Morgunblaðið - 03.05.1988, Qupperneq 2
2 B
HtorennMaMb /ÍÞRÓTTIR ÞRWJUDAGUR 3. MAÍ 1988
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
Reuter
Laikmann (slanska liðsins á æfingu í Búdapest í gær. Prá vinstri: Birkir Kristinsson markvörður, Atli Eðvaldsson, Ormarr Örlygsson (nr. 5), Heimir Guð-
mundsson og Ragnar Margeirsson.
Vináttuleikurinn við Ungverja í Búdapest annað kvöld:
Gunnar Gíslason
kemur í dag
síðastur manna
Ólafur Þórðarson hefurekki getað
æft vegna meiðsla sem hann hlaut
í Ólympíuleiknum
Reuter
Þorvaidur ÖHygsson með knöttinn á æfingu í gær; i návígi við
Margeirsson. Til vinstri er Atli Eðvaldsson, í baksýn Pétur Ormslev og Ómar
Torfason.
SUND
Þrjú
metá
þremur
vikum
RagnarGuð-
mundsson setti
íslandsmet í 800
metra skriðsundi
RAGNAR Guðmundsson hefur
verið afkastamikill síðustu vik-
ur. Á síðustu þremur vikur hef-
ur hann sett þrjú íslandsmet,
nú síðast um helgina, en þá
setti hann ísiandsmet í 800
metra skriðsundi á móti í
Maimö.
agnar keppti á Malmö-mótinu
og setti íslandsmet í 800 metra
skriðsundi á 8:Í3,17 mínútum.
Hann bætti þar með gamla metið,
sem hann setti sjálfur fyrir tveimur
vikum á sænska meistaramótinu,
en það var 8:38,74 mínútur.
Ragnar keppti f 1500 metra skrið--
sundi og hafiiaði í 4. sæti á 16:34,00
mínútum. Hann keppti einnig í 400
metra fjórsundi og synti á 4:54,94
mínútum. Það er aðeins fjórum sek-
úndum frá íslandsmeti Eðvarðs
Þórs Eðvarðssonar og næst besti
tími sem íslendingur hefur náð í
þessari grein.
Met Ragnars er það þriðja sem
hann setur á jafn mörgum vikum.
Hann setti íslandsmet í 800 metra
skriðsundi á sænska meistaramót-
inu í 50 metra braut, en þar hafn-
aði hann í 3. sæti. Hann setti svo
met í sömu grein í 25 metra braut
á Kallott-mótinu fyrir rúmri viku
og nú aftur met í sömu grein í 50
metra braut.
KNATTSPYRNA
Ólafur
Lárusson
hættur
að dæma
í 1. deild
dr
Olafur Lárusson, a-dómari í
knattspymu, tilkynnti fram-
kvæmdastjóra KSÍ í gær að hann
myndi ekki dæma í 1. deild í sumar
og óskaði eftir að verða tekinn af
a-dómaralistanum.
Sigurður Hannesson, framkvæmda-
stjóri KSÍ, vildi ekki tjá sig um
málið, en sagði að það yrði örugg-
lega tekið fyrir á fundi dómara-
nefhdar í dag.
Ólafur var kunnur knattspymu-
maður á árum áður og var einn af
þremur markakóngum 1. deildar
1968. Hann tók dómarapróf 1982
ÍSLENDINGAR mœta Ungverj-
um í vináttulandsleik í knatt-
spyrnu í Búdapest annafi kvöld
Allir íslensku landsliðsmenn-
irnir voru f gœr komnir til borg-
arinnar nema Gunnar Gfslason.
Hann átti að koma frá Noregi
f gœr, en vegna vandræða með
flug varð ekkert úr því. Hann
er væntanlegur f dag.
Landsliðið æfði tvíegis í gær, í
annað skiptið á leikvanginum
þar sem spilað verður á morgun.
Það er Nep-þjóðarleikvangurinn
sem rúmar 80.000 áhorfendur. ís-
lenskt lið hefur áður leikið á vellin-
um, lið íþróttabandalags Keflavíkur
mætti Ferencvaros þar um árið í
Evrópukeppninni. Guðni Kjartans-
son, aðstoðarlandsliðsþjálfari ís-
lands, var einmitt í Keflavíkurliðinu
þá.
Ungvetjar gerðu markalaust við
Englendinga á Nep-leikvanginum í
síðustu viku. 25.0000 áhorfendur
fylgdust með þeim leik, en forráða-
menn ungverska knattspymusam-
bandsins hve mikið af fólki kemur
á leikinn á morgun.
