Morgunblaðið - 05.01.1988, Síða 2
2 B
3«orfliinbtntii» /IÞROTTIR ÞRIÐJUDA G UR 5. JANÚAR 1988
KÖRFUKNATTLEIKUR / NBA
NBA-punktar
H ALEX English setti nýtt
stigamet fyrir jólin hjá Denver, þeg-
ar hann skoraði sitt 16.595. stig
fyrir félagið. English lék áður með
Indiana en fór til Denver í febrúar
1980 í skiptum fyrir „stórstjörn-
una“ George McGinnis.
Þeir 5 leikmenn sem flest stig hafa
skorað á þessum áratug eru:
Alex English, Denver 17131
Moses Malone, Washington: 16083
Larry Bird,'Boston: 15766
Adrian Dantley, Detroit: 15605
Abdul-Jabbar, Lakers: 14493
■ GEORGE Gervin, „ísmaður-
inn", var nýlega heiðraður af San
Antonio Spurs. Þá var fáni með
númeri hans, 44, dreginn upp í
Hemis Fair-íþróttahöllinni og hon-
um var margs konar sómi sýndur.
„ísmaðurinn" er 7. stigahæsti leik-
maður NBA frá upphafi og 4
sinnum var hann stigakóngur.
Hann skoraði yfir 10 stig í hverjum
einasta leik í tæp 5 ár (406 leikjum)
og tók þátt í 12 stjömuleikjum, 3
í ABA og 9 í NBA.
■ NÚ þegar ca. 30 umferðum
er lokið í NBA-deildinni skulum við
líta á hvaða leikmenn eru efstir í
hinum ýmsu þáttum íþróttarinnar:
Flestar mínútur leiknar að meðal-
tali í leik — 38,3: Danny Ainge,
Boston.
Flestar mínútur leiknar í einum leik
(með framlengingu) — 55: Dennis
Johnson, Boston.
Flest stig í leik — 49: Michael Jord-
an, Chicago.
Flesar skottilraunir í leik — 38:
Michael Jordan, Chicago.
Flestar 3. stiga körfur í leik — 6:
Danny Ainge, Boston.
Flest vítaskot (skomð) í leik —
20:Moses Malon, Washington.
Flest fráköst í leik — 25: Mark
Eaton, Utah.
Flestar stoðsendingar í leik — 17:
Dennis Johnson, Boston.
Qaorge Qervln
Miðherjar:
Hverjir
eru bestir?
Að þessu sinni tökum við fyrir
miðheijana, þessa risa sem
eiga að drottna yfir svæðinu í kring-
um körfuna. Sú var tíðin að
IHHi miðheijamir vom
Einar nefndir konungar
Bollason körfuboltans og oft-
skrifar ast sátu þeir í efstu
sætum í stigaskor-
un, fráköstum o.fl. Þá var og
algengt að besti leikmaður deildar-
innar (M.V.P.) væri miðheiji. En
nú er tíðin önnur. Á lista yfír 20
stigahæstu einstaklinganna sl. vet-
ur em aðeins nöfn 2 miðheija,
Moses Malone (9. sæti) og Akeem
Olajuwon (12. sæti). Þá vekur það
ekki síður furðu að meðal frákasta-
hæstu leikmanna er miðheiji aðeins
í 4. sæti, James Donaldson, Dallas.
Já, boltinn er að breytast, meiri
hraði og aukin stærð allra leik-
manna hefur breytt mjög hlutverki
miðheijans, en þrátt fyrir að við
höfum ekki neinn Russel eða
Chamberlain núna, þá er miðheijinn
enn þýðingarmikill hlekkur í nútíma
körfubolta. Við skulum líta á 5
bestu miðheijana:
1. Akeem Olajuwon, Houston.
Þessi Nígeríumaður skipar hér efsta
sætið og á sjálfsagt eftir að gera
það í mörg ár. Mjög fjölhæfur leik-
maður sem hefur yfír að ráða
óhemulegum hraða miðað við svona
stóran mann. Sl. vetur skoraði hann
23,4 stig að meðaltali í leik (51%
hittni), tók 858 fráköst og átti 220
stoðsendingar, auk þess varði hann
254 skot.
2. Moses Malone, Washington.
Þessi harði vinnuhestur sem leikur
nú sitt 14. tímabil lætur ekkert á
sjá. Hann varð sl. vetur 9. í stiga-
skorun (24,1) og 9. í fráköstum
(11,3) og það eru aðeins „gömlu
mennirnir" Abdul-Jabbar (40 ára)
Keram Abdul-Jabbar er leikmaður á fimmtugsaldri. Þrátt fyrir það er hann
óþrýndur konungur miðheijanna.
og Gilmore (38 ára) sem hafa leik-
ið fleiri leiki en hann (964). Menn
hlæja enn að Harold Katz, eiganda
Philadelphia 76 árs, fyrir að selja
Moses og almennt er sú sala álitin
mestu mistök í sögu NBA.
