Morgunblaðið - 22.03.1988, Page 13
fttgrgtwMattfr /ÍÞRÓTTIR ÞRŒXJUDAGUR 22. MARZ 1988
B 13
Hvaðan kom allur laxinn?
LAXINN er sannkölluð furðu-
skepna, það vita allir sem um-
gangast hann og eiginleiki
hans að láta sig hverfa er
stundum með ólíkindum. Menn
hafa sóð steindauða hylji bók-
staflega vakna til Iffsins. En
hvort laxinn kom syndandi allt
í einu uð neðan eða ofan, eða
hvort hann skreið úr skúma-
skotum í hylnum er svo annað
mál og vandsvarað. Stundum
hafa menn það fyrir satt að
hann hafi dulist f hylnum, en
botna samt ekkert í því af því
að þar er kannski lítið skjól að
sjá, a. m.k. sjá mannleg auga
iítið eða ekkert. En laxinn getur
látið sér Iftið duga og svo verð-
ur hann furðu samlitur botnin-
um. Hér fer á eftir furðuieg
saga sem undirstrikar það sem
sagt hefur verið hér og er auk
þess áminning til veiðimanna,
að undir engum kringumstæð-
um geta horfurnar verið svo
slæmar að það geti ekki allt í
einu ræst úr. Enda er ekkert
betra f veiðiskap en að eiga
vonina, sérstaklega þegar illa
gengur við veiðina og allt
stefnir í að hið háa leyf isgjald
hafi verið greitt fyrir fagurt
landslag og veiðilega en því
miður laxlausa hylji að sjá.
Sagan gerist við Laxá í Aðaldal
á síðasta hausti. Þar voru þá
staddir þrautreyndir og kunnugir
menn að veiða lax í klakkisturnar
á Laxamýri. Sumar-
veiðin hafði verið
mjög góð, en veiðin
hafði ijarað all veru-
lega út undir lok
ágúst og reyndustu
menn voru famir að
telja að áin væri hreinlega fisklítil.
Þá spruttu fram kenningar þess
eðlis, að vegna þess hve vatnsmikil
Laxá er, þá styggðist laxinn síður
og tæki því vel. Þess vegna veidd-
ist meira úr hverri göngu heldur
VEHE)I
Guömundur
Guöjónsson
skrifar
en gengur og gerist í minni ám.
Vel getur það verið. En hvað um
það, Stíflan, Óseyrin, Brúarhylur,
Heiðarendi, Mjósund, allir helstu
veiðistaðir sumarsins voru steind-
auðir að kalla. Fyrstu þijá daganna
slitu félagamir upp aðeins 3 iaxa
og hvergi stökk lax. Fiskar eltu
ekki flugumar og þar sem hægt
var að skyggna sást ekkert líf. Sá
er þetta ritar dvaldist með þessum
hópi þessa þijá fyrstu daga, en fór
svo aftur suður er einn dagur var
eftir af veiðinni. Ekki átti ég von
á þeim lýsingum sem til eyma bár-
ust eftir síðasta daginn. Þeir sem
áttu Stífluna sáu ekki bara tugi,
heldur hundmð laxa á lofti um alla
Stíflu. Þeir settu í marga, náðu
nokkmm og misstu nokkra. M. a.
náðu þeir 19 punda hrygnu. Kvöld-
ið áður hafði þetta reyndar verið
að byija, þá fengu sömu menn allt
í einu tvo laxa í beit í Stóra fossi.
Þennari morgun vom menn einnig
fengsælir á Mjósundinu, einn setti
í þijá og missti alla, annar náði
einum, fékk svo auk þess fiska á
Hraunshomi og Kiðeyjarbroti. Lax
var sístökkvandi. Svipaða sögu var
að segja af öðmm og veiðin var
afar góð þennan morgun.
Það mætti ætla, að það hefði verið
spennandi að koma í ána næstu
daga á eftir, en þá hélt furðan hins
vegar áfram: Það var sama gamla
ördeyðan. Enginn lax sást hreyfa
sig, það vom engar tökur. Engu
líkara en að áin væri þurrausin af
laxi. Meðan veitt var í september
var ástandið þannig. En hvert fór
allur laxinn, sérstaklega hjörðin á
Stíflunni? Ha? Þeir félagar höfðu
það eftir Þórði Péturssyni veiðiverði
og Kristjáni á Hólmavaði, mönnum
sem þekkja ána eins og þumalinn
á sér, að þetta myndi hafa verið
laxatorfa sem hefði sakkað alla leið
ofan frá virkjun og síðan trúlega
horfíð þangað aftur.
