Morgunblaðið - 08.04.1988, Page 9
B 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1988
VEmNGAHUS
Hér í listayfir veitingahús
með vínveitingaieyfi á höfuð-
borgarsvæðinu, eru tilgreind-
ur opnunartími, yfirmenn
eldhúsa, sem einu nafni eru
nefndir matreiðslumeistarar
hússins, yfirþjónar og meðal-
verð á einum fiskrétti og
einum kjötrétti. Miðast það
við kvöldverðarseðil og er
gefið upp afviðkomandi stöð-
um.
A.HANSEN
Vesturgata 4, Hafnarfjörður
Á veitingahúsinu A. Hansen er opið alla
daga frá kl. 11.30 - 23.30 á virkum dög-
um, en til kl. 03.00 á föstudags- og
laugardagskvöldum. Matur er frahireidd-
urtil kl. 23.00. Matreiðslumeistari
hússins er Guðbergur Garðarsson. Með-
alverð á fiskrétti er kr. 700 og á kjötrétti
kr. 1100.Borðapantanireru ísima
651693.
ALEX
Laugavegur126
Veitingahúsið ALEX er opið alla daga,
frá kl. 11.30 til 23.30, nema sunnudaga
en þá er opiö frá kl. 18.00-23.30. Tekið
erviö pöntunum til kl. 23.00. Matreiöslu-
meistari hússins er Heimir Einarsson og
yfirþjónn Jóhannes Viðar Bjarnason.
Meðaðverð á fiskrétti er 800 kr. og á
kjötrétti 1100 kr. Borðapantanireru i
síma 24631.
SEGÐU
RNARHÓLL
ÞEGAR
Þ0 EERÐ ÚTAÐ BORÐA
—SÍA\I 18833—
ARNARHÓLL
Hverfisgata 8-10
Á Arnarhóli er opið frá kl. 17.30 til kl.
23.30 og er tekið við pöntunum til kl.
22.30. Matseðill er a la carte, auk þess
sem sérréttaseðlar eru í boði með allt frá
þremur réttum upp i sjö. Matreiðslu-
meistari hússins er Skúli Hansen og
yfirþjónn Kristinn Þór Jónsson. Meðal-
verð á fiskrétti er 760 kr. og á kjötrétti
1250 kr. Borðapantanireru ísima 18833.
VERIÐ VELKOMIN
HÚTEL LOFTLEIÐIR
FLUGLEIDA HOTEL
BLÓMASALUR
Hótel Loftleiðir
Blómasalurinn er opinn daglega frá kl.
12.00 til kl. 14.30 ogfrákl. 19.00 til
22.30, en þá er hætt að framreiða mat.
Auk a la carte-matseöils er ávallt hlað-
borð í hádegi með sérísleriskum réttum.
Matreiöslumeistari hússins er Bjarni Þór
Ólafsson og veitingastjóri Isleifur Jóns-
son. Meðalverð á fiskrétti er 750 kr. og
á kjötrétti 1140. Boröapantanir eru i síma
22322.
BÍÓKJALLARINN
Kvosinni
Opnaður hefur verið Bíókjallarinn (þar
sem áður var Qafé Rosenberg) í Kvos-
inni. Biókjallarinn verðuropinn öll kvöld
kl. 18-01. Út marsmánuð spila þar hljóm-
sveitirnar „Sálin hans Jóns míns" og „Bió
tríóið" skipaðar Jóni Ólafssyni, Stefáni
Hilmarssyni, Rafni Jónssyni, Haraldi Þo;-
steinssyni, Birni Vilhjálmssyni og Guð-
mundi Jónssyni. Enginn aðgangseyrir og
20 ára aldurstakmark.
ELDVAGNINN
Laugavegi73
Eldvagninn eropinn daglega kl. 11.30-
23.30 en hætt er að taka pantanir kl.
23.00.1 hádeginu erkabarett-hlaöborð
sem er síldarréttir, heitur réttur og súpa
(kr. 540) og kaffiveitingar um miðjan dag,
en kvöldverður frá kl. 18.00. Matreiðslu-
meistari er Jón Þór Einarsson og mat-
reiðslumaður Karl Ómar Jónsson. Meöal-
verð á fiskrétti er 850 kr. og á kjötrétti
1200 kr. Allir réttir eru lagaöir í salnum
fyrirframan gesti. Borðapantanireru i
slma 622631.
