Morgunblaðið - 06.03.1988, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1988
B 25
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu . .
^ J (cC
i
Um helgidaga
þjóðkirkjunnar
Gestur Sturluson hringdi:
„Eins og flestir muna var rætt
um það í sambandi við gerð nýrra
kjarasamninga að færa frí sem
tengd eru nokkrum helgidögum,
t.d. að færa fríið í sambandi við
sumardaginn fyrsta fram á föstu-
dag og uppstigningardag fram á
mánudag. Yfirmenn kirkjunnar
brugðust hart við og mótmæltu
öllum breytingum á helgidaga-
haldi. Sr. Bemharður Guðmunds-
son taldi ekki rétt að hafa marga
frídaga saman því að staðreynd
væri að hjónaskilnuðum fjölgaði
alltaf eftir marga frídaga. Það
getur svo sem vel verið.
En svo hófust nokkrar umræð-
ur í blöðunum um þetta mál og
þá kom nokkuð merkilegt í ljós.
Flestir sem um þetta mál fjölluðu
höfðu ekki hugmynd um tilefni
helgidags í sambandi við upp-
stigningardaginn. Einn sagði t.d.
að þá hefði Jesú risið upp frá
dauðum og fleira í þessum dúr.
Fyrir nokkrum árum, það var um
páskaleytið, var nokkur hópur
unglinga spurður að því hvers
vegna skírdagur væri haldinn
hátíðlegur. Flestir sem spurðir
voru höfðu ekki hugmynd um það.
Fyrir rúmu ári var í gangi skoð-
anakönnun um lífs- og trúarvið-
horf íslendinga. Þar kom fram
að mikill meirihluti sagðist trúa á
Guð en það þýðir ekki endilega
að þeir hinir sömu séu vel kristn-
ir. Ef athugað er það sem ég hef
bent á hér að framan virðist mér
ekki svo vera. Þetta ættu prest-
amir að athuga.“
Bjórinn aðeins
til óþurftar
Bindindismaður hringdi:
„Enn er rætt um bjórinn á al-
þingi þó flestir geti víst verið sam-
mála um að bjórinn verður aðeins
til óþurftar og engum til gagns.
Sérstaklega er hætt við að þeir
sem eru veikir fyrir víni og tekist
hefur að halda sér frá því falli
fyrir bjómum, sér og aðstandend-
um sínum til mikils skaða. Ef til
vill væri réttast að hafa þjóðarat-
kvæðagreiðslu um bjórinn til þess
að þetta mál verði endanlega úr
sögunni. Ég er ekki í vafa um að
íslendingar myndu hafna bjómum
ef til þjóðaratkvæðagreiðslu
kæmi.“
Don Giovanni
- frábær skemmtun
Emma hringdi:
„Við hjónin fórum í íslensku
óperuna um daginn og sáum Don
Giovanni og viljum jiakka fyrir
frábæra skemmtun. Eg vil hvetja
alla til að sjá þessa sýningu, hún
er sannarlega þess virði.“
Úr
Lítið úr fannst við Melhaga
hinn 29. febrúar. Upplýsingar í
síma 17869.
Reiðhjól
í nóvember var haldin skóla-
skemmtun í Vesturbænum. Þá var
tekið kvenreiðhjól við hús að
Víðmel 53 og annað skilið eftir.
Eru það vinsamleg tilmæli til
þeirrar er hjólið tók að skila því
en taka sitt hjól.
Kápa
Svört kápa tapaðist á Broad-
way sl. laugardag. Vinsamlegast
hringið í síma 622265.
Á tali hjá Hemma Gunn
- góður þáttur
Tvær á Isafirði höfðu sam-
band:
„Við viljum koma á framfæri
þakklæti til Hermanns Gunnars-
sonar fýrir sérstaklega góðan
sjónvarpsþátt 2. mars. Þættir
hans eru alltaf góðir en þessi bar
af. Sérstaklega þótti okkur gaman
að sjá Ellý Vilhjálms aftur. Þetta
var fjölbreyttur og góður þáttur.“
Fatasendingar Góð-
templarareglunnar
Vegna fyrirspuma í Velvak-
anda um fatasendingar Góðtempl-
araregjunnar til Póllands vill Stór-
stúka íslands geta þessa að tekið
er við fatnaði og öðru þess háttar
í Templarahöllinni, Eiríksgötu 5,
og að Kambsvegi 3 í Reykjavík.
Mikíl hækkun stöðumælagjalda
Til Velvakanda,
Hvemig getur borgin leyft sér
að hækka stöðumælagjald um
33,5%, þrjú hundmð þrjátíu og þtjú
og hálft prósent í einu vetfangi?
Áður kostaði klukkustund í stöðu-
mæli í miðborginni kr. 30.-, þijátíu
krónur. Nú kostar hún kr. 100.-,
eitthundrað krónur. Hækkun
333,5%. Um leið var stöðumæla-
sektin hækkuð úr kr. 300.-, þijú
Fórnarlömb
kynferð-
isafbrota
Nokkur orð féllu niður í grein
Hetgu Ágústsdóttur, „Friðhelgi
fórnarlamba kynferðisafbrota"
sem birtist í Velvakanda 4. mars,
en eftirfarandi kafli átti að vera
þannig.
