Morgunblaðið - 22.03.1988, Síða 3

Morgunblaðið - 22.03.1988, Síða 3
HlgrgttttftlðMb /ÍÞRÓTT1R ÞRHXJUDAGUR 22. MARZ 1988 B 3 Púlsmnling Púlsmæling er algeng og einföld aöferö til að meta þjálfunarástand. áreynslu. Vöðvarnir geta þurft allt að 10 sinnum meira blóð og súrefni við mikla áreynslu. Venjulega eykst hjartslátturinn, púlsinn, í hlutfalli við það hve áreynslan er mikil. Hækkunin er þó einstaklingsbundin, minni hjá þeim sem eru í góðri þjálfun og meiri hjá þeim sem eru í lítilli þjálfun. Eftir áreynslu lækkar púlsinn aftur, hratt hjá þeim sem eru í góðu líkamsástandi, en hægar hjá þeim sem eru í lítilli þjálfun. Við könnun á líkamshreysti manna er algengt að nota púls- inn sem mælikvarða um þjálfun- arástand. Það er gert þannig að púlsinn er talinn í hvíld, síðan er maðurinn látinn reyna á sig, púlsinn talinn meðan á áreynslu eftir hálfrar mínútu og einnar mínútu hvíld. Mælingamar urðu sem hér segir: Upphaf Áraynala Hvfld hvfld 1 mín. 2mín. 1/2- —1 mln. A 70 106 108 84 72 B 108 140 150 130 112 C 98 140 150 130 112 D 80 130 120 92 84 E 70 112 122 90 78 Lesendur fá nokkrar spum- ingar að glíma við. Hver mann- anna er í bestu líkamsástandi? Hver þeirra er í verstu ástandi? Tveir mannanna viðurkenndu að hafa neytt áfengis kvöldið áður. Hveijir voru það? Meira um hjartslátt og púls síðar. Jóhann Heiðar Jóhannsson HREYST1 — Púlshraðinn er mælikvarði á líkamsþjálfun manna — íþióttamenn nota púlsmælingar til að meta þjálfunarstig — Trimmarar geta lært að fylgjast með púlsinum við áreynslu Iþessum pistli verður rætt um hjartslátt og púlshraða, en tilefni þessa er það, að undirrit- aður fékk lánaðan púl3mæli. Púlsmælir er tæki sem telur nokkur æðaslög, mælir tíma- lengd milli þeirra og reiknar út fjölda æðaslaga á mínútu, — það sem við í dag- legu tali köllum púls. Þetta sérstaka tæki er spennt á úln- lið eins og arm- bandsúr. Síðan er grannri leiðslu stungið í samband við mælinn, en á enda leiðslunnar er lítill poki sem smeygt er _ upp á fingurgóm. í pokan- um er ljósgjafí, sem geislar innrauðu ljósi á fingurgóm- inn, og ljósnemi, sem nemur endur- kast ljóssins frá blóðinu í æðunum við hvert æðaslag. Einnig mun vera hægt að fá klemmu með sams konar út- búnaði til að setja á eymasnep- il. Stilla má tækið þannig að það gefi hljóðmerki ef púlsinn lækk- ar mikið eða ef hann hækkar mjög mikið. Þá er hægt að láta tækið fylgjast með því hversu fljótt púlsinn lækkar aftur eftir áreynslu. Þetta tæki er einnig tölvuúr með vekjara og skeið- klukku, — sem sagt sannkallað töfratæki. Hjartað slær 50—70 sinnum á hverri mínútu. Hjartað er kall- að sjálfvirkt, þ.e.a.s. það slær stöðugt án þess að fá um það boð frá taugakerfinu. Hins veg- ar fær það taugaboð til að slá hraðar þegar þörf er á, t.d. við áreynslu. Hjartað slær hraðar til þess að koma meiru af blóði og súrefni út um líkamann, sér- staklega til vöðvanna sem auka súrefnisnotkun sína við stendur og svo er fylgst með því hvemig púlsinn lækkar eftir áreynsluna og hve lengi hann er að ná hvíldarhraða aftur. Auðveldast er að gera þetta með púlsmæli, en einnig má telja með því að þreifa púlsinn ofan við úlnliðinn, telja slögin í 6 sek. og margfalda síðan með 10 til að fá púlsinn á mínútu. Þegar púlshraðinn er talinn með þreifingu, þarf maðurinn auðvit- að að hætta áreynslu meðan talið er, en ekki ef hann ber mæli sem telur púlsinn stöðugt. Algeng og einföld aðferð til að meta þjálfunarástand manna er að láta þá stíga upp í þrep í stiga. Venjulega em þeir látnir stíga upp á pall, sem er í 40 sm hæð, strax niður aftur, síðan upp og svo koll af kolli, samfellt í 2—5 mínútur. Heima við má nota tvö þrep í stiga Undirritaður gerði eftirfar- andi tilraun: Fjórir menn og ein kona settu á sig púlsmælinn og stigu þrepin tvö í tvær mínútur. Púlsinn