WM
ESJUBERG
Hótel Esja
Veitingastaðurinn Esjuberg eropinn dag-
legafyrirmatfrákl. 11.00tilkl. 14.00
og frá kl. 18.00 til 22.00, en kaffiveiting-
ar eru allan daginn frá kl. 08.00.. Þjón-
ustuhornið Kiðaberg er opið öll kvöld frá
kl. 18.00 til 22.00 og leikur John Wilson
á píanó fyrir matargesti öll kvöld nema
þriðjudagskvöld. Meöalverð á fiskrétti er
615 kr. og á kjötrétti 950 kr. Matreiöslu-
meistari er Jón Einarsson. Borðapantanir
eruísima 82200.
FJARAN
Strandgata E5, Hafnarfjörður
Veitingahúsiö Fjaran er opið alla daga
frá kl. 11.30 til kl. 14. 30 og frá kl. 18.00
til kl. 23.30 (hætt er að taka við pöntun-
um kl. 22.30). Lokaö er í hádeginu á
sunnudögum. Matur er alhliöa, en sér-
stök áhersla lögð á fiskrétti. Matreiöslu-
meistari hússins er Leifur Kolbeinsson
og yfirþjónn Sigurður Sigurðarson. Með-
alverð á fiskrétti er 840 kr. og á kjötrétti
1140 kr. Boröapantanireru ísíma
651213.
SKRÚÐUR
Hótel Saga
Garðskálinn, Hótel Sögu er með hlaö-
borð i hádeginu og á kvöldin. Oplð alla
dagavikunnarfrákl. 11.00—23.00.
GRILLIÐ
Hótel Saga
I Grilliníj er opið daglega frá kl. 19.00 til
kl. 23.30. Matseðill er a la carte. Mat-
reiðslumeistari hússins er Sveinbjörn
Friðjónsson og veitingastjóri Halldór
Sigdórsson. Meðalverð á fiskrétti er kr.
1100 og á kjötrétti kr. 1300. Boröapant-
anireru i sima 25033.
GULLNI HANINN
Laugavegur178
Á Gullna hananum er opið frá mánudegi
tilfimmtudagsfrákl. 11.30 til kl. 14.30
og svo frá kl. 18.00 til kl. 24.00, en
hætt er að taka við pöntunum kl. 22.30.
Um helgareropiðfrá kl. 18.00 til kl. j
01.00. Matur er a la carte, auk dags-
seðla. Matreiðslumeistari er Brynjar
Eymundsson og veitingastjóri Birgir Jóns
son. Meðalverð á kjötrétti er kr. 1300
og á fiskrétti kr. 800. Boröapantanir eru
ísíma 34780. MyndireftirSólveigu Egg-
erz eru til sýnis og sölu á Gullna
hananum.
fíardliodi
HARD ROCK CAFÉ
Kringlan
í Hard Rock Café er opið alla daga frá
kl. 12.00 til kl. 24.00 virka daga og til
kl. 01.00 um helgar. í boði eru hamborg-
arar og aörir léttir réttir, auk sérrétta að
hætti Hard Rock Café. Meðalverð á sér-
réttunum er um 700 kr. Yfirmatreiðslu-
maðurerSnorri Snorrason. Síminn er
689888.
eORG
BRASSERIE BORG
Hótel Borg
Veitingasalurinn Brasserie Borg eropinn
alla virka daga frá morgni til kl. 21.30 og
á föstudags- og laugardagskvöldum til
kl. 22.00. Kaffiveitingareru á morgnana
og um míðjan dag, en þá er kaffihlað-
borð. Hádegishlaðborð er alla daga með
heitum og köldum réttum. Matreiðslu-
meistari er Heiðar Ragnarsson og veit-
ingastjóri Jón Bjarni Steingrimsson.
Borðapantanir eru í sima 1 1440.
