Morgunblaðið - 05.12.1987, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1987
Frá fundi Ronalds Reagan og Mikhails Gorbatsjov í Höfða í okt. 1986. Með þeim við borðið eru tiilkar.
INNI í HÖFÐA
Sjónvarp
Arnaldur Indriðason
Þeir hittast aftur núna eftir
helgi og það verður í þriðja sinn.
Mikhail Gorbatsjov og Ronald
Reagan setjast niður og undirrita
samning um fækkun meðal-
drægra eldflauga. Hvað sem
annars má um þá segja hafa þeir
unnið stórvirki á sviði afvopnun-
ar; engir aðrir leiðtogar stórveld-
anna hafa náð eins langt á því
sviði.
Fyrst hittust þeir í Genfj núna
hittast þeir í Hvíta húsinu. I milli-
tíðinni héldu þeir óvæntan fund í
Reykjavík í gamla draugahúsinu
Höfða. Við vitum allt um það, á
11 dögum urðum við að fram-
kvæma það sem gert var á þremur
mánuðum í Genf. Við stóðum
okkur vel sem gestgjafar og þeir
stóðu sig vel sem samningamenn,
hvor fyrir sig. Því miður var ekki
undirritað neitt samkomulag, það
strandaði á Geimvamaáætluninni,
en þeir komu sér saman um margt
og línur skýrðust. Báðir vissu
betur hvar þeir stóðu eftir á og
brautin var rudd fyrir Washing-
tonfundinn. Þeir skildu vonsviknir
á svipinn í haustmyrkrinu en þeir
máttu svosem vel við una. Þeir
hittast broshýrir aftur í Was-
hington núna rúmu ári seinna.
Þess vegna er heitið á hinni
bresku leiknu heimildamynd,
„Breakthrough at Reykjavik" sem
sýnd verður í ríkissjónvarpinu
annað kvöld og er lýsing á því sem
fram fór inni í Höfða þegar leið-
togamir hittust, vel til fallið. í því
felst einfaldlega að ísinn -ar brot-
inn í Reykjavík. Fundurinn hér
var stórt skref í átt til þess sam-
komulags sem undirritað verður
í Washington.
En hvað var það nákvæmlega
sem gerðist inni í Höfða þessa
merkilegu helgi í október? Hvem-
ig er fundur tveggja valdamestu
manna í heimi? Hvemig fór á með
þeim tveimur? Hvað sagði Gorb-
atsjov við Reagan og hvemig
brást forsetinn við þegar aðalrit-
arinn lagði fram sínar óvæntu
tillögur um fækkun kjamavopna
og hristi upp í samningaþófí sem
staðið hafði í 20 ár? Hvemig var
að vinna í Höfða?
Sjónvarpsmyndin leitast við að
svara þessum spumingum. Hún
er.gerð á vegum Granada Televisi-
on og verður sýnd í Bretlandi á
sama tíma og hér en áætlað er
að sýna myndina í Bandaríkjunum
daginn sem leiðtogamir hittast.
Leikstjóri hennar er Sarah Hard-
ing en framleiðandi Norma Percy.
Með aðalhlutverkin fara Timothy
West, sem leikur Gorbatsjov, og
Robert Beatty, sem leikur Reag-
an. Handritið skrifaði breska
leikritaskáldið Roriald Harwood,
sem gerði hið stórskemmtilega
leikrit „Aðstoðarmaðurinn" („The
Dresser") og handritið að sjón-
varpsmyndinni „Mandela", sem
ríkissjónvarpið sýndi nýlega.
í kynningu Granada á „Break-
through at Reykjavik" segir að
aflað hafí verið mikilla heimilda
um fundinn fyrir gerð myndarinn-
ar en Richard Perle og Kenneth'
Adelman, sem báðir voru ráðgjaf-
ar Bandaríkjaforseta í Höfða, eru
nefndir til staðfestingar á áreiðan-
leik hennar. Eftir að hafa séð
hana á sýningu í Washington í
síðasta mánuði sögðu þeir lýsingu
hennar rétta í aðalatriðum.
Granada setti allt í gang næst-
um um leið og fréttin barst um
fundinn í Reykjavík, menn vom
sendir til Moskvu, Washington og
Reykjavíkur í heimildaleit, talað
var við háttsetta embættismenn í
Timothy West
austri og vestri, sem viðriðnir
voru fundinn og eftir því sem seg-
ir í kynningunni komust sjón-
varpsmennimir í opinber og
óopinber minnisblöð um fundinn
og umræðumar á bak við tjöldin.
Brian Lapping, framkvæmdastjóri
við gerð myndarinnar, segir:
„Rússamir fengu okkur í hendur
útdrætti úr viðræðunum. Það em
engin fordæmi fyrir því — slíkt
Robert Beatty
hefur aldrei gerst áður. Banda-
ríkjamenn svömðu í líkingu við
Rússana og við stóðum uppi með
lýsingar frá fyrstu hendi á því sem
gerðist þessar 48 stundir, frá fólki
sem var inni í Höfða.“
Öll gögnin vom sett í hendum-
ar á Ronald Harwood og úr þeim
vann leikritaskáldið sitt verk. Efn-
ið setur honum auðvitað þröngar
skorður. Það leiðir af sjálfu sér
Samskonar mynd úr fundarherberginu i leiknu heimildarmyndinni „Breakthrough at Reykjavik".
