Morgunblaðið - 05.12.1987, Blaðsíða 11
11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1987
Slys og björgun
Békmenntir
Erlendur Jónsson
Steinar J. Lúðvíksson: ÞRAUT-
GÓÐIR Á RAUNASTUND.
XVIII. 180 bls. Bókaútg. Örn og
Örlygur hf. 1987.
Síðasta bókin í flokki þessum
kom út fyrir tveim árum. Skýrir
höfundur svo frá í formála að þá
hafi hann ætlað að láta staðar num-
ið. En síðar hafi hann svo haflð
verkið að nýju vegna áskorana sem
sér hafi borist. Nær þetta síðasta
bindi björgunar og sjóslysasögunn-
ar jrfir árin 1969—71 að báðum
meðtöldum, sem sagt þtjú ár. Ekki
voru þau í tölu verstu slysaára.
Slysalaust ár mun þó seint upp
renna. Og slysa- og björgunarsaga
þessara þriggja ára fyllir sem sagt
dávæna bók. Á þessum árum hafði
þegar verið komið á slysavömum
því skipulagi sem síðan hefur í stór-
um dráttum haldist. Miðstöð slysa-
vama var hér í Reykjavík. Bærist
tilkynning um yfirvofandi háska
vom björgunarsveitir skjótar að
bregðast við eins og bæði fyrr og
síðar. Er ekki vafi á að björgunar-
sveitir slysavamafélaga, lögregla —
og stundum einstaklingar — hafa
bjargað mörgum frá bráðum háska
þessi árin. Eigi að síður urðu óhöpp
og slys, sum hörmuleg. Til dæmis
fórust sex menn í eldsvoða um borð
í togaranum Hallveigu Fróðadóttur
snemma árs 1969. Skipið var þá á
leið á fiskimið. Reynt var fyrir sjó-
rétti að komast að því hvað valdið
hefði eldsvoða þessum. Það tókst
ekki. Menn töldu sig komast að
raun um hvar eldurinn hefði kvikn-
að, en ekki af hvaða völdum.
Skömmu fyrir jólin 1969 var
Halkion frá Vestmannaeyjum á
spærlingsveiðum út af Meðallandi.
»... í fyrsta halinu vildi svo ein-
kennilega til að þegar verið var að
taka pokann upp að skipinu kom
haftyrðill, öðru nafni halkion, og
settist á pokann.« Ekki þótti skip-
stjóra það vita á gott. Enda fór svo
að varpan fór í skrúfuna í næsta
hali með þeim afleiðingum að bátinn
rak stjórrilaust að landi þar sem
hann strandaði. En hvorum tveggja
tókst að bjarga: mönnum og skipi,
þó björgun hins síðar talda tæki
að vísu mun lengri tíma og fyrir-
höfn. Ohöpp vegna þess að veiðar-
færi flækjast um skrúfu virðast
hvergi ótíð hér við land.
Árekstrar skipa á hafí úti eru
ekki algengir á íslandsmiðum, enda
ætti svigrúmið að vera nóg! Slíku
er þó greint frá í þessari bók, með-
al annars er vélbáturinn Ver frá
Sandgerði var sigldur niður 1970.
»Var atburður þessi mjög umtalað-
ur og löng réttarhöld fylgdu í kjölfar
hans,« segir í inngangi.
Á þessum árum veiddu breskir
togarar enn hér við land. Þess hátt-
ar var ekki talið fréttnæmt nema
eitthvað kæmi fyrir. Vorið 1971
vildi svo til að breskur togari, Caes-
ar, strandaði við Amames vestra.
Björgunarleiðangur var sendur út
hingað til að ná skipinu aftur á flot.
Tókst það eftir æmar tilraunir. En
togarinn reyndist þá svo skemmdur
að hann var talinn nánast ónýtur.
Munu eigendur skipsins þá hafa
ákveðið að láta draga togarann á
haf út og sökkva honum; höfðu
samt ekki hátt um þá ráðagerð.
Strand þessa togara og eftirmál
öll urðu tilefni mikilla blaðaskrifa.
Olía lak úr skipinu á strandstað og
olli fugladauða vestra. Og talið var
að enn væri mikil olía í geymum
þess þegar því var sökkt — á gam-
alli flskislóð!
Stundum liggur við að aulaskap-
ur verði mönnum að fjörtjóni og
segir frá að minnsta kosti einu
þvílíku tilviki í bók þessari. Svo var
mál með vexti að franskur maður
kom hingað vorið 1970 í þeim til-
gangi að sigla á kajak umhverfís
Island. Margt vilja menn sér til
frægðar vinna! Frakkinn var alls
ókunnugur staðháttum hér og virð-
ist hafa gert sér harla óljósa grein
fyrir áhættu þeirri sem hann hugð-
ist taka. Tvisvar var honum bjarg-
að; var í bæði skiptin fískaður upp
í íslensk skip. Var hann þá bæði
hrakinn og þrekaður, og að dómi
þeirra, sem björguðu honum, í veru-
Jólatónleikar með
BONEY
og á þriðja tug íslenskra
legri lífshættu. En ekki lét hann
af ætlun sinni fyrr en löndum hans
i franska sendiráðinu tókst að telja
honum hughvarf.
Fjöldinn allur af smáóhöppum
varð líka þessi árin. Er jafnan skýrt
frá þeim í stuttu máli. Lítið er gert
að því að dæma um á orsakir þeirra,
enda vafalaust margar og mismun-
andi. Og oft ekki ljósar.
Eitthvað er af prentvillum í bók-
inni. Annars er texti Steinars
hlutlægur og vafningalaus. Efni
þessu mundi ekki heldur hæfa neitt
málskraf. Nokkrar myndir eru í
bókinni af skipum og björgunarað-
gerðum á umræddu tímabili.
Steinar J. Lúóvíksson
M
listamanna
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
í Háskólabíói sunnudaginn 13. desember kl. 15.00.
BjartmarGuðlaugsson, Stuðkompaníið, Eiríkur Hauksson, Eyjólfur Kristjánsson, Helga
Möller og fjölmargir aðrir íslenskir tónlistarmenn munu koma fram ásamt hinum heims-
frægu Boney M. Lög á borð við „Mary’s Boy Child", „White Christmas”, „Jingle Bells“,
„JoyToThe World“ aukfjölmargra íslenskra jólalaga munu hljóma í Háskólabíói og sam-
einast um að gera þessa jólatónleika ógleymanlega.
Forsala aðgöngumiða hefst í dag í Háskólabíói og í hijómplötuverslunum Steina hf.
Aðgöngumiðaverð aðeins kr. 950.-
MISSIÐ EKKIAF ÞESSUM EINSTÆDU JOLA-
TÓNLEIKUM ALLRAR FJÖLSKYLDUNNAR
Nybylavegi 4,200 Kópavogi. Simi 45800
Borgartúni 32