Morgunblaðið - 01.03.1988, Síða 2
2 B
jHorfliinÞlnÍiia /ÍÞRÓTTIR ÞRIÐJUDAGUR 1. MARZ 1988
ENGLAND
KÖRFUKNATTLEIKUR / KNATTSPYRNA
Jan Mölby
Liverpool
vill fá kr.
76 millj.
fyrirJan
Mölby
Hamburger SV hefur mikinn
hug á að kaupa danska
landsliðsmanninn Jan Mölby frá
Liverpool. Hamburger vill fá
hann til liðs við sig fyrir næsta
keppnistímabil. Liverpool ætlar
sér að fá góða peningaupphæð
fyrir Mölby, sem hefur verið
varamaður hjá félaginu í vetur.
Félagið hefur tilkynnt að Mölby
væri til sölu á 76 milljón ísl. kr.
„Við munum reyna að fá þessa
upphæð hjá fyrirtækjum og
mönnum sem eru vinveittir okk-
ur,“ sagði talsmaður Hamburg-
er.
Olafur Gottskálksson
með slKln liðbönd
Leikurekki meira með Keflavíkurliðinu ívetur. Missiraf fyrstu
leikjum Skagaliðsins í 1. deildarkeppninni í knattspyrnu
„ÞETTA er geysilegt áfall fyrir
mig. Ég leik ekki meira körfu-
knattleik í vetur og allt bendir
til þess að ég missi af tveimur
til þremur fyrstu leikjum
Skagaliðsins í 1. deildarkeppn-
inni í knattspyrnu," sagði Ólaf-
ur Gottskálksson, leikmaður
Keflavfkurliðsins í körfuknatt-
leik og markvörður Akraness-
liðsins í knattspyrnu. Hann
varð fyrir því óhappi að liðbönd
í ökkla vinstri fótar slitnuðu í
leik gegn ÍR.
Eg stökk jafnfætis upp í frá-
kast. Kom síðan illa niður,"
sagði Ólafur, sem var strax fluttur
á Slysadeild Borgarspítalans. Þar
kom fram að Ólafur væri ekki brot-
inn, en aftur á móti er eitt liðband
slitið og jafnvel tvö. Ólafur fer í
nánari skoðun til Guðjóns Guð-
mundssonar, læknis á Akranesi, í
dag. „Ég verð skorinn upp eins
fljótt og hægt er, eða um leið og
bólgan er farin úr ökklanum.
Ég verð að öllum líkindum frá æf-
ingum og keppni í sex til sjö vikur.
Vonast eftir að geta byijað að æfa
á fullu upp úr miðjum apríl - og
síðan byijað að keppa upp úr miðj-
um maí, sagði Ólafiir.
[
Ólympíulandsliðið
ekki til M-Ameríku
Olympíulandsliðið í knattspymu fer ekki til Mið-Ameríku, eins og
stóð til. Landsliðið átti að fara í keppnisferð til Honduras, EI
Salvador og Guetemala og leika fimm landsleiki nú í mars. Farseðlar
fyrir liðið voru tilbúnir þegar afboð kom frá Honduras, en þar átti
landsliðið að leika þijá landsleiki.
KSÍ er nú að vinna í - að koma á æfingaferð fyrir Ólympiuliðið til
Eviópu. Það er undirbúningsferð fyrir leiki liðsins gegn Hollendingum
{ Hollandi 27. apríl og A-Þjóðveijum í A-Þýskalandi 30. apríl.
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR
Hafstelnn Óskarsson
Gunnlaugur Grattlsson og Þórdls Qfsladóttlr kepptu í Finnlandi.
Erik Veje Rassmusen
í stað Alfreðs
STJÓRN Essen reynir nú að
styrkja liðlð fyrir neasta
keppnistímabil og sfðustu
vikur hefur forsetl fólagsins
verið með tékkaheftið á lofti.
Nú er það öruggt að danski
landsllðsmaðurinn Erik Veje
Rassmusen lelkur með Essen
næsta keppnistímabil.
Rassmusen, sem hefur leikið í
2. deildinni í Danmörku, er
keyptur til að fylla skarð Alfreðs
Gíslasonar sem er á forum til KR,
en stjóm Essen hefur í hyggju
að styrkja liðið enn frekar. Líklegt
þykir að Essen kaupi hinn sterka
Íínumann Gummersbach, Fitzek.
