Morgunblaðið - 05.12.1987, Blaðsíða 1
80 SIÐUR OG LESBOK
277. tbl. 75. árg.
LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Thatcher á leiðtogafimdi EB:
Reiðubúin að slá
af kröfum sínum
Kaupmannahöfn, Reuter.
MARGARET Thatcher forsætis-
ráðherra Breta ítrekaði á leið-
togafundi Evrópubandalagsins í
Kaupmannahöfn í gær að banda-
lagið yrði að stöðva niðurgreiðsl-
ur til landbúnaðarins sem eru að
sliga fjárhag þess. Hún vék þó í
einu frá einarðri afstöðu sinni.
Thatcher gaf í skyn að Bretar
létu sér nægja að samkomulag
næði einungis til helstu kornteg-
unda.
Tólf leiðtogar Evrópubandalags-
rílq'a hófu í gær tveggja daga
viðræður sem einkum snúast um fjár-
hag bandalagsins. Bretar og Hol-
myndir af fölsuðum vegabréf-
um parsins sem kallaði sig
Mayumi og Shinichi Hachiya.
Japanskt par grunað
um hryðjúverk;
Tengist ekki
n-kóreskum
njósnahring
Tókýó, Reuter.
Bráðabirgðarannsókn jap-
anskra sérfræðinga á fingra-
förum parsins sem talið er
hafa átt aðild að tortímingu
suður-kóreskrar farþegaflug-
vélar á sunnudag leiddi í ljós
að hér voru ekki grunaðir
norður-kóreskir njósnarar á
ferðinni.
Getgátur höfðu verið uppi um
það í Suður-Kóreu að parið sem
handtekið var á flugvellinum í
Bahrain á þriðjudag með fölsuð
skilríki tengdist norður-kóreskum
njósnahring. Karlmaðurinn
framdi sjálfsmorð skömmu eftir
handtökuna en konan lifði af eft-
ir að hafa gleypt blásýruhylki.
Talsmaður suður-kóreska flug-
félagsins neitar fregnum fjöl-
miðla í Seoul þess efnis að
flugfreyjur um borð í vélinni hafi
séð handfarangur þeirra um borð
eftir að þau yfirgáfu vélina. Leit-
arflokkar hafa ekki fundið leifar
vélarinnar en um borð í henni
voru 115 farþegar.
lendingar hafa hvað harðast barist
fyrir svokölluðu „leiðréttingarkerfi“.
í því felst að verð á landbúnaðaraf-
urðum til bænda lækkar sjálfkrafa
ef framleiðsla þeirra fer fram úr
leyfilegum mörkum.
Á fundinum hefur einnig verið
rætt um alþjóðlega hiyðjuverkastarf-
semi. Thatcher bað Jaques Chirac
forsætisráðherra Frakklands afsök-
unar á hörðum árásum breskra
fjölmiðla á meðhöndlun FVakka á
gislamálinu í Líbanon. Hún sagðist
taka trúanleg orð Chiracs þess efnis
að Frakkar hefðu ekki greitt lausnar-
gjald fyrir tvo franska gísla sem
sleppt var í Líbanon á dögunum.
Danskir sagnfræðingar hafa
brugðist ævareiðir við því sem þeir
kalla „fölsun dönsku stjórnarinnar á
sögulegum staðreyndum". Tákn
fundarins er þijú þúsund ára gömul
steinmynd af langskipi sem fundist
hefur í Danmörku. Upphaflega voru
ellefu ræðarar á skipinu en í tákninu
er þeir orðnir tólf í samræmi við
fjölda Evrópubandalagsríkja.
Repter
Margaret Thatcher forsætisráðherra Bretlands, Poul Schliiter forsætisráðherra Danmerkur og Franco-
is Mitterrand forseti Frakklands á hádegisfundi í Amalienborg í gær. Á fyrra degi leiðtogafundarins
var einkum rætt um fjárhag Evrópubandalagsins. Ýmsir telja að ef ekki takist að ná samkomulagi nú
sé ímyndin um einingu Evrópu hrunin.
Langdrægar kjarnorkueldflaugar risaveldanna:
Reagan Bandaríkjaforseti
ílmgar málamiðlunartíllögu
Washington, frá Asgeirí Sverríssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
RONALD Reagan Bandaríkja-
forseti átti í gær fund með
helstu ráðgjöfum sínum á sviði
afvopnunarmála. Umræðuefn-
ið var stefna Bandaríkjastjórn-
ar varðandi fækkun
langdrægra kjarnorkuvopna,
sem almennt er talið að verði
eitt helsta umræðuefnið er þeir
Reagan og Míkhaíl S. Gor-
batsjov Sovétleiðtogi koma
saman til fundar hér í Was-
hington á þriðjudag. Líklegt
er talið að Reagan muni þar
leggja fram nýja tillögu og
bjóðast til að falla frá þeirri
kröfu að Sovétmenn fækki
einkum þeim kjarnaoddum,
sem komið hefur verið fyrir í
eldflaugum á landi.
