Morgunblaðið - 01.09.1987, Síða 10

Morgunblaðið - 01.09.1987, Síða 10
10 B 2H«r0tmi>[aí>ib /ÍÞRÓTTIR ÞRWJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987 KNATTSPYRNA / FRAKKLAND NOREGUR Morgunblaöið/Bernharð Valsson Suslc og Amaros léku mjög vel í Frakklandi um helgina. Susic til vinstri stjómaði spili PSG gegn Bordeaux og Amaros var síógnandi með Mónakó gegn Marseille. Hateley markahæstur Eingöngu heimasigrar í síðustu umferð ÞAÐ gerist ekki í hverri umferð að öllum leikjum lýkur með heimasigri, en það gerðist í áttundu umferð frönsku 1. deildarinnar. Hliðstæður at- burður gerðist síðast 23. ágúst 1974. Mesta athygli vakti sigur PSG á Bordeaux, en Parísarlið- ið náði sínum langbesta leik á keppnistímabilinu. Mónakó, sem fókk skell gegn Niort um síðusutu helgi, átti ekki í nokkr- um vandræðum með Laval og Marseille sigraði stórt og er á róttri leið. PSG tók Bordeaux í kennslu- stund, hafði mikla yfirburði á Frá Bernharði Valssyni i Frakklandi öllum sviðum með Susic í broddi fylkingar. Roche skoraði sjálfsmark á 30. mínútu, en Tigana lék ekki með Bordeaux vegna meiðsla. í 2:0 sigri Mónakó gegn Laval skoraði Mark Hateley bæði mörkin með skalla og er enski landsliðsmaðurinn markahæstur í deildinni með sjö mörk. Bakvörður- inn Amoros vakti mesta athygli fyrir sókndjarfan leik og hættulegar sendingar, en hann lagði upp fyrra markið. Hoddle gaf á Hateley í því seinna. 35 þúsund áhorfendur á leik Mar- seille og StEtienne fóru ánægðir heim, en heimamenn sáu rétta and- lit heimaliðsins í fyrsta sinn á tímabilinu. Allofs og Papin náðu mjög vel saman og skoruðu tvö mörk hvor, en Ciresse átti lokaorð- ið fyrir Marseille. Racing tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu, 2:1 fyrir Lens. Lengi leit út fyrir að Racing myndi sigra, en missti unninn leik niður — leik- mennimir voru sennilega of sigur- vissir. ■ Úrsllt/B14 ■ Staðan/B14 Moss tapaði í yítaspymukeppni lék ekki með Brann gegn Rosen- borg, sem er í öðru sæti með 29 stig. Varamarkvörður Brann stóð sig mjög vel, varði tvær vítaspymur í vítakeppninni, sem Brann vann 5:4, en staðan var 0:0 að venjuleg- um leiktíma loknum. Molde er í þriðja sæti með 29 stig, en liðið tapaði l:o fyrir Kongsvin- ger. Start, sem er í neðsta sæti með 16 stig, vann Bryne 1:0, Lillestrem vann Mjöndalen 3:1 og Váleringen sigraði Ham Kam 1:0. Efstu liðin í 1. deild norsku knattspymunnar töpuðu öll í 16. umferð, en þrátt fyrir tap er Moss með sjö stiga forystu. Liðið lék í Tromsö og náði Frá ekki að spila léttan JóniÓttari sóknarbolta eins og Karlssyni áður. Tromsö hefur lN°æ9' lengi verið erfitt heim að sækja og eftir markalaust jafntefli unnu heimamenn 7:6 í víta- keppni. Gunnar Gíslason átti ekki góðan leik og fór út af á 68. mínútu. Bjami Sigurðsson var á íslandi og SPÁNN Góð byrjun hjá Real Madrid REAL Madrid hóf titilvörn sína í spönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu meö stórsigri á Cadiz, 4:0, á sunnudaginn. Barcelona vann einnig sigur, á LasPalmas, 2:1. Real Madrid hafði mikla jrfir- burði gegn Cadiz. Hugo Sanchez skoraði fyrsta markið á 34. mínútu. Emilio Butragueno bætti öðru markinu við á 65. mínútu. Ricardo Gallego gerði þriðrja markið sjö mínútum síðar eftir góðan undirbúning Sancez. PORTÚGAL