Morgunblaðið - 03.05.1988, Síða 8
A.
8 B
jH»tennbtaÍ»i6 /ÍÞRÓTTIR ÞRWJUDAGUR 3. MAÍ 1988
HANDKNATTLEIKUR/V-ÞYSKALAND
Kristján Arason og Gummarsbach V-Þýskalandsmeistarar
KRISTJÁN Arason, var heldur
betur í sviðsljósinu í West-
falenhöllinni f Dortmund, þar
sem Gummersbach endur-
heimti V-Þýskalandsmeistara-
titilinn í handknattleik, eftirað
meistaraskjöldurinn hafði ver-
ið hjá Alfreð Gísiasyni og fólög-
um hans hjá Essen f tvö ár.
Krístján, sem vartekinn úr
umferð alian leikinn, skoraði
síðasta mark Gummersbach,
18:17, úr vrtakasti. Kristján tók
áhœttu og sendi knöttinn f
gegnum klofið á Hans-Joachim
Kolodziej, markverði Dort-
mund.
Geysileg spenna var undir lok
leiksins, en þá fór fram víta-
kastskeppni á milli Kristjáns og
Ungverjans Peter Kovacs. Kristján
byrjaði og skoraði,
17:16, úr vítakasti.
Kovacs svaraði fyrir
Dortmund, 17:17,
og þegar 3.40 mín.
voru til leiksloka var Kristján í
sviðsljósinu. Spennan var geysileg
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrifarfrá
Dortmund
þegar hannn tók vítakast. 3.500
stuðningsmenn Gummersbach
stóðu hreinlega á öndinni. Kristján
gekk að vítalínunni og sendi knött-
inn skemmtilega í gegnum klofíð á
Kolodziej, markverði Dortmund.
Þama tefldi Kristján djarft, en skot
hans heppnaðist fullkomlega. Þegar
2.20 mín. voru til leiksloka var
dæmt vítakast á Gummersback.
Peter Kovacs tók vítakastið og
sendi knöttinn yfir Andreas Thiel,
markvörð Gummersbach, sem varði
stórkostlega í leiknum. Þetta var
síðasta mark leiksins, sem lauk með
jafntefli 18:18.
Spennan í hámarfd
Þegar hér var komið við sögu, var
spennan í hámarki. Leikmenn Gum-
mersbach fóru fram í sókn og það
var greinilegt á þeim að þeir ætluðu
sér að halda knettinum þar til flaut-
að væri til leiksloka. Leikmenn
Dortmund gerðu örvæntingarfulla
tilraun til að ná knettinum frá leik-
mönnum Gummersbach. Þeir sóttu
grimmt að þeim, en tíminn vann
með Kristjáni og félögum, sem
Hvað sögðu
þeir?
„Betraað
hafa
Kristján
meðsér
heldur en
á móti“
Andreas Thiel, landsliðs-
markvörður Gummers-
bach, sem átti mjög góðan leik
gegn Dortmund, var sæll og
glaður eftir leikinn. „Það'er stór-
kostlegt að meistaratitilinn sé
kominn aftur tii Gummersbach.
Við eigum hann svo sannarlega
skilið. Lokabaráttan var mjög
spennandi og tók á taugamar.
Jú, Kristján Arason hefur leikið
stórt hlutverk hjá okkur. Það
er betra að hafa hann með sér
heldur en á móti. Sem betur fer
hef ég ekki haft það hlutverk
að reyna að veija skot hans.“
HeinerBrand
þjálfari Gummersbach, var mjög
.ánægður með að meistaratitilinn
væri aftur kominn til Gummers-
bach. Þessi fymim leikmaður
heimsmeistaraliðs V-Þýska-
lands, 1974, og leikmaður
Gummersbach, hefur gert mjög
góða hluti með liðið. „Þetta er
ekki mér að þakka, heldur hef
ég stórkostlegan hóp af sterkum
leikmönnum. Þeir hafa staðið
vel saman og stutt við bakið á
hvor öðrum í gegnum súrt og
sætt Auðvita er það leiðinlegt
að Kristján Arason sé að fara
frá okkur. Hann er mjög sterkur
leikmaður sem hefur átt stóran
þátt í velgengni liðsins."
miHiigpr Nnilml
stórskytta Gummersbach, sem
skoraði sex mörk $ leiknum,
sagði að það væri sárt að sjá á
bak Kristjáni Arasyni. „Það er
mjög gott að leika við hliðina á
honum og samvinna okkar hefur
verið stórkostleg."
Thomax Krokowski
fyririiði Gummersbach, tók á
móti v-þýskalansdsmeistara-
skildinum, sagði að taugaspenn-
an hafí verið mikil þegar Kristj-
án Arason tók síðasta víta-
kastið. „Ég var þó alltaf viss
um að Kristján myndi skora.
Kristján er með stáltaugar."