„En og það er stórt EN - ég vil
vekja athygli fréttamanna og ann-
arra sem um þessi mál fjalla á því,
að þegar birt er eins og gerðist
ekki alls fyrir löngu nafn brota-
manns, búsetuhérað, tengsl hans
við bamið, fæðingarmánuður og ár
bamsins og kyn þess, þá er verið
að dýpka og auka sársauka bams-
ins. I fámenni íslenska kunningja-
samfélagsins er ekki erfitt að geta
sér til um, hvaða bam á í hlut út
frá þessum upplýsingum. Vart er
hægt að hugsa sér viðbjóðslegra
og sárara vegamesti en það að
búast stöðugt við hvísli, augnagot-
um, jafnvel athugasemdum og nið-
urlægingu félaganna og annara
samferðamanna."
hundmð krónum, í kr. 500.-, fimm
hundmð. Hækkun 66,67%.
Ég þarf daglega að fara í banka
og toll, oftast tvisvar á dag, eins
og ótal margir aðrir, sem vinna við
innflutning. Áður greiddi ég oftast
kr. 60.-, sextíu krónur á dag, nú
kr. 200.-, tvö hundmð krónur dag-
lega. Sem sagt lágmark í dag er
1.000.-, eittþúsund krónurá viku.
í síðustu viku fékk ég auk þess
stöðumælasekt kr. 500.-, fimm
hundmð krónur. Svo að stöðumæla-
sjóður fékk frá mér kr. 1,500.-,
fimmtán hundmð krónur, þessa vik-
una.
Mitt stéttarfélag er Verslunar-
mannafélag Reykjavíkur. Þar var
launahækkunin allt árið 1987
12,5%, tólf og hálft prósent. Við
lesum um 40 til 50 prósent launa-
hækkun í blöðunum, eins er mikið
rætt um launaskrið. Ekkert af þessu
verðum við vör við í VR. I okkar
launaumslag bættust aðeins 12,5%
árinu 1987.
Hvemig eigum við að mæta
333,5% stöðumælagjaldshækkun?
Ég ætlast til svars, frá hlutaðeig-
andi.
Unnur Konráðs
VISA VIKUNNAR
Valur Arnþórsson, stjórnarformadur SÍS:
Eðlilegt að stjómarmeiín vilji
skýrslu um ástæður uppsagna
VALUR AnHnM. U«kn —-
viuufálaffm. n|« I MMi M.rgw>Um I gwr rkkl vrH
Akrrtit krmi ikrAcémm tikrmmr lemimmd HmtJmmd mi rikim |~imm
Efrtmimi Hmtgmmrmi f Omtr ár *mrt1 ywM UfcU fyrtr t
nmmtm TmM mHtcmmr SlH. llu> mmfM m» mtfUm Irmtmmd 8mmimm*
rmwi rtiti rmttmmtUmm I þaaa máH. mm mmmm mt UUm «1 þaá
órtmimutl mt ImnHUm °f .firtoðnrforrtjára I UMUrfrfpirMÍ
SlS»ri.HlWM« h— Uriti. m% rUiimH m» mHUmmwmmmm 1
HtS <U> hlýð> á UfrmU mm tmtmémr oppmmgmmmmm liki rr AkrmU
>dhnmmTmmmH«iUmmr1mmámrrn*mrhMlSmm.mmrmmimrrm»hmkU
fmmHUktrUámrmUmtmkrmrmtUmmtjrmtukriUrfkmrmmrlmmrm.
Vmlur U(4M mawhi rri rklftMr á þrf hrmnig mtti mð Ujmm
mrt málmu og byoflut þá á haan.
alnu mnti hvort þmð yr* trtuð fynr
U|« VMur mð uppufninur I lr»-
l.nd .Wood v.ni rUI IAu I GWi J
nrtnni rmUmkmrtUu imun fUm- á Fártrtfefirti. rmr m
luncUin., þrtU hrfOi rmhB tgrmtn- þrtrrm tnaí* mmamm mmm Krarao
ingur á milli umrartdr* maniw, rina aUrarti á mfitl btrttrikntafa Ey-
og trmm hcfBi homið. Of akkt rmlm mtmUm eg Orira. llaaa ImgÍ frin
mál mð mkufmiúr hrfBu vrrfA myAg bákun af þvl tilriri. mm rmr n.
Samvinnuforstjórafárið
fer ansi geyst þetta árið.
Guðjón sem „stal“
stólnum frá Val
veria má heiður og hárið.
Hákur
Nú rýmum vió fyrir
nýjum innréttingum
Seljum allar sýningainnréttingar
á nidursettu verdi. Áth. IB-búdin verdur Sokud
dagana 12.-21. mars 1988.
BÚÐIN ÁRMÚLA 17a
BYGGINGAÞJÓNCISTA SÍMAR 84585-84461
DÆLUR
ABS slógdælur með innbyggðum hnlf, lensi-
dælurog brunndælur jafnan fyrirliggjandi.
Útvegum einnig allar gerðir og stærðir af djúp-
dælum, svo sem fyrir fiskeldisstöðvar, skólp-
lagnir, verksmiðjur og húsgrunna.
Veitum tæknilega ráðgjöf viö val á dælum.
Einkaumboð á íslandi:
Þekkíng Reynsia Þjónusta
FÁLKl NN
SUPURLANDSBRAUT 8. SÍMÍ 84670
MICROSOFT
HUGBÚNAÐUR