HÓTELHOLT
Bergstaöastræti 37
Veitingasalurinn á Hótel Holti er opinn
daglega fráfrá kl. 12.00 til 14.30 ogfrá
kl. 19.00 til 22.30, en þá er hætt að
taka við pöntunum. Um helgar er opnaö
kl. 18.00. Matreiðslumeistari hússins er
Eiríkur Ingi Friögeirsson og yfirþjónn
Þorfinnur Guttormsson. Meðalverð á fisk-
rétti er 7 50 kr. og á kjötrétti 1200 kr.
Borðapantanireru í síma 25700.
*
■\^p?Lacu}
WA'KJAVIK
HOLIDAYINN 'r
Sigtún
Tveirveitingasalireru á hótelinu Holiday
Inn, Lundur og Teigur. Veitmgasalurinn
Lundur er opinn frá kl. 07.00 til kl. 21.00,
þegarhætteraötaka pantanir. Þarer
framreiddur hádegis- og kvöldverður, auk
kaffiveitinga. Steikarhlaðborð-er um helg-
ar á kr. 980. Á matseðlinum er áherslan
lögð á steikur. Meðalverð er kr. 800.
Teigur er kvöldverðarsalur, opinn dag-
lega frá kl. 19.00 til kl. 23.30. Meðalverð
á fiskrétti þar er 1000 kr. og á kjötrétti
1150 kr. Matreiöslumeistari hússins er
Jóhann Jakobsson og yfirþjónn Þorkeil
Ericson. Lifandi tónlist er i anddyri og i
Teig um helgar. Borðapantanireru í síma
689000.
Á Holiday Inn ereinnig opinn bar, Háteig-
ur, á 4. hæð hússins á fimmtudags-,
föstudags-, laugardags- og sunnudags-
kvöldum frá kl. 20.00. Tony Kay píanó-
leikari leikurfyrirmatargesti út marsmán-
uð og skemmtir á Háteigi.
HÓTEL LIND
Rauðarárstfg 18
Veitingasalurinn á Hótel Lind er opinn
daglega frá kl. 12.00-21.00. Kökuhlað-
borð er milli kl. 14.00—18.30, en matur
_i hádeginu og á kvöldin. Meðalverð á fisk-
’rétti er 580 kr. og á kjötrétti 865 kr.
Innifaliöíverði eru súpa og kaffi.Mat-
reiöslumenn hússin eru Eyjólfur K.
Kolbeins og Einar Oddur Ólafsson.
Síminner 623350.
HALLARGARÐURINN
Kringlan 9
í Hallargarðinum er opið daglega frá kl.
11.30 til kl. 15.00 og frá 18.00 til kl.
22.30. Meðalverð á fiskrétti erkr. 890
og á kjötrétti 1350 kr. Matreiðslumeist-
ari hússins er Ómar Strange og Guð-
mundurViðarsson ogyfirþjónn Hörður
Haraldsson. Boröapantanir eru í sima
30400.
KAFFI-HRESSÓ
Austurstræti 18
I Hressingarskálanum er opið alla virka
daga og laugardaga frá kl. 08.00 til 23.30
og á sunnudögum kl. 09.00-23.30.
Síminner 14|53.
KAFFIVAGNINN
Grandagarður
Kaffivagninn við Grandagarð er opinn
alla daga frá kl. 07.00 til k’l. 23.00. Þar er
í boði hádegismatur og kvöldmatur, auk
kaffiveitinga á milli matmálstima. Siminn
er 15932.
LAMBOG FISKUR
Nýbýlavegur 26
I Veitingahúsinu Lamb og fiskur er opið
daglegafrákl. 11.30 til kl. 14.00 og frá
18.00 til kl. 22.00, auk þess sem boðiö
er upp á morgun- og eftirmiðdagskaffi.
Eins og nafn staöarins gefurtil kynna
er næreingöngu matreitt úrfiski og
lambakjöti, en matreiðslumeistari húss-
ins er Kristján Fredriksen. Meðalverð á
fiskrétti er 550 kr. og á kjötrétti 900 kr.
Borðapantanir eru í síma 46080.
LÆKJABREKKA
Bankastræti 2
í Lækjabrekku er opið daglega frá kl.
