Morgunblaðið - 01.12.1987, Síða 8
8 B
aWOTBHnMoMt /IÞROTTIR ÞRJÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1987
IMú skal rétta
við laxastofn
IMorðurár
Stangaveiðifélag Reykjavíkur og landeigendur Norðurár í
Borgarfirði hafa endurnýjað samning um veiðirétt í ánni og
hjá SVFR fengust þœr upplýsingar að „status quou-ástand
hefði orðið ofan á, eða með öðrum orðum, að um hækkanir
á veiðileyf um verði ekki að ræða aðrar en sem svara til vfsi-
tölu og verðbólgu.
VEIÐI
Guðmundur
Guðjónsson
skrifar
Afundi stjómar SVFR og
veiðiréttareigenda fór mikiil
tími í að ræða hvað hægt væri
að gera til þess að hjálpa ánni
að rétta við, en
hún hefur ekki
verið upp á sitt
besta síðustu árin.
Vatnsleysi hefur
farið illa með ána,
en alvarlegri þró-
un fínnst mönnum vera hversu
illa farinn vorlaxastoftiinn virðist
vera. Stórlaxinn. Það er vegið
gífurlega að þeim stofni, fyrst
stráfella sjávar- og jökulvatnsnet-
in úr torfunum og síðan taka
stangveiðimenn háan toll, því vit-
að mál er, að nýrunninn lax er
sá sem gráðugastur er að taka
að öllu jöfnu og lax tekur yfírleitt
best þegar ekki of margir eru á
ferð saman í ánni. Þannig veiðist
mikið upp á stöng af þeim stórlöx-
um sem sleppa við netin. Þegar
líður á júni, hverfa dreggjamar
af stórlaxinum úr veiðinni að
mestu, þeir dreifa sér frammi á
dal og veiðast sjaldan, enda fáir
eftir. A seinni árum ber auk þess
æ meira á því að smálaxinn sem
í ána gengur er smærri heldur en
eðlilegt getur talist. Sum sumur,
eins og t.d. það síðasta, em 2-3
punda laxar algengir. En á ámm
áður var smálax 5-6 pund og
smærri fískur en 4 pund var fág-
ætt og forvitnilegt fyrirbæri.
Netaveiðin er talsverður þymir í
augum stangveiðimanna, en það
er ekkert nýtt. Þykir mönnum nú
samt keyra um þverbak, þegar
þessir minnstu tittir sem um ræð-
ir, veiðast í hrönnum með rifna
bakugga eftir netin. Væri þá ekki
ffáleitt að ætla að stórlaxar sleppi
yfírleitt ekki úr möskvunum, en
takist það gætu örin orðið slæm.
Fjölmargir sem veitt hafa í Borg-
arfírði, þar á meðal sá er þetta
ritar, hafa séð hrikalega útleikna
stórlaxa. Hreisturlausa á stómm
köflum og með djúp svöðusár inn-
an um netaförin. Samkvæmt
þessu, þá er það skoðun sumra
sem um Norðurá hugsa mikið, að
það séu 2-3 punda tittimir sem
halda stofninum uppi i hrygning-
unni og nú sé það farið að sýna
sig.
Nú hafa nokkrir Norðurárvinir
verið með hausana í bleyti og ein
athyglisverðasta hugmyndin er
þessi: Að semja við einhvem neta-
bóndann um að kaupa laxa af
Norðurárkyni iifandi í júní. Flytja
síðan þá laxa langt fram í Norð-
urá. Hugsanlegt væri einnig að
veiða þessa laxa á einhveijum
heppilegum stað í kistur og flytja
þá svo í ána.
Hvað svo sem þessum vangavelt-
um líður, þá varð það að sam-
komulagi stjómar SVFR og
eigenda Norðurár, að hafín skuli
umfangsmikil rannsókn á því
hvemig mætti auka laxagöngur í
hina fomfrægu laxveiðiá. Er hug-
myndin að hafa að leiðarljósi
hvemig staðið hefur verið að verki
við nágrannaána Langá Mýrum.
Það hefur fleira verið að gerast
hjá SVFR að undanfömu, samið
var nýverið um áframhaldandi
leigu á Blöndu til jaftis við tvö
stangvéiðifélög nyrðra og hefur
hvert um sig þriðjung veiðileyfa
á sínum snærum. SVFR gekk
einnig frá áframhaldandi leigu á
Svartá, þverá Biöndu. Hvorki
Svartá eða Blanda munu hækka
umfram verðbólgu. Veiðitíminn í
Svartá verður færður fram um
fímm daga, til 25. júní, og lýkur
veiðinni því fímm dögum fyrr, eða
15. september. Er þetta ekki órök-
rétt þar sem laxagöngur hafa
verið í fyrra lagi á ferðinni síðustu
sumur. Þá hefur SVFR endumýj-
að samkomulag um veiði í Breið-
dalsá og verður talsverð hækkun
á þeim bæ og kannski verður
hægt að segja nánar frá því síðar.