Með leiðtogunum eiga að vera Eduard Shevardnadze utanríkisráðherra Sovétríkjanna og George
Schultz utanríkisráðherra Bandarikjanna. Anthony Bate leikur Shevardnadze en Shane Rimmer
leikur Schultz.
að mestur hluti handritsins er tal
um langdrægar og meðaldrægar
eldflaugar, Geimvamaáætlunina
og allt þess háttar og það er lítið
svigrúm til að bregða út af því.
Myndin hefst á fréttamynd af
komu Gorbatsjov til Höfða þar
sem Reagan tekur á móti honum
og síðan fer öll atburðarásin fram
innan veggja hússins. Harwood
hefur kosið að segja söguna frá
sjónarhóli Bandaríkjamanna, við
kynnumst viðbrögðum þeirra all-
vel en fáum aldrei að vita hvað
Sovétmenn ræða bak við tjöldin.
Leikmyndahönnuður myndar-
innar hefur reynt af fremsta
megni að líkja eftir frummynd-
inni, allt frá málverkinu af Bjama
Benediktssyni, sem hékk á vegg
fyrir aftan Reagan í fundarher-
bergi leiðtoganna, til borðfána
með merki höfðuðborgarinnar.
Leikmyndahönnuðurinn hefur
greinilega litast vel um í Höfða
áður en hann byggði leikmyndina
í upptökuveri Granada Television.
Aðeins eitt atriði, og þáð nokkuð
skondið, gerist utan við Höfða en
það er þegar bandarísku samn-
ingamennimir raða sér inní
sérstaklega tilbúinn og níðþröng-
an tank sem á að vera staðsettur
í bandaríska sendiráðinu við Lauf-
ásveg og varinn fyrir hlemnum.
Það er raunar næstum innilok-
unarkennt andrúmsloft yfir
myndinni allri. Hún lýsir vel þeirri
gríðarlegu vinnu sem unnin var
við þröngar og erfiðar aðstæður.
Tveir ráðgjafar úr liði Bandaríkja-
manna verða t.d. að vinna uppkast
að tillögum á salerninu. Leið-
togafundurinn var sannarlega
vinnufundur; engin hanastélsboð,
engin kvöldverðarboð. Aðeins
vinna. Til einföldunar tala leið-
togamir milliliðalaust hvor við
annan í myndinni. Atburðir helg-
arinnar em dregnir saman í
snarpar 52 mínútur, miklar fund-
arsetur em dregnar saman í
nokkrar mínútur. Langar orðræð-
ur detta að sjálfsögðu út. En
Harwood heldur sig við meginef-
nið allt frá því Gorbatsjov leggur
þykkan skjalabunka á borðið við
upphaf fundarins og Reagan seg-
ir „Þú kemur með meiri pappíra
en ég“ og til þess þegar Gor-
batsjov kemur í lokin með tillögu
um eyðingu allra kjamavopna og
Reagan segir „Ef það er það sem
þú vilt, þá allt í lagi.“ En því
miður strandaði allt á skilyrðum
Sovétmanna vegna Geimvarnaá-
ætlunarinnar.
Myndin lýsir því hvað Sovét-
menn koma vel undirbúnir til
viðræðnanna og hvað Bandaríkja-
menn em raunvemlega óviðbúnir
hinum ákveðnu tillögum þeirra.
Viðræður leiðtoganna em mjög
rólegar og æsingalausar. Hare-
wood hefur sennilega aldrei
fengið að vita um það þegar Reag-
an reiddist svo er fréttist um
uppljóstranir Sovétmanna af
fundunum þegar samþykkt hafði
verið fréttabann „að hann barði í
borðið og sópaði vinnuplöggum
af því og urðu aðstoðarmenn hans
að týna þau upp“, eins og segir
í bók Guðmundar Magnússonar
blaðamanns um leiðtogafundinn.
Aðálleikararnir hafa greinilega
verið valdir með tilliti til þess hve
lflrir þeir em leiðtogunum. Timot-
hy West er ekkert sérlega líkur
Gorbatsjov í fasi (eins og hann
var t.d. í NBC-viðtalinu) þótt hann
hafi verið gerður svipaður honum
í útliti. Kanadíska Ieikaranum
Robert Beatty hefur aftur tekist
mun betur upp í lýsingu á Reag-
an. Hann er 78 ára gamall
(Reagan var 75 ára á Reykjavík-
urfundinum) og nær, að manni
fínnst svona við fyrstu kynni,
bæði málfari, hreim og framkomu
forsetans fyrir utan að vera skolli
líkur honum í útliti. Það jaðrar
við skopstælingu. Grínútgáfa af
forsetanum í gamanþáttunum
„Spitting Image“ sækir á hugann.
Hann er kannski full hmmur en
ofurgóðlátlegur frammi fyrir hin-
um harðákveðna vinnuhesti
Gorbatsjov. Aðrir leikarar standa
sig með prýði.