11.00 til kl. 23.30 og matur framreiddur
frá kl.-l 1.30 til 14.00 og frá kl. 18.00 á
kvöldin. Kaffiveitingar eru yfir daginn.
Matreiðslumeistari hússins er örn Garð-
arsson og yfirþjónar þau Margrét Rósa
Einarsdóttirog Guðmundur Hansson.
Meðalverð á fiskrétti er 770 kr. og á kjöt-
rétti 1100. Boröapantanir eru í síma
14430.
SKÍÐASKÁLINN
Hveradalir
I Skíðaskálanum í Hveradölum er í vetur
opið eingöngu á föstudagskvöldum frá
kl. 18.00 til 23.30. og á laugardögum og
sunnudögumfrá kl. 12.00 til 23.30.
Smáréttireru iboöi á milli matmálstíma.
Kvöldverðarhlaöborö er á sunnudags-
kvöldum og Jón Muller leikur öll kvöld
fyrir gesti. Matreiðslumeistari hússins er
Jóhann Már Gunnarsson og veitinga-
stjóri er Karl Jónas Johansen. Borðapant-
anireru ísimum 99-4414 og 672020.
•hótel
OÐINSVE
BRAUÐBÆRoan^----------
HÓTELÓÐINSVÉ
Óðinstorg
Veitingasalurinn á Hótel Óðinsvé er op-
inn daglega frá kl. 11.30 til kl. 23.00.
Fiskréttahlaðborö er alltaf í hádeginu á
föstudögum. Matreiðslumeistarar eru
þeir Gísli Thoroddsen og Stefán Sigurös-
son og yfirþjónn Kjartan Ólafsson.
Meðalverð á fiskrétti er 630 kr. og á kjöt-
rétti 1000 kr. Borðapantanir eru i síma
25090.
. I 'ciliiigiihmid
' Viö Sjáuaneiöuna
VIÐ SJÁVARSÍÐUNA
Tryggvagata 4-6
Veitingahúsiö Við sjávarsíðuna er opið á
virkum dögum frá kl. 1 -1.30 til kl. 14.30
og frá 18.00 til kl. 23.30, en á laugardög-
um og sunnudögum er eingöngu opið
að kvöldi. Á matseðlinum er lögð sérstök
áhersia á fiskrétti. Matreiðslumeistarar
hússins eru Garðar Halldórsson og Egill
Kristjánsson og yfirþjónn er Grétar Erl-
ingsson. Meðalverð á fiskrétti er kr. 800
og á kjötrétti 1100. Boröapantanir eru í
sima 15520.
RESTAURANT
NAUST
Vesturgata 6-8
Veitingahúsið Naust er opið alla daga frá
kl. 11.30 til kl. 14.30 og frá kl. 18.00 til
kl. 23.30 á virkum dögum, en hætt er
að taka pantanir kl. 22.00. Um helgar
er opiö til kl. 01.00 og hætt að taka
pantanir hálftíma fyrr. Naustiö er með
matseöil a la carte, auk þess sem mat-
reiöslumenn sérhæfa sig í sjávarréttum.
Matreiðslumeistari hússins er Jóhann
Bragason og yfirþjónn Ingólfur Einars-
son. Meðalverð á fiskrétti er 820 kr. og
á kjötrétti 1200 kr. Boröapantanir eru í
síma 17759.
CAFÉ-ÓPERA
Lækjargata 2
Veitingahúsið Café-Ópera er opið alla
dagafrákl. 11.30 til kl. 14.30ogfrákl.
18.00 til 23.30, en þá erhætt aðtaka
pantanir. Yfirmatreiðslumaður er Eirikur
Friðriksson og yfirþjónn er Marjan Zak.
Borðapantanir eru í síma 29499.
TORFAN
Amtmannsstíg 1
Veitingahúsið Torfan er opið daglega frá
kl. 11.00 til kl. 23.30 og eru kaffiveiting- .
ará milli matmálstíma. Matreiðslumeist-
arar eru Óli Harðarson og Friðrik
Sigurðsson og yfirþjónar Ólafur Theo-
dórsson, Skúli Jóhannesson og Hrafn
Pálsson.. Meðalverð á fiskrétti er 690
kr. og á kjötrétti 1100 kr. Borðapantanir
eruísíma 13303.