Rafael Gordillo innsiglaði síðan stórsigur Real Madrid með skalla- marki 10 mínútum fyrir leikslok. Barcelona náði einnig að vinna sig- ur, á Las Palmas, á sunnudaginn. Las Palmas náði forystunni með marki Julio Duran í fyrri hálfleik. Vamarmaður þeirra Tomas Maye skoraði svo sjálfsmark er honum mistókst að hreinsa frá. Vestur- Þjóðverjinn Bemd Schuster átti svo allan heiðurinn að sigurmarkinu, sem Roberto Femandez gerði á 77. mínútu. INIýliðar Setubal sigruðu Benfica Malcolm Allison byrjar keppn- istímabilið vel, en hann þjálfar nýliða Setubal, sem eru á toppnum eftir tvær umferðir. Liðið vann Benfíca 1:0 á sunnudaginn og skoraði Aparicio eina mark leiks- ins á 2. mínútu. Eftir það pökkuðu gestimir í vöm, Benfíca sótti lát- laust til leiksloka, átti m.a. fjögur skot í rammann, en tókst ekki að skora. Sporting gerði markalaust jafntefli við Espinho og sömu úrslit urðu í leik Porto og Guimaraes. ■ Úrslit/B14 ■ Staðan/B14 VESTUR-ÞYSKA BIKARKEPPNIN SKOTLAND Heppnissigur Uerdingen gegn áhugamannaliði Stuttgarttapaði afturfyrir Köln FYRSTA umferð vestur-þýsku bikarkeppninnar í knattspyrnu var leikin á laugardaginn og féllu sex bundesiigulið úr keppni, Stuttgart, Leverkusen, Schalke, Mannheim, Homburg og Hannover, sem tapaði 3:0 fyrir áhugamannaliði Wolfs- þurg. Uerdingen átti í miklum erfið- leikum með áhugamannalið Heidingsfeld, en heppnin var með Atla og félögum, sem unnu 2:1 eft- ir að hafa verið 1:0 undir í hálfleik. Kuntz jafnaði á 63. mínútu og Herget skoraði sigurmarkið Frá Jóhannilnga £unnarssyni i V-Þýskalandi fjórum mínútum síðar. Stuttgart átti aldrei möguleika gegn Köln og tapaði eins og í bun- desligunni fyrr í vikunni, nú 3:0 í Köln. Littbarski skoraði tvö mörk, það fyrra beint úr aukaspymu á 27. mínútu upp í vinkilinn og það seinna níu mínútum síðar af stuttu færi. Engel innsiglaði síðan sigur- inn í seinni hálfleik. Kaiserslautem vann Mannheim 3:1 eftir framlengingu. Leikmenn Mannheim voru aðgangsharðari til að byrja með og á 23. mínútu kom Dais liðinu yfír. Wols jafnaði sex mínútum fyrir leikslok, en Emmer- ling og Wutke skoruðu í framleng- ingunni. Lárus Guðmundsson lék ekki með Kaiserslautem. Krampi Pierre Littbarski er kominn aftur „heim" og skoraði tvívegis fyrir Köln gegn Stuttgart um helgina. Udo Lattek er sérstakur ráðgjafi liðsins og það var ein- mitt hann, sem fékk Littbarski til liðsins á ný frá Racing í París. Mikil ánægja er með þá félaga í Köln og gengu félagið undir nafninu FC Littek þessa dagana. Souness sáenn einu sinni þaðrauda Graeme Souness var rekinn af velli í leik Celtic og Rangers á laugardaginn. Þetta var þriðji brottrekstur hans á 13 mánuðum með Rangers, en að þessu sinni sparkaði hann Billy Stark niður aftan frá og bjargaði marki. Stark skoraði eina mark leiksins á fjórðu mínútu. 61 þúsund áhorfendur voru á leiknum, en með sigrinum skaust Celtic í efsta sætið. Aberdeen og Dundee United gerðu 1:1 jafntefli og voru bæði mörkin úr vítaspymum. Jim Bett skoraði fyrir Aberdeen á 27. mínútu, en Ian Redford jafnaði. Önnur helstu úrslit urðu þau að I framlengingu og Bayem vann Ess- Gladbach vann Leverkusen 2:1 eftir | en 3:1. ■ Úrsllt/B14 ■ Staðan/B14 lÉÉfiSÍ .!•?■■■■ .jLtL.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.