Morgunblaðið - 01.09.1987, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 01.09.1987, Qupperneq 7
HtorgimMaHb /ÍÞRÓTTIR ÞRHXJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987 B 7 Sigurbíllinn klakklaust í gegn Þegar Ljómarailið var hálfnað var í raun aldrei spurning um hver sigraði, feðgarnir Jón Ragnarsson og Rúnar Jónsson á Ford Escort RS höfðu náð öruggu forskoti, á meðan helstu keppinautar þeirra hrundu út eða lentu í skakka- föllum eða óhöppum. Þegar þeir komu í endamark sem sig- urvegarar höfðu þeir unnið sína fjórðu keppni á árinu, sannarlega glæsilegur árang- ur. í þriðja skipti á ferli sínum náði Hafsteinn Aðalsteinsson öðru sæti í Ljómarallinu, nú á Ford Escort RS, eins og ífyrra. Með honum ók Pólverjinn Wi- tek Bogdanski. Bíll þeirra bilaði í upphafi keppni og þeir unnu sig úr botnsætinu upp í annað sæti, eftir góða frammistöðu á sórleiðum. Hörkukeppni um þriðja sætið á sfðasta degi lauk með því að bræðurnir Birgir og Gunnar Vagnssynir á Toy- ota Corolla náðu því, aðeins þremur sekúndum á undan Birgi Bragassynl og Hafþóri Guðmundssyni á Talbot. Sigur- vegarar í flokki óbreyttra bfla urðu Birgir Viðar Halidórsson og Indriði Þorkelsson á Mazda 323 4x4. Eins og á síðasta ári var mestur vindur úr baráttunni um efsta sætið eftir að Pjallabaksleið hafði verið ekin, á öðrum degi. Jón S ■■■I Halldórsson og Guð- Gunnlaugur bergur Guðbergsson Rögnvaldsson á Porsche hættu skrifar keppni á fyrsta degi eftir fjórfalda og harkalega veltu, en þeir þóttu líklegir til að veita mikla keppni. Sömuleiðis voru Hjörleifur Hilmars- son og Sigurður Jensson úr leik á Talbot með bilaða vél að talið var. Eftir keppni kom í ljós að kveikjan hafði flýtt sér ótæpilega, hafði snú- ist, en að öðru leyti var bfllinn í toppstandi. Steingrímur Ingasson og Ægir Armansson á Datsun voru þriðju áður en drifíð bilaði á Fjalla- baki. En ólán þeirra var lán annara keppenda, þeirra Asgeirs Sigurðs- sonar og Braga Guðmundssonar á Toyota Corolla. „Við vorum í snögg- soðnu þriðja sæti, þegar við sáum Steingrím stopp," sagði Bragi „Olíusían spýttist af vélinni og öll olían fór af og við stoppuðum skammt frá Datsun bflnum. Við fengum olíuna af bfl Steingríms og settum á okkar. Hún lak þó af aft- ur, því olíusían var biluð. Þá fengum við olíusíuna líka úr bíl Steina og hún passaði. Okkur til happs var bíll hans með sérstakt olíukerfí, þannig að enn var til olía. Við skelltum henni á bflinn og héldum áfram. Við töpuðum miklum tima á þessu ævintýri, lentum í smá vandræðum en_ lukum þó altént keppni,“ sagði Ásgeir. Birgir Bragasson og Hafþór Guð- mundsson reyndu á öðrum degi að vinna upp forskot feðganna en gekk ekki, á síðustu leiðunum töpuðu þeir miklum tíma þegar demparar slitnuðu. „Við hröpuðum úr öðru sæti í það fjórða á Heklubraut, þegar báðir afturdemparar höfðu brotnað. Það gekk illa að keyra, en við náðum þó að ljúka öðrum deginum," sagði Birgir. í upphafi síðasta dags voru tvo efstu sætin örugg. Jón og Rúnar gátu ekið rólega og Hafsteinn og Witek í öðru sæti líka. Þeir síðar- nefndu höfðu þó ekið grimmt og vel, eftir bilun í byijun rallsins. „Við trúum því varla að við höfum náð öðru sæti, “sagði Witek kominn í endamark. „Á Kaldadal á fyrsta degi sprakk hjá okkur og við fórum út að skipta og drápum á bflnum. Þegar