Morgunblaðið - 01.03.1988, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.03.1988, Blaðsíða 10
JHorgunblaMÍ) /ÍÞRÓTTIR ÞRWJUDAGUR 1. MARZ 1988 TIL SIGURS! Alberto Tomba á fullri ferð í svigkeppninni á laugardaginn. Hann var þriðji eftir fyrri ferð en tryggði sér sigur með þvi að ná öðrum besta tímanum í þeirri seinni. Tvöfah hjá Ton Daníel Hilmarsson frá Dalvík hafnaði í 24. sæti svigkeppninnar á sun ALBERTO Tomba vann önnur guilverðlaun sfn á Ólympíuleik- unum í Calgary á laugardaginn. Hann sigraði þá í svigi og er fjórði skíðamaðurinn sem vinnur svig og stórsvig á sömu leikum. Sigur Tomba í sviginu gat varla verið naumari því hann var að- eins 6/100 úr sek. á undan Vest- ur-Þjóðverjanum, Frank Wörndl. Paul Frommelt frá Lichtenstein varð þriðji. Daníel Hilmarsson stóð sig vel og hafnaði í 24. sæti. Tomba, sem sigraði með miklum yfirburðum í stórsviginu, náði þriðja besta tímanum í fyrri ferð svigsins. Frank Wömdl hafði þá for- ystu og.var 0,45 sek. á undan Svían- um Jonas Nilsson og 0,65 sek. á und- an Tomba. Tomba fór seinni ferðina á 47,85 sek. og náði þá næst besta tímanum. Sænski skíðagarpurinn, Ingemar Stenmark sem hafði 11. tímann eftir fyrri ferð, náði sér vel á strik í seinni ferðinni og náði besta tímanum, 47,51 sek. og hafnaði í 5. sæti. Stenmark verður 32 ára í næsta mánuðí var eisti keppandinn í sviginu á laugar- daginn. Hann sýndi það í seinni ferð- inni að hann getur enn blandað sér í toppbaráttuna. „Ég var sannfærður um mér tækist ekki að vinna upp þennan mun í seinni ferðinni,“ sagði Tomba. „Seinni ferðin var það léleg hjá mér að ég hélt að mér tækist ekki einu sinni að næla mér í bronsverðlaunin. En ég er án- ægður með að hafa unnið tvenn gull- verðlaun þó svo að smá heppni hafi verið yfír þeim seinni." Faðir Tomba var mjög ánægður með gullverðlaunin í stórsviginu og gaf syni sínum rauðan Ferrari bíl að laun- um! Tomba komst með árangri sínum í fjögurra manna hóp skíðamanna sem unnið hafa svig og stórsvig á sömu leikum. Hinir eru Toni Sailer 1956, Jean Claude Killy 1968 og In- gemar Stenmark 1980. Sailer og Killy unnu reyndar þrenn gullverðlaun. Frank Wömdl, sem ekki hefur unnið heimsbikarmót í svigi á 11 ára ferli sínum, kom nokkuð á óvart í sviginu á laugardaginn. „Aður en ég fór af stað í seinni ferðina var ég fullviss úm að ég gæti unnið. Ég gerði mis- tök í brautinni og þau kostuðu mig gullverðlaunin," sagði Wörndl. Paul Frommelt, sem nú er þrítugur, kom einnig á óvart með því að næla Vetrar Alberto Tomba: Ágóða möguleika á að vinna Pirmin Zurbrigg- en í heims- bikarnum Alberto Tomba, sem vann tvenn gullverðlaun í Calgary, hefur nú sett stefnuna á að sigra í heims- bikamum samanlagt. „Ég held að ég eigi góða mögleika á að vinna Zurbriggen þó svo að ég taki ekki þátt í bruninu. En ef það tekst ekki get ég verið ánægður með árangur- inn í vetur,“ sagði Tomba. „Ég kann vel við mikinn hraða, en móðir mín mun hafa áhyggjur af mér ef ég fer í brunið og ég tek tillit til þess — ég er góður strákur." Zurbriggen , sem sigraði í bruni og varð þriðji í stórsviginu í Cal- gary og hefur sjö stiga forskot á Tomba í heimsbikamum, er stað- ráðinn að gefa ekkert eftir í barátt- unni um heimsbikarinn. „Það verð- ur gaman etja keppi við Tomba í heimsbikamum á næstunni. Mark- miðið hjá mér er að halda einbeit- ingunni út keppnistímabilið og sigra í síðustu mótunum," sagði Zur- briggen. Stenmark ánægður með seinni ferðina Ingemar Stenmark, sem verð- ur 32 ára í næsta mánuði og hefur unnið fleiri heimsbikarmót en nokkur annar, sýndi enn einu sinni hversu sterkur skíðamaður hann er. Þó svo að hann hafí ekki nælt sér í verðlaun í Calg- ary setti hann mark sitt á leik- ana með því að ná besta tíman- um í seinni umferð svigsins á laugardaginn. „Það er réttlætanlegt að segja bless núna. Það er ánægjulegt að hafa getað bætt upp ófarim- ar í stórsviginu," sagði Sten- mark eftir svigið. Hann hafnaði þar í 5. sæti eftir að hafa náð 11. besta tímanum í fyrri um- ferð. Stenmark hefur unnið 85 heims- bikarmót frá því 1974 og hefur engum keppanda tekist að leika það eftir. Hann vann bæði svig og stórsvig á Ólympíuleikunum í Lake Placid 1980 og brons- verðlaunin í stórsvigi á leikunum í Innsbruck 1976. Honum var bannað að taka þátt í leikunum í Sarajevo 1984 vegna þess að hann var talinn atvinnumaður í íþróttinni. Þessu banni var síðan aflétt fyrir 11 mánuðum. „Það var gaman að vera með hér í Calgary. Skíðin hafa núna ekki sömu þýðingu fyrir mig og áður,“ sagði Stenmark sem hef- ur svo sannarlega skráð nafn sitt í sögu skíðaíþróttarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.