Áferðogflugl
Hluti Ólympíuiandsliðsins kom til
Búdapest með viðkomu í Prag í
Tékkóslóvakíu á sunnudaginn.
Sama dag komu þeir Guðmundur
Baldurssson, Pétur Ormslev og
Ragnar Margeirsson heiman frá
íslandi. Atli Eðvaldsson, fyrirliði
landsliðsins, kom einnig á sunnu-
daginn, svo og Ómar Torfason.
Sævar Jónsson og Guðmundur'
Torfason komu til móts við hópinn
í gær, frá Sviss og Belgíu.
Guðni Kjartansson sagði í samtaii
við Morgunblaðið í gærkvöldi að
æft yrði fyrir hádegi í dag. Önnur
æfing er á dagskránni síðari hluta
dagsins í dag en Guðni sagði hugs-
anlegt að henni yrði sleppt til að
hvfla menn.
Óiafur Þórðarson hefur enn
ekklgotaðæft
Nokkrir leikmenn Ólympíuliðsins
voru lítillega meiddir eftir leikinn í
Austur-Þýskalandi. Alvarlegustu
meiðslin hlaut Ólafur Þórðarson
sem fékk högg aftan á hálsinn og
þurfti að sauma fiögur spor í háls
hans í Ieikhléi f Bischofswerda á
laugardaginn. Harn lék þó mest
allan tímann. Ólafur hefur enn ekki
æft eftir komuna til Ungverjalands,
en Guðni reiknaði með að hann
yrði með í dag.
Ungveijar stilla að öllum lfkindum
upp sínu sterkasta liði á morgun,
en nokkrir sterkustu leikmenn ís-
lands verða illa fjarri góðu gamni.
Ásgeir Sigurvinsson, Amór Guðjo-
hnsen og Sigurður Jónsson gáfu
t.d. ekki kost á sér.
HANDBOLTI / LANDSLIÐIÐ
Þriggja marka tap í gærmorgun
og hefur verið einn af betri dómur-
um landsins undanfarin ár, skv.
einkunnagjöf eftirlitsdómara.
^lafur Lárusson.
JAPANSKA landsliðið í hand-
knattleik vann fslenska liðið
22:19 f vináttuieik í ólympfu-
höllinni hór f Tókýó f gær.
Heimamenn voru mun betri en
á laugardaginn og einkum og
sér f lagi markvörðurinn, sem
varði mjög vel.
Qestgjafamir höfðu ávallt und-
irtökin, staðan var 6:2 um
miðjan fyrri hálfleik, en þegar þijár
mínútur voru í hlé munaði tveimur
Július
Sigurjónsson
skrifar
fráJapan .
mörkum, 9:7. Þá var
Júlíusi Jónassyni og
Geir Sveinssyni vik-
ið af velli í tvær
mfnútur og Japanir
náðu flögurra marka forskoti á ný,
11:7 í hálfleik. íslenska liðið var
dauft í byijun. „Mfnir menn sváfu
fyrstu fimmtán mínútumar. Og
sváfu meira að segja mjög vel!“
sagði Bogdan landsliðsþjálfari á
blaðamannafundi á eftir, og höfðu
japönsku blaðamennimir gaman af.
Islenska liðið saxaði á forskotið
eftir hlé og um miðjan hálfleikinn
var staðan 15:14. Þá var Atla Hilm-
arssyni, sem var besti maður liðsins
ásamt Einari Þorvarðarsyni, vikið
af velli og Japanir náðu þriggja
marka forystu, 18:15. Okkar menn
gáfust ekki upp, en þegar tvær
mfnútur voru til leiksloka og stáðan
Atll Hllmarsson var markahæstur
f leiknum f gær.
21:19, var Einari vikið af velli —
fáránlegur dómur — og heimamenn
áttu síðasta orðið.
Japanskir dómarar dæma öðruvísi
en okkar menn eiga að venjast og
hefur dómgæslan bitnað á liðinu í
þessum tveimur fyrstu leikjum. Að
þessu sinni voru íslendingamir
samtals S 14 mínútur utan vallar
en heimamenn voru kældir í fjórar
mínútur.
Mörk Islands: Atli Hilmarsson 7/1, Július
Jónasson 4/1, Jakob Sigurðsson 3, Geir
Sveinsson 2, Ámi Friðleikfsson 1, Þorgils
óttar Mathiesen 1, Kari Þráinsson 1.