Morgunblaðið - 08.11.1987, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 08.11.1987, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1987 C 11 Siah Armajani: Frumþættir. Tony Cragg: Jarðarávextir. að komast hjá því að minnast á hann. Beuys lézt í ársbyrjun 1986. Þá var hann búinn að koma við Documenta fímm sinnum alls, oft- ast allra listamanna frá upphafí. Framlag hans á D7 hét „7.000 eikur“. Fyrir framan Friderician- um-safnið kom hann fyrir stuðla- bergssteinum; hugmyndin var sú, að fyrir nvert plantað eikartré skyldi við hlið þess „gróðursett" stuðlaberg. Við opnun þáverandi Documenta, plantaði hann fyrsta trénu — ég las einhvers staðar eftir honum haft, að eikartré væru miklu gáfaðri heldur en fólk — og vakti fyrir honum að skógvæða borgina Kassel; ekki þó í eigin- legri merkingu, heldur var hann að benda á nauðsyn umhverfís- vemdunar til tryggingar áfram- haldandi samfélagi. Meðan á hinum 100 dögum sýningarinnar stóð, var hann viðstaddur allan tímann, þar sem fólki gafst kostur á, að ræða við hann um hugmynd- ir hans. Eikartré og stuðlaberg var selt á kostnaðarverði, og gat hver sem var keypt. Treglega gekk þó í Kassei með þetta verkefni lengst af framan af — meðan Beuys var á lífi. Jú, það seldist einhver slatti í byijun og var komið fyrir á al- mannafæri. En hann fór alveg hrikalega í taugamnar á stjóm- málamönnum — og það henti sig fyrir tveimur ámm að skemmdar- verk vom unnin á hlutum lista- verksins. Talað var jafnvel um, að stuðlabergið væri stórhættu- legt á fortóvum, og sögð vera þess dæmi að það hefði orsakað dauðaslys. En við dauða listamannsins þögnuðu allar gagnrýnisraddir, og nú, þegar Documenta 8 opnaði, gróðursetti Venslás, sonur Beuys, eik númer 7.000 við hlið þeirrar fyrstu, í mikilli velþóknun borgar- jífirvalda. Eitthvað var um ræðuhöld við tilefnið; þótt öll hin brúkuðu orð hafí verið hjartnæm, held ég vart að íslenzkir blaðales- endur hafi mikinn áhuga á inni- haldinu. Þegar leið á opnunardaginn og þýzk mótmæli fóru í gang, var eikin notuð sem snúmstoð — á snúmnni héngu óútfylltar mann- talsskýrslur. Eitthvað pínlegt lá í loftinu. Giuseppi Penone: Laudslag með fjórum grænmetismöguleikum. Ida Appelbroog: Úr kirkju heilags Frans. J.Beuys: Elding með ljósgeisla á þjört. ogútlitshönnuðir. í tónbandasafn- inu er svo flaggað ca. 160 heimsfrægum nöfnum, sem verð- ur nú eiginlega mest að kalla skraut. Museum Fridericianum er mið- svæði sýningarinnar. Þegar undirritaðan bar þar að, var nýlok- ið „slagsmálum" um sýningar- pláss. Anselm Kiefer hótaði að fjarlægja sínar myndir, fengi hann ekki sal einn til umráða; það geisl- aði af honum þýzk frekja og stórmennskubijálæði, og hann var í sömu fötunum og þegar ég sá hann á blaðamannafundi í Sted- elijk Museum sl. vetur. Hann hafði sitt fram. Enzo Cucchi hafði hins vegar haft fataskipti frá því ég sá hann í vor; hann var óánægður með það pláss er honum hafði verið ætlað og dró myndir sínar til baka. Og hinn portúgalski Jul- iao Sarmento tók sínar myndir niður, en þar sem hann er ekki nógu mikil stjama ennþá, hengdi hann þær upp aftur á endanum. — Ýmislegt í framkvæmdastjóm- inni var komið í megnustu óreiðu. Blaðamenn komnir alla leið frá Chile og Brasilíu voru eitthvað að grípa í tómt — þeirra hótelplássa- mál vom í ólestri. Margir bölvuðu þessari Documenta í sand og ösku og kolluðu hana „The rocky horr- or picture show“, eftir samnefndri kvikmynd. Fleiri andar svifu þó þama yfír vötnum en rifrildisandinn. T.d. andi Josephs Beuys; ekki er hægt Anselm Kiefer: Brennistafir. Albert Hien: Garður lystisemdanna. þjóðum em Bandaríkjamenn fyrir- ferðarmestir; þá koma ítalir, Frakkar og Bretar. Austantjalds- lönd eiga þama örfáa fulltrúa, sem allir em þó komnir vestur yfír. — Að auki em 50 perform- anslistamenn og aðrir 50 vídeó- listamenn. Rúmlega 30 arkitektar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.