VIÐTJÖRNINA
Kirkjuhvoll
I veitingahúsinu Við Tjörnina sérhæfa
menn sig í fisk- og grænmetisréttum.
Opiðerfrákl. 12.00 til 14.30 og frá
18.00 til 23.00. Matargerðarmaður er
Rúnar Marvinsson og veitingastjórar þær
Sigríöur Auðunsdóttir og Jóna Hilmars-
dóttir. Meðalverð a'fiskréttum er kr. 900.
Boröapantanir eru í síma 18666.
ÞRÍR FRAKKAR
Baldursgata 14
Veitingahúsið Þrír Frakkar er opið alla
daga. Á mánudögum og þriðjudögum frá
kl. 18.00 til 24.00, en aðra daga til kl.
01.00. Kvöldverður er framreiddur til kl.
23.30 og eru smáréttir i boði þar á eftir.
Matargeröarmaður er Matthías Jóhanns-
son og yfirþjónn er Magnús Magússon.
Meðalverð á fiskrétti er 800 kr. og á kjöt-
rétti 1100 kr. Boröapantanireru i síma
23939.
VEITINGASTAÐURINN „22“
Laugavegi 22
Opið virka daga kl. 11.00-24.00 og um
helgarkl. 11.00-03.00. Matreiðslumaður
er Hafþór Ólafsson. Síminn er 13628.
VEITINQAHÚS MEO
MATREIÐSLUÁ ERLENDA VÍSU
BANKOK
Síðumúli 3-5
Thailenskur matur er í boði á veitingahús-
inu Bankok, en þar er opiö alla virka
dagafrá kl. 12.00 til kl. 14.00 og frá kl.
18.00 til kl. 21.00. Áföstudögum, laugar-
dögum og sunnudögum er opíð til kl.
22.00. Matreiöslumaöur er Manus Saifa
og veitingastjóri Manit Saifa. Síminn er
35708.
ELSOMBRERO
Laugavegur73
Sérréttir frá Spáni og Chile eru i boði á
El Sombrero. Þar er opið alla daga frá
kl. 11.30 til kl. 23.30. Einungis pizzur
eru á boðstólum eftir kl. 23.00. Mat-
reiöslumeistari er Rúnar Guömundsson.
Síminner 23433.
HORNIÐ
Haf narstræti 15
ítalskur matur, ásamt pizzum og öðrum
smáréttum er í boði á Horninu. Þar er
matur framreiddur frá kl. 11.30 til kl.
23.30, þóeinungis pizzureftif kl. 22.00.
Veitingastjóri er Jakob Magnússon og
síminn 13340.
MANDARININN
Tryggvagata 28
Austurlenskur matur er á matseðli Mand
arínsins, en þar er opiö alla daga frá kl
11.30-14.30 ogfrá 17.30-22.30 á
virkum dögum, en til kl. 23.30 á föstu-
dags- og laugardagskvöldum. Mat-
reiöslumeistari hússins er Ning de Jesus
og síminn 23950.
KÍNAHOFIÐ
Nýbýlavegur 20
Kínverskur matur er að sjálfsögöu í boði
f Kinahofinu. Opið erfrá kl. 1.1.00 til til
kl. 22.00 alla virka daga, en á laugardög-
um og sunnudögum frá kl. 17.00 til kl.
23.00. Matreiðslumeistarareru Feng Du
og Ngoc Lam og siminn, 45022.
SJANGHÆ
Laugarvegur 28
Kínverskur matur er i boði á Sjanghæ,
en þareropiðá virkjum dögumfrá kl.
11.00 til 22.00, en á föstudags- og laug-
ardagskvöldum lokareldhúsið kl, 23.00.
Matreiðslumeistari hússins er Gilbert Yok
Peck Khoo. Síminn er 16513, en hægt
er að kaupa mat til að fara með út af
staðnum.
