Morgunblaðið - 01.03.1988, Blaðsíða 20
HANDKNATTLEIKUR / V-ÞÝSKALAND
Essen vildi að Alfreð
færíekkitil Seoul
Bauð honum nýjan samning, sem Alfreð hafnaði
ESSEN gerðl síðustu tilraun til
að fá Alfreð Gfslason til að
vera áfram hjá félaginu - fyrir
sl. helgi. Forráðamenn félags-
ins kölluðu Alfreð á fund og
*spurðu hann hvort að hann
vœri tilbúinn að vera áfram hjá
Essen, ef þeir nefndu peninga-
upphœð sem hann gœti sætt
sig við. Inn í tilboðinu var að
Alfreð myndi sleppa því að fara
á Ólympíuleikana í Seoul með
íslenska landsliðinu.
Eg sagði þeim að ég ætlaði mér
að leika fyrir hönd íslands á
Ólympíuleikunum. Ekkert tilboð
myndi fá mig til að sleppa ferðinni
til Seoul," sagði Alfreð Gíslason í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi. „Ég hef haft samband við
KR-inga og sagt þeim að fyrri
ákvörðin mín væri óbreytt - ég er
á leiðinni heim," sagði Alfreð.
„Vlljum fá Bidasoa
semmótheija"
Essen tryggði sér rétt til að leika
í undanúrslitum Evrópukeppni
meistaraliða. Félögin sem leika í
undanúrslitunum með Essen, eru
ZSKA Moskva, Elgor. Bidasoa frá
Spáni og Metaloplastica Sabac frá
Júgóslavíu. „Við viljum helst leika
gegn spánska félaginu," sagði
Alfreð.
Danski landsliðsmaðurinn Erik Veje
Rasmussen mun taka stöðu Alfreðs
hjá Essen og þá koma einnig nokkr-
ir sterkir v-þýskir landsliðsmenn til
liðs við félagið.
Óbreytt staöa hjá Kristjáni
Gummersbach hefur óskað eftir því
við Kristján Arason, að hann sleppi
því að fara á Ólympíuleikana - ef
hann verður áfram hjá félaginu.
„Forráðamenn Gummersbach vilja
Þeirfara til Seoul
Alfreð Qíslason og Kristján Arason láta ekki freist-
andi tilboð koma í veg fyrir að þeir keppi með íslenska
landsliðinu á Ólympíuleikunum í Sepul.
að ég fari ekki til Seoul, en þeir
skilja það að ég ætla mér að leika
með íslenska landsliðinu á Olympíu-
leikunum," sagði Kristján Arason.
Staðan er óbreytt hjá mér. Ég verð
annað hvort áfram hér hjá
Gummersbach eða fer til Tecca á
Spáni. Nú, einnig getur það farið
svo - að ég komi heim,“ sagði
Kristján.
Teklnn úr umferð
Kristján hefur verið tekinn úr um-
ferð í síðustu leikjum Gummers-
bach. „Það er ekki skemmtilegt að
leika leik eftir leik með mann hang-
andi utan á sér. Ég hef ekki náð
að komast inn í leikinn hjá okkur
og leikkerfí hafa ekki gengið upp.
Við eigum tvo erfíða leiki framund-
an í deildarkeppninni. Fyrst úti
gegn Milbertshofen og síðan heima
gegn Kiel. Ef við ætlum okkur að
vera með í meistarabaráttunni verð-
um við að vinna sigur í þeim báð-
um,“ sagði Kristján.
HANDBOLTI
Stofan Hockar varði fímm víta-
köst þegar Essen gerði jafntefli
gegn Steua Bukarest.
Hecker
varði
fimm
vitakost
Frá
Jóhannilnga
Gunnarssyni
ÍÞýskalandi
Essen náðijafn-
tefli án þjálfara
Essen tryggði sér sæti í und-
anúrslitum Evrópukeppni
meistaraliða um helgina. Liðið
gerði jafntefli gegn Steua Búk-
arest í Rúmeníu,
24:24, f síðari
leik liðanna. Það
var markvörður-
inn Stefan Heck-
er sem var maðurinn á bak við
þennan góða árangur Essen.
Hann varði fimm vítaköst í
leiknum, þar af þrjú í röð frá
landsliðsmanninum Stinga.
