Morgunblaðið - 01.09.1987, Síða 2
2 B
fttgrgmiftfaftifr /ÍÞRÓTT7R ÞRWJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
KNATTSPYRNA / OLYMPIULIÐIÐ
„Stefnum á
góð úrslit"
- segir Guðmundur Steinsson fyrirliði
„VIÐ þekkjum þetta lið lítið
sem ekkert, en við erum minn-
ugir hvernig A-Þjóðverjar
burstuðu okkur hór í vor og við
ætlum að hefna þeirra ófara,“
sagði Guðmundur Steinsson
fyrirliði ólympíulandsliðs ís-
lands í knattspyrnu um lands-
leikinn við A-Þjóðverja sem
fram fer á Laugardalsvelli á
morgun og hefst klukkan 18.
Ein breyting hefur orðið á hópn-
um sem Sigfried Held valdi
fyrir helgi. Ágúst Már Jónsson úr
KJt getur ekki leikið með og í hans
stað valdi landsliðsþjálfarinn Heimi
Guðmundsson úr ÍA. Ætli það hafi
ekki verið erfítt að velja liðið?
„Nei, það var ekki erfítt. Auðvitað
eru alltaf einhveijir fleiri sem koma
til greina en ég held að það lið sem
við erum með núna sé það besta
sem við getum boðið uppá," sagði
Sigfried Held.
Magir urðu fyrir miklum vonbrigð-
um þegar við töpuðum fyrir Þjóð-
veijum í vor og vildu fá fleiri af
þeim leikmönnum sem leika hér á
landi í liðið. Nú er tækifærið fyrir
þá að sýna sig og að sögn Ellerts
B. Schram formanns KSÍ mun vaiið
á A-liðinu sem leikur gegn Norð-
mönnum síðar í þessum mánuði
ráðast, að talsverðu leyti, af
frammistöðu strákanna á morgun.
Það kom flatt upp á marga þegar
Held tilkynnti landsliðið og sérstak-
lega að Guðmundur Hreiðarsson
skyldi vera í því. Guðmundur lék
vel með Val framan af sumri en
hætti síðan. Hann hefur nú hafíð
æfíngar aftur og er varamarkvörð-
ur hjá Val, og er í ólympíuliðinu.
Telur Held að hann sé okkar næst
besti markvörður?
„Guðmundur er góður markvörður
og sá besti hér á landi af þeim sem
ég mátti velja, ef Friðrik er undan-
skilinn. Hann hefur leikið með
varaliði Vals að undanförnu og er
því í leikæfíngu," sagði Held.
Þess má að lokum til gamans geta
að landsliðmennimir hafa margir
hveijir í mörgu að snúast. Þrír
þeirra eru að lesa undir próf í há-
skólanum og svo skemmtilega vill
til að þeir eru allir vamarmenn.
Viðar Þorkelsson fer í próf í dag
og þeir Guðni Bergsson og Ormar
Örlygsson fara í próf á næstunni.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD KVENNA
MorgunblaÖið/Skapti Hallgrímsson
Schram, formanns KSÍ, eftir sigurinn
ÍA íslandsmeistari í 1. deild kvenna
Vanda Sigurðardóttir, fyrirliði ÍA, tekur hér við siguriaununum úr hendi Ellerts B.
í gærkvöldi.
Morgunblaðið/KGA
Landsliðið hoppar
Landsliðið á æfíngu í gær. Held, Guðmundur Hreiðarsson, Pétur Amþórsson,
Ormarr Örlygsson, Viðar Þorkeísson, Guðmundur Steinsson, Þorsteinn Þor-
steinsson og Guðni Bergsson hoppa hér hver sem betur getur.
Ragna Lóa tryggði ÍA
íslandsmeistarathilinn
- skoraði sigurmarkið gegn Val 5 mínútum fyrir leikslok
ÍA tryggði sár í gærkvöldi ís-
landsmeistaratitilinn 11. deild
kvenna í knattspyrnu á Val-
svelli. Ragna Lóa Stefánsdóttir
skoraði sigurmark Skaga-
stúlkna og jafnframt eina mark
leiksins þegar 5 mínútur voru
til leiksloka. Valsstúlkurnar
hafa leitt mótið f allt sumar og
hefði dugað jafntefli úr þessum
leik.