SÆLKERINN
Austurstræti 22
Italskur matur er framreiddur i Sælkeran-
um og er opið þar alla virka daga og
sömuleiðis um helgar frá kl. 11.30-
23.30. Matreiðslumeistari hússins er sá
sami og ræðurríkjum í Kvosinni,
Francoais Fons. Síminn er 11633, en
hægt er að kaupa pizzur og fara með út
af staðnum.
TAJ MAHALTANDOORI
Aðalstræti 10
Indverska veitingahúsiðTaj Mahal
Tandoori er á efri hæð Fógetans og býð-
ur upp á fjölbreytta indverska rétti
matreidda í sérstökum Tandoori leirofni.
Indverska veitingastofan er opin daglega
frá kl. 18.00. Borðapantanireru isíma
16323.
KRÁR OG VEITINGAHÚS MEO
LENGRIOPNUNARTÍMA:
DUUS-HÚS
Fischerssund
Á Duus-húsi er opið alla daga nema
sunnudaga, frá kl. 11.30 -14.30 og frá
kl. 18.00 - 01 -.00 á virkum dögum, en
kl. kl. 03.00 á föstudags- og laugardags-
kvöldum. Maturerframreiddurtil kl.
21.00 á virkum dögum og til kl. 22.00 á
föstudags- og laugardagskvöldum, en
fram til kl. 23.30 eru framreiddar pizzur
öll kvöld. Um helgar er diskótek á neðri
hæð hússins, en á sunnudagskvöOldum
ersvokállaður „Heitur pottur" á Duus-
húsi, lifandi jasstónlist. síminn er 14446.
FÓGETINN
Aðalstræti 10
Veitingahúsið Fógetinn er opið alla virka
daga frá kl. 18.00—01.00 og til kl. 03.00
á föstudags- og laugardagskvöldum.
Skemmtikraftar koma fram tvö til fimm
kvöld vikunnar. Borðapantanir eru í síma
16323. Á efri hæð Fógetans er indverska
veitingastofanTaj Mahal.
GAUKURÁ STÖNG
Tryggvagötu 22
Á Gauki á Stöng er opið alla virka daga
frá kl. 11.30— 14.30ogfrá kl. 18.00-
01.00 og til kl. 03.00 á föstudags- og
laugardagskvöldum. Eldhúsið er opið til
kl 23.00, en eftir það er í boði næturmat-
seðill. Lifandi tónlist er oftast á Gauki á
Stöng á sunnudgöum, mánudögum,
þriðjudögum og miðvikudögum frá kl.
22.00. Siminn er 11556.
HAUKURf HORNI
Hagamelur 67
Haukur í Horni er opinn alla virka daga
frá kl. 18.00 — 23.20 og á föstudags-
og laugardagskvöldum til kl. 01.00. Eld-
húsið er opið öll kvöld til kl. 22.00, en
smáréttir eru i boði eftir það. í hádeginu
á laugardögum og sunnudögum er opið
frá kl. 11.30 — 14.30. Lokað í hádeginu
aðra daga. Síminn er 26070.
HRAFNINN
Skipholt 37
Veitingahúsið Hrafninn er opið alla virka
daga frákl. 18.00 — 01.00 ogáföstu-
dags- og laugardagskvöldum til kl. 03.00,
en þau kvöld er einnig i gangi diskótek.
Eldhúsinu er lokað um kl. 22.00. Síminn
er 685670.
ÖLKELDAN
Laugavegur22
f Ölkeldunni er opið alla virka daga frá
kl. 18.00 — 01.00 og áföstudags-og
laugardagskvöidum til kl. 03.00. Eld-
húsinu er lokað kl. 22.00, en smáréttir
í boði þar á eftir. Gestum hússins er
boöið upp á að spreyta sig við taflborðið,
í pílukasti, Backgammon eða þá að taka
í Bridge-sagnaspil. Síminn er 621034.
ÖLVER
Glæsibær
I Ölveri eropiðdaglegafrá kl. 11.30 —
14.30og frá kl 17.30 — 01.00 á virkum
dögum og til kl. 03.00 á föstudags- og
iaugardagskvöldum. Eldhúsinu lokarum
kl 22.00. Lifandi tónlist er um helgar.
Ingvar og Gylfi leika fyrir gesti. Síminn
er 685660.