Það væri mikið áfall fyrir Gum-
mersbach og að sama skapi ávinn-
ingur fyrir Essen, en Fitzek er
mjög sterkur leikmaður.
Þá er líklegt að Springel, sem
hefur verið lykilmaður í liði Bjama
Guðmundsscnar, Wanne Eickel,
fari aftur til Essen, en þar lék
hann áður en hann fór til Wanne
Eickel.
Þórdís og
Gunnlaugur við
metin íTampere
ÞÓRDÍS Gísladóttir HSK var
aðeins einn sentimetra og
Gunnlaugur Grettisson ÍR að-
eins tvo frá íslandsmetinu í
hástökki innanhúss á móti í
Tampere í Finnlandi um helg-
ina. Þar kepptu þau Þórdfs,
Gunnlaugur og Pétur Guð-
mundsson kúluvarpari úr HSK
sem gestir f iandskeppni Finna,
Norðmanna og Svfa.
órdís stökk 1,87 metra og varð
í öðru sæti á eftir norskri
stúlku, Hanne Haugland, sem stökk
1,90. Hún setti norskt utanhússmet
í fyrra, 1,93 metra. íslandsmet
Þórdísar innanhúss er 1,88, sett í
Bandarílq'unum í marz 1983.
Gunnlagur stökk 2,13 metra, sem
er haps næstbezti árangur. Hann
setti íslandsmet, 2,15, í Cosford í
Englandi um miðjan janúar. Keppn-
in í Tampere var hörð. Tveir Norð-
menn og einn Svíi stukku 2,17 í
Tampere en hinir sjö stökkvaramir
stukku allir 2,13.
Pétur náði sínum bezta innanhúss-
árangri, varpaði stálkúlunni 18,48
metra og varð Qórði af átta kepp-
endum. Hann átti bezt áður 17,78
frá nýafstöðnu íslandsmóti. Finni
vann með 19,51 metra kasti, Norð-
maður annar með 19,09 og Svíi
þriðji með 18,51, eða þremur senti-
metrum betra en Pétur.
KNATTSPYRNA
KSÍ gerir auglýsinga-
samning vid ítali
Knattspyrnusamband íslands hefur gert auglýsingasamning við auglýs-
ingafyrirtæki á Ítalíu í sambandi við leik Islands og ítalfu í undan-
keppni Olympíuleikana. Leikurinn verður á Laugardalsvellinum í maí og
verður honum sjónvarpað beint til Ítalíu. Samningurinn gefur KSÍ góðar
tekjur.
KSI hefur undanfarin ár gert auglýsingasamninga við auglýsingafyrirtæki
í þeim löndum sem sjónvarpað hefur beint til - landsleikjum á Laugar-
dalsvellinum.
íuém
FOLK
■ ALFREÐ Gíslason og félagar
hjá Essen fengu 45.000 kr. fyrir
að slá lið Steua Bukarest úr Evr-
ópukeppni meistaraliða. Essen sigr-
aði í fyiri leiknum og náði jafntefli
í þeim síðari sem fram fór ú Rúm-
eníu.
■ GROSSWALLSTADT á 100
ára afmæli á árinu. Liðið er nú
komið f undanúrslit í Evrópu-
keppni í 6. sinn og leikmenn liðsins
ætla að gefa félaginu Evrópumeist-
aratitil í afmælisgjöf.
■ BOB Paisley, fyrrum fram-
kvæmdastjóri Liverpool, er nú
undir smásjánni hjá forráðamönn-
um knattspymusambands Wales.
Þeir vilja fá þennan gamla ref sem
landsliðsþjálfara Wales. Paisley
var „stjóri" Liverpool í tíu ár á
undan Kenny Dalglish.
■ GRAEME Souness, fram-
kvæmdastjóri Glasgow Rangers,
segist vera tilbúinn að kaupa Ian
Rush frá Juventus á þijár milljón-
ir sterlingspunda.
KNATTSPYRNA
Dregidí
ríðla í Litlu-
bikarkeppninni
Litla bikarkeppnin í knattSpymu
hefst 9. apríl. Átta félaög taka
þátt í keppninni og hefur verið dreg-
ið f tvo riðla. Akranes, Víðir, Breiða-
blik og Stjaman leika í A-riðli og
Keflavík, FH, Selfoss og Haukar í
B-riðli.