Essen vann fyrri ieikinn 16:11
á heimavelli. Þjálfari Essen,
Schmitz, sem einnig þjálfar lið
í 3. deild, fór ekki með félaginu.
Hann sagðist þurfa að skila sínu
verkefni fyrir 3. deildarlið sitt
og treysti sér ekki með til Rúm-
eníu.
Hecker átti stórleik í marki Ess-
en og Jochen Fraatz átti einnig
mjög góðan leik, skoraði 11
mörk. Alfreð skoraði 5 mörk og
átti góðan leik.
Stinga, sem orðinn er 32 ára,
var allt í öllu í liði Steua. Hann
skoraði 15 mörk, en var þó tek-
inn úr umferð allan leikinn.
Grosswallstadt átti ekki í mikl-
um vandræðum með að komast
áfram í Evrópukeppni bikar-
hafa. Liðið sigraði Holte frá
Danmörku, 23:13, á útivelli, en
fyrri leiknum lauk einnig með
sigri Grosswallstadt, 23:15.
HANDKNATTLEIKUR / V-ÞYSKA BIKARKEPPNIn
Slgurður Svclnsson náði sér ekki
á strik.
Lemgo tapaði fyrir „smáliði
Féll út í 64-liða úrslitum bikarkeppninnarásamttoppliðunum Kiel og Dusseldorf
u
Það var slæm helgi hjá 1. deild-
arliðunum ív-þýsku bikar-
keppninni í handknattleik.
Fjögur lið féllu út í 64-liða úr-
slitum. Lemgo tapaði fyrir 6.
deildarliði, Kiel tapaði fyrir liði
úr 3. deild og Gummersbach
og Dortmund fyrir liðum úr 2.
deild.
Sigurður Sveinsson og félagar
hjá Lemgo mættu liði Hohen-
horst sem leikur í 6. deild. Það áttu
því allir von á auðveldum sigri
Frá
Jóhanniinga
Gunnarssyni
V-Þýskalandi
Lemgo, enda æfa
leikmenn Hohen-
horst ekki nema tvi-
svar í viku. En þeir
gáfust þó ekki upp
og sigruðu Lemgo, 15:14. Mjög
óvænt úrslit og mikil niðurlæging
fyrir Lemgo. Sigurður Sveinsson
náði sér ekki á strik, erj skoraði
§ögur mörk.4
Kiel, sem nú er í efsta sæti Bundes-
ligunnar, fékk einnig háðulega út-
reið í bikarkeppninni. Liðið tapaði
fyrir Wuppertal sem leikur í 3. deild
og er reyndar í efsta sæti. Wupper-
tal sigraði 24:23, eftir framlengdan
leik. Eftir venjulegan leiktíma var
staðan 19:19.
Bayer Leverkusen, sem er í botn-
baráttu norður-riðils 2. deildar sigr-
aði Gummersbach, 23:19.
Það var greinilegt að leikmenn
Gumersbach vanmátu lið Leverkus-
en, en þegar þeir tóku Kristján
Arason úr umferð riðlaðist leikur
Gummersbach og sigur Leverkusen
var öruggur.
Kristján Arason skoraði aðeins eitt
mark, en Neitzel var markahæstur
í liði Gummersbach með 8 mörk.
Fjórða liðið úr 1. deild sem féll út
var Dortmund sem tapaði fyrir
Weiche Handewitt, 22:16. Weiche
Handewitt hefur gengið vel og er
í efsta sæti 2. deildar og þessi sig-
ur var öruggur.
Eina liðið úr 1. deild sem komst
áfram var Dusseldorf, lið Páls Ól-
afssonar, sem sigraði Schwelm
24:18. Páll lék lítið með og skoraði
aðeins eitt mark.
Það eru því fjögur af 14 liðum
Bundesligunnar fallin út í 1. um-
ferð, en það mun vera eindæmi.
Það er einnig ljóst að fleiri lið eiga
eftir að falla út því aðeins er búið
að leika í Norður-deildinni. í suður-
deildinni er leikið í vikunni og þar
eru nokkrir innbyrðisleikir 1. deild-
arliða.
GETRAUNIR: 112 122 2 X X 122
LOTTO: 6 11 13 16 32