Morgunblaðið - 03.05.1988, Page 11

Morgunblaðið - 03.05.1988, Page 11
ptorflnnMaMfr /ÍÞRÓTTIR ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1988 B 11 Morgunblaöiö/Einar Falur flari. Ég fæddist í Reykjavík, en svo var farið með mig beint aftur í Pjörðinn. Ég hef nú aldrei skilið af hveiju..." Morgunblaðiö/Einar Falur a sinn sem við urðum íslandsmeistarar þá stilltum Morgunblaðiö/Einar Falur Islandsmeistarar íslandsmeistaratitlinum fagnað í Njarðvík. „Þetta var blátt áfram ólýsanleg tilfmning. Maður átti allan heiminn og gat gert hvað sem var...“ flokksins í Hafnarfírði og hefði ekki komist inn þó við hefðum fengið öll atkvæðin í bænum. Það var haft samband við mig fyrir kosning- amar og ég beðinn um að taka sæti á listanum. Ég sagði að ef þeir teldu eitthvað gagn af því þá væri ég til í það. En ég er ekki hrifínn af þvf að vera að setja menn á lista bara út af því að þeir eru einhver nöfn. Hvað varðar fram- tíðina þá á ég nú eftir að sjá sjálf- an mig í þingmannsgallanum." VII fð útlendinga Hver er helsti vandi körfunnar á íslandi? —„Við erum of litlir og vantar fleiri betri leikmenn. Ég er hlynntur því að útlendingum verði leyft að leika í deildinni og held að þeir gætu lyft körfuboltanum á hærra plan. Við þurfum að fá góða leikmenn og einhveija keppni því við verðum ekki góðir á því að spila bara við Færeyinga. Það er að sjálfsögðu ekki áhættu- laust að fá útlendinga. Það kemur til með að kosta félögin, að minnsta kosti 600 þúsund á ári, en þetta er áhætta sem við verðum að taka. Við sjáum það kannski best á Norð- urlandamótum. Við stóðum lengi vel í þessum þjóðum, á meðan við höfðum útlendinga. Én nú eru þeir bara famir að ulla á okkur, enda komnir langt framúr okkur. En við verðum að passa okkur. Bæði á því að þeir verði ekki of áhrifamiklir og einnig að þetta séu almennilegir menn. Ég held einnig að þeir eigi ekki að þjálfa heldur vinna og hefðu bara gott af því að vinna í fiski." LJtllr mögulelkar f úrtiöndum Hvaða möguleika eiga íslenskir leikmenn á erlendri grund? —„Ég er býsna hræddur um að möguleikar fslenskra leikmanna séu frekar takmarkaðir. Það er alltaf verið að leita að stórum mönnum með hæfileika litla mannsins og framboðið er víðast hvar nóg. Þó held ég að fslenskir leikmenn geti vel spilað til dæmis f Svíþjóð og Noregi. Ég er heldur ekki í vafa um að við eigum fullt erindi f Evrópu. Það sem við þurfum að gera er að koma reglu á landsliðsmál okkar og byggja upp alvöru landslið. Þá held ég að við getum óhræddir boðið Evrópuþjóðum birginn." Áeftirtvotitla Að lokum Pálmar: Hvað um framtiðina? —„Nú ég stefni að því að ljúka námi og draumurinn er að hefja sjálfstæðan atvinnurekstur. Hins- vegar er ekki Ijóst hvort ég fer út að læra eitthvað meira. Hvað varðar körfuboltann þá held ég að ég eigi eftir nokkur góð ár. Það eru ennþá tveir titlar eftir, Reykjanesmótið og Evrópukeppni meistaraliða. Þegar það er komið þá get ég hætt með góðri sam- visku!"

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.