Morgunblaðið - 01.03.1988, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSM A N N A
KNATTSPYRNA
Halldór
til Brann
í vikunni
Verður með liðinu í æf-
ingaleik á laugardaginn
HALLDÓR Áskelsson,
landsliðsmaðurinn kunni
hjá Þór á Ákureyri, fer
á fimmtudaginn til
Bergen í Noregi þar sem
hann mun kynna sér
aðstæður hjá 1. deildar-
félaginu Brann. Teitur
Þórðarson, fyrrum
landsliðsfyrirliði, er þar
þjálfari sem kunnugt er
og Halldór er nú efstur
á óskalista hans yfír
nýja leikmenn.
„Eg fer út á fímmtudag-
inn og kem aftur heima
á þriðjudag. Ég æfi með
liðinu og spila æfinga-
leik á laugardaginn,“
sagði Halldór í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Hann sagði að ekkert
hefði enn verið rætt um
fjárhagshlið málsins.
„Ég legg áherslu á að
ég fer þama út bara til
að skoða aðstæður og kynna mér félagið. Þeir vildu
líka að ég kæmi til að sjá mig í leik.“
Lið falla ekki úr
1. deild kvenna
samkvæmt
reglugerð HSÍ!
í reglugerð HSÍ um handknattleiksmót, sem öðlað-
ist gildi 24. maí 1986, er hvergi minnst á færslu liða
á milli deilda í handknattleik kvenna. 6. grein C er
um deildarkeppni kvenna. Þar er ekki minnst orði
á að lið falli úr 1. deild eða lið færist úr 2. deild í
þá fyrstu, en hins vegar stendur eftirfarandi: „Dragi
lið úr efri deild sig úr keppni áður en mót hefst eða
taki ekki sæti, sem það á rétt til, skal efna til auka-
keppni milli þeirra tveggja liða, sem voru neðst í
viðkomandi deild, og þeirra tveggja liða úr næstu
deild fyrir neðan, sem lentu í 3. og 4. sæti keppn-
istímabilið á undan. Efsta liðið úr einnar umferðar
keppni hlýtur lausa sætið."
Timo Blomqvist, fyrirliði ísknattleiksliðs Finnlands, sést hér fagna sigri, 2:1, yfir Sovétmönnum og um leið silfurverðlaunum á
verðlaunapallinum á Ólympíuleikunum í Calgary. Viatcheslav Fetisov, fyrirliði Sovétmanna, horfir með aðdáun á Timo.
■ Frá Ólympíuleikunum í Calgary f Kanada/B6, B7, B8, B9, B10, B11 og B19
1988
ÞRIBJUDAGUR 1. MARZ
BLAD
Reuter
Sigri og silfri fagnað
OPIÐ BRÉF: KÆRIVIGGÓI/B 4.