Fregnir um verðlag veiðileyfa ber-
ast nú jafnt og þétt og virðist sem
að víðast hvar sé stefnt að því
að leyfi hækki lítið eða ekki um-
fram verðbólgu. Það er að vísu
talsverð krónutöluhækkun. Af
tveimur ám hefur frést að leigu-
takar ætli að halda óbreyttu
krónutöluverði frá síðasta sumri,
em það Vatnsdalsá og Laxá (
Kjós.
Stjóm SVFR opnar gjaman Norðurá og landa oftar en ekki mörgum stórl-
öxum. í seinni tíð hefur verið helst til lítið eftir af stórfiskinum góða og
sá smálax sem komið hefur verið lélegur
Veiðivörur
EIÐISTORGI
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Liverpool eina taplausa
liðið og forskotið eykst
Reuter
Enginn má við margnum
Tottenham iék lengst af með 10 menn gegn Liverpool og komst lítt áleiðis. Á
myndinni sjá Ronny Whelan og Gary Giliespie til þess að Chris Fairclough fer
ekki lengra.
LIVERPOOL er eina taplausa
liðið í Englandi. Það er nú með
fimm stigar forskot á toppi
fyrstu deildarog á auk þess
leik tii góða. Önnur efstu lið
deildarinnar, sem láku um
helgina, töpuðu öll stigi eða
stigum og ósigrar Arsenal og
QPR gegn liðum í fallbaráttu
sýna að ekkert er sjálfgefið í
ensku knattspyrnunni frekar
en fyrri daginn.
Teriy Venables stjómaði Spurs
í fyrsta skipti, en stuðnings-
menn liðsins fóm enn einu sinni
ósáttir heim, níundi leikurinn í röð
■PBH án sigurs og aðeins
FráBob tvö stig. Tottenham
Hennessy tapaði 2:0 á White
/Englandi Hart Lane fyrir Li-
verpool að viðstödd-
um 47.500 áhorfendum og eina
huggun aðdáenda Spurs var að
Arsenal tapaði með sömu marka-
tölu gegn Watford’. Steve
McMahon, besti maður leiksins,
skoraði fyrra mark Liverpool á 62.
mínútu og Craig Johnston, sem kom
inn á sem varamaður fyrir Walsh,
innsiglaði sigurinn tíu mínútum fyr-
ir leikslok. Steve Hodge hjá Spurs
sló Ray Houghton í andlitið á 17.
mínútu, var vikið af velli, dýrkeypt
högg og þó Tony Park léki vel í
marki Spurs, var tap óumflýjanlegt.
Maxwell fékk sjö stig
Þijú lið blaðakóngsins Maxwells
stóðu sig vel, Watford og Derby
sigmðu og Oxford náði markalausu
jafntefli gegn Everton í Liverpool.
Everton átti leikinn, en leikmönnum
liðsins, einkum Adrian Heath,
mistókst allt upp við mark mótheij-
anna og eins var Hucker, markvörð-
ur Oxford, góður.
Watford fékk Arsenal í heimsókn
og vann 2:0 með mörkum frá Kenny
Jackett (18. mín.) og Luther
Blissett (88. mín.). Graham, stjóri
Arsenal, var gramur eftir leikinn.
„Ég hef ekkert á móti því að leika
gegn 11 mönnum, en það er erfítt
að eiga við 14 menn,“ sagði hann
við dómarann. Þetta var annar sig-
ur heimamanna í síðustu 11 leikj-
um, en þrátt fyrir tapið er Arsenal
í 2. sæti.
Derby vann 2:1 í Southampton.
Phil Gee og Andy Gamer skoruðu
fyrir gestina eftir að Andy
Townsend hafði náð forystunni fyr-
ir heimamenn.
Harka ó Stamford Bridge
Chelsea og Wimbledon gerðu 1:1
jafntefli í grófum leik eins og oft
vill verða, þegar Wimbledon er ann-
ars vegar. Tveimur leikmanna
liðsins, Brian Gayle og Carlton Fair-
weather, var vikið af velli, Gayle
fyrir að mótmæla réttilega dæmdri
vítaspymu á liðið, sem Gordon
Durie jafnaði úr, og Fairweather
fyrir ljótt brot. Fimm leikmanna
gestanna voru bókaðir, en alls hafa
leikmenn liðsins verið bókaðir 35
sinnum á tímabilinu. Dennis Wise
skoraði mark Wimbledon.
