Morgunblaðið - 22.03.1988, Qupperneq 10
10 B
3«»rgimMnM& /ÍÞRÓTTIR ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1988
EÐVARÐ ÞÓR EÐVARÐSSON
Ætlar að
takasér
hvfld
eftir
ferðina
til Seoul
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
EÐVARÐ Þór Eðvarðsson, sundkappinn
kunni í Njarðvík, æfir nú af kappi fyrir
Ólympíuleikana sem fram fara í Suður-
Kóreu í september. Eðvarð Þór hefur um
árabil verið okkar snjaliasti sundmaður
og Norðurlandamet hans í 200 m bak-
sundi hefði nægt til að komast á verð-
launapall á síðustu Ólympfuleikum. Ár-
angur Eðvarðs skipar honum á sess með-
al 13 bestu baksundsmanna í heiminum
í dag. En sundmenn eru stöðugt að bæta
árangur sinn og Friðrik Ólafsson, þjálfari
Eðvarðs, telur að keppnin á Ólympíuleik-
unum verði það hörð að norðurlandamet
Eðvarðs í 200 m baksundi nægi honum
vart til að komast í 8 manna úrslit. Með
hliðsjón af þvf hafi hann sett upp áætlun
fyrir Eðvarð til að fara eftir og hann tekur
sig þegar sjá framfarir sem gefi tilefni til
bjartsýni.
Trúlofaðurog
farinn að búa
Talsverðar breytingar hafa orðið á
lífí Eðvarðs sfðustu misseri, hann
opinberaði nýlega trúlofun sína með
Guðbjörgu Sigríði Guðbjartsdóttur
úr Keflavík og í jan-
Bjöm úar festu þau kaup
Blöndal á íbúð í Njarðvík og
skrifar hófu búskap. Því er
ljóst að Eðvarð hef-
ur nú í fleiri hom að líta, en að
hugsa eingöngu um sundíþróttina
eins og hann hefur getað gert á
undanfömum ámm. „Auðvitað eru
þetta mikil umskipti því það er stórt
skref að flytjast úr foreldrahúsum,
en við Guðbjörg emm samhent í
því sem við gemm, hún stendur
einhuga með mér að ná settu marki
og það er gott að eiga hana að sem
bakhjarl. Eg hef að vísu fleiri skyld-
um að gegna núna en áður þegar
sundið var númer eitt, tvö og þijú,
en ég tel að þetta sé aðeins eitt
skrefið af mörgum á þroskabraut-
inni og verði mér aðeins til góðs.“
Skólasystkini f
Fjölbrautaskóla
Suðurnesja
Eðvarð og Guðbjörg vom skóla-
systkini í Pjölbrautaskóla Suður-
nesja og kynntust þar. Fyrir um
ári síðan hittust þau á dansleik f
Stapanum og þar upphófust síðan
nánari kynni. Guðbjörg stundaði
nám á íþróttabraut í fjölbrautaskó-
lanum eins og Eðvarð, en hætti
námi og starfar nú sem afgreiðslu-
stúlka í Samkaupum, verslun Kaup-
félags Suðumesja í Njarðvík. Guð-
björg,, sem er 20 ára, er borinn og
bamfæddur Keflvíkingur, en ólst
upp á Snæfellsnesi. Hún sagðist
hafa mikinn áhuga á fþróttum og
hefði sjálf lagt stund á fíjálsar
íþróttir. „Ég æfði spretthlaup og
langstökk, en er nú hætt. íþróttir
em samt mitt aðaláhugamál og ég
fylgist vel með því sem er efst á
baugi hveiju sinni. Það er líka nóg
að Eðvarð er í þessu öllum stund-
um,“ sagði Guðbjörg. Hún sagðist
fylgjast vel með undirbúningi Eið-
varðs fyrir væntanleg átök á
Ólympíuleikunum og ætlaði reyndar
að fara sjálf til Suður-Kóreu til að
fylgjast með keppninni.
Hefursynt 13
sinnum undir lág-
mörkunum
Árangur Eðvarðs er mjög athyglis-
verður og hann er mörgum skrefum
á undan öðmm íslenskum keppnis-
mönnum í sundfþróttinni. Eðvarð
hefur fyrir löngu náð þeim lágmörk-
um sem sett hafa verið til þátttöku
á Ólympíuieikunum og er raunar
eini fslenski sundmaðurinn sem hef-
ur náð þessum árangri. Reyndar
hefur Eðvarð gert enn betur og 13
sinnum heftir hann synt undir
ólympíulágmörkunum í 100 og 200
m baksundi á mótum að undanf-
ömu. En hveija telur hann mögu-
leika sína í Seoul? „Það er ljóst að
keppnin verður geysihörð og þama
verða fleiri betri sundmenn saman-
komnir en vom í Los Angeles þegar
austantjaldsþjóðimar sátu heima.
Ég hef fundið framfarir hjá mér
að undanfömu sem hafa virkað
hvetjandi og ég er þess vegna hóf-
lega bjartsýnn á þessari stundu.
Mér mun sjálfsagt ekki veita af,
þvf álagið verður mikið á næstu
mánuðum og ég kem til með að
æfa 6-7 tíma á dag fram í miðjan
ágúst."
Fyrstu Ólympíu-
leikarnir
Ólympíuleikamir f Seoul verða þeir
fyrstu sem Eðvarð Þór Eðvarðsson
keppir á, honum stóð til boða að
keppa á leikunum í Los Angeles
fyrir 4 ámm en hafnaði boðinu og
var af sumum gagnrýndur fyrir.
„Þegar maður undirbýr sig fyrir
keppni á stórmóti eins og Ólympíu-
leikamir em, þá þarf sá undirbún-
ingur að vera af kostgæfni og við
Friðrik ætluðum að gera áætlun og
óskuðum eftir að heyra hug þeirra
hjá Sundsambandinu. En þeir menn
sem þá réðu ferðinni á þessum ámm
gátu ekki sagt af eða á um hvort
ég fengi að fara. Því hætti ég við
öll mín áform um að keppa í Los
Angeles og hafnaði síðbúnu boði frá
Sundsambandinu um að fara þang-
að til keppni, ákvað þess í stað að
bíða betri tfrna."