Morgunblaðið - 05.12.1987, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1987
Minning:
Laufey Eyvindsdóttir
Vestnmnnaeyjum
í dag verður til moldar borin í
Landakirkju í Vestmannaeyjum kær
móðursystir mín, Guðný Laufey Ey-
vindsdóttir, sem lést hinn 1. desember
sl. eftir stutta en mjög erfiða sjúk-
dómslegu.
Laufey, eins og hún var alltaf köll-
uð, fæddist í Vestmannaeyjum hinn
19. desember 1917, dóttir sæmdar-
hjónanna Sigurlilju Sigurðardóttur
og Eyvindar Þórarinssonar hafnsögu-
manns. Af átta bömum þeirra hjóna
lifðu fjögur til fullorðinsára og er
Laufey sú þriðja úr þeim hópi sem
kveður þessa tilveru. Eftir lifir nú ein
systirin, Guðfínna Eyvindsdóttir, og
býr hún í Vestmannaeyjum.
Laufey dvaldist í heimahúsum, við
nám og störf, aðallega verslunar-
störf, þar til hún gifti sig þann 31.
maí 1941 Guðlaugi Stefánssyni út-
gerðarmanni frá Gerði í Vestmanna-
eyjum. Þau eignuðust þrjú böm, einn
son er dó í frumbemsku og tvær
dætur, Ingu og Guðfinnu. Bamaböm-
in era sjö að tölu og vora þau henni
afar kær, og unnu ömmu sinni mikið.
Laufey og Guðlaugur bjuggu alla
sína sambúð í Vestmannaeyjum og
stóð heimili þeirra lengst af á Helga-
fellsbraut 21 í Eyjum.
A besta aldri veiktist Laufey og
átti síðan við alvarlegan sjúkdóm að
stríða. Mótlæti þessu tók hún af miklu
æðraleysi og kvartaði aldrei þó oft
væri hún þjáð. Eiginmaður hennar
og dætur studdu hana af öllum mætti
og reyndu að gera henni tilverana
léttbærari. Þrátt fyrir þetta átti hún
sín áhugamál og naut hún þess að
reyna að ferðast og einnig var hún
mjög músíkölsk og hafði yndi af góðri
tónlist. Þar að auki starfaði hún í
Oddfellowstúkunum Vilborgu og Þor-
gerði, og átti þar marga góða vini.
Laufey var að eðlisfari dul um sínar
tilflnningar, en mjög næm á líðan
annarra. Frændrækin var hún mjög
og sterkur hlekkur í okkar fjölskyldu,
og naut sín best þegar fjölskyldan
kom öll saman, og lagði hún sitt svo
sannarlega af mörkum að svo mætti
verða sem oftast. Reyndist hún böm-
um sínum, bamabömum og systra-
bömum alla tíð mjög vel. Sem og
reyndar öllum sem hún kynntist.
Þegar hugurinn leitar til baka til
bemsku- og unglingsáranna flnnst
mér sem alltaf hafi verið sól og bjart
í Eyjum, þar sem öryggi og gleði
réðu ríkjum. Þá sem alltaf stóð heim-
ili Laufeyjar og Guðlaugs okkur
systranum opið, og nutum við þess
oft um lengri eða skemmri tíma.
Fyrir það allt er mér ljúft að þakka.
Farin er frá okkur mikil sómakona
sem með góðmennsku sinni og hóg-
værð var okkur öllum sönn fýrir-
mynd. Söknuður okkar er sár, en
hugurinn dvelur hjá eiginmanni henn-
ar, dætram og bamabömum á
þessum degi. Fyrir hönd móður
minnar og systra sendi ég þeim okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur, og
að endingu kveð ég móðursystur
mína með þessum orðum. Fylgdu ljós-
inu og láttu það vísa þér veginn heim,
þá mun eyðing líkamans ekki verða
þér að tjóni. Það er að íklæðast eilífð-
inni.
Eygló Þorsteinsdóttir
í dag verður lögð til hinstu hvíldar
frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
frú Laufey Eyvindsdóttir.
Vil ég með þessum minningarorð-
um votta henni virðingu mina og
þakka henni samfylgdina.
Laufey fæddist í Vestmannaeyjum
þann 19. desember 1917 og ól þar
allan sinn aldur. Foreldrar hennar
vora þau Sigurlilja Sigurðardóttir og
Eyvindur Þórarinsson.
Laufey giftist eftirlifandi eigin-
manni sínum, Guðlaugi Stefánssyni,
stórkaupmanni, frá Gerði í Vest-
mannaeyjum. Þau eignuðust þrjú
böm, þær Ingu og Guðflnnu, en
sveinbam fæddist andvana.
Laufey hafði þjáðst af liðagigt í
áratugi og setti það niark á heilsufar
hennar. Hún tóku þessu mótlæti
lífsins af miklu æðraleysi, enda sam-
einuðust eiginmaður, dætur og systir
við að gera henni lífið eins bærilegt
og aðstæður leyfðu.
Á liðnum áram hefl ég átt ófáar
heimsóknir á heimili þeirra hjóna.
Aldrei fann ég annað en bros og gleði
á andliti frú Laufeyjar þótt hún væri
sárþjáð. Mætti það verða okkur, sem
heilbrigð eram, til eftirbreytni.
Við hjónin vottum okkar kæra vini,
Guðlaugi, dætram þeirra og fjölskyld-
um samúð og óskum þeim styrks í
sorg.
Megi frú Laufey Eyvindsdóttir
hvíla í friði.
