Morgunblaðið - 01.09.1987, Síða 12
12 B
m«rgtt»Þfa&ib /IÞROTT1R ÞRWJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
Af
hverju
hrynur
lax-
veiðiá?
Sumar af laxveiðiánum okkar
hafa ekki verið upp á sitt besta
á þessu veiðitímabili. Mjög víða
hefiir smálaxinn skilað sér illa eða
ekkert að marki og
það sem veiðst hef-
ur, hefur verið
óvenjulega rýr físk-
ur. Þær ár sem
byggja laxveiði sína
að miklu eða öllu
leyti á smálaxi hafa sumar orðið
illa úti. Ein þeirra, Gljúfurá í Borg-
arfírði, verður aðeins til umræðu
hér og þá vegna þeirrar hroðalegu
meðferðar sem sú á hefur orðið
fyrir í gegn um árin. Þegar sú saga
er skoðuð skyldi engan undra þótt
leiðin upp á við á ný sé ekki auðsótt.
Gljúfurá var fyrrum virkilega góð
laxveiðiá, fjöbreytileiki og fallegt
umhverfí gaf henni svo enn meira
gildi. Komu tæplega 600 laxar úr
henni á þijár stangir þegar mest
lét, en tölumar fóru alltaf eftir því
hversu fast menn sóttu veiðina, því
nær undantekningalítið mátti
tganga út frá því sem gefnu að
hvemig svo sem veiðin myndi
ganga, væri nóg af laxi í ánni. Svo
fór veiðin dalandi ár frá ári. Grein-
arhöf. byijaði að fiska í Gljúfurá
þegar fallið var að byija. Fyrstu
árin var veiðin enn góð, en ánni
hrakaði ár frá ári, uns hún fór nið-
VEIÐI
Guðmundur
Guðjónsson
skrifar
Gljúfurá hefur mátt þola ágang
ur í 100 laxa. Hún var slöpp í
nokkur ár, en virðist vera að skríða
upp í fyrra, en þá veiddust í henni
280 laxar. í sumar hefur lengst af
verið hrein ördeyða. Þann 5. ágúst
voru aðeins komnir 16 laxar á land
og ef mið er tekið af aðstæðum til
laxveiða á stöng allan ágúst, verður
að teljast ólíklegt að Gljúfíirá nái
þriggja stafa tölu. Þó sker tíminn
auðvitað úr um það. Það sem gerir
það ólíklegt er sú einfalda stað-
reynd, að það er ekki vegna
vatnsleysis að það veiðist lítið, held-
ur vegna fiskleysis. í vatnsleysiss-
umrum, þegar eitthvað er af físki,
bunkast hann yfirleitt i djúpum ál-
um niður við ós og þar er þá oft
gott til fanga. Snemma í ágúst
voru kunnugir menn á ferð í ósnum.
Þar eru fjórir blettir þar sem laxinn
safnast gjaman og sáu þeir svona
um það bil 15 laxa á hveijum stað.
Vinir þeirra og nauðakunnugir
höfðu nýlega verið með veiðina í
valðlþjófa ...
ánni í tvo daga. Þeir náðu 6 eða 7
Iöxum, sem var lang hæsta hollið,
og þeir höfðu séð lítið af físki.
Nokkra físka á nokkrum stöðum.
Sakir kunnugleika sins náðu þeir
þó því sem náð var. Og allt var
þetta mjög smár lax.
Hvað veldur þessu? Svarið er líklega
margþætt og umhverfísþættimir
sem skipta heildarlaxastofninn á
landinu máli eiga sitt inngrip hér
sem annars staðar. En ætli margar
laxveiðiár landsins hafí mátt þola
þá ásókn veiðiþjófa sem Gljúfíirá,
jafnvel þótt maður gefí sér rétti-
lega, að veiðiþjófnaður er mun
útbreiddari hér á landi en margan
grunar? Við þessu er náttúrulega
ekkert svar, en hvað Gljúfurár varð-
ar þá hefur verið gengið mjög nærri
henni.
Þannig hagar til í Gljúfurá að þeg-
ar líður á sumarið safnast mikill lax
í tvo hylji ofarlega í ánni. Heita
þeir Oddahylur og Eyrarhylur. í
þeim, fyrir ofan þá, fyrir neðan og
á milli þeirra er víðfeðmt svæði með
úrvalshrygningaraðstöðu og margir
telja að megnið af hrygningunni
fari fram á þessum slóðum og físk-
urinn sem liggur í framangreindum
hyljum sé kjaminn af hrygningar-
stofni árinnar.
Það er afar auðvelt fyrir veiðiþjófa
að athafna sig við þá í haust-
myrkri. Þeir em fjarri veginum, en
samt um auðvelt land að ganga.