Leikurinn einkenndist af mikilli
baráttu beggja liða. Jafnræði
var a með liðunum í fyrri hálfleik
en ÍA var mun sterkari í seinni
hálfleik. Þá bökkuðu
Valur Valsstúlkur og frei-
Jónatansson stuðu þess að halda
skrifar jöfnu en það dugði
ekki. Ragna Lóa sá
fyrir því er hún skoraði glæsilegt
skallamark og tryggði ÍA íslands-
meistaratitilinn.
„Ég er ofsalega ánægð. Þessi sigur
kom flestum á óvart. Við urðum
að vinna og ætluðum okkur það,"
sagði Vanda Sigurgeirsdóttir, fyrir-
Iiði IA, eftir sigurinn. En Vanda
kom gagngert í leikinn frá Svíþjóð
þar sem hún stundar nám. „Ég kem
aftur í úrslitaleik bikarsins þar sem
þessi sömu Iið mætast 10. septem-
ber. Við ætlum okkur einnig að
vinna bikarinn."
Stjaman sigraði Breiðablik með
þremur mörkum gegn engu á
Stjömuvelli í gærkvöldi. Magnea
Magnúsdóttir gerði tvö mörk fyrir
Stjömuna og Guðný Guðnadóttir
eitt.
Tveir leikir fóm fram á laugardag.
A Valsvelli vann Valur sanngjaman
sigur á IBK 2:1. Það vom þær Ingi-
björg Jónsdóttir og Amey Magnús-
dóttir sem skomðu mörk Vals.
Helga Eiríksdóttir skoraði mark
ÍBK.
A Akureyri áttust við erkifjendum-
ir Þór og KA. Endaði leikurinn með
sanngjömum sigri KA, 2:1. Mörk
KA gerðu þær Hjördís Ulfarsdóttir
og Eydís Marinósdóttir. Þómnn
Sigurðardóttir skoraði eina mark
Þórs.
Markhæstar í deildinni em Ingi-
björg Jónsdóttir Val 15, Helena
Olafsdóttir KR 10, Hjördís Ulfars-
dóttir KA 9.
■ Lokastaöan/Bi 6
SPURT ER / Hvernig fannst þér bikarúrslitaleikurinn?
Spurt á Laugardalsvelli eftir leikinn.
Ingibjörg
Jónsdóttir
„ÞETTA var leiðinlegur
úrslitaleikur. FVam hafði
alltof mikla yfírburði. Ég
hefði heldur kosið Fram og
Val í úrslitaleik. Égtel að
Valsmenn séu með besta
liðið þrátt fyrir allt.“
Ragnhildur
Skúladóttir
„MUNURINN áþessum
liðum var allt of mikill svo
gaman væri að. Framarar
bökkuðu of mikið í seinni
hálfleik. Hefði verið
skemmtilegra ef þeir hefðu
leikið á fullu allan tímann."
Pálmi Sigur-
hjartarson
„ÞETTA var ekki spenn-
andi ieikur. Úrslitin vom
ráðin f fyrri hálfleik. Það
var þó gaman að horfa á
leikinn því hann var
óvenjulegur fyrir hve ójafn
hann var.“
Guðbjörg
Ragnarsd.
„ROSALEGT áfall fyrir
Víði. Þeir höfðu bara ekk-
ert í þá að gera í þessum
leik. Fram náði algjömm
toppleik. Vfðismenn ko-
must aldrei í gang og
hreinlega fóm á taugum."
Sigrún
Ragnarsd
„ÞETTA var frekar slakt
hjá Vfði. Það er samt mjög
góður árangur hjá þeim að
komast l úrslit. Framarar
em vel að sigrinum komn-
ir. Þeir sýndu góða knatt-
spyrnu."
i -mi
Kristinn
Bjamason
„ÞAÐ var algjör einstefna
hjá Fram allan tímann,
hreinlega yfírspiluðu Víði.
Víðismenn eiga þó hrós
skilið fyrir mikla baráttu.
Ég vona svo sannarlega að
þeir falli ekki í 2. deild.“
Tcrf 'MsA B.'nil rrfod ubnín)