Morgunblaðið - 01.09.1987, Blaðsíða 13
jHorsnnbla&ift /IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1987
B 13
HFX Qhla Aerostar — fjölskyldubíll framtíðarinnar?
Er þetta framtíðin?
Jæja! Þá er hann kominn. Hinn
fullkomni fjölskyldubíll og ekk-
ert minna! Sú er a.m.k. trú hönnuð-
anna hjá trukkadeild Ford í
j Ameríku. Hann má
BILAR líka vera fullkom-
inn, þessi eini, sem
. „ hefur verið smíðað-
Jósepsson ur- kostar nefmlega
skrífar þ.b. 280.000.000
krónur, já, tvö-
hundruð og áttatíu milljónir! Hann
er smíðaður upp úr vinsælum
skutlubíl, sem Ford framleiðir og
selur í Ameríku og heitir sá vagn
Aerostar. Ford fékk margt fyrir-
tækja í lið með sér að hanna og
smíða gripinn, komu þar einir tutt-
ugu og tveir aðilar við sögu.
Stærstan hlut eiga þó Ford og
ítalska dótturfyrirtækið Ghia, sem
hannaði boddýið. Aðaltilgangurinn
með smíði þessa dýrindis vagns er
að sýna hvað hægt er að gera, eink-
um þó að sýna það á bílasýningunni
miklu í Frankfurt nú í mánuðinum.
í takt vlA nýja hneigð
Allt frá dögum gamla T-Fordsins
hafa menn notað bíla til ólíkra þarfa
og smíða þá eftir því. Gamli-Ford
var fáanlegur alstrípaður og al-
gengt var að kaupandinn klambraði
ofaná hann einhvers konar yfir-
byggingu, sem þjónaði jafnt til að
flytja íjölskylduna til kirkju á
sunnudögum og að fara með vörur
á markaðinn. Það var í þá daga,
þegar menn gerðu sjálfir það sem
gera þurfti. Síðan kom Volkswagen
með „rúgbrauðið", sem varð óðara
vinsæll fjölnotabfll, jafnvel notaður
til að búa í honum. En, „rúgbrauð-
ið“ stækkaði og vék til hliðar fyrir
nýjum tískustefnum, allt þar til á
allra síðustu árum, að menn eru
famir að huga aftur að þessari
hugmynd um bíl, þó með nokkuð
öðrum áherslum sé.
Nú eru að ná miklum vinsældum
bílar, sem hannaðir eru til að gagn-
ast sem best og eru fullgildir til
fjölskylduþarfa í leiðinni. Sem dæmi
um slíka má nefna Renault Espace,
Mitsubishi Space Wagon og Nissan
Prairie. Og Ford Aerostar. Það er
mála sannast, að þessir bflar eru
notadijúgir, þar veldur mestu, að
plássið í þeim er mikið og nýtist
fimavel, mun betur en (venjulegum
skutbfl. Með öllum sætunum í, eru
þessir bílar rúmgóðir og þægilegir
fyrir fjölskylduna og farangurinn.
•r •fckl stjómklefí Boeing-þotu, heldur HFX Ghia Aerostar, 26 tölvur þjóna ökumanni á einn eða annan veg og
þær þurfa sína takka. Hljómkerfið er lítil 600 Wött!
Ef sætaskipan er breytt, t.d. þau
aftari tekin úr er bíllinn orðinn að
flutningatæki. Jafnvel má í sumum
tilvikum breyta bflnum í litla skrif-
stofu eða fundarherbergi.
Með Aerostar, einkum í formi full-
klædds bfls með sætum, hefur Ford
komið til móts við þessar þarfir,
um (jölnotabflinn.
En í þessu tilviki er það ekki látið
nægja. Það kostar engar milljónir
dollara að setja sæti og sæmileg
þægindi í lítinn sendibíl. Annað
markmið var ekki síðra, e.t.v. aðal-
atriði. Það er að sýna hvaða
hátæknibúnað er hægt að setja í
einn bíl og hafa raunverulegt gagn
af. Þá er átt við búnað, sem er
ekki aðeins órafjarlægur, ímyndað-
ur möguleiki, heldur í raun og veru
tæknilega framkvæmanlegt að
setja í bíla.
26 töhmr um borð
Eftir að Aerostar hefur farið um
hönnunarhendur Ghia og allri þeirri
fullkomnustu tækni sem völ er á
hefur verið komið fyrir í honum, fær
bfllinn heitið HFX Ghia Aerostar.
(HFX er skammstöfun fyrir High
Feature Experimental, sem mætti
þýða sýningartilraun með hátækni.)
Nú eru aðrir tímar en þegar meim
smíðuðu sjálfir yfir gamla Fordinn
sinn, nú vill fólk kaupa bílinn tilbú-
inn, með öllu. Þessi vagn, sem hér
er til umræðu, er hlaðinn öllum
þeim búnaði, sem hugsanlega getur
komið að gagni við notkun hans.
Búnaðinum má í grófum dráttum
skipta í tvennt. Annars vegar er sá
búnaður, sem er „bara“ hluti bílsins,
eins og dekk, rúður o.þ.h. Hins
vegar er örtölvubúnaðurinn. 26 ör-
tölvur eru í bílnum og stjóma og
stýra m.a. gangi vélarinnar, hemla-
kerfinu, allskyns aðvörunum o.fl.
