Morgunblaðið - 03.05.1988, Page 1

Morgunblaðið - 03.05.1988, Page 1
 1988 ÞRHUUDAGUR 3. MAI BLAD Atli mætti til Ungvevjalands Atli Eðvaldsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, mætti á sunnudaginn til Búda- pest. Eftir að lið hans, B'ayer Uerdingen, tryggði sér áframhaldandi sæti í þýsku úrvalsdeildinni næsta vetur með sigri á laugardaginn, fékk Atli grænt ljós á að fara til Ungveijalands. Þar niæta Islendingar heimamönnum í vináttulandsleik. Sig- urður Jónsson komst hins vegar ekki. Hann er að leika með Sheffield Wednesday í dag í ensku deild- inni. Howard Wilkinson, stjóri Wednesday, sagði forráðamönnum KSÍ að hann gæti komið til Ung- verjalands á miðvikudaginn, það væri ekkert vandamál — en KSÍ þáði ekki „gott boð“. Sigurð- ur hefði ekki verið kominn fyrr en tveimur klukku- stundum fyrir leik. Nánar/B 2. HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD Geir Hallsteinsson áfram með Blikana Reynt að fá stórskyttuna Cvetkovic eða annan Júgó- slava til liðs við Breiðablik fyrir næsta vetur Qelr Hallstelnsson verður áfram við stjómvölinn næsta vetur hjá Breiðabliksmönnum. í GÆR var Geir Hallsteinsson endurráð- inn til eins árs sem þjálfari fyrstu deildar liðs Breiðabliks í handknattleik. Geir hafði tilkynnt stjórn handknattleiksdeildar UBK að hann myndi hœtta með liðið að loknu nýafstaðnu keppnistímabili, en varð við óskum stjórnarinnar um að halda áfram. Breiðablik hefur náð mjög góðum árangri síðan Geir tók við liðinu fyrir þremur árum. Það vann sér sæti í 1. deild, lék í Evrópukeppni í fyrra og aftur næsta haust. „Ég var sáttur við að hætta, en ég held að fyrsta deildin verði enn skemmtilegri næsta keppnistímabil og því sló égtil. Það er mikill hugur í Breiðabliksmönn- um og þó allt bendi til að Aðalsteinn og Bjöm Jónssynir leiki með þýskum liðum, verður reynt að fá menn í þeirra stað,“ sagði Geir við Morg- unblaðið í gær. Kemur Cvetkovlc? Að sögn Sigurðar Hjaltasonar, formanns hand- knattleiksdeildar UBK, verða allir leikmenn liðsins áfram að bræðrunum undanskildum. Sveinn Bragason, sem lék með FH, hefur bæst í hópinn og eins Haukur Magnússon, fyrrurn Fylkismaður og von er á fleiri mönnum. „Við ætlum okkur að vera í toppslagnum og höfum hug á að fá örfhentan Júgóslava. Verið er að vinna að því máli, en því er ekki að leyna að Jovica Cvetkovic, sem leikur með Dankersen í Vestur-Þýskalandi, er efstur á óskalistanum," sagði Sigurður. Guðrún Kristjánsdóttir frá Akureyri sigraði tvöfalt, í samhliða svigi og bruni, á Armannsmótinu sem fram fór í Bláfjöllum um helg- ina. Hér er hún á fleygiferð í samhliða sviginu. Ömólfur Valdimars- son, ÍR, sigraði í karlaflokki i samhliða sviginu og Elías Bjamason, Fram, í bmni. Nánar/B 6. Guðrún vann tvöfalt SKIÐI HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ Kallar Bogdan á Þorbjöm og Þorberg? Þremurfærri í upphaflegum „Ólympíuhóp" en hingaðtil hefurverið ætlað Þorbjörn Jensson fagnar ásamt Bogdan á HM i Sviss. Verður hann í Seoul? SVO gœti farið að Bogdan landsliðsþjálfari kallaði á „gömlu refina" Þorbjörn Jens- son og Þorberg Aðalsteinsson f Ólympíuhóp sinn fyrir leikana f Seoul f haust. Guðjón Guð- mundsson, liðsstjóri, greindi Morgunblaðinu f rá þessu f Jap- an f gœr. eir félagar, Þorbjöm og Þor- bergur, voru báðir í Svfþjóð í vetur. Þorbjöm þjálfaði lið IFK Malmö og kom því upp í úrvals- deildina, „Alls- venskan". Hann mun hins vegar koma heim í sumar og hyggst leika með næsta vetur. Hann er fyrrum fyrirliði landsliðsins og var íengi vel sterkasti hlekkurinn í vamarleik liðsins. Þorbergur lék með Saab og sömu sögu er að segja af því félagi og IFK Maimö. Það komst upp í úrvals- deildina og verður Þorbergur áfram ytra. Hann verður hins vegar hér heima í sumar. Sænska deildin byrj- ar svo ekki fyrr en eftir Ólympíu- leikana þar sem Svíar em. þar á meðal keppenda. Það yrði því ekk- ert vandamál fyrir Þorberg að gefa kost á sér 1 liðið fyrir Ólympíuleik- ana að því leyti, ef hann yrði valinn. Fœkkað f hópnum Hingað til hefur verið reiknað með að hópurinn sem æfír í sumar fyrir Ólympíuleikana í haust verði skip- aður 24 leikmanni. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að aðeins verði 21 leikmaður í undirbúningnum í sumar. „Sá hópur verður valinn fljótlega eftir að við komum heim. Það er ljóst að það verður mjög vandasamt að fækka í hópnum," sagði Guðjón Guðmundsson f gær. Það verða síðan ekki nema 15 leik- menn sem verða valdir í endanlegan hóp, og keppa á Ólympíuleikunum í Seoul í september. ■ Japansferöln/B 2. PÉTUR YNGVASON GLÍMUKÓNGUR1988/B 6. FráJúliusi Sigurjónssyni íJapan Valsmönnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.