við vorum búnir startaði bfllinn ekki aftur, það gekk heldur ekki þó ég reyndi að ýta í gang. Morgunblaðiö/Gunnlaugur Rögnvaldsson Brædurnlr Birgir og Gunnar Vagnssynir leigðu þennan Toyota keppnisbfl nokkrum dögum fyrir keppni, skoðuðu enga sérleið en óku samt nógu hratt til að ná þriðja sæti. Michelin-kallinn á toppnum hefur sjálfsagt vísað þeim veginn, en þremenningamir stóðu sig mjög vel. Við reyndum allt, fíktuðum í öllum tökkum. Við litum á hvor annan, vorum að spá í að hætta,“ sagði Witek „Við fórum þá undir bílinn og lömd- um í startarann og bfllinn hrökk í gang eftir það. Við vorum í síðasta sæti eftir daginn. Við ókum mjög hratt eftir þetta, gerðum okkur vonir um 4.-5. sæti, ekki meira. Annað sætið er því draumi líkast og þetta er besta keppni í lífi mínu,“ sagði Witek, en hann er Pólveiji og hefur keppt mikið í heimalandi sínu. Þó fyrstu tvo sætin væru klár á lokadegi var hörkukeppni um þriðja sætið. Nafnamir og ökumennimir Birgir Vagnsson og Birgir Bragas- son áttust við um það. Sá fyrmefndi hafði betur. „Ég átti alls ekki von á að halda þriðja sætinu,“ sagði Birgir Vagnsson. „Við höfðum mínútu forskot í byijun fyrsta dags. Við Gunnar ætluðum ekki að gefa það baráttulaust og þetta setti djöf- ullega pressu á okkur. Síðasta leiðin var keyrð eins og druslan dró, allt lagt í sölumar og flogið yfír hveija hæðina á fætur annari. í lok hverr- ar leiðar biðum við með klukkumar til að sjá tíma Birgis og Hafþórs og sáum að þeir smásöxuðu á for- skot okkar. Fyrir síðustu leiðina munaði átján sekúndum á okkur. Um morguninn hafði Birgir tekið sautján sekúndur af okkur á þess- ari leið. Við keyrðum rosalega, en Birgir náði betri tíma. En við vomm samt þremur sekúndum á undan í keppninni í heild. Þvílík spenna," sagði Birgir Vagnsson. Tíu bílar af tuttugu og sjö, sem lögðu af stað, komust í endmark eftir rúmlega 1300 km langa keppni. Eina erlenda áhöfnin til að ljúka keppni vom Finnamir Miko Torilla og Ossi Lehtonen á Audi Quattro, sem lentu í fímmta sæti. „Þetta rall er mikið ævintýri og leiðirnar erfiðar, en við höfðum skoðað þær alltof lítið. íslenskir ökumenn em mjög fljótir á heima- slóðum og þekiqa aðstæður. Jón Ragnarsson er mjög góður ökumað- ur og þið eigið marga aðra, sem sóma sér vel,“ sagði Ossi Lehtonen. ■ Lokastaðan/B 15 Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Blrglr Bragason og Hafþór Guðmundsson á Talbot vom lengi vel i öðm sæti, en bilun kostaði þá mikinn tima á öðmm degi og þeir urðu að sætta sig við fjórða sæti. Hrikalegt landslagið á Dómadalsleið skelfdi þá ekki frekar en aðra rallökumenn, það var ekið á fullu — ef bíllinn var í lagi. Morgunblaðið/Gunnlaugur Það kostar mikil átök að ljúka rúmlega 1300 km langri rallkeppni og þess- um tókst það með sóma. Fremst á myndinni em verðlaunahafamir, frá vinstri: Rúnar Jónsson, Jón Ragnarsson, Hafsteinn Aðalsteinsson, Witek Bogdanski, Gunnar Vagnsson, Birgir Vagnsson og Birgir Bragason. Fyrir aftan þá em Mikko Torilla, Ossi Lehtonen, Birgir Viðar Halldórsson og Indriði Þorkelsson. í öftustu röð em Sigurður Bragi Guðmundsson, Amar Thódórsson, Ásgeir Sig- urðsson, Jóhann Jónsson, Bragi Guðmundsson, Kristján Kristjánsson, Þómnn Guðmundsdóttir, Guðný Guðmundsdóttir og Hafþór Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.