallega til að kaupa sér
föt til að tolla í tfskunni og lifa
munaðarlífí. Miklu nær væri að
taka sér hreinlega frí frá námi til
að vinna. Hann vildi beina þeim
tilmælum til foreldra að þeir veittu
bömum sínum hæfilegt aðhald í
þessum efnum.
- BB