var skrifaður niður fyrir áreynslu, eftir einnar mínútu og tveggja mín. tröppudans og svo Mlkll áraynsla Vöövarnir geta þurft allt aö 10 sinnum meira blóö og súrefni við mikla áreynslu. KNATTSPYRNA Jón Grétar kom heim rétt til að skipta umföt Ingvar Guðmundsson fór ekki með Valsliðinu til Jamaíku „Það má segja að óg hafi rétt komið heimtil að ná í hrein föt og kaupa sólarolíu," sagði Jón Grótar Jónsson, knattspyrnu- maður úr Val. Jón Grótar kom frá Hollandi, þar sem hann var í œfingabúðum með ólympíu- landsliðinu, á föstudaginn. Hann hólt síðan út með Valslið- inu til Jamaíku á laugardaginn. Æfíngaferðin til Hollands heppnaðist mjög vel, en veð- ur var aftur á móti leiðinlegt. Við æfðum alltaf tvisvar á dag, en einu sinni þá daga sem við lékum leik- ina,“ sagði Jón Grétar. Ingvar meiddur á baki Ingvar Guðmundsson, félagi Jóns Grétars, hætti við að fara til Jam- aíku. „Eg hef átt við bakmeiðsli að stríða. Þau meiðsli skánuðu ekki í æfingaferðinni í Hollandi. Þess vegna ákvað ég að sleppa ferðinni til Jamaíku og reyna að fá mig góðan hér heima á meðan strákam- ir eru þar að keppa. Auðvitað er sárt að missa af ferðinni. Ég vil frekar ná mér fyrir 1. deildarslaginn í sumar heldur en að fara til Jam- aíku," sagði Ingvar. Valsliðið fór til Jamaíku á laugar- daginn. Farið var fyrst til New York og síðan flogið til Kingston á Jamaíku. Þaðan fóru Valsmenn í langferðabifreið til Montego Bay, þar sem þeir hafa aðsetur. Morgunblaöið/Porkell Jón Grétar Jónsson sést hér vera að pakka niður fyrir ferðina til Jamaíku. Hann skoraði tvö mörk í fyrsta leik Valsmanna, sem þeir unnu, 4:2. KNATTSPYRNA / BELGÍA Amór fiskaði vrtaspymu „íslendingaliðin" sigruðu íleikjum sínum Frá Bjama Markússyni Belgíu ARNÓR Guðjohnsen og félagar hjá Anderlecht unnu góðan sig- ur yfir Ghent á útivelli, 1:2, um helgina. Anderlecht er þó enn í 5. sæti, en Brugge, Mechelen og Antwerpen eru jöfn í efsta sæti. Anderlecht lék mjög vel í fyrri hálfleik, en tókst þó aðeins að skora einu sinni. Þá komst Amór í gegnum vömina, en var felldur og Nilis skoraði úr vítaspymunni. Rétt fyrir leikhlé jafnaði Martens fyrir Ghent, með skalla eftir vamarmistök. Nilis tryggði Anderlecht svo sigur með marki beint úr aukaspymu um miðjan síðari hálfleik. Amór var tekinn útaf rett fyrir leikslok, en átti góðan leik. „Þetta er búið að vera mjög erfítt síðustu vikur. Erfíðir leikir í Evr- ópukeppninni og svo er mjög slæmt að spila á þessum árstíma því vell- imir eru svo þungir og blautir,“ sagði Amór í samtali við Morgvn- blaðið. „Við stefnum að því að kom- ast í 4. sæti og þar með í Evrópu- keppnina, en við eigum ekki mögu- leika á meistaratitlinum. Við stefn- um þó að sigri í bikarkeppninni og 1 Morgunblaöiö/Guðmundur Svansson Arnór Guðjohnson. mætum St. Truiden í vikunni í fyrri leiknum, á útivelli." Aðalleikur helgarinnar var viður- eign Brugge og Mechelen. Þau em í efstu sætunum og bæði liðin em komin í undanúrslit Evrópukeppn- innar. Bragge sigraði 2:1 og er því komið við hlið Mechelen, ásamt Antwerpen. Danski landsliðsmaðurinn Brylle náði forystunni fyrir Bmgge á 15. mínútu með skalla eftir homspymu, en Beyfeld jafnaði fyrir Mechelen úr umdeildri vítaspymu. Það var svo Beyens sem tryggði Bmgge sigur með laglegu marki rétt fyrir leikslok. Guómundur Torfason. Winterslag, lið Guðmundar Torfa- sonar, vann dýrmætan sigur yfir Cercle Brugge, 1:0. Guðmundur lék með og átti stóran þátt í sigurmark- inu. Það var brotið á honum fyrir innan vítateig, en dómarinn dæmdi aukaspymu. Ur henni skoraði fyrir- liði Winterslag, Bemier. Guðmundur fór út af í síðari hálf- leik vegna meiðsla, en mun líklega leika næsta leik með Winterslag sem berst fyrir sæti sínu í deildinni. ■ Úrsllt/B 18. Staðan/B 18.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.