Hvorki gengur né rekur hjá QPR
þessa dagana og liðið mátti þola
3:1 tap ( 'Sheffíeld. Mark Proctor
(9. mín.) og Gary Megson (44. mín.)
skoruðu fyrir Sheffield áður en
Gary Bannister (66. mín.) minnkaði
muninn. Mel Sterland skoraði þriðja
mark Sheffíeld og áttu áhorfendur
erfitt með að trúa að QPR væri í
hópi efstu liða, lélegra lið hefur
ekki heimsótt Sheffield á tímabil-
inu.
Charlton tapaði 2:1 fyrir Newcastle
og situr á botninum. Jones skoraði
fyrir heimamenn á 6. minútu, Com-
well jafnaði á 45. mínútu og
Mirandinha skoraði sigurmark
Newcastle á 57. mínútu.
Fyrsti útisigur Portsmouth í 1. deild
síðan 1958 varð að veruleika, þegar
liðið vann Norwich 1:0. Barry
Home skoraði eina mark leiksins.
Leik Nottingham Forest og Luton
var frestað vegna þoku, en Man-
chester United sat yfír og skellti
sér til Hamilton á Bermuda og vann
heimamenn 4:1. Robson, Whiteside,
Davenport og McClair skoruðu
mörkin.
FRAKKLAND
Racing Paris
áfullriferð
Það lið sem hæst ber í frönsku
deildarkeppninni í knattspyrnu
þessa daganna er Matra Rac-
ing París. Gengi Parísarliðanna
Matra Racing og París St.
Germain hefur algerlega snúist
við á þessu tímabili, yfirleitt
er PSG ítoppbaráttu, en Matra
í glímu við falldrauginn.
Nú er þetta öfugt og St. Germa-
in tapaði um helgina ellefta
leiknum og er í þriðja sæti talið
neðan frá. Mahut skoraði sigur-
mark Matra Racing
gegn Laval og
skaust liðið þar með
upp í 2. sæti deildar-
innar og er fjórum
stigum á eftir Monakó.
Óvæntasti sigurinn, eða óvæntasta
tapið, allt eftir því hvemig á það
er litið, var 2-3 ósigur Nantes á
heimavelli gegn St.Etienne. Var tap
Nantes óvænt því liðið hefur leikið
Frá
Bemharði
Valssyni
IFrakklandi
feikivel að undanfömu. Skotinn Mo
Johnstone og Aneiani skoruðu fyrir
Nantes, en Tibeuf (2) og Ferri skor-
uðu mörk StEtienne. Mo Johnstone
hefur nú skorað 11 mörk í frönsku
deildinni og er markhæstur.
Vestur Þjóðveijinn Kláus Allofs var
hetja Marseilles, skoraði eina mark
leiksins er Marseilles sigraði Borde-
aux 1-0. í Le Havre tók heimaliðið
á móti toppliðinu Monakó. Le Havre
vermir eitt af fallsætunum og tókst
liðinu að draga Mónakó niður á sitt
plan. Skildu liðin jöfn án þess að
mark væri skorað. Þá vakti einnig
athygli viðureign Montpellier og
Niort, tveggja liða sem léku í 2.
deild á síðasta keppnistímabili.
Montpellier sigraði 1-0 með marki
Perez. Loks má geta, að París St.
Germain tapaði sem fyrr sagði
ellefta leik sínum, Toulouse sigraði
2-1 á heimavelli sínum með mörk-
um Despeyroux og Stophyra, en
Sene svaraði fyrir PSt.G
SKOTLAND
Rangers
sigraði
GRAEME Souness skellti
sér til Frakklands á föstu-
daginn, keypti Ray Wilkins
fyrir 250.000 pund frá Paris
SG, lák í 81 mínútu með
Rangers, þegar liðið vann
Hearts 3:2.
Iain Durrant skoraði sigur-
mark Rangers á 74. mínútu.
Robert Fleck og Craig Levein
(sjálfsmark) skoruðu fyrri mörk
Rangers, en Mike Galloway og
John Robertson fyrir Hearts.
Áhorfandi á leik Hibs og Celtic
kastaði táragashylki að stuðn-
ingsmönnum heimamanna. Það
sprakk, 500 áhorfendur þutu út
á völlinn og leikurinn tafðist (
17 mínútur. 43 áhorfendur voru
fluttir á sjúkrahús og sögðu
forráðamenn félaganna að
glæpsamlegt athæfí eins manns
hafí verið um að ræða sem ætti
ekkert skylt við skipulögð ólæti
og yrði tekið hart á málinu.
Frank McAvennie skoraði eina
mark leiksins á 21. m(nútu.