3. Kareem Abdul-Jabbar, L.A.
Lakers. Ótrúlegt en satt, maður á
fimmtugsaldri í hópi þeirra bestu,
og kemur sjálfsagt fáum á óvart.
Þrátt fyrir að þessi fyrrum ókrýndi
konungur miðheijanna sé farinn að
hægja örlítið á sér og leiki ekki
eins mikið og áður, þá er sveiflu-
skotið fræga enn á sínum stað og
fáir gefa betri sendingar en hann.
Allir Lakers-aðdáendur hugsa
eflaust með skelfíngu til þess dags
er Jabbar leggur skóna á hilluna,
hvenær sem hann nú rennur
upp . . .
4. Robert Parish, Boston, hefur
sjaldan leikið betur en sl. vetur og
rómuð var harka hans í úrslita-
keppninni, þegar hann meiddur á
báðum ökklum neitaði að gefast
UPP. °S átti hvem stórleikinn á
fætur öðrum. í leiknum gegn Mil-
waukee skoraði hann 23 stig og tók
19 fráköst og í 7. leiknum gegn
Detroit varð að styðja hann af velli
tvisvar sinnum, en alltaf kom hann
aftur inn á. Það er ekki nein tilvilj-
un að Parish hefur verið valinn í 7
stjömuleiki í röð.
5. Patrich Ewing, New York.
Þrátt fyrir slæmt gengi New York
undanfarin ár og nokkur vonbrigði
með Ewing setjum við hann í 5.
sæti í þeirri von að þessi fyrrum
háskólamaður ársins taki sig nú á
og sýni í vetur hvað í honum býr.
Moses Malone miðjeiji hjá Washington, leikur nú sitt fjórtánda keppnistíma-
bil í NBA.
HANDBOLTI
Bjami
ekki með í
World Cup
Bjami Guðmundsson, lands-
liðsmaður í handknattlkeik,
mun ekki leika með landsliðinu
í World Cup, sem hefst í Svíþjóð
12. janúar. Bjami, sem leikur
með Wanne-Eicken í V-Þýska-
landi, mun ekki geta tekið þátt
í landsleikjum fyrr en í sumar,
eða þegar lokaundirbúningurinn
fyrir Olympíuleikana í Seoul
hefst.
Allir aðrir sterkustu handknatt-
leiksmenn fslands geta tekið
þátt i World Cup. Landsliðið
æfír nú tvisvar sinnum á dag
undir stjórn Bogdans, landsliðs-
þjálfara, sem hefur tekið þá
ákvörðun að kalla ekki á Þor-
berg Aðalsteinsson, sem leikur
með Saab í Svíþjóð.
SKIÐI / HEIMSBIKARKEPPNIN í SKÍÐASTÖKKI
Finninn
fljúgandi í
miklum ham
Hefur unnið sex af sjö fyrstu
heimsbikarmótunn vetrarins
MATTI Nykaenen frá Finnlandi
vann sjötta heimsbikarmóti sitt
í skíðastökki á þessu keppn-
istímabili í Innsbruck á sunnu-
daginn. Hann hefur því unnið
sex gullverðlaun og ein silfur-
verðlaun í sjö fyrstu mótum
vetrarins og verður það að telj-
ast frábær árangur hjá þessum
unga Finna.
Wykaenen var eini keppandinn
á sunnudaginn sem náði
tvívegis að stökkva yfir 100 metra,
108 og 105 m og hlaut samtals 220
stig. Næstur í keppninni í Innsbruck
var Andreas Bauer frá Vestur-
Þýskalandi með 197,5 stig, stökk
107 og 96 metra. Þriðji var Austur-
Þjóðveijinn Jens Weissflog með
195,1 stig, stökk 96 og 101 metra.
Sigur Nykaenen á sunnudaginn
færði honum 42 stiga forskot í
stigakeppni heimsbikarsins. Pavel
Ploc frá Tékkóslóvakíu er annar
með 128 stig og er eini keppandinn
sem hefur unnið Nykaenen í vetur.
Það var síðastliðin miðvikudag í
Oberstdorf er Nykaenen varð ann-
ar. Weissflog er í þriðja sæti í
stigakeppninni með 88 stig.
Reuter
Skíðastökkvarlnn flnnskl Mattl Nykaenen hefur byrjað keppn-
Istímablllð mjög vel. Hann hefur unnlð sex af sjö helmsblkarmót-
um vetrarlns. Nykaenen er hér tll vlnstrl ásamt Tékkanum Pavel
Ploc sam ar í öðru smtl I helmsblkarkeppnlnnl, 42 stlgum á eftlr
Nykaenen.