Samanlagt gerir allur hátæknigald-
urinn þennan bíl að tækniundri,
e.t.v. ekki því ótrúlegasta sem bfla-
framleiðendur sýna nú til dags, þar
er að finna gervihnattastýrða bíla
og þvíumlík fyrirbæri. Þessi er jarð-
bundnari og haft er eftir forsvars-
mönnum framleiðandans, að þótt
engar áætlanir séu uppi um að
smíða þennan bíl og setja á mark-
að. bá sé bessi tækni í bflum hreint
a
Þassl dakk eru fullkomlega aksturs-
hæf, þótt allt loft fari úr þeim.
ekki svo langt undan, reynar aðeins
rétt handan við homið. Við megum
því búast við, að á næstu árum
fari að sjást á markaði bflar með
búnaði í líkingu við HFX Ghia Aer-
ostar.
Helstl búnaður
Við skulum í lokin skoða hvað þessi
merkisbfll hefur að bjóða og er tvö-
hundruðogáttatíumilljón króna
virði. (Hafa ber í huga, að kostnað-
urinn er við einn tilraunabíl,
.ermíðaðan. Yrði þessi bfll fjölda-
ffamleiddur myndi hann aðeins
kosta brot af þeirri upphæð.)
Dekkin eru þannig gerð að hægt
er að aka á þeim, þótt springi, jafn-
vel þó öll séu loftlaus. Þess vegna
þarf hvorki varadekk né tjakk.
Sparar pláss og peninga.
Loftpúðafjöðrun heldur bflnum
fullkomlega láréttum, hvemig sem
hleðslan er og alltaf er sama hæð
frá jörðu.
ABS-hemlar, diskar við öll hjól.
Þetta kerfi stjómar líka átakinu á
drifhjólin, þannfg að bfllinn nær
ekki að spóla (hann er afturdrifínn).
Handbremsan er reyndar engin
hand-bremsa, heldur alsjálfvirk eða
handvirk og rafknúin, þannig að
hvenær sem sett er í „park“-gírinn
(bfllinn er sjálfskiptur), eða lykillinn
tekinn úr kveikjulásnum fer brems-
an á. Hún fer sjálfkrafa af, þegar
sett er í gír til að aka af stað.
Grillið er þannig, að loftrásir þess
opnast eða lokast sjálfkrafa eftir
því hve heit vélin er.
Takkaskipting er fyrir sjálfskipt-
inguna, rafknúin, og þarf aðeins
að snerta takkana með fíngurgómi.
Á afturhurAlnnl geta ökumenn sem
á eftir koma lesið leiðbeiningar og
aðvaranir um hvað framundan er.
Skiptirinn setur sjálfkrafa í „park“,
ef drepið er á vélinni.
Boddýið er slétt og fellt, lftil loft-
mótstaða og rúðumar falla alveg
að, þannig að yfirborðið verður
slétt.
Rennihurðin er rafknúin og hægt
að stóma henni frá framsætum.
Skynjari stöðvar hana, ef eitthvað
verður á milli stafs og hurðar.
Rúðurnar em stillanlegar á nýstár-
legan hátt. Þar er sama tækni notuð
og á klukkum, þ.e. fljótandi kristall-
ar. Með því að styðja á hnapp er
hægt að gera þær ógegnsæjar.
Sjónauki er líklega besta orðið jrfir
hljóðbylgjukerfíð, sem gefur aðvör-
unarmerki ef fyrirstaða er framan
eða aftan við bflinn. Einnig varar
kerfið við, þegar stefnuljós er gefíð,
ef bíll er til hliðar þar sem hann
sést ekki í speglinum.
Skilaboð koma fram aftan á hler-
anum á ljósaborði. Þeim er stjómað
frá mælaborði, þar sem ökumaður-
inn getur valið um 12 mismunandi
boð, t.d. hálka á veginum, skóli
framundan, sendið aðstoð. Þetta
eru skilaboð fyrir ökumenn sem em
fyrir aftan.
Rafeindalykill er að bflnum og
með þeim eiginleikum, að þegar
bíllinn er opnaður með honum, fara
sætið, speglamir og fótstigin í rétt-
ar stellingar miðað við eigandann
eða annan, t.d. maka, sem hefur
annan lykil. Lykillinn er einnig
þjófavöm, því engin leið er að gang-
setja eða aka af stað, án þess að
tölvur bflsins fái fyrst rétt boð í
Sgn um lykilinn.
al margt fleira mætti nefna af
tæknigöldmm í þessum bfl, af nógu
er að taka, en þetta verður að
nægja sinni. Engu skal hér spáð
um það, hvort slíkur vagn er á leið-
inni á markaðinn á næstunni, en
líklegt verður að telja, að innan
nokkurra ára verði fáanlegir bílar
með öllum hugsanlegum tæknibún-
aði og þægindum. Þeir verða dýrir
fyrst í stað, síðan ódýrari með
hvetju árinu, rétt eins og þróunin
hefur verið.