Hvað finnst mönnum um þá skýr-
ingu? Hún er auðvitað góðra gjalda
verð og það ber að taka hana alvar-
Oft snýr laxlnn á okkur velftlmennlna, en oft er það líka öfugt. Ólafur
G. Karlsson snéri á þessa fjóru stórlaxa einn daginn í Norðurá. Hann heldur á
14 punda fiski, hinir em 12, 13 og 14 pund.
lega enda kenning úr börkum þraut-
kunnugra manna. En ætli þetta sé
óyggjandi? Laxá verður ekki
skyggnd að gagni, því valda sléttir
bakkar og mikið vatn og djúpt. Það
er þvi erfitt að átta sig á því hvað
er af físki undir ef hann sýnir sig
elcki eða tekur ekki. Og það hafði
verið mikill kuldi. í vatnslitlum ám
hafa menn þráfaldlega séð laxinn
bókstaflega hverfa í botninn eða
undir bakka. Hann fer inn í slý,
ofan í rásir og rennur, undir hnausa
og steina. Bærir ekki á sér meðan
skilyrðin em honum óhagstæð.
Vom þetta t. d. fiskar ofan frá virkj-
um sem menn vom að fá á Kiðeyjar-
broti, Hraunshomi, Mjósundi og
Stóra Fossi? Allt veiðistaðir mjög
neðarlega í ánni. Er ekki til í dæm-
inu að laxinn hafí orðið líflegur af
því að það hlýnaði talsvert eftir
kulda. Að það hafí verið fullt af
laxi þótt flest benti til þess að áin
hafi verið fisklaus eða a. m. k. fískr-
ýr? Einu sinni var grh í hópi á efsta
svæði Langár á Mýmm í 4 daga
samfleytt seint um sumar. Ain var
hrikalega vatnslítil, mjög fiskrýr og
ofan á allt saman var mikill kuldi
með norðanáhlaupi. Eftir þijá daga
hafði flokkurinn banað einum laxi
og hafði ástundun þó verið furðu-
góð miðað við vond skilyri. En
fjórða daginn hlýnaði vemlega þótt
en blési af norðri. Það var eina
breytingin sem menn gátu greint.
Fjórða daginn vom 10 laxar dregn-
ir á þurrt og líflegt að sjá víða um á.
Nú er þetta ekki sagt til þess að
reyna að hrekja spennandi kenn-
ingu þeirra Þórðar og Kristjáns,
þvert á móti. Maður getur bara
ekki á sér setið að velta svona furðu
fyrir sér og tjalda jafn vel annarri
kenningu og gerólíkri. Sem sagt,
að fiskurinn hafi verið til staðar
allan tímann. Sögur af þessu tagi
em sjálfsagt margar, en alltaf
finnst veiðimönnum jafn gaman að
þeim og er það ofur eðlilegt.
Láttu ekki
sparifé þitt enda sem
verðlausa minjagripi
Veðdeild Útvegsbankans
býður þér 10% vexti af
skuldabréfum umfram
verðbólgu.
Það er engin hætta á að sparifé þitt
rýrni í verðbólgunni ef þú
fjárfestir í skuldabréfum okkar.
Ávöxtun á eins og tveggja
ára bréfum er nú 10% en
9,7% á þriggja og fjögurra
ára bréfum.
Hvert skuldabréf er með
einum gjalddaga.
Nafnverð bréfa eru:
Kr. 5.000.-, kr. 25.000.-,
kr. 50.000.-, kr. 100.000.-
og kr. 250.000.-.
VEÐDEILDARBRÉF ÚTVEGSBANKA ÍSLANDS HF.
ER HÆGT AÐ KAUPA
Á ÖLLUM AFGREIÐSLUSTÖÐUM BANKANS.
Þau eru einnig til sölu hjá
Kaupþingi hf., Fjárfestingarfélaginu,
Verðbréfamarkaði Iðnaðarbankans hf. og
verðbréfaviðskiptum Samvinnubankans.
úo .
op Utvegsbanki Islandshf
Austurstræti 19