Morgunblaðið - 30.08.1987, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 1987
Fimleikasamband
Islands
auglýsir hér með eftir umsóknum um
námsstyrk úr Minningarsjóði Áslaugar
Einarsdóttur. Styrkur verður veittur til
náms í fimleikakennslu og er miðað við
að umsækjandi stundi nám við viður-
kennda menntastofnun og sé við nám að
minnsta kosti 6 mánuði, námsárið
1987-’88.
Umsóknir er greini frá menntun umsækj-
anda, iðkun fimleika, þjálfun og kennslu,
ásamt meðmaelum, sendist Fimleikasam-
bandi íslands, íþróttamiðstöðinni, Laug-
ardal, 104 Reykjavík, merktar: „Minning-
arsjóður Áslaugar Einarsdóttur" fyrir 10.
september 1987.
Morgunblaðið/Sverrir
Frá vinstri: Guðbrandur Bogason formaður ökukennarafélags íslands, Jóhann Björnsson forstjóri trygg-
ingafélagsins Ábyrgðar hf. og Sigurður Helgason framkvæmdastjóri Fararheillar 87. Myndin var tekin
er Jóhann afhenti Guðbrandi formlega fyrsta myndbandið með myndinni Líðan eftir atvikum.
Aðvörunarmyndir úr umferð-
inni sýndar í kvikmyndahúsum
ÁTAK bifreiðatryggingafélag- aðvörunarmyndir sem kvik- í fréttatilkynningu frá Fararheill
anna í umferð, Fararheill 87, myndahúsaeigendur ætia að 87 er sagt að stór hluti þeirra sem
hefur lAtið gera tvær stuttar sýna án endurgjalds. sækja kvikmyndahús sé ungt fólk,
fólk á þeim aldri sem þeir sem vinna
að umferðaröryggismálum vilja ná
til. Því þakki Fararheill 87 kvik-
myndahúsaeigendum fyrir þetta
framtak sem vonandi hafi þau áhrif
að færri ungmenni slasist í umferð.
Fararheill 87 hefur einnig látið
gera sjónvarpsþáttinn Líðan eftir
atvikum sem fjallar um afleiðingar
umferðarslysa. Þátturinn hefur ver-
ið settur á myndband og geta allir
ökuskólar og ökukennarar sem
áhuga hafa fengið eintak af honum.
KJARAKAUP
Frystiskápur 258 lítra
Útborgun kr. 6000,-
Mál: 189x59,5x60
Litir: Gulur og grænn.
Rétt — verð kr. 47.600,-
Láttu ekki þessi einstöku kaup fram hjá þér fara
III'
Utborgun 2.000,-
E 601 gufugleypir
Mál: 16x60x49
Litir: Brúnn, rauöur og grár
Rétt — verð kr. 8.900,-
Einar Farestveit &Co.hf.
Borgartúni 28, símar 91-10995,91-622900.
Hannes Hauksson
Nýr fram-
kvæmda-
stjóri RKÍ
JÓN Ásgeirsson framkvæmda-
stjóri Rauða kross íslands sagði
fyrir nokkru starfi sínu lausu hjá
félaginu eftir að hafa gegnt því
í rösk sex ár. í stað hans hefur
nú verið ráðinn Hannes Hauks-
son viðskiptafræðingur.
Hannes hefur veitt fjármáladeild
félagsins forstöðu undanfarin fjög-
ur ár og jafnframt verið staðgengill
framkvæmdastjóra. Hannes hefur
undanfarin ár setið í stjóm Sjúkra-
hótels RKÍ og var í byggingamefnd
félagsins sem hafði umsjón með
framkvæmdum við húseign félags-
ins að Rauðarárstíg 18.
Hannes Hauksson sem er 29 ára
útskrifaðist frá viðskiptadeild Há-
skóla íslands árið 1982. Kona hans
er Hjördís Gunnarsdóttir meina-
tæknir og eiga þau eina dóttur.