Þeir eru opnir og einfaldir og bjóða
því upp á áhrifaríkan ádrátt. Það
er hægt að hreinsa þá upp að
mestu. Og þama lá laxinn oft svo
hundruðum skiptir. Einn gamall
leigutaki sagði í samtali við greinar-
höfund að ákveðnir menn sem þeir
þekktu deili á hafí stundum komið
dag eftir dag undir því yfírskini að
þeir væru að fara í beijamó. Var
sú skýring notuð þótt úti væri aus-
andi rigning og rok að hætti
íslensks hausts. Leigutakamir gátu
aldrei staðið þessa menn að verki,
svo varlega fóru þeir, en verksum-
merkin leyndu sér ekki. Traðk,
hreistur og blóð á bökkum, umbúð-
ir utan af netum á bökkum árinnar
og leigutakamir tóku eftir því að
laxi hafði snarfækkað í hyljunum
ef vika leið milli þess sem þeir
komu. Þess vegna nöppuðu þeir
þjófana aldrei, þeir voru nógu kæn-
ir til að fara bara heim ef leigutak-
amir voru fyrir og komu svo seinna
í rólegheitum er þeir voru famir
heim aftur. Einu sinni komu leieu-
takamir klyflaðir snúnum girðing-
arstaurum úr stáli, eins og setuliðin
notuðu hér á stríðsárunum. Þessa
staura skrúfuðu þeir ofan í leir- og
sandbotninn á Odda- og Eyrarhyl,
þannig að ógemingur var að fara
í gegn með fyrirdráttamet án þess
að stórskemma það. Viku seinna
komu þeir að og lágu þá stauramir
allir langt uppi á bakka, á víð og
dreif. Og enn hafði laxi stórfækkað
í hyljunum. Haust eftir haust, hvað
eftir annað á hveiju hausti, var
farið svona í þessi hjörtu Gljúfurár.
Seinna tók Stangveiðifélag
Reykjavíkur við ánni og svo nokkr-
ir einstaklingar. Engum fregnum
fer af því hvað gerðist þama í tíð
SVFR, en engin ástæða er til að
ætla annað en að rányrkjan hafi
haldið áfram, því þeir sem tóku við
ánni af SVFR urðu strax varir við
veiðiþjófnað. Enn voru skotmörkin
Odda- og Eyrarhylur. Fór nú að
bera á þessu sama, verksummerki
voru augljós, umbúðir utan af veiði-
tækjunum fundust um allt, en þrátt
fyrir að ákveðnir aðilar hafi legið
undir sterkum grun, sannaðist aldr-
ei neitt. Nú orðið er í hæsta máta
ólíklegt að það taki því lengur að
draga á í Gljúfurá. Hún er ekki
einu sinni skugginn af sjálfri sér
frá því á árum áður. Eitthvað eftir-
lit er haft með þessu nú orðið, en
það er erfítt að halda því uppi. Nú
spila sennilega fleiri þættir inn í
hrun Gljúfurár, en þessi er án vafa
veigamikill. Eða hvað?
Veiðivörur
& PO r —^ E
EIÐISTORGI
HI-TEC býður fullkomið úrval af íþróttaskóm. Hjá HI-TECer tekið tillit til hins sérstaka álags á fætur og fóta-
búnað sem fylgir hverri íþróttagrein. Allir HI-TEC íþróttaskór eiga það einnig sameiginlegt að vera fisléttir,
liprir og laglegir, sterkir, stöðugir og fara vel á fæti. Viltu ná lengra? Komdu þér úr sporunum-á HI-TEC!
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Reykjavík og nágrenni
Bikarinn Skólavörðustíg 6
Sportbúðin Laugavegi 97 og Völvufelli 17
Smáskór Skólavörðustíg 6 b
Bragasport Suðurlandsbraut 6
Útilíf Glæsibae Álfheimum 74
Veggsport Héðinshúsinu Seljavegi 2
Boltamaðurinn Laugavegi 27
Sportbær Rofabæ
Búsport Arnarbakka 2-6
Sportbúð Kópavogs Hamraborg 20a
Dröfn Strandgötu 75
Kaupfélag Kjalarnesþings Mosfellsbæ
Landið
Aldan Sandgerði
Byggingavöruversl. Hveragerðis Hveragerði
Skóbúð Selfoss Selfossi
Kaupfélag Skaftfellinga Kirkjubæjarklaustri
Axel Ó Vestmannaeyjum
Kaupfélag A-Skaftfellinga Höfn
Kaupfélag Héraðsbúa Reyðarfirði
Hákon Sófusson Eskifirði
Verslunarfélag Austurlands Fellabæ
Bókaversl. Þórarins Stefánssonar
Skóbúð Sauðárkróks Sauðárkróki
Hólmkjör Stykkishólmi
Verslunin Hornið Grundarfirði
Verslunin Rocky Ólafsvík
Verslunin Blómsturvellir Hellissandi
Borgarsport Borgarnesi
Staðarfell Akranesi
Sportbúð Óskars Keflavík
Skóbúð Keflavíkur Keflavík
Austurborg Vopnafirði
Hamraborg 14, Kóp. Sími 40097.
fætil