Hingað til hafa Bandaríkjamenn
lagt á það höfuðáherslu að fækk-
unin taki einkum til landeldflauga
og hafa þeir með þessu móti viljað
tryggja sér svigrúm til að geta
fjölgað langdrægum kjamorkueld-
flaugum í kafbátum sínum.
Kenneth Adelman, forstöðumaður
Afvopnunarstofnunar Banda-
ríkjanna, gaf til kynna á fimmtu-
dag að búast mætti við stefnu-
breytingu varðandi þetta atriði.
Ekki væri „algjörlega nauðsyn-
legt“ að Sovétmenn fækkuðu
kjamaoddum í langdrægum eld-
flaugum á landi um rúmlega 3.000
eins og bandarískir embættismenn
hafa hingað til krafist. Sovétmenn
ráða yfir rúmlega 6.400 langræg-
um kjamaoddum á landi.
Sérfræðingar um vígbúnaðar-
mál hafa margir hveijir spáð því
að leiðtogar risaveldanna nái sam-
komulagi um að hvoru stórveldinu
verði í sjálfsvald sett að ráða sam-
setningu kjamorkuheraflans náist
samkomulag um verulega fækkun
langdrægra kjamorkuvopna. Er
þá gert ráð fyrir að samið verði
um að hvort stórveldið fái að halda
eftir 4.800 kjamaoddum í lang-
drægum flaugum bæði á láði og
legi. Verði raunin þessi munu Sov-
étmenn þurfa að fækka eigin
kjamaoddum um 52 prósent en
Bandaríkjamenn um 40 prósent.
í gær vom birtar niðurstöður
skoðanakönnunar dagblaðsins
Washington Post og ABC-sjón-
varpsstöðvarinnar þar sem al-
menningur í Bandaríkjunum var
inntur álits á samkomulagi risa-
veldanna um upprætingu meðal-
og skammdrægra kjamorkuflauga
á landi, sem áformað er að leið-
togamir undirriti á þriðjudag. 52
prósent aðspurðra kváðust vera
hlynnt sáttmálanum en aðeins átta
prósent andvíg honum. Hins vegar
kváðust 40 prósent þeirra sem
þátt tóku í könnuninni hafa það
takmarkaða þekkingu á inntaki
sáttmálans að þeir gætu ekki tekið
afstöðu til málsins. Þykir þessi nið-
urstaða treysta nokkuð málstað
þeirra stjómmálamanna í Banda-
ríkjunum sem lýst hafa sig andvíga
sáttmálanum og hafa boðað að
þeir muni leggjast gegn því að öld-
ungadeild Bandaríkjaþings stað-
festi hann. Sjá frétt á bls. 36.
Vona að okkur takist jafn
vel upp og Islendingum
- segir Jim Pope forstöðumaður erlendu
fréttamiðstöðvarinnar í Washington
Waahington, frá Agnesi Bragadóttur blaðamanni Morgunblaðsins.
VON ER á rúmlega sex þúsund
fréttamönnum hingað til Wash-
ington í tengslum við leiðtoga-
fund þeirra Reagans og
Gorbatsjovs samkvæmt því sem
kom fram i samtali blaðamanns
Morgunblaðsins við Jim Pope
forstöðumann erlendu frétta-
miðstöðvarinnar í Washington
(Washington Foreign Press
Center) í gær. Að sögn Popes
hefur undirbúningur gengið
vel i megindráttum en enn
sagðist hann eiga í smávægileg-
um örðugleikum sem hann
kvaðst þó bjartsýnn á að leyst-
ust nú yfir helgina.
Pope sagði í gær að það lægi
ekki íjóst fyrir enn hversu margir
frétta- og tæknimannanna væru
komnir hingað en hann bjóst við
að flestir þeirra yrðu komnir á
sunnudagskvöld, deginum áður
en Gorbatsjov kemur hingað til
Washington. Hann sagði þriðjung
fréttamannanna eða liðlega það
vera erlenda fréttamenn.
„Nei, því miður var ég ekki á
íslandi í fyrra en vildi svo gjaman
hafa verið þar,“ sagði Pope. „All-
ir sem ég hef talað við hafa lokið
lofsorði á frammistöðu Islendinga
í fyrra, og sagt mér að þeir hafi
unnið afrek. Ekki aðeins hvað
varðar aðbúnað allan og tækni
heldur einnig það að erlendu
fréttamönnunum á íslandi í fyrra
fannst að þeir væru heima hjá sér
sökum gestrisni og hlýju íslend-
inga.“
Pope sagði loks: „Ég vona ein-
læglega að mér og mínu fólki
takist jafn vel upp og íslendingum
tókst í fyrra við undirbúning og
framkvæmd þessa sögulega fund-
ar.“