Eins og leikmenn Gummersbach
væru að leika á heimavelli
Það var eins og leikmenn
Gummersbach væru að leika
á heimavelli, þegar þeir léku gegn
Dortmund í Westfalenhöllinni í
Dortmund. 4.500 áhorfendur sáu
leikinn, þar af 3.500 stuðnings-
menn Gummersbach, sem mættu
með lúðra, trommur og hrossa-
bresti.
Stuðningsmenn félagsins, sem
brunuðu eftir hraðbrautinni til
Dortmund, með bláhvíta trefla
hangandi út um glugga bifreiða
sinna, voru mættir tímalega til
leiks. Eftir leikinn lá leiðin til
baka og varð þá umferðarteppa
við afleggjarann til Gummers-
bach. Þar var lögreglan mætt til
að liðka fyrir umferðinni, þannig
að glaðir íbúar Gummersbach
kæmust fljótt heim.
fengu aukakast eftir aukakast.
Mikill darraðadans var stiginn á
lokasekúndunum og voru þá áhorf-
endur risnir úr sætum og hrópuðu:
„Gummersbach, Gummersbach... “
Þegar örfáar sekúndur voru eftir
braust Kristján í gegnum vöm Dort-
mund. Brotið var á honum og um
leið rann tíminn út. Meistaratitill
Gummersbach var f höfn. Stuðn-
ingsmenn félagsins ruddust út á
völlinn og þar stigu þeir og leik-
menn Gummersbach trylltan
stríðsdans. Leikmenn og áhorfend-
ur sungu og kampavínstappar flugu
um hina glæsilegu íþróttahöll.
Geysilegur barðttuleikur
Leikurinn var geysilegur baráttu-
leikur. Dortmund, sem var fallið,
mætti til leiks með alla sína sterk-
ustu leikmenn. Kristján Arason var
strax tekinn úr umferð. Það var
Thomas Rehse, fyrirliði Dortmund,
sem elti hann eins og skuggi.
Gummersbach byijaði vel og var
staðan orðin 3:0 fljótlega. Rudiger
Neitzel, tvö, og Kristján Arason,
sem skoraði eftir hraðupphlaup,
settu mörkin. Það var ekki fyrr en
á 6.13 mín. sem leikmenn Dort-
mund náðu að svara fyrir sig. Þeir
náðu sfðan að jafna, 4:4. Eftir það
var leikurinn í jámum og Dortmund
var yfír, 9:8, í leikhléi.
Þegar Kovacs skoraði, 13:12, fyrir
Dortmund í seinni hálfleik, kom
góður sprettur Gummersbach, sem
komst yfír, 13:15. Leikmenn Dort-
mund, sem léku mjög fastan vam-
arleik, náðu að jafna og komast
yfír, 16:15. Þá skoraði Dirk Lind-
horst, 16:16, og Kristján skoraði
úr vítakasti, 16:17. Á þessum tíma
varði Thiel, markvörður Gummers-
bach, tvisvar sinnum meistaralega
í röð. Eftirleiknum hefur verið lýst
hér að framan.
Kristján Mkur stórt hlutvsrk
Kristján Arason leikur stórt hlut-
verk í stórgóðu Gummersbach-liði.
Það sást best á því að um leið og
leikurinn hófst var hann tekinn úr
umferð. Ekki aðeins vegna þess að
hann er stórhættuleg langskytta,
heldur einnig að mörg leikkerfí liðs-
ins byrja hjá Kristjáni, sem er einn-
ig góður gegnumbrotsmaður og
hefur næmt auga fyrir línunni.
Kristján skoraði fímm mörk í leikn-
um. Þijú úr vítaköstum, eitt með
langskoti og eitt eftir hraðaupp-
hlaup. Þá átti hann eina línusend-
ingu sem gaf mark og Christian
Fitzek skoraði eitt mark, eftir að
hörkuskot Kristjáns var varið. Rud-
iger Neitzel lék vel og setti sex
mörk. Hann er langskytta góð og
snjall gegnumbrotsmaður. Frank
Dammann átti góða spretti og þá
fór Andreas Thiel á kostum í mark-
inu — varði þrettán skot. Mörg á
mjög örlagaríkum stundum.
Peter Kovacs er afar hættulegur
leikmaður. Hann skoraði 5 mörk,
þar af tvö úr vítum. Leikmenn
Gummersbach höfðu góðar gætur
á honum, þannig að Kovacs skoraði
ekki mark fyrr en eftir 25.23 mín.
Sá leikmaður Dortmund sem hrellti
leikmenn Gummersbach mest var
fyrrum félagi þeirra, Markus Hött,
sem skoraði sex mörk og lék vöm
Gummersbach oft grátt.
■ Úrsllt B/1B
■ LokastaAa B/16
Morgunblaðið/Frank Dittrich
Kristján Arason sést hér (t.h.) ásamt félaga sínum Rudiger Neitzel, kampakátir eftir að meistaratitill Gummersbach var í öruggri höfn í Dortmund. Þeir
félagar skoruðu ellefu af mörkum Gummersbach.
Kristján kvaddi með því
að skjóta í gegnum klofið
á markverði Dortmund