Vilhjálmur Bjarnason
t
GUÐRÚN GUÐNADÓTTIR
frá Eyjum i Kjós
andaðist í Landspítalanum aðfaranótt 4. desember.
Andrés Ingibergsson, --
Sigurður Ingi Andrésson, Soffía Sigurðardóttir,
Gunnar Andrésson, Guðbjörg Stefánsdóttir,
Einar Andrésson, Hólmfríður Gröndal
og barnabörn.
t
Eiginkona mín og móðir okkar,
INGUNN J. ÁSGEIRSDÓTTIR,
Kirkjuteigi 13,
lést í Landakotsspítala 3. desember.
Jón Egilsson,
Sveinn Jónsson,
Þorgeir Jónsson,
Sigríður Jónsdóttir.
radauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
húsnæöi óskast
fundir — mannfagnaöir
Fulbrightstofnunin
óskar eftir 3-4 herb. íbúð með húsgögnum
á leigu fyrir bandarískan prófessor frá 1. jan.
til 31. maí.
Upplýsingar í síma 20830 eða 621481 utan
skrifstofutíma.
25 feta bátur til sölu
Til sölu er fullkláraður, nýr og innréttaður
25 feta hraðfiskikbátur, en ánvélar og tækja.
Áhugasamir vinsamlegast leggið inn nafn
og símanúmer á auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Bátur - 4568“.
Skipasala Hraunhamars
Til sölu nýlegur 15 tonna plastbátur með
góðri vél. Vel búinn siglinga- og fiskleitar-
tækjum svo og öðrum þeim búnaði sem
talinn er þurfa vera í velbúnu fiskiskipi þ.á m.
beitingavél.
Kvöld- og helgarsími 51119.
Skipasala Hraunhamars,
Reykjavíkurvegi 72,
Hafnarfirði, sími 54511.
Skipasala Hraunhamars
Til sölu 140 tonna yfirbyggt stálskip með
stórri og góðri vél og velbúið siglinga- og
fiskleitartækjum. Skipið er sérútbúið til tog-
veiða með frystitækjum í lest sem afkasta
t.d. um 10 tonnum af rækju á sólarhring.
Seljanði vill fá 55-70 tonna skip uppí.
Kvöld- og helgarsími 51119.
Skipasala Hraunhamars,
Reykjavíkurvegi 72,
Hafnarfirði, sími 54511.
Mosfeljingar
- Reykvíkingar
Kvennadeild Styrktarfélags lamaðra og fatl-
aðra heldur basar í dag, laugardaginn 5.
desember kl. 14.00 í Hlégarði, Mosfellsbæ.
Allur ágóði rennur til sumardvalarheimilis
fyrir fötluð börn, sem starfrækt er í Reykja-
dal í Mosfellsbæ. Allt góðar vörur. Ekkert
dýrara en 250 kr. Komið í Hlégarð og gerið
góð kaup um leið og þið stuðlið að betri líðan
fatlaðra.
Kvennadeild Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra.
Spilakvöld
Laugarnes-, Háaleitis-, Vestur- og miðbæjarhverfi halda spilakvöld
þriðjudaginn 8. des. kl. 20.30 i Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Stjórnandi er Þórður Einarsson.
Fólagar fjölmennum.
Stjórnirnar.
Almennur
félagsfundur
um sveitarstjórnar-
mál verður i Sjálf-
staeðishúsinu á
Höfn, sunnudaginn
6. des. kl. 17.00.
Sturlaugur Þor-
steinsson, oddviti
og Eirikur Jónsson,
sveitarstjórnarmað-
ur, verða frummæl-
endur og sitja fyrir
svörum.
Allir velkomnir.
Sjálfstæðisfélag A-Skaftafellssýslu.
Akranes - jólaf undur
Sjálfstæðiskvennafélagið Bára heldur jólafund sinn í Sjálfstæðis-
húsinu við Heiöargerði mánudaginn 7. desember kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg fundarstörf.
2. Matur.
3. Kaffi.
4. Skemmtiatriði.
Konur eru hvattar til að mæta vel og taka með sér gesti.
Skemmtinefndin.
Akranes - bæjarmálefni
Fundur um bæjar-
málefni verður
haldinn í Sjálfstæð-
ishúsinu við Heiðar-
gerði sunnudaginn
6. desember kl.
10.30. Bæjarfulltrú-
ar Sjálfstæðis-
flokksins mæta á
fundinn.
Kaffiveitingar.
Sjálfstæðisfélögin á Akranesi.
Jólafundur Hvatar
Mánudaginn 7. desember kl. 20.30 heldur Hvöt, félag sjálfstæöis-
kvenna, sinn árlega jólafagnað í Holliday Inn, 1. hæð.
Á dagskrá veröur:
Setning: Máría E. Ingvadóttir, formaður Hvatar.
Ræðumaður kvöldsins: Davið Oddsson, borgarstjóri.
Hugvekja: Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir.
Söngur: Guðrún Jónsdóttir við undirleik Jórunnar Viöar. Pianóleikur
Hafliði Jónsson. Fatahönnuðirnir Margrét Þorvaröardóttir, María
Lovisa Ragnarsdóttir og Steinunn Bergsveinsdóttir sýna hugmyndir
sínar um vetrartískuna með hjálp Hvatarkvenna.
Happdraetti: Fjöldi glæsilegra vinninga.
Kynnir: Ásdis Loftsdóttir.
Fjölmennið og takiö með ykkur gesti.
Stjórnin.