Morgunblaðið - 22.03.1988, Blaðsíða 1
I
A Ð
A N
HANDKNATTLEIKUR
HANDKNATTLEIKUR
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Jón Grétar skoraði
tvö mörk á Jamaíku
JON Grétar Jónsson skoraði tvö
mörk fyrir Valsmenn þegar þeir
iögðu 2. deildarliðið Remo að velli,
4:2, í fyrsta leik Valsmanna á
Jamaíku - á sunnudaginn.
Við komum hingað til Montego Bay
eftir erfitt tuttugu tíma ferðalag.
Vorum komnir kl. 10 á sunnudagsmorg-
uninn og lékum okkar fyrsta leik kl.
16.15 gegn Remo í bænum Negril, sem
er nokkuð frá Montego _Bay,“ sagði
Hörður Helgason, þjálfari íslandsmeist-
ara Vals.
„Þrátt fyrir litla hvíld léku strákamir
vel. Jón Grétar skoraði strax eftir þrjár
mínútur, eftir sendingu Steinars Adolfs-
sonar. Jamaíkumennimir jöfnuðu og
komust yfir, 2:1. Ámundi Sigmundsson
jafnaði eftir einleik og Jón Grétar kom
okkur yfir, 2:3, einnig eftir einleik.
Siguijón Kristjánsson gulltryggði sigur
okkar í seinni hálfleik með skoti af 25
metra færi,“ sagði Hörður.
Jón Grétar meiddist á hné og Bergþór
Magnússon á nára. „Þórður Bogason og
Baldur Bragason tóku stöður þeirra og
skiluðu hlutverkum sínum vel,“ sagði
Hörður.
Valur leikur gegn bandaríska félaginu
Maimi Jaws í dag. „Brasilíumaðurinn
Carlos Alberto, fyrirliði heimsmeistara
Brasilíu 1970, þjálfar Hákarlana, sem
verða örugglega erfiður viðureignar,"
sagði Hörður.
■ Jón Grótar á ferð og
ftugl/B3
KR gegn Glasgow Rangers
Terry Butcher leikur sinn fyrsta leik síðan hann fótbrotnaði í vetur
Terry Butcher, landsliðsmiðvörður Englands og Glasgow
Rangers í Skotlandi, fótbrotnaði í vetur og hefur því ekki
leikið síðan. Hann er samt á góðum batavegi og á þriðjudag-
inn leikur hann sinn fyrsta æfingaleik með aðalliði Rangers,
en liðið mætir þá KR á Ibrox-vellinum. Butcher, sem Rangers'
keypti frá Ipswich í ágúst 1986 fyrir 650.000 pund, hefur
verið lykilmaður Rangers, en liðinu hefur ekki gengið eins og
til stóð án hans. Englendingar binda miklar vonir við að
Butcher geti leikið í úrslitakeppni Evrópumóts landsliða í
Vestur-Þýskalandi í sumar.
1. deildar lið KR fer í dag í æfínga- og keppnisferð til Skot-
lands og leikur þijá leiki í ferðinni. Á fimmtudaginn verður
leikið gegn varaliði Celtic á Celtic Park og á sunnudaginn
mæta KR-ingar aðalliði Hibemian á Easter Road í Edinborg.
1988
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ
BLAD
„Úrslita-
leikur“ Vals
ogFHí
1. deild að
Hlíðarenda
„VIÐ höfum ákveðið að leikur okkar gegn FH í
síðustu umferð íslandsmótsins verði að Hlíðarenda.
Heimavöllurinn hefur reynst okkur vel í vetur og
auk þess er það eindreginn vilji allra leikmanna
Vals að spila í Valshúsinu,“ sagði Þórður Sigurðs-
son, formaður handknattleiksdeildar Vals, við Morg-
unblaðið í gær.
Allt bendir til að umræddur leikur, sem fram fer á
miðvikudag í næstu viku, verði úrslitaleikur 1. deild-
ar karla, en fyrir tvær síðustu umferðimar er FH
með eins stigs forystu á Val á toppnum. Þar sem
Valshúsið tekur aðeins um 700 áhorfendur gerðu
margir ráð fyrir að Valsmenn færu með leikinn í
Laugardalshöll, en svo verður ekki.
„Eftir leik FH og Víkings annars vegar og Stjömunn-
ar og Vals hins vegar verður fyrst ljóst hvort úrslit
mótsins ráðast í viðureign Vals og FH. Auðvitað
vonum við að svo verði og ef svo fer er þetta spum-
ing um titil eða peninga í kassann. Við höfum ekki
orðið Íslandsmeistarar í mörg ár og titillinn er meira
virði, en við vitum að allir hinir dyggu stuðnings-
menn Vals komast ekki fyrir í Valshúsinu og það
er slæmt. í fyrri leik liðanna seldu FH-ingar sínum
mönnum miða í forsölu og við munum hafa sama
háttinn á — seljum fyrst okkar áhorfendum. Við
munum samt reyna að koma til móts við stuðnings-
menn okkar sem best við getum og kemur til greina
að setja upp skjá í hinum íþróttasalnum, en við tök-
um einn leik fyrir í einu og næst er það Stjarnan,"
sagði Þórður.
Samkvæmt þessu verður um sannkallaðan heimaleik
að ræða og stuðningsmenn FH fjarri góðu gamni,
en annað kvöld verður ljóst, hvort um úrslitaleik
verður að ræða. Þá leika Stjaman og Valur í Digra-
nesi og FH og Víkingur í Hafnarfírði.
Þau voru
sigur-
sæl
ÍSLANDSMÓTIÐ ífimleikum
var haldið um helgina. Axel
Bragason, Ármanni, og Linda
Steinunn Pétursdóttir, úr
Björk, sem eru hér á myndinni
til hliðar, urðu íslandsmeistar-
ar í samanlögðum árangri eftir
mjög jafna keppni.
■Ármenningar urðu mjög sig-
ursælir á mótinu en þeir
hrepptu átta af tíu gullverð-
launum í keppni af áhöldum.
Morgunblaðið/BAR
Þorbergur
ogSaabí
úrslita-
keppnina
í Svíþjóð
Þorbergur Aðalsteinsson
og félagar hans hjá Saab
tryggðu sér rétt til að
leika í úrslitakeppninni
um sæti í „Allsvenskan“
um helgina. Saab lék
gegn Vaxjö - vann fyrri
leikinn, 21:11, en tapaði
síðan, 23:24, í Vaxjö.
Þorbergur átti stórleik í
fyrri leiknum og skoraði
níu mörk. Hann var svo
tekinn úr umferð í seinni
leiknum og skoraði þá
aðeins eitt mark.
Saab leikur fyrst gegn Vikingama í úrslitakeppn-
inni og um næstu helgi leikur félagið gegn IFK
Malmö, sem Þorbjöm Jensson þjálfar og Gunnar
Gunnarsson leikur með.
■ Sjáumsögnum
mótið/B8, B9,
B19
FIMLEIKAR / ÍSLANDSMÓTIÐ